Vísir - 13.09.1978, Page 10

Vísir - 13.09.1978, Page 10
10 Miðvikudagur 13. september 1978 VISER Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjdri: Daviö Guftmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón meft helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blafta- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Ellas Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrín Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón Öskar Haf steinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 Ifnur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 100 eintakið. Prentun Blaftaprent h/f. Er bókunin úrslitaatriði eða efndirnar? Margar ríkisstjórnir hafa gripið til þess ráðs í erf ið- um efnahagsþrautum að stíga dans í kringum vísitöl- una. Núverandi stjórn er ekki að troða nýjar slóðir í þeim efnum. En einmittfyrir þær sakir þykjast menn sjá nokkurn veginn fyrir, hvernig f ramvindan verður. Dansinn i kringum vísitöluna hefur að vísu verið stiginn með ýmsum hætti. En hann er í þvi fólginn fyrst og fremst að nota vísitöluna til þess að búa til falskar verðlækkanir. Ríkisstjórnin segist t.d. hafa lækkað mjólkuraf urðir. Hið rétta er hins vegar að þær hækkuðu verulega i verði. I stað þess að borga kaupmanninum gjalda menn skattheimtumönnum ríkissjóðs mjólkurpeningana. Þeir senda þá til ríkisféhirðis, sem seinna sendir þá Framleiðsluráði landbúnaðarins, er loks kemur þeim til vinnslufyrirtækjanna. En kjarni málsins er sá, að mjólkin hækkaði en lækkaði ekki, þó að færri krónur fari yfir búðarborðið. Það er með öðrum orðum hægt að lækka vísitöluna með því að auka niðurgreiðslur. Bein skattheimta hefur á hinn bóginn ekki áhrif á vísitöluna. Þá miklu hækkun, sem nú varð á landbúnaðarafurðum þarf ekki að bæta i kaupgjaldi af því að hún er ekki borguð yfir búðarborðið heldur til skattheimtumanna ríkis- sjóðs. Verkalýðshreyfingin hefur alla jafnan sætt sig við þennan dans í kringum vísitöluna. Raunveruleg lífs- kjör haf a ekki í langan tíma komið henni við. Forystu- menn verkalýðsfélaganna hafa heldur kosið fleiri verðlausar krónur en færri með verðgildi. Vísitölu- dansinn hefur því sjaldnast valdið þeim áhyggjum. En núætti f lestum að vera Ijóst, að litlu máli skiptir fyrir almenn lífskjör, hvort menn borga neysluvör- urnar hjá kaupmanninum, gjaldheimtustjóra eða sýslumönnum. Vörurnar kosta það sama. Eini munur- inn er sá, að niðurgreiðslukerfið er dýrara. Spurning er því hvort menn ættu ekki í eitt skipti f yrir öll að viðurkenna staðreyndir og takmarka veru- lega kauphækkanir með vísitölu. Það er miklu heiðar- legra að ganga hreint til verks og breyta vísitölunni, heldur en að stíga endalaust dansinn í kringum hana, enda sýnir reynslan að sú aðferð dugir skammt. Alþýðuflokkurinn gerði það að úrslitaatriði varð- andi þátttöku í núverandi ríkisstjórn að vísitölukerfið yrði endurskoðað fyrir 1. desember n.k. Ráðherrar flokksins hafa á hinn bóginn ekki viljað svara því, hvortefndir á þessu fyrirheiti verði látnar ráða úrslit- um um áf ramhaldandi setu í stjórninni. Af því mætti ráða, að bókunin skipti meira máli en efnislegar ef nd- ir hennar. Framsóknarf lokkurinn hef ur einnig lýst áhuga á að endurskoða vísitölukerfið og formaður þess flokks hefur í hreinskilni viðurkennt að markmiðið með slíkri endurskoðun geti ekki verið annað en að tak- marka sjálfvirkar launahækkanir. Þetta er góðra- gjaldaverð afstaða. Og vissulega færi vel á því, ef þessari ríkisstjórn tækist að taka á sjálfu vandamál- inu í stað þess að stíga dans í kringum það. Fyrstu aðgerðir stjórnarinnar benda ekki til þess að svo verði. Raunverulegur áhugi þessara tveggja stjórnarf lokka á kerf isbreytingu á þessu sviði kemur í Ijós, þegar á það reynir, hvort Alþýðuf lokkurinn lætur bókunina eina duga eða hvort efndir hennar verða einnig úrslitaatriði fyrir áframhaldandi stjórnarsam- starfi. , Hvaða gildi hefur vinnustaðurinn? Beggja hagur leiðarljós. Viðleitni tii að brúa bil milli striðandi höpa er virðingarverð og að efla samhug og samkennd aðila vinnumarkaðarins, hvort sem það er gert með auknu at- vinnulýðræði eða samningum um kaup og kjör. Kjara- samningar eru oft reknir meira af kappi en forsjá og allir sem hlut eiga að máli skaðast á þeim. Kjarasamningar eru viö- skipti þar sem annar selur kunnáttu sina, tima og orku en hinn kaupir við umsömdu verði — launatöxtum — og eins og i öðrum viðskiptum verður beggja hagur að vera leiðarljós- ið. Varðandi atvinnulýðræði, þar sem starfsmenn öðlast ihlutun um stjórnun eða hlutdeild i at- vinnufyrirtækjunum, er þaö aö segja að varla er nokkur