Vísir - 13.09.1978, Síða 7

Vísir - 13.09.1978, Síða 7
VISIR Miðvikudagur 13. september 1978 t Umsjón Guðmundur Pétursson Tekur Hussein þátt í fundinum í Camp David? Embættismenn Carters forseta i Camp David segja, að Egyptar og ísraelar á fundi þeirra Carters, Sadats og Begins hafi sýnt hreyfanleika og vilja til málamiðlunar i við- ræðunum til þessa, en óvist hvort það dugi til þess að leysa friðarum- leitanirnar úr þeirri sjálfheldu sem þær voru komnar i. Fundurinn i Camp David hefur nú staðið i tiu daga og ekki hefur frést að aöilar séu neitt nær sam- komulagi, en þegar hann hófst. Erilsamt var hjá fundar- mönnum i gær, og þykir það benda til þess aö byrjað sé aö fjalla um nýjar tillögur, sem Bandarikin og Israel standi saman að. Kvisast hefur, aö Carter hafi kynnt þær tillögur fyrir Sadat á mánudagsmorgun. 1 gær átti Sadat simtal viö Hussein Jórdaniukonung, sem staddur er i London. En Hussein konungur hefur áður látið eftir sér hafa, að hann mundi tilleiðan- legur til þess að taka þátt i fundinum, ef Israel gæfi til Slikir skyrtubolir seljast um þessar mundir eins og heitar lummur vegna fundarins i Camp David. kynna, að það mundi vilja skila aftur vesturbakka Jórdan. Ennþó bardagar í Nicaragua Þjóðvarðlið Nicaragua á enn í hörðum bardögum við uppreisnarmenn í f jór- um meiriháttar borgum landsins/ hvað sem líður yfirlýsingu Anastasio Somoza/ forseta um að bældur hefði verið niður allur órói í landinu. 011 umferö til og frá borgunum Masaya, Chindandega, Leon og Ésteli er hindruð af þjóðvaröliðinu Þyrlur hersins fluttu 30 særða hermenn og 100 sára óbreytta borgara frá Masaya i gær, þegar yfirvöld Jeyfðu i fyrsta sinn sjúkraliðum Rauða krossins að fara inn i borgina, eftir að hafa synjaö um leyfi til sliks i þrjá daga. Talsmenn þjóövaröliðsins segja, að hermennirnir hafi borg- irnar á sinu valdi, þótt ennþá sé barist. Bandariskur flugmaður, sem slapp út úr Masaya i gær, segir, aö þar sé ljótt um að litast. Likin liggi eins og hráviöi óhirt á götun- um. Flugmaðurinn sagðist hafa orðið vitni að þvi, þegar varö- flokkur hermanna kom að særðri konu, sem kveinaði undan sárum sinum og kvaöst vilja deyja. Einn hermaðurinn lyfti byssu sinni og bar. enda á þjáningar hennar. í morgun mátti sjá rey'k leggja frá byggingum i Masaya, þar sem haröast hefur verið bar- ist. Þar rikja nú herlög. Yfirvöld Nicaragua sögðu i gær, að þjóövaröliöið heföi út- rýmt flokki 50 skæruliöa, sem reynt höfðu að laumast yfir landamærin frá Costa Rica. Hvatti Somoza forseti Costa Rica til aö auösýna meiri aðgát viö landmærin. Sagði hann, aö her- menn hans heföu ekki farið yfir landamærin. — Yfirvöld Costa Rica halda þvi hinsvegar fram, að herþotur frá Nicaragua hafi rofiö lofthelgi Costa Rica til þess að ráðast á ökutæki, sem var á ferö á þjóðvegi. Handtaka œttmenni Steve Bikos öryggislögregla Suður-Afriku handtók í gær Kaya Biko bróður Steve Bikos, sem lést fyrir ári af völdum höfuðmeiðsla er hann hlaut i gæslu lögreglunnar. Segir i fréttum frá Jóhannesar- borg, aö Kaya Biko sé meðal fjór- tán ættmenna og vina Steve sem hnepptir hafa verið i varðhald siðustu daga. — Af hálfu öryggis- lögreglunnar er varist allra frétta af handtökunum. Kaya var hafður