Vísir


Vísir - 26.07.1978, Qupperneq 9

Vísir - 26.07.1978, Qupperneq 9
„Svo er talað um unglinga vandamálið'' Tveggja barna móðir hringdi: Lengi hefur mig nú langað til að koma minu hjartans máli á framfæri en það er i sambandi við heimavinnandi húsmæður, sem samkvæmt minni reynslu eru hvorki metnar mannverur eða þjóðfélagsþegnar, nema svona rétt fyrir kosingar. Til hvers eigum við yfirleitt aö kjósa hvort þær Utivinnandi fái dagheimilispláss fyrir börnin sin eða hvort það eigi að skatt- leggja þær að engu eða hálfu leyti, svo ég tali nú ekki um þennan fæðingarstyrk sem þær einar njóta, burtséð frá þvi hvort nauðsyn ber til eða ekki og á ég þá að sjálfsögðu við hversu mikið fólk hefur úr að spifa. Ég minntist á þetta við fyrr- verandi alþingismann og svo vitlausa taldi hann mig vera, að hann bar það fyrir sig að þetta væru tekjur íír Ferðasjóði. t fyrsta lagi borgar hver vinn- andi maður i þessa sjóði þar á meðal maðurinn minn og ég þá um leið. 1 sambandi við skattlagninu hjóna, þá verðum við að borga fulla skatta á öll okkar laun, á meðan hinir eru með skattlagn- ingu til hálfs. Og hver er það sem brúar þetta bil? Það eru jú við sem heima erum, og eigin- menn okkar sem varla koma heim til annars en að sofa. Það er langt frá þvi að ég vilji neyða konur til þess að vera heima, ef þær af einhverjum ástæðum kjósa heldur að vera i vinnu annars staðar, ég veit að i mörgum tilfellum er það nauðs- yn en það er lika i mörgum til- fellum sem þær halda að þær missi sjálfstæði sitt að ein- hverjuleytiefþærfara að vinna heima. Það má kannski til sanns vegar færa þegar litið er á það sem á undan er sagt. En svo er það „þriðji hópur- inn” sem ég vildi minnast hér aðeins á. Þær konur nenna ekki að vera hangandi heima yfir börnum, eins og þær sjálfar segja. Eftir minni reynslu er það eitthvert mest þroskandi starf sem maður hvort heldur er karl eða kona, getur valið sér. Ég er ekki að segja að það geti ekki verið þreytandi á stundum. Ég er viss um að ef okkur, sem heima erum, væri gefinn kostur á þvl sama og hinir njóta, þá værumunfleirikonurheima. Þetta ástand hefur verið að þróast 1 þjóðfélginu i mörg ár. Eftir að dagvistunartlma lýkur ganga mörg þessi blessuð börn með lykla um hálsinn — pabbi og mamma eru i vinnunni. Ég veit dæmi þess að barn niður i sex ára þurfti að sjá um sig sjálft frá klukkan 9 til 5 á dag- inn. Svo er talað um unglinga- vandamálið. Ég spyr: Hvernig á annað að vera? Börnin hafa ekkert á að treysta og þekkja naumast for- eldrana og öfugt. Er nú ekki kominn timi til þess að okkur — og þá á ég við okkur húsmæð- urnar sé gert kleift að vera heima með okkar börn. Ég geri varla ráð fyrir að það verði margir sem vilja svara þessu og á ég þá við þá sem við völdin sitja. En ef einhver skyldi hafa áhuga langar mig til þess að sá hinn sami segi mér hvort og hvað húsmóðir með tvö börn spari rlki og bæ á árs- grundvelli. Ég veit að það er dá- góð summa. Nú vilja kannski sumir halda að ég sé ólærð og ég öfundi þá sem hafa betri menntun á bak við sig. Ég vil svara þvi strax: Ég hef haldgóöa menntun sem ég gæti notað hvenær sem væri, en mln trú ersúað það gætieng- inn gengið minum börnum I móður eða föður stað og annaö hvort okkar verði að verað heima og þar vil ég vera. Ég vona að mér verði og gert kleift að vera þar. Þaö eru fleiri hópar I þessu þjóðfélagi sem eru vanræktirog beittir misrétti, þá á ég m.a. við einstæða foreldra og ekkjur. Um leið og fyrirvinnan — eins og eiginmaðurinn er oft nefndur — er fallin frá eða ekki til taks, þá er farið að skattleggja þetta fólk á fullu jafnvel þó það sé með fullt hús af börnum. . Þetta er jafnréttið á íslandi 1978 — ég á ekki annað orö yfir þetta en svlvirðu. Staðreyndir um notkun Vega- gerðarinnar á bílaleigubílum Vegna lesendabréfs i Visi fyrr i þessum mánuði hafði Gunnar Gunnarsson starfs- mannastjóri hjá Vega- gerðinni samband við blaðið: „Ég vil láta það koma fram að Vegagerð rlkisins notar ekki bilaleigublla nema til þess að mæta álagstoppum. Arið 1977 var bilaleigubilum ekið 86 þúsund kílómetra i þágu Vegagerðar rikisins á öllu iandinu. Námu greiðslur vegna þessarar notk- unar 9.5 milljónum króna. Guðmundur Guðmundsson skrif- ar: Ég skora á nýja ráðamenn 1 Reykjavlk, og væntanlega vinstristjórn, að láta kanna rekst-. ur þeirra stofnana sem tvisvar eða jafnvel þrisvar á ári hverju krefjast slfelldra hækkana. Þar á ég helst viö Rafmagns- veitur Reykjavíkur og rlkisins, einnig er full ástæða til að kanna rekstur Hitaveitunnar, sem ásamt áöurnefndum Rafmagns- veitum er sl og æ að fara fram á hækkanir á afnotagjöldunum. Þá er núOrkustofnunineinn að- ilinn, sem mætti taka til athugun- ar, ásamt Vegagerö rfkisins. Þessar tvær stofnanir hafa gert sig seka um óhóflega notkun „bnaleigubfla” t.d. voru margir bllaleigubllar I stööugri notkun við Kröfluog jafnvel látnir standa þar, meöan starfsfólkiö fór I páskafrl, I 4-5 daga. Engum datt I hug að skila bllunum til bllaleig- unnar. Vegageröin notar bilaleigublla 9 Félagsmólastofnun Reykja- víkurborgar auglýsir eftirtaldar lausar stöður: í.Staða deildarfulltrúa i fjölskyldudeild. Félagsráögjafa- menntun skilvrði. 2. Staða ritara I rekstrar- og fjölskyldudeild. Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri. !8í Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar | É f Vonarstræti 4 sími 25500 _ ^ BÍLAVAL Laugavegi 90-92 viö hliðina á Stjörnubíó 1 1 ( \ Möfum opnað aftur ril sölu: 3lazer K5 árg. 74 3ronco sport 74 Datsun 100 A 74 Datsun diesel árg. 71 -iat 127 árg. 74 -iat 128 árg. 74 og 71 3olf L árg. 77 /auxhall Victor árg. 70 L BÍLAVAL Símar 19168, 19092

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.