Vísir - 26.07.1978, Blaðsíða 23
23
vism
Miðvikudagur 26. júli 1978
óformlegasti matstaður í
borginni...
Vísismyndir— GVA
Það skal tekið fram að þetta er ekki blaðamaður
ÞEOAR
MEMMA
Þegar blaðamenn nenna
ekkert aö gera, sem ekki er óal-
gengt, stinga þeirgjarnan upp á
þvi að þeir fari i bæinn, ásamt
ljósmyndara, til aö finna eitt-
hvert efni.
Ritstjórar taka jafnan vel í
slikar tillögur. Þeim er um-
hugað um að blaðið sé i snert-
ingu við mannlifið, eins og það
er kallað, og sjá fyrir sér frétta-
hauka sina á harðaspretti fram
og aftur um bæinn, I leit að stór-
fréttum.
Sannleikurinn er raunar sá að
það er sjaldan farið meira en
fetið, sérstaklega ef veðrið er
gott. Og það eru ljósmyndar-
arnir sem öll vinnan lendir á.
Það er jafnan farið á þeirra
bflum og þeir eru á hlaupum
fram og aftur.
Blaðamennirnir sitja hins-
vegará grasflöt einhvers staðar
og einbeita sér að þvi að lita
gáfulega út, sem að visu getur
verið töluvert átak.
—O-
En það er eiginlega sama
hvað menn eru latir, það er
alltaf hægt að finna eitthvað i
Reykjavik til að horfa á, hugsa
um, ljósmynda og jafnvel skrifa
um. Það eru að visu ekki allt
stórfréttir, en allt heyrir það
undir mannh'f og mannlíf er jó
það sem blöðin lifa ó. Bæjar-
ferðir eru þess vegna alltaf dá-
litið skemmtilegar.
Það er til dæmis alltaf dálitið
skemmtilegt að borða hádegis-
mat. meö stórum hópi manna
sem maöur hefur aldrei séð
áður, við bæjarins besta pylsu-
vagn. Raunar erhægt að reikna
með þvi að hitta þar að minnsta
kosti einn kunningja og boröa
með honum einhvern óform-
legasta hádegisverð sem hægt
er að fá i Reykjavik.
—O-
Það getur lika verið ágætt að
sitja smástund niðri við höfn og
öfunda fólkið sem á tjáldvagn-
inn sem er veriðað hifa um borð
i Selá. Selá. var að fara til
Skandinaviu klukkan niu I gær-
kvöldi og með henni fer einhver
heppin fjölskylda sem eyðir
næstu vikum i að tjalda hér og
þar i Skandinaviu. Það er alveg
hægt að þola það að öfunda
þetta fólk pinulitið, þegar
maður á sjálfur eftir allt sumar-
friið sitt.
Og þá er lika allt i lagi að
öfunda pínulitið, fólkið sem er á
flakki með skemmtiferðaskip-
inu „World Discoverer”, sem lá
i Reykjavikurhöfn i gær.
Frá þvi lá stööugur straumur
af fólki inn i miðbæinn, og við
bárumst með honum. það var
alitof mikil áreynsla að fara að
tala útlensku, en hins vegar var
allt i lagi með að fylgjast með
fólkinu, sjá hvað það skoðaöi og
gerði.
Með föðurlegri velþóknun....
Og tróðu sér í lopapeysur....
Það vakti athygli okkar að
gömlu húsin i miöbænum vöktu
athygli þess: „Oh, Brian, lock
at that beautiful old house”.
Það vermdi hjartað i gömlum
húsafriðunarmanni að það
skyldu vera gömlu húsin sem
vöktu þessa athygli. Þaö
stoppaði enginn við nýja gler-
höll til að sýna Brian hvað þetta
væri bjútifúlt hús. Kannske má
læra eitthvað af þvi.
Austurvöllur er orðinn dálitið
snjáður. Þar er gras horfið af
stórum blettum. En þótt Birgir
sé farinn frá virðist einhver
hafa áhuga á að halda grænu
byltingunni áfram, enda bylt-
ingamenn við borgarstjórnvöl-
inn. Það er þvi búið að girða af
verstu blettina og sá i þá.
Það prýöir lika Austurvöll að
þar er nú alla daga hópur af
blómarósum að hlúa að blóma-
beöunum. Jón Sigurðsson horfir
á þær með fööurlegum velvilja,
og það gera raunar fleiri.
