Vísir - 11.08.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 11.08.1978, Blaðsíða 2
2 Bæjarstjórnin stefnir aö þvi að laða fleiri sýningar og opinbera viðburði til Selfoss. Hvað finnst þér um þá stefnu? Sunna Sturludóttir, vinnur i Vinnuskólanum, Selfossi: Ja, nú veitég ekki. Jú annars, ég held að þaö sé ágætt, og það væri gaman aö taka þátt i þvi. Guömundur Pálsson, vinnur I Vinnuskólanum, Selfossi: Mér list vel á þetta, þaö er ágætt aö fá fleiri ferðamenn inn i bæinn. Sirrý Björnsdóttir vinnur i Fossncsti, Selfossi: Ég held að þetta sé ágætis stefna, það er jákvætt að laða hingað fleiri ferðamenn. Siguröur Guömundsson, húsa- smiöur, Selfossi: Mér list mjög vel á þessa þróun, og tel það gott að fá hingað fleiri feröamenrv. Þór Magnússon, i sumarfrii: Mér list vel á það, ef hægt er að laða hingað fleira fólk: þaö er gaman aö þvi. Föstudagur 11. áeúst 1978 VÍSIK HVAÐ BORCA MIR í SKATTA? Tíu leikarar borga samtals 16,6 milljónir Hér birtist enn á ný skatt- ar ýmissa hópa í þjóð- félaginu. Að þessu sinni urðu leikarar fyrir valinu og voru valdir 10 af handahófi af þeim fjöl- mörgu sem í hugann komu. Sem sjá má á með- fylgjandi töflu er Helga Skúlasyni gert að greiða hæst opinber gjöld af Bessi 2.175.060 Rúrik 961.621 Tekjus.: Eignask.: Útsvar: Samt. gjöld: Gunnar Eyjólfsson Gilsárstekk 6 769.842 143.323 596.600 1.818.996 Bessi Bjarnason Skriöustekk 16 1.143.744 85.630 600.800 2.175.060 FIosi Ólafsson Tjarnargötu 40 382.891 0 517.400 1.116.291 Róbert Arnfinnsson Hofgeröi 8 882.679 0 570.400 1.742.098 Arni Tryggvason Bólstaðarhllð 60 629.169 0 402.500 1.170.212 Steindór Hjörleifsson Alfheimum 40 782.285 0 571.400 1.640.727 Helgi Skúlason Suöurgötu 31 1.143.663 13.905 692.200 2.255.998 Jón Sigurbjörnsson Njaröargötu 7 1.039.350 23.205 715.200 2.212.441 Rúrik Haraldsson Bakka, Seltjarnarnesi 345.036 0 345.400 961.621 Ævar R. Kvaran Æsufelli 6 844.986 0 469.500 1.512.043 þeim leikurum sem í úr- takinu lentu en Jón Sigur- björnsson og Bessi Bjarnason fylgja þar fast á eftir. Samtals var lagt á þá 16.6 millj. ( heildartölunni eru samtals álögð gjöld á ár- inu 1978 að skyldusparn- aði meðtöldum og barna- bætur hafa ekki verið dregnar frá. —KS SUMARVEGIR OG FERÐAHASAR Bláir eru dalir þinir, byggöin min i norörinu, sagöi Hannes Pétursson, og þaö má segja meö sanni aö sá er liturinn á döium tslands um þessar mundir. Yfirleitt er okkur ekkert kær- komnara en gott sumar, og nú stendur yfir eitt af þeim betri. Samt virðist eins og dregiö hafi töluvert úr umferö um svonefnda „mestu ferðainanna- helgi ársins”, sem nú er nýiiðin. A móti kemur, aö feröamanna- þunginn viröist jafn og þéttur alla daga vikunnar, og veröur þá verslunarmannahelgin engin undantekning, nema i næsta nágrenni Keykjanesskagans og hins gamla Seltjarnarness. Ung stúika, sem afgreiddi hjá Esso i Hornafirði alla versl- una rmannahelgina, hélt þvi fram, að rangt væri að kenna helgina viö verslunarmenn. Sjálf heföi hún slaöiö við bensin- afgreiðslu frá þvi á laugardags- morgni og fram á mánudags- kvöld, og heföi þvi ekki fundið fyrir þvi, að þetta væri hennar hclgi sérstakiega. Mikiö réttara