Vísir - 13.09.1978, Síða 24
1978
Ragnar
Arnalds um
ráðuneyt-
isveislur:
,,Dýrara að
veifa kaffí
en áfengi”
„Ég held að það sé ekki neinn minnsti vafi á að venju-
leg hanastélsboð munu vera miklu ódýrari en kaffiveit-
ingar”, sagði Ragnar Arnalds mennta- og samgöngu-
ráðherra I samtali við Vfsi i morgun, þegar hann var
inntur eftir kostnaðarhliðinni á þvf aö veita vin og svo
hins vegar kaffi I veislum
Ragnar sagði að það væri
veriö að skoða þetta mál
frá ýmsum hliðum, m.a.
kostnaðarhliðina. „Ég er
forstöðumaður fyrir tvö
ráðuneyti og annar fyrir-
rennari minn veitti vin i
veislum en hinn ekki. Það
er hætt við að það verði
ákaflega erfitt að hafa eina
reglu i samgönguráðuneyti
og aðra reglu I mennta-
ráðuneyta.
málaráðuneyti”, sagði
Ragnar, þegar hann var
spuröur hvort hann ætiaði
að fara aö siðum fyrrver-
andi menntamálaráðherra
og veita ekki vin i veislum.
„Xfirleitt held ég að
óhjákvæmilegt sé að rikis-
stjórnin hafi eina reglu i
þessum efnum”, sagði
Ragnar Arnalds.
—KP
Á ofsahraða
við skólana
Sjötíu teknir í Kópavogi
ffyrir off hraðan akstur
Lögreglan i Kópavogi hefur verið með radarmælingar
siðustu daga og hefur fcngið allverulega að finna fyrir
þvi, að ökumenn virða ekki reglur um hámarkshraöa.
Sjötfu. bilar voru til dæmis stöövaðir einn daginn á tæp-
um þremur klukkustundum fyrir of hraðan akstur.
Menn aka á upp undir 90
km hraða, en að sögn lög-
reglumanna hefur þó eng-
inn verið tekinn á yfir 90
km hraða þessa dagana.
En sé einhver gripinn á
slikum hraða, er hann
sviptur ökuskirteini.
Meðal annars hefur öku-
hraðinn verið mældur við
skóla, þar sem mikið af
börnum er á ferðinni, og
reyndust menn þar gjarnan
aka á 80 km hraða og jafn-
vel þar yfir. Vill lögreglan
minna ökumenn á að gæta
hófs i þessum efnum, sér-
staklega með tilliti til þess,
hve hættulegur timi er nú i
umferðinni. Skólar eru að
byrja og börn mörg hver
algjörlega óvön umferö-
inni.
—EA
Afurðalón til frystihúsa:
„Hcekka mjög
fljótlega"
• segir Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri
,,Ég býst viö því að afurðalánin hækki
mjög fljótlega eftir að við erum búnir að fá
útsöluverð sölusamtakanna", sagði Jó-
hannes Nordal seðlabankastjóri við Vísi í
morgun.
„Þetta veröur allra
næstu daga”, sagöi Jó-
hannes. Seðlabankinn sér
um rekstrarlán til frysti-
húsa út á birgðir. Lánin
taka mið af markaðsverði
freðfisks og hækka þvi til
samræmis við breytinguna
á gengi islensku krónunn-
ar. Það hefur komið fyrir
að hækkun afurðalána
hefur dregist, en forsvars-
menn fiskvinnslunnar telja
að rekstrarstaða frystihúsa
batni ekki fyrr en afurða-
lánin hafa hækkað til jafns
við hækkað afuröaverð.
—KS
Lœgstlaunuðu ríkisstarffsmenn
Við gljóffur
Sauðárffoss
Þennan glæsilega
foss hafa fáir
Islendingar augum
litið, enda er hann
ekki i alfaraleið.
Hann er i Sauðá,
sem rennur
norðaustur frá
Vatnajökli, og tók
GVA myndina þar i
vikunni.
