Vísir - 26.08.1978, Blaðsíða 2
2
mmmmmmmmmnawimmmuwinmammmmmmwammmmnmmmwmmm mm mummmmmuu
j Ávarp formanus
_ Góöan daginn!
g Nýtt rally er runnið upp.
— Vísisrallyið sem nú fer i
■ hönd er það lengsta, sem
| haldið hefur verið til
I þessa, bæði í tíma og
; vegalengd.
® Bifreiðaíþróttaklúbbur
■ Reykjavíkur færir sig
g stöðugt upp á skaftið og
«er ákveðinn I að linna
ekki látum fyrr en island
■ öðlast alþjóðlega viður-
■ kenningu sem rallyland.
Bílaíþróttir voru orðnar
vinsæl dægrastytting á
meginlandi Evrópu upp
úr síðustu aldamótum og
þar þykir bílasport i ýms-
um myndum sjálfsagður
fylgifiskur menningar-
innar.
íslendingar aftur á móti
hafa um langt árabil gert
litið annað i frístundum
sinum en að lepja úr glös-
um á skemmtistöðum
innan um mismunandi
aðlaðandi mannsöfnuð.
Stofnun bif reiðaíþrótta-
klúbbsins er því stór þátt-
ur í því að auka fjöl-
breytni í frístundastarfi
og veita athafnaþrá útrás
í heilbrigðri keppni.
Rally eins og Visisrallyið
kosta óhemju vinnu
margra iðinna handa og
hausa og undirbúningur
getur staðið mánuðum
saman. Núna, þegar
undirbúningi er að mestu
lokið, er mér efst í huga
að þakka öllum þeim
ótölulega fjölda fólks,
Arni Arnason, formaöur
Bifreiöaíþróttaklúbbs Reykja-
víkur.
sem lagt hefur hönd á
plóginn og þó sérstaklega
samstarfsfólki minu í
stjórninni, sem átt hefur
margar vökunætur í
rallyundirbúningi.
Að lokum langar mig að
bera fram þær óskir að
keppnin megi fara vel
fram, að keppendur sýni
sama keppnisanda og
drengskap i keppni, og að
áhorfendur sýni þá tillit-
semi að vera ekki i vegi
keppenda.
Til allra keppenda og
annarra segi ég: ,,Góða
skemmtun"!
Hér eru hjónin Sverrir og Rainer ólafsson að æfa sig fyrir Visisraliyið á
Rally-Skodanum.
MyndJens.
Þeir eru verklegir á þessari mynd félagarnir Garð-
ar Eyland og Gunnar Gunnarsson á „flóttamanna-
leiðinni” i Skeifurallyinu nú i vor.
Saga og keppnisgreinar
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur
Myndin er af stjórn Bifreiöaiþróttaklúbbs Reykjavfkur. A myndinni eru frá vinstri Arni Arnason, for-
maöur, Höröur Mar, Ólafur Guömundsson, Birgir Halldórsson, Guöjón Jónsson, Dröfn Björnsdóttir og
Alexander Bridde.
Bifreiöaiþróttaklúbbur
Reykjavikur var stofnaöur um
mánaöamótin september/ októ-
ber 1976, og voru stofnendur
bilaáhugamenn og rallyöku-
menn úr þeim tveim rally-
keppnum, sem haldnar höföu
verið fram aö þvf af FIB.
Sú fyrri, og jafnframt fyrsta
rallykeppni á tslandi var haldin
um vorið 1975 og I henni tóku
þátt rúmlega 50 bilar. Sigurveg-
arar voru þeir Halldór Jónsson
og Úlfar Hauksson á Fiat 128.
Þeir veröa meö I keppninni
núna og á sama bil. Annaö
rallyiö sem haldið var af F.t.B.
var ári seinna og þá sigraöi af
rúmlega 30 keppendum Magnús
Heigason á BMV 1600.
Keppnir BÍKR
Eftir stofnun BtKR elns og
klúbburinn er nefndur i daglegu
tali, hafa verið haldnar þrjár
railykeppnir á hans vegum.
Strax eftir stofnun klúbbsins
var efnt til sparaksturs, sem
þótti takast mjög vel, en isakst-
urskeppni sem klúbburinn hélt
eftir áramótin ’76-’77 gekk aftur
á móti ekki eins vel, mest vegna
þess að hún var ekki byggö upp
á réttan hátt, þ.e. hraðinn var
ekki nægur. Fyrsta rallykeppni
klúbbsins var svo um páskana
1977, og kepptu 24 bilar. Sigur-
vegarar i þeirri keppni voru
bræöurnir ómar og Jón Ragn-
arssynir.