væriaðkalla þetta feröamanna- helgina, ætti yfirleitt aö gefa henni nokkurt nafn svo litt breytt sem hún væri frá öðrum helgum sumarsins. En þaö væri sýniiega kominn tími tii aö verslunarmenn fengju sér einhvern annan tlma til aö frij- ast, enda væri stór hluti þeirra aldrei bundnari en einmitt á hinum lögskipaða fridegi.' Viö getum meö vissum hætti veriö sammála hinum unga og fjörlega benslnafgreiösiumanni i Hornafiröi. Nú er ár og dagur siöan kaupmenn og afgreiöslu- fólk I Reykjavik lagöi á hesta sina og hélt upp bakarabrekk- una ,,ud I det blaa”, og endaöi kannski langa og stranga reisu á Kolviöarhóli á sveittum og móöum hestum. Viö erum oröin þjóö á hjóium og nemum ekki staöar fyrr en I fjörrum landshornum, sé á annaö borö haldiö I feröalag. Svo er fyrir aö þakka stööugt batnandi vegum, að leiöir eru orðnar sæmilega greiðar ciginlega hvert á land sem er að sumrinu og fer þetta ástand batnandi ár frá ári. En eitthvað hefði nú verið sagt I gamla daga, ef stjórnvöld hefðu fariö aö leggja tööuskatt á hestafóöriö, af þvi fólk notaöi hesta til ferðalaga. Viö tökum hinsvegar þegjandi viö innheimtu bensinskattsins og keyrum jafnt og þétt virka daga sem helga, og verslunarmanna- fridaga sem jóladaga. Já„vegirnir eru I merkilega góðu ástandi, þótt ekki sé komiö á þá slitlag nema rúmlega aust- ur aö Þjórsárbrú og svo i þétt- býlisstööum sem þjóövegurinn austur liggur um. Menn komu þetta á hundraö og tuttugu kflómetra hraöa I sönnu versl- unarmannaskapi og vildu fara fram úr. Þaö er auövitaö skylt að verða við þeirri ósk, þótt hægja verði á sér niður I sjötlu til að verða viö beiöninni. Um stund er maður svo I skæru- hernaði undir dynjandi skothrlö frá afturhjólum þess, sem fór raunar I þetta feröalag aöeins til að vera á hundrað og tuttugu. En þótt náunginn brjóti öll lög og hagi sér eins og hálfviti, gæt- ir hann þess aö fara aö einum fyrirmælum. Hann keyrir meö fullum ljósum I átján stiga hita og sterku sólskini. Hafiö Ijósin á segja þeir, sem alltaf eru aö barna fyrir manni feröalagið I útvarpinu. Vegageröin hefur bætt vegina mikiö og hún vinnur I kyrrþey. Eiginlega er hún eina starfandi leyniþjónustan I landinu. Viö er- um stundum aö skammast yfir aö ekkert sé gert I gerö varan- legra vega, og aldrei inuni koma aö þvl aö viö getum ekiö hringinn á malbiki. En þetta er mikið styttra undan en menn halda, þökk sé leyniþjónustunni. A Ieiðinni til Egilsstaða er búiö að undirbyggja stærstan hluta leiðarinnar, séu firöirnir farnir, sem er eitthvaö lengri leiö en um Skriödal. Þaö er auðséö aö leyniþjónustan ætlar að beina umferöinni um firðina en ekki að fjallabaki og er það skiljan- legt. Og takist siðan skemmri skirnin i vegageröinni eins og tilraunir þær sem nú standa yfir gefa vonir um, þarf isingin ekki að vaxa mönnum mjög i augum, en hún er versti ókosturinn viö malbikiö. Og liklega veröur leyniþjónustan búin aö leggja varanlegan veg á öllum aöal- leiðum áöur en stjórnmálamenn hafa komist að niöurstööu uin hvort gerö varanlegra vega eigi að byrja á Vestfjörðum eöa i Landmannalaugum. Svarthöföi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.