Vísir - 15.06.1978, Page 6
(
Fimmtudagur 15. júni 1978 VISIR
——i ;m | ■ ——
Umsjón: Katrin Pálsdóttir
OPEC-rikin:
HÆKKA
ÞAU
OIÍUNA
Á NÆSTA
ÁRI?
— fundað um olíuverð í Genf
Oliumálaráðherrar
OPEC-ríkjanna funda í
Genf í Sviss á laugardag
og sunnudag. Áfundinum
verður fjallað um oliu-
verð, en mörg ríki hafa
látið það í Ijósi að þau
vilji hækka verð á oliu.
Einnig hefur verið rætt
um að taka upp annan
gjaldmiðil en dollara,
þegar verðið er ákveðið.
Stafar þetta af slæmri
stöðu dollarans undan-
f a r i ð*
Saudi-Arabía og iran eiga
helming allrar olíunnar
Ýmsar getgátur hafa verið
fram settar um þær ákvarðanir
sem teknar veröa á fundinum i
Genf. Þar koma saman alls 13
fulltrúar frá oliuútflutningsrikj-
um.
Talið er að Saudi-Arabía og
Iran vilji halda verðinu óbreyttu
og halda áfram i dollarann þeg-
ar verðiö er ákveðið. Þessi tvö
riki eiga heiming allarar oliunn-
ar sem kemur frá OPEC-rikjun-
um. Þvi eru atkvæði þeirra
þung á metunum.
Utanrikisráðherra Saudi-
Arabiu, Saud Al-Faisal prins,
lét hafa það eftir sér i Paris
fyrir nokkru að hann áliti ekki
grundvöll fyrir hækkuðu olíu-
verði eins og sakir standa. Hann
telur að ekki sé hægt að selja
oliuna á hærra verði en 12.70
dollara hverja tunnu, eins og
framboðið er nú.
Það kveður við annan tón hjá
Yamani oliumálaráöherra
Saudi-Arabíu. Hann sagði ný-
lega að OPEC-rikin yröu aö
koma sér saman um verðiö og ef
meirihlutinn væri hlynntur
hækkun, þá yrði aö taka tillit til
þess. Yamani hafði lýst þvi yfir
fyrr á þessu ári að enginn
grundvöllur væri fyrir hækkun
oliuverös næstu tvö árin en nú
hefur hann skipt um skoðun.
Hann telur veröhækkun vel
koma til greina.
Olíuskortur fyrirsjáan-
legur
Þrátt fyrir þær yfirlýsingar
sem Yamani oliumálaráöherra
Saudi-Arabiu hefur gefið telja
menn að riki hans muni ekki
beita sér fyrir hækkun oliuverðs
á þessu ári. Hvaö svo sem verð-
ur 4 árinu 1979.
Vegna þess hve framboö hef-
ur veriö mikið á oliu undanfarið
er talið liklegt að OPEC-rikin
tali sig saman og dragi úr út-
flutningi sinum. Það hefur þeg-
ar sýnt sig aö frá áramótum
hafa OPEC-rikin ekki sent eins
mikiö á markaðinn og á sama
tima i fyrra. Taliö er aö löndin
hafi dregið saman útflutning
sinn um 3.4 milljónir tunna á
dag fyrsta ársfjóröung þessa
árs.
Nú hefur Iðnþróunarstofnun íslands
gefið út islenskan staðal
um afköst og efnisgœði stólofna
IST 69. 1/ISO
40HMOUNM«TOrMINÍI WtAHO*
;1
Hf. Ofnasmiðjunni er
það sönn ónœgja að
tilkynna viðskiptavinum
sínum að ALLIR ofnar
sem framleiddir eru hjó
verksmiðjunni uppfylla
ströngustu kröfur um
gœði og VARMAAFKÖST
Húsbyggjandi áður en þú kapir ofna í húsið kannaðu hvort
ofnarnir uppfylla kröfur IST 69 .1/ISO það skilar sér síðar í
lœgri hitakostnaði, og mundu „merkið sem |f§l trY99*»*
gœðin" Leitaðu tilboða hjá okkur og láttu verðið koma
þér þœgilega á óvart.
HF. OFNASMIÐJAN
Háteigsveg 7 - Reykjavík — Simi 21220
w
Gert er ráð fyrir þvi að eftir-
spurnin eftir OPEC-oliu verði
um 42-48 milljónir tunna á dag
árið 1985, en á siöasta ári sendu
OPEC-rikin 31,5 milljónir tunna
á markaðinn daglega. Talið
er að oliuútflutningsrikin muni
ekki senda miklu meira magn af
oliu á markaðinn árið 1985 en
þau gera nú. Þvi verður greini-
lega oliuskortur, ef ekki verður
framboð frá öðrum löndum.
Þessi þróum mála verður til
þess að oliuverð fer hækkandi
með hverju árinu.
Líkleg hækkun á
næsta ári
Yamani oliumálaráöherra
Saudi-Arabiu hefur gefið i skyn
að framboðið á oliunni myndi
þegar á árinu 1980 minnka tölu-
vert. Þvi þurfi að hækka verðið
á næsta ári til þess aö komast
hjá þvi að það myndi hækka
margfalt, eins og gerðist árið
1973 þegar oliuverð fimmfald-
aðist.
1 viðtali við blaðið Chicago
Tribune sagði Shahinn af Iran
að hann hefði ekki i huga að
beita sér fyrir hækkun oliuverðs
á þessu ári, en ekki væri búiö að
ákveða hvort hækkun yröi á þvi
næsta.
Talið er að mörg riki innan
OPEC muni beita sér fyrir þvi
að oliuverð veröi hækkaö á
þessu ári. Þaö eru Alsir, Lýbia
og írak sem hafa lýst þvi yfir aö
að þau vilji hækka veröiö þegar
i stað. Þessi riki halda þvi fram
að ef oliuverð verði áfram mið-
að við dollara haldi þau áfram
að tapa stórum upphæöum
vegna slæmrar stöðu banda-
riska gjaldmiðilsins. Tap þeirra
segja þau að hafi numiö um 15
prósentum af útflutningsverð-
mæti á siðasta ári. Þessi riki
munu ekki gefa neitt eftir á
fundinum i Genf og ekki er vitaö
hve langt þau komast, eöa hvort
Iran og Saudi-Arabia verða að
láta undan þrýstingi.
Talsmaður traks hefur ráðist
harkalega að stóru oliufram-
leiðslurikjunum og sagt að þau
stuöli að þvi að þjóðunum sé
mismunaö. Hann sagði aö doll-
arinn heföi falliö um þriðjung á
siöustu árum og þvi væri oliu-
verö þriöjungi lægra nú en það
var árið 1973 eftir hækkunina.
—KP.