„Engin
ókvörðun
um vaxfa-
hœkkun"
„Það er verið að meta
áhrif efnahagsaðgerðanna
f verðlagsmálum og engin
ákvörðun því verið tekin
enn þá”, sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri
við Visi i morgun, er hann
var spurður hvort verð-
bótaþáttur vaxta hækkaði
frá 1. september.
Jóhannes var spurður að
þvi hvort einhver ákvörðun
hefði verið tekin um hvort
vextir yrðu ekki hækkaðir
til samræmis við hækkun
verðbótaþáttarins eins og
gert var 1. júni s.l. Sagði
hann að engar ákvarðanir
hefðu verið teknar i málinu
yfirleitt og væri þetta allt i
athugun. —KS
fengu ofgreitt 1. september
„Tekið aftur
V. október”
• segir Tómas Árnason ffjórmálaróðherra
„Þaö er ætlunin að gera
launin upp í lok septem-
bermánaöar. Ef ein-
hverjir hafa fengið greitt
of mikið verður tekið af
þeim um þessi mánaða-
mót,” sagði Tómas Arna-
son fjármálaráðherra er
hann var i morgun inntur
eftir launamálum rikis-
starfsmanna, sem nánar
fjallar um i forsiðufrétt.
„Inni i þessu eru miklar
niðurfærslur bæði á mat-
vörunum og land-
búnaðarvörunum. Lögö
er áhersla á að úrslita-
þýðingu hafi kaupmáttur
launanna. Þess ber að
gæta að fyrstu tiu dagar
septembermánaðar
verða óbreyttir.”
„Skýringin á þeirri
stöðu sem komin er upp i
launamálunum er sú, að
gengið var frá öllum ráð-
stöfunum á mjög stuttum
tima. Samtimis fór fram
vinna á þessu i fleiri þátt-
um. Kaupgjaldsvisitalan
var reiknuð út hjá kaup-
lagsnefnd, siðan var unn-
ið að þessum málum i
ráðuneytunum. Menn sáu
ekki myndina alveg ljósa
þegar þetta var að gerast.
Heildarhugsunin var sú
að lægstlaunaða fólkið
myndi njóta þess mest að
matvörur eru greiddar
svona mikið niður.”
Aöspurður sagði Tómas
að ekki hefði verið stefnt
að þvi að þeir lægstlaun-
uðu lækkuðu i launum.”
Stefnan er þveröfug, sú
aö fólkiö með lægstu
launin komi betur út úr
þessu en aðrir. Það þarf
að kaupa þessar-
nauðsynjavörur. Niður-
greiðslan kemur þvi bet-
ur til góða en öðrum.”
Tómas sagði að laun
fólks samkvæmt hinum
nýju ákvæðum hefðu ekki
blasað við upp á krónu en
menn hefðu hins vegar
gert sér grein fyrir þvi,
hvaða áhrif þetta hefði á
kaupmáttinn.
—BA—
„Hefur dottið i hug að
gefa Borgarspítalann"ff
„Okkur hefur iðulega
dottið I hug aö gefa ríkinu
Borgarspitalann til að
létta rekstarbyrðinni af
borginni. Hallinn af
rekstri hans og annarra
sjúkrastofnana er fyrstu 6
mánuði ársins 406 millj-
ónir króna” sögöu þeir
Kristján Benediktsson,
Björgvin Guðmundsson
og Sigurjón Pétursson á
fundi i gær, þegar kynnt
var úttekt Ólafs Nilssonar
endurskoðanda á fjár-
hagsstöðu borgarinnar
30. júni.
Þar kemur fram aö
fjárhagsstaða borgarinn-
ar er mjög erfið. „Ég held
að greiðslustaðan hafi að-
eins einu sinni orðið svip-
uð eða jafnvel verri og
það var 1974, en sá var
munurinn, aö þá var auð-
veldara að fá aðstoð hjá
bönkunum”, sagði
Kristján Benediktsson.
Sjá bls.ll.
—B.A.
SMÁAUGLÝSINCASIMINN ER 86611
Smáauglýsingamóttaka
alla virka daga frá 9-22.
iLaugardaga frá 9-14 og
sunnudaga frá 18-22.