Túristarnir úr „World Dis-
coverer” höfðu uppgötvað
Thorvaldsens basarinn i
Austurstræti og fyllt hann út úr
dyrum. Inni stóðu menn kóf-
sveittir við að troða sér i ullar-
peysur, sem þeir hengdu
gjarnan rúnastafa-hálsfestar
utaná, áöur en þeir héldu aftur
út i' milt sumarveðrið. Maður
sem var með uppbrettar skyrtu-
ermar, eins og Einar Agústsson
þegar hann heyrði úrslitin i
borgarstjórnarkosningunum,
hristi höfuðið yfir þessu liði, þar
sem hann stóð og þvoði glugg-
ana hjá Agli Jacobsen.
—O-
A leiðinni inn I Siðumúla
hittum við tvo menn sem voru
dálitið hátt uppi. Þeir voru að
mála ljósastaura og sögðust
klára þrjátiu á dag. Það skal
tekið fram, vegna nýja borgar-
Þrjátíu staura á dag.
stjórnarmeirihlutans, að
staurarnir eru ekki málaðir
rauðir.
Hins vegar skal ekkert sagt
um þá fullyrðingu að úr þvi sem
komið er, sé þetta eina leiðin til
að Reykvikingar hafi fallegan
og vel upplýstan borgar-
stjórnarmeirihluta.
—ÓT.
islenskir vinstri mennta- ;;
menn segjast vera sérstakir
málsvarar þess að hér á landi
verði við lýði ritfrelsi i sem
viðustum skilningi. Var i þvi
skyni meðal annars stofnaður
svonefndur máifrelsissjóður,
sem frægt er orðið.
Nú kann hins vegar svo að
fara að sjóður þessi snúist
gegn skapara sinum á i
óvæntan hátt, vegna skrifa
þingmannsins Ingvars Gísla- ■
I sonar i Timannn. Hefur frétta- ■
■ stjóri Rikisútvarpsins, Mar- ■
.1 grét Indriðadóttir, sem hingað ■
■ til hefur þótt frekar vinstri |
■ sinnuð, hótað þingmanninum |
g málshöfðun vegna skrifa hans |
_ um það sem hann kallar g
_ „fréttamafiu”.
5 Verði Ingvar sekur fundinn, ■
eftir máishöfðun Margrétar, g
E þá er raunverulega ekkert _
sjálfsagðara en Ingvar sæki _
® um styrk úr Málfrelsissjóði. _
■ Þar myndi maður Margrétar
■ Thor Vilhjálinsson, rithöf- jí
■ undur væntanlega taka þátt i ■
■ afgreiðslu málsins. Varla "
■ verður þvi trúað að vinir hins ®
■ frjálsa orðs láti Ingvar Gisla- ®
■ son ganga bónleiðan til búðar, ■
■ heldur veiti honum einhverja “
■ likn. En fari svo, þá er Thor ■
| Vilhjálmsson raunverulega ■
gfarinn að styrkja þingmann- ■
g inn i málaferlum hans við ■
gj eiginkonu sina. ■
Varla hefur blessaða menn- ■
m ina órað fyrir þessum mála- ■
a lokum þegar Múlfrelsis- |
r» sjóðurinn var stofnaður, og g
_ má eiginlega segja að hér hafi y
andskotinn hitt ömmu sina, g
"eins og stundum er haft að gg
“ orðatiltæki!
■ —AH .
Margrét
Ingvar
Markús
Nýr morgunn?
‘ Þótt flokksblöðin séu dálitið
■fúl út I siðdegisblöðin má sjá
®þess nokkur merki að vel-
“gengni hinna siðarnefndu
Hhefur oröið þeim fyrrnefndu
• nokkuð umhugsunarefni.
■ Þauerufarin að taka upp að
.nokkru leyti ýmsa þá „pósta’
Isem hjálpa til við að gera sið-
■degisblööin vinsæl. Þá hefur
■frést að Morgunblaðiö hafi
■hug á nokkuö miklum breyt-
■ingum og hefur blaðamönnum
Bþess verið falið að koma með
■tillögur þar um.
■ Jafnframt hefur heyrst að
gtil greina komi að ráða þriðja
gritstjórann. Morgunblaðið er
Sstærsta blaö landsins og álag á
þeim tveimur sem fyrir eru er
ggeysimikið. Markús örn
gAntonsson, hefur heyrst
"nefndursem þriðji ritstjórinn.
—ÓT.
Thor
Sjóðvitleysa?