Vísir - 13.09.1978, Blaðsíða 4
Breiðholt -
Sementsverksmiðjan -
RAFHA
Dómstólarnir
lítt veitt vondri
trú vernd
segir lögmaður RAFHA
Miövikudagur 13. september 1978 visœ
Framkvœmdastjóri Verslunarróðs:
Sakor verðlagsstjóra um
blekkingar og raka-
lausar fullyrðingar
„Ég fer í dag og greiöi fyrstu
greiösluna uppi þessar 13,5
milljónir. Þaö er hinsvegar rétt
aö taka þaö fram i sambandi viö
þessi tryggingarbréf aö ekki er
um aö ræöa veö fyrir tiitekinni
skuld meö ákveönum gjalddög-
um. Þarna er um aö ræöa trygg-
ingu fyrir ótilgreindum viöskipta-
skuldum, eins og þær kunna aö
vera á hverjum tima, upp aö
ákveönu hámarki.” sagöi Jón
Finnsson lögmaöur RAFHA er
borin voru undir hann ummæli
lögmanns Sementsverksmiöjunn-
ar. Lögmaöurinn hélt því fram i
Visi i gær aö þaö væri alrangt hjá
forráöamönnum KAFllA aö
veösetning heföi átt sér staö á
húseign fy rirtækisins aö
lláaleitisbraut 68, eftir aö
Breiöholt h/f seldi RAFHA eign-
ina. Og þegar væri búiö aö úr-
skuröa um uppboö vegna 13,5
milljónanna.
„Allsherjarveöiö þýöir þaö að
skuldin getur verið allt frá 0 krón-
um upp að 51 milljón króna.
Tryggingarbréfin eruupp á 42,5
milljónir króna og 8,5 milljónir. í
slikum tilvikum er þaö á valdi
veöhafans, Sementsverksmiöj-
unnar, hvort skuld stofnast og
krafa verður til. Það atriði, hvort
lögmæt skilyrði séu fyrir hendi til
aö veöréttur stofnist fyrir slikri
skuld, verður þá aö meta eftir þvi
hvernig ástatt var á þeim tima
þegar skuldin var stofnuð.”
Aðspuröur sagöi Jón allar kröf-
ur Sementsverksmiðjunnar i
Háaleitisbrautinni, að undan-
skildum 13,5 milljónum, vegna
skuldar sem Sementsverksmiöj-
an stofnar til við Breiðholt h/f
vera komnar til eftir að Breiöholt
h/f selur RAFHA. Að visu hefði
aðeins einu sinni veriö gefið út
veðbréf. „Sementsverksmiðjunni
var kunnugt um söluna og af-
salinu hafði verið þinglýst. Auk
þess var Sementsverksmiöjunni
sérstaklega tilkynnt að Breiðholt
h/f væri ekki lengur heimilt aö
nota eignina sem tryggingu fyrir
viðskiptum, sem færu fram eftir
afsalsdag. Þrátt fyrir þessa vitn-
eskju og þaö að Breiðholt setti
ekki aðrar tryggingar i staðinn
fyrir Háaleitisbrautina hélt
Sementsverksmiöjan áfram
viðskiptum við Breiðholt.
-1
Ef Sementsverksmiöjan taldi
að það væri ekki óhætt að halda
áfram viöskiptum viö Breiðholt
án tryggingar, þá átti hún að
stöðva viöskiptin við fyrirtækið
uns tryggingar væru settar.
Þaö er af þessum ástæðum sem
ég byggi það að þessi siöari
skuldasöfnun sé á ábyrgö og
áhættu Sementsverksmiðjunnar.
Forráöamenn verksmiðjunnar
vissu aö eignin hafði skipt um eig-
anda, og fyrri eigandi hann hafði
ekki eftir þaö heimild til að nota
eignina sem tryggingu eöa bak-
tryggingu fyrir viðskiptin.
Forráðamenn Sementverksmiöj-
unnar voru ekki i góðri tru, eins
og sagt er á lagamáli.
Dómstólar hafa litla tilhneig-
ingu til aö veita vondri trú
vernd.”
—BA
Postulíns-
hundur
með trefil
„Við vorum að leika okkur
saman eitt kvöldiö, og þá
föttuðum við, að viö höfðum
ekkert merkilegt að gera og
ákváðum að halda hluta-
veltu”, sögöu þrjár stelpur,
sem komu niður á Visi um
daginn með afrakstur hluta-
veltu, sem þær héldu til
styrktar lömuðum og fötluð-
um.
Stelpurnar heita Katrin
Heiðar, Auöur Eggertsdóttir
og Edda Jónsdóttir. Hluta-
veltan var haldin á Berg-
staöastrætinu, og söfnuðust
hvorki meira né minna en 24
þúsund krónur. Fénu hefur
nú veriö komið i hendur
réttra aöila. Stelpurnar
sögöust aldrei hafa haldiö
hlutaveltu áður. „Við
gengum i hús, og báðum fólk
að gefa okkur hluti. Einhver
gaf okkur trefil og postulins-
hund, og þeir voru líklega
flottastir. Svo settum við upp
iniða fyrir utan heimili
einnar okkar, og þegar fólk
sá miöann kom það við og
keypti”.
—AHO
Þorvarður Eliasson fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs
sakaði Georg Ólafsson verðlags-
stjóra um blekkingar og raka-
lausar fullyrðingar um innkaups-
verö innflytjenda hér á landi á
fundi í verðlagsnefnd siðastliðinn
laugardag.
