Vísir - 26.07.1978, Blaðsíða 10
10
Miövikudagur 26. júli 1978 VISIR
VÍSIR
útgefandi: Reykjaprenth/f
Framkvæmdastjóri: DavI6 Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritst jórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta:
Guðmundur Pétursson. Umsjðn meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa-
menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson,
Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónlna Mikaelsdóttir, Katrln Páls-
dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi
Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens
Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón Oskar Haf steinsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askriftargjald er kr. 2000
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson á mánuöi innanlands.
Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla S. Verö i lausasölu kr. 100
Simar 86611 og 82260 eintakið.
Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Prentun Blaöaprent h/f.
Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur
Hallœrið í góðœrinu
íslenskt efnahagslíf hefur sjaldan einkennst af jafn
miklum þverstæðum eins og um þessar mundir. Á annan
veginn blasir við stöðvun f iskvinnslunnar vegna
rekstrarörðugleika, verðjöfnunarsjðður, sem ekki getur
staðið við skuldbindingar sínar og Seðlabanki, er ekki
hefur fjárráð til þess að standa undir lögbundnum af-
urðalánum til atvinnuveganna.
Á hinn veginn horfa menn á landburð af fiski. En það
heyrir til fáheyrðra tíðinda. Menn hafa einnig fyrir aug-
unum tölur um hæsta afurðaverð á erlendum mörkuð-
um, sem um getur. Þrátt fyrir þessi góðu ytri skilyrði
stöndum við frammi fyrir mjög alvarlegum efnahags-
legum vandamálum.
Meðan smám saman hefur sigið á ógæfuhliðina hafa
ekki verið gerðar sérstakar athugasemdir við, að einn
stjórnmálaflokkanna héldi með gerræðisvaldi við út-
flutningshaftakerfi. Þessi útflutningshöft voru sett á í
þeim tilgangi að knýja á um framkvæmd launamála-
stefnu Alþýðubandalagsins, sem felur það í sér að bæta
lífskjörin með verðlausum krónum.
Við þessar aðstæður ræða menn um það í f ullri alvöru
að ekki megi lækka gengi krónunnar. Fara verði nýjar
leiðir til lausnar þeim vanda, sem við er að etja. Nokkrir
stjórnmálamenn sitja meira að segja á rökstólum við
stjórnarmyndun með þessa kenningu að leiðarljósi.
Engu er líkara en menn átti sig ekki á því, jafnvel ekki
reyndir stjórnmálamenn, að það er fyrir löngu búið að
taka allar ákvarðanir um gengisfellinguna. Verðgildi
krónunnar hefur verið að hrapa stöðugt frá því að sól-
stöðusamningarnir voru gerðir fyrir ári. Héðan af verð-
ur því ekki breytt.
Menn verða að horfast í augu við, að gengi krónunnar
er fallið. Það á aðeins eftir að taka ákvarðanir um
skráningu krónunnar í samræmi við raunverulegt gengi
hennar. Gengisskráningarákvörðunin er aðeins af leiðing
af verðbreytingu krónunnar, í þessu tilviki enn einu
verðfalli hennar.
Það er ein þverstæðan til viðbótar sem landsmenn
hafa fyrir augunum um þessar mundir, að þeir sem nú
segjast hafna gengisfellingarleiðinni gengu harðast
f ram í þvi f yrir ári að taka hinar raunverulegu gengis-
fellingarákvarðanir. Þá þótti sjálfsagt að hækka kaup-
gjald um 70 til 80% á grundvelli 7 til 8% aukningar
þjóðartekna. Það var gengisfellingarákvörðunin.
Afleiðing þessarar ákvörðunar er sú, að við stöndum
frammi fyrir þvi að þurfa að skrá gengi krónunnar í
samræmi við verðrýrnun hennar. Þeir sem vilja snúa af
gengisfellingarbrautinni verða að átta sig á því að það
verður ekki gert nema með því að halda útgjöldum þjóð-
arinnar í samræmi við tekjurnar.