i haldi I nokkr- ar klukkustundir i desember i fyrra þegar stóö yfir rannsóknin á dauða Steve bróöur hans i fangelsinu. Eins og menn muna komst rétturinn að þeirri niður- stöðu að enga sök væri að finna á dauða hans hjá fangavörðunum. — 1 augum umheimsins var það eitthvert versta réttarhneyksli siöari ára. Meðal annarra sem handteknir hafa verið að undanförnu — i greinilegum ótta við að eins árs dánarafmæli Steve kynni að hrinda af staö mótmælaöldu — eru systir Steves og eiginmaöur hennar. 30 milliónir fyrir barðinu ó flóðunum Stórfljótin Ganges og Jumuna hafa flætt yfir bakka sina og brotið niður stiflugarða i Ind- landi. Eru nú hundruð þorpa i Norður-Indlandi umlukin vatni, en ibúar margra þeirra hafa orðið að yfirgefa þau. Þúsundir hafa þannig neyðst til þess að yfirgefa heimili sin vegna flóðanna og kveður sérlega rammt að þvi I austurhlutum Utt- ar Pradesh og Bihar. Alþjóða-rauðikrossinn ætlar að rúmar 30 milljónir manna hafi orðið fyrir barðinu á flóðunum á einn eða annan máta. Her Indlands hefur aðstoðað fólk við að komast burt af flóða- svæðunum, en samt er óttast, að hundruð hafi drukknaö. Þessi mynd var tekin af slys- inu á kappakstursbrautinni að Monza, þegar ökuþórinn Ronnie Petterson frá Sviþjóð hlaut þau meiðsli.sem drógu hann til bana. — Rannsókn stendur nú yfir á tildrögum slyssins, en ökuþórar i heimsmeistarakeppninni segja brautina of hættulega til keppni. Marina Oswald ANDVANA FÆDÐ RÍKISSTJÓRN Allar horfur þykja á þvi, að utanflokkastjórn Portúgals, sem setið hefur i hálfan mánuð endist ekki miklu lengur úr þessu. — Er að henni veist jafnt af hægri sem vinstri flokkum á þingi. Alfredo Nobre da Costa, for- sætisráðherra, og fulltrúi hans hafaneitaðaðleggja árar Ibátog segja, aö nýja stjórnin muni biða dóms þingsins. Það þykir þó fyrirsjáanlegt hver hann verður. Fyrir þinginu liggur til afgreiðslu frumvarp um sparnaðarráðstafanir rikisstjórn- arinnar i efnahagsmálum, en jafnframt liggja fyrir þrjár frá- visunartillögur, sem búist er við, að stjórnarandstæðingar samein- ist um. Jafngildir þaö eðlilega falli stjórnarinnar, ef hún fær ekki komið mikilvægustu frum- vörpum sinum i gegnum þingið. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar, ihaldsflokksins, sósialista og kommúnista, hafa allir lokiö upp einum munni um, að þessi rikisstjórn sé andvana fædd. ber vitni vegna morðsins á JFK Marina Oswald Porter, ekkja Lee Harvey Oswald, manns- ins, sem talinn er hafa ráðið John F. Kennedy forseta af dögum, ber opinberlega vitni i dag i fyrsta sinn i fimmtán ára rannsókn þessa dularfulla morðmáls. Vitnisburöur hennar verður upphafið á köfun i lif Oswalds vegna rannsóknar fulltrúadeildar Bandarikjaþings á morði Kenn- edys. — Ekki er búist viö þvi, að Marina geti varpaö nýju ljósi á málið. A sinum tima bar Marina vitni fyrir Warren-nefndinni, og hélt þvi þá fram, að Oswald heföi verið einförul sál, sem óhugsandi væri, aö heföi staöiö i samsæri með öðrum. 1 nýlega útkominni bók „Marina og Lee’ eftir Priscilla Johnson McMillan. hefur höfund- ur eftir Marinu, að hún geti enn þann dag i dag ekki skilið, hvaö hafi komið Oswald til þess aö drýgja ódæðiö.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.