Þorvarður lét gera bókun um
þetta á fundinum og fer hún hér á
eftir. Þess er aö geta aö Georg
Ólafsson verðlagsstjóri er nú á
þingi Norrænna verðlagsstjóra i
Finnlandi og þvf ekki hægt í bili
aö fá viöbrögö hans viö bókun
Þorvaldar.
Hann gerði ekki beina athuga-
semd við hana á fundinum en
áskildi sér rétt til aö fjalla um
málið þegar hann kæmi aftur
heim frá Finnlandi.
Bókun Þorvarðar er svohljóð-
andi:
„Þann 23. ágúst sl. birti verð-
lagsstjóri tölur sem hann segir
vera niðurstööur könnunar verð-
lagsstjóra allra Noröurlandanna
á innkaupsveröi innflytjenda.
Tölur þessar eiga að sögn verö-
lagsstjóra að sýna innkaup ts-
lendinga séu að meðaltali
21%-27% óhagkvæmari en inn-
kaup hinna Norðurlandaþjóð-
anna.
Tilkynning verðlagsstjóra
hefur siöan verið notuö til marg-
háttaðra árása á islenska
verslunarstétt sem er vænd um
þjófnaðjgjaldeyrissvik, skattsvik
og hvgrskonar óþjóölega starfs-
semi. Allur þessi áburöur er rök-
studdur með greinargerð verð-
lagsstjóra enda er hún þannig
gerð að hægt er að túlka niður-
stöður hennar meö hverjum þeim
hætti sem lunderni manna gefur
löngun til.
Verðlagsstjóri gefur i skyn i
áðurnefndri tilkynningu aö tölur
þær sem hann birtir séu einnig
gerðar opinberar á hinum
Norðurlöndunum meö sama hætti.
Hér beitir verölagsstjóri blekk-
ingum, þar sem ekkert hinna
Norðurlandanna hefur enn tekið
afstööu til þess hvort könnunin sé
marktæk og hafa ekkert birt um
tilvist hennar.
Ekki við rök að styðjast
Það liggur ljóst fyrir að verö-
lagsstjóri hefur birt tölur sem
hann sjálfur túlkar á þann veg að
þær gefa tilefni til viötækra og al-
varlegra árása á islenska
verslunarstétt. Jafnframt hefur
verðlagsstjóri komið i veg fýrir
að samtök verslunarinnar gætu
svaraö árás þessari með þvi að
neita þeim um allar upplýsingar
varöandi umrædda könnun sem
gætu orðiö þeim aö gagni og gert
þeim kleift að upplýsa málið.
Þrátt fyrir þetta liggja nú fyrir
nægar upplýsingar frá hinum
Norðurlöndunum til þess að full-
yrða að staðhæfing verðlags-
stjóra um að innkaup tslendinga
séu að meðaltali 21-27% óhag-
kvæmari en innkaup hinna
Noröurlandaþjóðanna, hefur ekki
við rök að styðjast.
Ekki veröur hjá þvi komist aö
vita verölagsstjóra fyrir þessa
framkomu og krefjast þess að
viðskiptaráöherra fyrirskipi hon-
um að veita fulltrúum verðlags-
nefndar og samtökum verslunar-
innarallar þærupplýsingar varð-
andi umrædda verðkönnun, sem
þeir fara fram á og telja nauösyn-
legar.
I framhaldi af ofansögöu er
ekkiúr vegiaðbenda áaðSviþjóð
sem er sögö hafa besta innkaups-
verðið er eina Norðurlandaþjóðin
sem hefur engan verðlagsstjóra.
Ennfremur má benda á aö Island
hefur valdamesta verðlagsstjór-
ann, viðtækustu verðlagshöftin og
ver að tiltölu meiru fjármagni til
verölagseftirlits en nokkurt hinna
Norðurlandanna.”
Fyrsto réttir
i Miðfirði:
Gerið \
reyfarakaup '
V
A
UTSOLU-
MARKAÐUR
k í Iðnaðarhúsinu
^ •* ■■ ii •
VINNUFATABUÐIN
opnaði útsölumarkað í
Iðnaðarhúsinu
í morgun.
Mikið úrval af:
Gallabuxum
Flauelsbuxum
Kuldaúlpum
við Hallveigarstíg
-1
%
%
%
%
*
*
Vinnuskyrtum
Peysum
ósamt miklu úrvali af
öðrum fatnaði
Stórlœkkað verð — Aðeins í nokkra daga
VINNUFATABÚÐIN
í Iðnaðorhúsinu *
*
*
*
Fœrra
féaf
fjalli
Réttað var i
Miðfjarðarrétt. Fyrstu
réttir á landinu voru i
gær og fyrradag og er
það um viku fyrr en
venjulegt er. í réttina
komu um 20 þúsund fjár
og er það færra en
smalast hefur i fyrstu
leitum hingað til.
í fyrra voru um 25
þúsund fjár i réttinni. í
dag verður svo stóðrétt i
Miðfjarðarrétt, en stóði
er heldur farið að fækka
þar um slóðir að sögn.
Viðdælingar fóru á fjall i
fyrradag og eru
væntanlegir með safnið
til byggða eftir helgina.
Réttarball var i
Ásbyrgi, félagsheimili
Miðfirðinga að Laugar-
bakka, en réttarballið á
Hvammstanga verður
laugardagskvöldið.
—SHÞ, Hvammstanga/-
KS