Þeir sem nú krefjast þess að gengisfellingarsamn-
ingarnir frá því í fyrra haldist óbreyttir í gildi eru þeir
einu, sem í raun og veru vilja fara gengisfellingarleiðina
i gegnum vandamálin. Það skiptir engu máli þó að menn
neiti að skrá gengi krónunnar rétt. Vandamálin, sem
hljótast af verðrýrnun hennar eru þau sömu eftir sem
áður.
Hættulegast af öllu er, ef mynduð verður ríkisstjórn,
sem heldur óbreyttum öllum þeim ákvörðunum, er leitt
hafa til verðfalls krónunnar. Þá heldur hallærið í góðær-
inu áfram, þó að kaupa megi gálgafrest enn einu sinni
með seðlaprentun.
Baráttan við nátt-
úruöflin stendur án af-
láts i Mývatnssveit.
Nýlega var þar tekin i
notkun ný þró fyrir
Kisiliðjuna en þær
þrjár sem upphaflega
voru gerðar hafa
skemmst i jarðhrær-
ingum.
Nýja þróin tekur um 300 þús-
und fermetra sem er jafnmikiö
og þær gömlu tóku allar til sam-
ans. Hún er nokkuð fjær verk-
smiðjunni og telja jarðvisinda-
menn hana á nokkuð öruggum
stað.
Ef hraun kemur upp i Bjarn-
arflagi er Kisiliðjunni hætta bú-
in og þvi hefur verið byggður
umhverfis hana mikill varnar-
garöur. Vésteinn Guðmundsson
framkvæmdastjóri, sagði I
stuttu rabbi við Visi að þessi
garðurdygði sjálfsagtekki mik-
ið ef stórgos yrði á þessum slóð-
um en það þætti sjálfsagt að
vernda verksmiðjuna eins og
hægt væri.
Uppi á varnargaröinum er
svo mikil vatnsleiðsla sem ligg-
ur niður i Mývatn. Með henni á
að reyna hraunkælingu,eins og
gert var i Vestmannaeyjum;ef
til kemur.
—ÓT.
Varnargarður með vatnsleiðslu ofan á liggur í kringum verksmiðjuna. Ef þarna
verður gos á að reyna að kæla hraunið eins og gert var í Eyjum.
Vísismyndir —ÓT.
Peysur fyrir 160 milljónir til Sovét:
Þegar búið að fram-
leiða upp í samninginn
Nýlega var gengið frá sölu-
samningi á 51.000 ullarpeysum
til Sovétrikjanna. Peysurnar
eru prjónaðar á Prjónastofunni
Heklu á Akureyri og er söluand-
virði þeirra um 160 milljónir
króna.
Hjörtur Eiriksson fram-
kvæmdastjóri iðnaðardeildar
Sambands islenskra samvinnu-
félaga á Akureyri sagði i viðtali
við Visi aö enda þótt þessi
samningur væri mjög ánægju-
legur þá þyrfti meira til ef kom-
ast ætti hjá samdrætti i starf-
semi iðnaöardeildarinnar á
Akureyri. Ofangreindur sölu-
samningur hefði verið á döfinni
fyrr á þessu ári og væri þvi nú
búiö að framleiða megnið upp i
þennan samning. Sagði Hjörtur
það vera knýjandi nauðsyn að
efnahagsmálin fari að skýrast.
Um almenn viðskipti íslands
og Sovétrikjanna er þaö helst að
frétta að sovésk sendinefnd hef-
ur á undanförnum dögum átt
viðræður viö islenska nefnd um
viöskipti Islands og Sovétrikj-
anna meö hliðsjón af 5 ára viö-
skiptasamningi rikjanna er
gildir árin 1976-80. A fúndum
nefndanna, var gengið frá söl-
unni á ullarpeysunum og rætt
um ráðstafanir til þess að
fryggja jafnari sölu á islenskum
ullarvörum. Lagöi Islenska
sendinefndin áherslu á nauðsyn
þess að greiða fyrir frekari söíu
áullarvörum oglagmeti ogenn-
fremur að flýta fyrir þvi' að
samningar um aukin kaup á
saltsild geti hafist.
Viðskipti Islands og Sovét-
rikjanna eru mjög þýðingar-
mikil en þann 1. ágúst n.k. eru
liðin 25 ár siöan fyrsti við-
skiptasamningurinn milli
islands og Sovétrikjanna var
gerður.
—ÞJH