Þeir sigruðu einnig i næstu
keppni, sem klúbburinn hélt, en
það var næturrallyiö svokallaða
og stóö yíir dagana 1. og 2. októ-
ber 1977. Þá kepptu 17, þar á
meðal eldgamall Ford Galaxy,
sem Halldór Úlfarsson ók, og
þótti þaö hin mesta frægöarför.
Skömmu eftir næturrallyiö
hélt klúbburinn aðra sparakst-
urskeppni meö mjög góðum ár-
angri. Þar kepptu 53 bilar i 5
flokkum. Komu þær tölur, sem
fram komu i eyðslu bila i keppni
þessari mjög á óvart, en það er
aö athuga, aö bilunum var ekiö
miklu varlegar en i vanalegum
akstri, þannig aö þessar tölur
fengjust varla i almennum
akstri, en hlutfalliö milli bila
ætti að vera nokkuð rétt. Kom-
ust sparneytnustu bilarnir 96,10
km á 5 litrum af bensini, pg
gerir þaö 5,20 1. á hundraðið.
Klúbburinn hélt þvi næst aðra
isaksturskeppni sina, seinni
hluta janúar I ár. Var þá formi
keppninnar breytt frá þvi sem
hafði verið i keppninni árið áð-
ur, og tókst keppnin með ágæt-
um. Sigurvegari var Bragi Þ.
Haraldsson á Austin Allegro.
Helgina 18. og 19. mars i vetur
var svo haldin rallykeppni. Þar
var Skeifurallyið og voru kepp-
endur 28. Þessi keppni átti upp-
haflega að vera i hálku og snjó,
en nokkrum dögum fyrir hana
fór að rigna, og hélst þ;iða fram
yfir keppni. Sigurvegarar voru
Halldór Úlfarsson og Jóhannes
Jóhannesson á Vauxhall Che-
vette.
Um mitt sumarið eða siðast i
júli gerði klúbburinn fyrstu til-
raun hér á landi með rally-
cross. Þetta var nokkurs konar
kynning og þótti takast mjög
vel. Atta bilar tóku þátt i kynn-
ingunni, en aðeins tveir voru
ökufærir eftir atganginn, svo
harður var hann. Meiningin var
að halda rally-crosskeppni
fyrir Visisrallyið, en fallið frá
þvi vegna þess að nauðsynleg
leyfi fengust ekki i tæka tið.
Fyrsta Ira.lly-c'ross keppni
veröur þvi haldin fljótlega eftir
Visisrallyið.
1 bráðabirgðastjórn klúbbsins
við stofnun hans voru kosnir
þeir Arni E. Bjarnason, Karl H.
Sveinsson og Magnús Helgason,
ená framhaldsstofnfundi i janú-
ar 1977 voru þeir Ragnar Gunn-
arsson, Karl H. Sveinsson og Jó-
hann P. Jónsson kosnir. Þeir
voru jafnframt i keppnisstjórn
fyrstu rallykeppninnar sem
klúbburinn hélt^uk þeirra Arna
Arnasonar og Ólafs Guðmunds-
sonar.
í lögum klúbbsins var svo
kveðið á, að aðalfund skyldi
halda i ágúst, svo að þá var kos-
ið á ný, auk þess að lögum var
breytt á þann veg að aðalfund
skyldi halda i febrúar. Þá var
jafnframt fjölgað i stjórninni úr
3 i 5. Ragnar Gunnarsson gaf
ekki kost á sér og var Arni
Arnason kosinn formaður i hans
staö en aðrir i stjórn voru kosnir
Jóhann P. Jónsson, Karl H.
Sveinsson, Ólafur Guðmunds-
son og Gunnar P. Gunnarsson,
og skipuðu þeir næstu keppnis-
stjórn, þe. i næturrallyinu. Sá
háttur hefur verið hafður á i
klúbbnum fram að þessu, aö
stjórnin hefur séð um fram-
kvæmd rallykeppna, en það
hafa verið kosnar nefndir i hin-
ar greinarnar. Á aöalfundi
klúbbsins i vetur var svo enn
fjölgað i stjórninni og þá i 7. Var
Arni Arnason endurkjörinn for-
maður, en aðrir i núverandi
stjórn og jafnframt keppnis-
stjórn þessarar keppni sem nú
fer fram eru þau ólafur Guö-
mundsson, Birgir Halldórsson,
Dröfn Björnsdóttir, Alexander
H. Bridde, Hörður Mar og Guð-
jón Jónsson. Formenn þeirra
keppnisnefnda sem starfað hafa
siðastliðið ár voru i sparakst-
ursnefnd Jón R. Sigmundsson,i
isakstursnefnd Sverrir ólafsson
og i rally-cross-nefnd Halldór
Úlfarsson.