svo skyni skroppinn að hann skilji ekki, að það eitt fyrirtæki er vel rekið sem skilar arði. Hagnaði sem að hluta gengur til þeirra sem starfa við fyrirtækið og að hluta aftur inn i reksturinn hon- um til eflingar, uppbyggingar og endurbóta. Rekstur fyrir- tækja, sem veltast ár frá ári án þess aö ná að mynda eigið fé, sjálfum sér til uppihalds er eins vonlaus og að elta eigið skott. Þjóðardraugurinn Hægara er um að tala en i að komast á landi, þar sem fólkið slæst árum saman við þjóöar- drauginn án þess að koma hon- um á kné. Verðbólguviman sem viö Islendingar vöðum i er alls- herjar blekking og ef einhvern- tima veröur upp staöið hafa all- ir tapað. Við þykjumst öll vera andvig verðbólgunni en hugsum Vilji til að ráðast að rótum meinsemdarinnar samfara pólitisku hugrekki til að fram- fylgja svo óþægilegum aðgerð- um. Ef ekki er efnahagslegt sjálfstæði verður ekkert annað sjálfstæði, mælti framherji i sjálfstæðisbaráttu tslendinga, þegar hann brýndi þjóð sina til dáða á öldinni sem leið. Sann- leikur sem er i fullu gildi, hvort heldur þjóð á i hlut eða einstaklingur. Erlendar lántökur til fram- kvæmda sem eru verðmæta- myndandi eru jákvæðar og sjálfsagðar en lántökur erlendis til að standa straum af innlendri neyslu eða til að greiða niður aðrar skuldir er fjármálapólitik sem fær ekki staðist til lengdar. Hver og einn getur sannprófað það með þvi að yfirfæra fyrir- bærið á sinar einkaaðstæður. Skuldasöfnun umfram eöli- lega umsetningarmöguleika innanlands er varhugaverð, skapar þenslu á vinnu- markaðinum, er verðbólgu- hvetjandi og getur leitt til þess, að við einn góðan veðurdag missum tökin á eigin tilveru sem sjálfstæð þjóð. Hagfræði Egypta Islendingar eru matvæla- framleiðendur og matvæli eru viðkvæm verslunarvara, háð verðsveiflum sem stafa af of- vexti eitt árið eða uppskeru- bresti það næsta, góðri vertið eða gæftaleysi. Okkur er öðrum fremur nauðsynlegt að halda i heiðri hagfræði Egyptanna fornu, sem kristallaðist i ráðn- ingu á draumi Faraós um feitu kýrnar og mögru. Að taka skuli frá i góðæri og geyma til harð- æris er i fullu gildi á öllum tim- um. Hér á landi hefur það verið gert með sjóðamyndun og er verðjöfnunarsjóður fisk- iðnaðarins af þeim toga spunn- inn. En nú er hann tómur þrátt fyrir góðar gæftir og mikla veiði á þessu ári — svo mikla veiði að fólk i frystihúsunum kveinkar sér undan vinnuálaginu og spyr hvort ekki megi stokka upp vinnutilhögunina og taka upp vaktavinnu þannig aö einhvern- tima komi óþreyttur hópur til starfa. Af annarlegum ástæðum söfnuðust upp óseldár vöru- birgðir i landinurþað sem átti aö geyma til harðærisins hefur verið notaö i góðærinu. Það hlýtur að vera feigur maður sem ekki vill snúa þessu við — sá er augljóslega tilbúinn aö stiga fram af brúninni. Björg Einarsdóttir 1 skrifar: í raun og veru er efnahagslegt sjálfstœði þjóðarinnar að veði ef ekki myndast almennur vilji til þess að leggja á sig stundaróþœgindi fyrir velferð til lengri tima. okkur flest gott til glóðarinnar i laumi aö ná einhverju út fyrir okkur „privat”. I raun og veru er efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar að veði ef ekki myndast almennur vilji til að leggja á sig stundaróþægindi fyrir velferð til lengri tima — Viða er það svo að fólk skynjar ekki gildi handtaka sinna á vinnu- stað í samhengi við heildina. Starfsmaður við færiband, vélar,pökk- un og snyrtingu i frystihúsi eða flutninga nær ekki að tengja dagleg handtök sin við útkomuna þegar framleiðsluvaran er komin full- unnin til neytenda. Og hann á einnig erfitt með að setja markaðsöfl- un og verðsveiflur erlendis inn i ramma daglegs Hfs i sjávarþorpi. Spurningunni: Hvaða-giidi hef ég fyrir vinnustaðinn og hvaða giidi hefur vinnustaðurinn fyrir mig — er oftast ósvarað eða hálfsvarað. Og spurningar sem ekki fæst svar við bjóða heim getgátum eða imynduðum úrlausnum i stað vissu. Starfsmaðurính og fyrirtækið sem starfaö er við eru hagsmuna- heild og launþeginn og atvinnurekandinn tveir aðilar að sama máli. Hagur annars er hagur hins og markmiö beggja,þegar sprett er niður i neðsta saumfar,er að komast af. Það er óvandaður leikur, sem iðulega verður vart á vettvangi þjóðmála að mynda eða viðhalda gjá milli þessara aðila sem e.iga mikilla sameiginlegra hagsmuna að gæta. Sá leikur þjónar tilgangi annarra afla og fjarlægra þeim annasama starfsvettvangi þar sem leiöir launþegans og atvinnurekandans liggja saman. Hópar láta utanaðkomandi aðila afflytja sig hvern við annan og blása upp það sem sundrar i stað þess að efla það sem sameinar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.