Vísir - 11.08.1978, Side 3
VISIR Yöstudagur 11. ágúst 1978
Sjö frystihús á höfuðborgarsvœðinu hœtta rekstri 1. september n.k.:
UM 1300 MANNS MUNU
MISSA ATVINNU SÍNA
— talsmenn frystihúsanna segja taprekstur 4-6%
Langflest frystihús I Reykja-
vlk, Kópavogi og Hafnarfirði
hafa ákveðið að hætta starf-
rækslu 1. september næstkom-
andi vegna erfiðrar rekstrar-
stöðu og hallareksturs. Um 1200
— 1300 manns koma til með að
missa atvinnu sina á sjó og i
landi vegna þessarar ákvörðun-
ar að þvi er Vilhjálmur Ingvars-
son framkvæmdastjóri hjá i's-
birninum h.f. tjáði Visi.
Sagði Vilhjálmur að i þeim 7
frystihúsum sem koma til með
að hætta rekstri vinni um 1000
manns en gera mætti ráð fyrir
að bátar stöðvist einnig fyrir ut-
an samdrátt I þjónustugreinum
við fiskiðnaðinn. Engin ákvörð- :
un hefur ennþá verið tekin um
það hvenær fiskmóttöku verður
hætt i frystihúsum né starfsfólki
sagt upp en uppsagnarfrestur
hjá almennu verkafólki I frysti-
húsum er ein vika.
Þetta verkafólk missir
atvinnu sina til viðbótar þeim Vestmannaeyjum vegna lokun-
1100 manns sem misst hafa ar frystihúsa. Frystihúsamenn
atvinnu á Suðururnesjum og i um allt land þinga um það hvort
‘k .
Fólk að störfum I frystihúsi Kirkjusands I gær. Missir það
atvinnuna 1. september?
Vlsismynd: SHE
rekstri skuli haldið áfram eftir
fyrsta september. Samkvæmt
tilmælum aukafundar SH, sem
haldinn var á dögunum, eiga
niðurstööur að liggja fyrir um
miðjan þennan mánuð.
Þau sjö frystihús sem nú hafa
ákveöið að hætta rekstri eru:
Barðinn h.f. Kópavogi, Hrað-
frystistöðin i Reykjavik h.f.,
Isbjörninn h.f. Reykjavik, Ishús
Hafnarfjarðar h.f., Kirkjusand-
ur h.f. Reykjavik, Sjófang h.f.
Reykjavik og Sjólastöðin h.f.
Reykjavik. Þetta munu vera öll
frystihúsin á Stór-Reykjavikur-
svæðinu nema frystihús BÚR og
BCH.
I frétt frá forsvarsmönnum
þessara frystihúsa segir aö fisk-
vinnslan á Stór-Reykjavikur-
svæöinu sé nú rekin með 4-6%
halla, þrátt fyrir 11% greiðslu
úr Verðjöfnunarsjóði ofan á
söluverð framleiðslunnar. Slik-
ur hallarekstur gangi aðeins
timabundiö og séu lausaskuldir
fyrirtækjanna i hámarki nú
þegar.
Þeir benda á, aö fyrirsjáan-
legar séu miklar kauphækkanir
um næstu mánaðamót auk
hækkana á margvislegri þjón-
ustu.
Þá segir, að frystihúsin á
Stór-Reykjavikursvæðinu séu
mjög illa úr garði gerð til að
skila þeirri nýtingu á hráefni
sem æskileg og möguleg sé.
Stórauka þyrfti láoveitingu til
frystihúsanna til þess að nauð-
synleg hagræðing geti átt sér
staö.
Að lokum segir aö frystihúsin
hafi verið rekin með stórfelld-
um halla á árinu og þau geti
ekki lengur staðið undir sliku
tapi. Miðað við óbreyttar horfur
sé engin von að hægt væri að
reka frystihúsin eftir næstu
mánaðarmót.
—KS
Fer Stálvík ekki af
stað eftir sumarfrí?
Mjög alvarlegt ástand
hefur skapast i skipa-
smiðum sunnanlands og
viðar og er óvist hvort
Stálvik h.f. geti hafið
starfsemi eftir helgi en
þá koma menn til starfa
að afldínum sumarleyf-
um þar.
Jón Sveinsson, forstjóri Stál-
vikur, sagði við Visi i morgun að
engin verkefni væru fyrir rúm-
lega 100 starfsmenn fyrirtækis-
ins. „Skipasmiði sunnanlands er
að blæða út fjárhagslega vegna
þeirra ströngu lánareglna sem
settar hafa verið. Þetta gerist á
sama tima og liðkað er um lána-
reglur fyrir smiði á skipum
erlendis. Það eru fjölmargir
menn sem vilja láta smiða fyrir
sig skip innanlands en geta þaö
ekki vegna breyttra lánareglna
Fiskveiðasjóðs”.
Sagði Jón að þeir hefðu fengið
pöntun um smiði skuttogara fyrir
Sverri h.f. og hefði fyrirtækið lagt
fram 15% tryggingu af eigin fé
með 5% sem útveguð hefðu veriö
fyrir milligöngu iðnaðarráð-
herra. Hins vegar krefðust lána-
stofnanir frekari trygginga.
A sama tima og erfiðleikar
herja að sunnan fjalla auglýsir
Slippstöðin á Akureyri eftir
mönnum og sagöi Gunnar
Ragnars við Visi I morgun að
Slippstöðin hefði næg verkefni
þetta ár og út þaö næsta. Aö visu
væri ástandiö i þessari atvinnu-
grein alltaf nokkuð óöruggt en
það væri með skárra móti hjá
þeim nú. Sagði Gunnar að unniö
væri bæöi við nýsmiði, viögerðir
og breytingar. KS
Ungir sjálfstœðis-
menn boða til
aukaþings í haust
Stjórn Sambands ungra þings sambandsins í
sjálfstæðismanna hefur september í haust. Þessi
ákveðið að efna til auka- ákvörðun var tekin á
Geir Hallgrimsson á fundi með stjórnum Heimdallar og Sambands
ungra sjálfstæðismanna. — Vismvnd: SHE
sameiginlegum fundi
stjórna S.U.S. og Heim-
dallar í fyrrakvöld, en á
þeim fundi var rætt um
stöðu Sjálfstæðisf lokks-
ins að afloknum kosn-
ingum.
A fundinn mætti Geir Hall-
grimsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og ræddi um
þau mál sem efst hafa veriö á
baugi eftir kosningarnar. En að
undanförnu hefur Geir hitt að
máli stjórnir félaga og lands-
sambanda Sjálfstæðisflokksins.
Umræður voru mjög fjörugar
á fundinum og stóð heimsókn
hans yfir i rúma þrjá tima. A
þessum fundi var siðan ákveðið
að efna til aukaþings, svo sem
fyrr segir, til þess að leggja
drög að efldu starfi ungra sjálf-
stæðismanna á næstu
misserum. —HL
Shellstöðinni
v/Miklubraut.
HEFUR ÞÚ SMAKKAÐ ÍSINN FRÁ
RJÓMAÍSGERÐINNI?
e<
w m wm
nm*m