Vísir - 15.06.1978, Qupperneq 12
m _
Fimmtudagur 15. júni 1978 VISIR
12
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjólfstœðisflokksins er í Valhöll,
Hóaleitisbraut 1 - Símar: 84302 og 84037
Sjálfstæðisfólk! Vinsamlega látið skrif-
stofuna vita um alla kjósendur, sem verða
ekki heima á kjördegi. Utankjörstaða-
' kosning fer fram i Miðbæjarskólanum alla
virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
FÉLAG
FARSTÖÐVAEIGENDA
Síðumúla 22 - 105 Reykjavík -
Sími 34200- Pósthólf 19G
FR-D-4. Minnir félaga sina á, að það er
hver að verða siðastur til að láta skrá sig á
næsta námskeið i skyndihjálp sem haldið
verður. Tilkynnið þáittöku á skrifstofu
FR. Siðumúla 22. Simi 34100 & 34200.
Stjórn FR-D-4
Auglýsing um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdœmi Keflavíkur,
Njarðvíkur, Grindavíkur og
Gullbringusýslu
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriöjudaginn
miövikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriöjudaginn
miövikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
15. júni Ö-2926 — Ö-3000
16. júni Ö-3001—Ö-3075
19. júni Ö-3076 — Ö-3150
20. júni 0-3151 — Ö-3225
21. júni Ö-3226 —Ö-3300
22. júni Ö-3301 — Ö-3375
23. júni Ö-3376 — Ö-3450
26. júni Ö-3451—Ö-3523
27. júni Ö-3526 — Ö-3600
28. júni Ö-3601 — Ö-3675
29. júni Ö-3676 — Ö-3750
30. júni Ö-3751 — Ö-3825
mánudaginn
þriðjudaginn
miövikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriöjudaginn
miövikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
þriöjudaginn
miðvikudaginn
fimmtudaginn
föstudaginn
mánudaginn
14. ágúst Ö-3826 — Ö-3900
15. ágúst Ö-3901 —Ö-3975
16. á gúst Ö-3976 — Ö-4050
17. ágúst Ö-4051 — Ö-4125
18. ágúst 0-4126 —Ö-4200
21. ágúst Ö-4201 — Ö-4275
22. ágúst Ö-4276 — Ö-4350
23. ágúst 0-4351—0-4425
24. á gúst Ö-4426 — 0-4500
25. ágúst 0-4501 — 0-4575
28. ágúst 0-4576 — Ö-4650
29. ágúst Ö-4651 — Ö-4725
30. ágúst Ö-4726 — Ö-4800
31. ágúst Ö-4801 — Ö-4875
l.sept. Ö-4876 — Ö-4950
4.sept. Ö-4951 og þar yfir.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar að Iðavöllum 4 i Keflavik og
verður skoðun framkvæmd þar á fyrr-
greindum dögum milli kl. 8:45—12 og
13:00—16:30. Á sama stað og tima fer
fram aðalskoðun annarra skráningar-
skyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á eftir-
farandi einnig við um umráðamenn
þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld fyrir árið
1978 séu greidd og lögboðin vátrygging
fyrir hverja bifreið sé i gildi. Hafi gjöld
þessi ekki verið greidd verður skoðun ekki
framkvæmd og bifreiðin stöðvuð, þar til
gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin
tekin úr umferð, hvar sem til hennar
næst. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem
hlut eiga að máli.
Það athugast, að egin aðalskoðun fer fram
i júlimánuði.
Bæjarfógetinn i Keflavik,
Njarðvik og Grindavík.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu.
BLAÐASTRÍÐ
IBRIIÐHOLTI
,Ugluspegill
lifir enn
góðu lífij
segir
ritstjórinn
„Ég kæri mig ekki um
það að skólafélagar mínir
segji að Ugluspegill sé
ekki lengur gef inn út þeg-
ar það er bara hlé hjá
okkur", sagði Skúli Val-
berg ólafssony 12 ára rit-
stjóri úr Breiðholtsskóla,
sem vildi fá að leiðrétta
ummæli Páls og Karls
Ágústs sem gefa út
Breiðholtsblaðið er rætt
var við þá í mánudags-
biaði Vísis.
Skðli haföi meö sér á rit-
stjórnina 3. tölublaö siöasta árs
sem gefiö var út um jólaleytiö.
Siöan hafði mikið annriki veriö
hjá honum og meðútgefanda
Sigurði Erni Guöbjörnssyni.
Ritvél þeirra bilaði og siöan
komu próf og hvers kyns óáran.
Þeir væru hins vegar staðráðnir
i þvi að.taka upp þráðinn i haust
og gefa út myndarlegt blað.
Ugluspegill er gefinn út i 80 ein-
tökum, sem seld eru i Breið-
holtsskola og næsta nágrenni.
Kennari strákanna, Sigurveig
Kristjánsdóttir, hefur séð um að
fjölrita blaðið.
Skúli hefur verið í blaðaút-
gáfu um tveggja ára skeið.
Fyrst við Sögublaðið sem varð
blaðadauðanum að bráð og sið-
an hefur hann haldið sig að
Ugluspegli.
—BA.
Trésmiðir
mótmœla
bráða-
birgða-
lögunum
Algjör samstaða var meðal tré-
smiða Reykjavik á félagsfundi er
þeir héldu nýlega, um að mót-
mæla harðlega bráðabirgðalög-
um rikisstjórnarinnar frá því i
mai sl. Með lögunum væri rift
iöglega gerðum kjarasamningum
milli verkalýðsféiaga og atvinnu-
rekenda.
Sérstaklega mótmælti fundur-
inn þeim ákvæðum bráðabirgða-
laganna, er fælu i sér að álög
vegna yfirvinnu, orlof og llfeyris-
greiðslur væru verulega skert frá
ákvæðum kjarasamninganna.
Auk þessa mótmælti fundurinn
hinni aimennu kjaraskerðingu er
fælist i lögunum. Fundurinn
hvatti verkafólk til þess að mæta
þessari árás rikisstjórnarinnar á
samningsrétt verkalýðshreyfing-
arinnar og yfirlýstri áframhald-
andi kjaraskerðingarstefnu, yrðu
rikisstjórnarflokkarnir áfram við
völd með þvl að veita ekki fulitrú-
um rikisstjórnarinnar brautar-
gengi i komandi alþingiskosning-
um.
—ÞJH.
Afhentu trúnaðarbréf
Nýskipaöur sendiherra Brasillu hr. André Teixeira de Mesquita af-
hentinýlega forseta islands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Einari
Agústssyni utanríkisráðherra. Sendiherrann hefur aðsetur I Osló.
Nýskipaöur sendiherra Albanlu, hr. Bashkim Dino afhenti forseta
íslands nýlega trúnaðarbref sitt að viðstöddum Einari Agústssyni
utanrikisráðherra. Sendiherrann hefur aðsetur i Stokkhólmi.
Auglýsingasími VÍSIS er 86611