Vísir - 13.09.1978, Page 8
fólk
Karen Bhck og IGt Carson
Rétt eftir að tökum á
kvikmyndinni ,,Nash-
ville" lauk á árinu 1975,
barði blaðamaður nokk-
ur að dyrum Karenar
Black, sem fór með eitt
hlutverkið i myndinni,
og bað um viðtal. Eftir
fimm klukkustunda við-
tal, vildi þessi sami
blaðamaður eiga
stefnumót við viðmæl-
anda sinn.
En Karen
sagði nei. Klukkan þrjú
þá um nóttina hringdi
siminn í hótelherbergi
blaðamannsins. Karen
var í simanum og sagði:
„Ég ætla ekki að sofa
hjá þér en mig langar til
að hitta þig aftur."
Blaðamaðurinn, Kit
Carson, sem nú er rit-
höfundur er jafnframt
eiginmaður Karenar í
dag. Þau giftu sig ekki
löngu eftir viðtalið og
sex og hálfum mánuði
eftir brúðkaupið fæddist
þeim sonur, Hunter sem
nú er að verða þriggja
ára. Karen tók sér 18
mánaða frí til þess að
sinna syninum, en er nú
ein afkastamesta leik-
kona i L.A. Hún er 36 ára
og á að baki 25 kvik-
myndir,allar frá siðustu
10 árum.
Kann ekki við sig
á hvíta
Henry Fonda hefur
ekki enn getað sætt sig
við að horfa á sjálfan
sig á hvita tjaldinu.
Reyndar kveðst hann
ekki þola það. ,,Ég þoli
ekki að heyra í sjálfum
mér" segir hann, „og ég
er ekkert hrifinn af þvi
hvernig ég lít út," Fonda
sem orðinn er 73ja ára
gamall á að minnsta
kosti 90 kvikmyndir að
baki, en hefur ekki séð
nema 15 af þeim. Þar á
meðal „The Grapes of
Wrath", „The Ox-Bow
Incident" og „Twelve
Angry Men". Það er
reyndar móðir Marlon
Brando sem á heiðurinn
tjaldinu
af því að hafa komið
Fonda út i leiklist. Það
var í fæðingarbæ Fonda,
Omaha.
Með garðyrkjudellu...
Stjörnurnar i Holly-
wood eru greinilega með
garðyrkjudellu. Við
sögðum frá Peter
Strauss hér í „Fólki"
um daginn og birtum
mynd af honum i hjól-
börum í garðinum sín-
um. Nú er það Sally
Kellerman, sem margir
muna sjálfsagt úr t.d.
MASH. Sally segist
hreinlega vera vitlaus í
blóm. „Hvar sem ég er
verð ég að hafa útsýni
og blóm", segir hún. Og
það hefur hún heima hjá
sér i Kaliforníu. Inni er
allt fullt af blómum i
öllum herbergjum og
ekki verður víst annað
sagt en að garðurinn sé
skrautlegur. Hún
vaknar oft klukkan sjö á
morgnana til þess að
bregða sér út í garð.
„Ringo Starr, veifar til
mín þegar hann gengur
framhjá og ég vonast
alltaf eftir bíl, fullum af
túristum sem benda á
mig og horfa á mig i
garðinum." Sally hefur
að sjálfsögðu garð-
yrkjumann sem kemur í
garðinn einu sinni i
mánuði, og þegar hún
bregður sér í burtu fær
hún vini sina til að vökva
fyrir sig. Það má svo
fylgja með, að Sally er
40 ára gömul.
i Umsjón: Edda Andrésdóttir
_„örvæntingaróp þeirra hljóma í
eyrum mér” snökti maöurinn.
„Þaö var hræöilegt”.
„Furöulegt”, sagöi
Tarsan. „Viö förum
strax á morgun aö
leita fílsins”.
Miðvikudagur 13. september 1978 VÍSIR
. pao er best aö
! einhver af
i þessum fjall-