Vísir - 13.10.1978, Blaðsíða 5
5
I
VÍSIR
Föstudagur
13. október 1978
Óperan Wozzeck
í Nýja bíó
Síöasta óperukvikmyndin sem
félagiö Germania og tónieika-
nefnd Háskólans gangast fyrir aö
sinni er Wozzeck eftir Alban
Ragnar
heldur
tónleika
Ragnar Björnsson fyrrverandi
dómorganisti er á förum til
Bandarikjanna f tónleikaferö.
Aöur mun hann halda tónleika i
Selfosskirkju og ieika þar
eingöngu verk eftir J.S. Bach og
O. Mcssiaen. Orgeltónleikarnir
hefjast klukkan 5 á laugardaginn.
Daginn eftir mun hann leika i
Þjóðkirkjunni i Hafnarfirði og
hefjast tónleikarnir klukkan 5.
Þar mun Ragnar leika rómantisk
verk og nútlmaverk eftir Pál
Isólfsson, Atla Heimi Sveinsson,
Jón Þórarinsson og fleiri.
A mánudaginn heldur Ragnar
til Bandarikjanna og mun halda
tónleika bæöi á vestur- og austur-
strönd Bandarikjanna og i
Kanada. —BA
Berg. Sýningin veröur I Nýja biói
laugardaginn 14. október klukkan
tvö eftir hádegi. Aögangur er
ókeypis og öilum heimill.
Óperan Wozzeck var frumsýnd
I Berlin 1925. Þvi hefur löngum
veriö haldiö fram aö hún sé eitt
helsta snilldarverk sem samiö
hefur veriö fyrir óperusviö á
þessari öld. Textinn er geröur eft-
ir leikriti Georg Buchners, sem
sýnt var i Þjóöleikhúsinu fyrir
nokkru.
Þar segir frá fátækum her-
manni, Wozzeck aö nafni, sem er
undir læknishendi vegna
geðheilsu sinnar. Barnsmóöir
hans reynist honum ótrú og hann
ræöur hennibana. Atburöir þessir
eru sóttir i morömál sem vakti
feikilega athygli i Þýskalandi á
öndverðri nitjándu öld fyrir þaö
hve hart var deilt um þaö hvort
morðinginn heföi verið ósjálf-
ráöur geröa sinna vegna
geöveilu.
1 aðalhlutverkum eru Toni
Blankenheim (Wozzeck), Sena
Jurianc (Maria) Richard Casilly
(tambúramajórinn) Gerhard
Unger (höfuösmaöurinn), og
Hans Sotin (læknirinn.)
Kvikmynd þessi hefur vakiö
mikla athygli. Hún hlaut
gullverðlaun á 15. kvikmynda- og
sjónvarpshátiöinni I New York.
„Bragginn” komst lengst á 5 litrum af bensini I slöustu sparaksturskeppni.
SPARAKSTURSKEPPNI
A SUNNUDAGINN
Hin árlega sparaksturskeppni bifreiöa. Keppni hefst viö
Bifreiöalþróttaklúbbs Reykjavlk- SHELL-stööina viö Reykjanes-
ur veröur haldin næstkomandi braut (viö Slökkvistööina), þar
sunnudag kl. 13.00.Um 40 bilar af sem hver bill fær 5 litra af
ýmsum stæröum og geröum taka benslni. Slöan veröur ekiö sem
þátt I keppninni og keppt veröur I leið liggur um Vesturlandsveg,
átta flokkum eftir vélastæröum Þingvallaveg, Kjósarskarö, og
fyrir Esjuna. Ef einhver er svo
sparneytinn aö eiga eitthvaö eftir
af bensini eftir þann hring, eiga
bilarnir aö aka austur á
Hellisheiöi. Þess má geta aö um
morguninn, áöur en keppnin
hefst, safnast allar bifreiöarnar
saman viö Iþróttahöllina I
Laugardal og fara I hópakstur um
bæinn um kl. 11.
ÓG
Atriði á kránni úr óperunni Wozzeck sem sýnd veröur f Nýja bfói á morgun.
Vaðstigvél,
st. 21-30,
Kr. 3.400-3.700.-
Litir: rautt og blátt.
Hjúkrunarkvennaskór
st. 36-39,
Kr. 10.900,-
Litur: hvitt.
Karlmannaskór
st. 7-11,
Kr. 14.980,-
Litir: Ijósbrúnt og sva
SMV.PEIHRS ANBRESSSNAI
lAHflAVEfil 71
PfiSIKRfifH
SÍMI
\mi
' Ný verslun að Laugavegi 168 ^
HANDÍD
Sérverslun með nytsamar og
Þroskandi tómstundavörur.
Fóndurvorur fyrir börn.
Reyr og tágar til körfugerðar. f> öll almenn rafmagns-og
handverkfæri.
Hefilbekkir og smáhlutir.
Garöagróðurhús, tílbúin til
uppsetningar meö gleri.
Einnig ýmsir aukahlutír.
HANDID
Tómstundavörur fyrir heimili og skóla
v Laugavegi 168, sími 29595. .