Vísir - 13.10.1978, Side 9
VISIR , Föstudagur 13. október 1978
Haustlínan frá Christian Dior er komin.
☆ AUGNSKUGGAR
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skírteini.
bama&fjölskyldu-
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
Ckristian Dior
snyrtívörukynning
Eóbert T. Arnason útvarpsþulur. „Hann er I efsta ssti hjá mér” segir bréfritari.
Róbert er frábœr
R.Æ., Reykjavik, skrif-
ar:
Fyrir nokkru var allt yfirfullt
af bréfum i lesendadálkum dag-
blaöanna varöandi morgunút-
varpiö og þá sérstaklega veriö
aö hrósa Jóni Múla og Pétri.
Nú höfum viö eignast einn
frábæran morgunþul. Sá er Ró-
bert T. Arnason. Ég verö aö
-segja eins og er, aö er hann
byrjaöi hjá Útvarpinu leist mér
ekkert á hann. En meö hverjum
deginum sem leiö batnaöi hann
og nú undir lokin er hann i efsta
sæti hjá mér.
Lög hans eru m jög góö. Þaö er
ekki litið atriði aö i morgunút-
varpi séu leikin góö lög þegar
fólk er aö jafna sig eftir nóttina.
Þá er gott aö eiga einhvern
góöan i morgunútvarpinu sem
kemur manni i gott skap. Sem
sagt: Ég vona aö Róbert megi
veröa hjá Útvarpinu sem allra
lengst, þvi aö minu mati er hann
mjög góður og fyllilega starfi
sinu vaxinn.
Viðbót við beina línu
Arnór Helgason, Reykja-
vík, hefur beðið blaðið að
koma á framfæri eftir-
farandi viðbót við Beina
línu Visis fyrir stuttu þar
sem ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra sat
fyrir svörum.
Einnig bað hann um aö nafn
sitt yrði leiðrétt, hann héti ekki
Halldór eins og sagt heföi verið.
En bréf Arnórs fer hér á eftir:
Vegna framkomins viötals
mins við Ólaf Jóhannesson á
Beinni linu Visis, i dagblaöinu
Visi, vil ég taka eftirfarandi
fram.
Það er svolitill misskilningur
sem átt hefur sér stað vegna
spurningar minnar um þaö,
hvort varnarsamningurinn við
Bandarikin hafi ekki verið bver-
brot á tveimur lagagreinum.
mikilvægum þar sem viðurlög
eða refsing við sliku athæfi
varði allt að sex ára fangelsi.
En þaö var aftur spurningin
um það, hvernig Hæstiréttur
myndi hafa dæmt i þessu máli,
ef einhverþegnlýöveldisins heföi
kært þennan verknaö og málið
að lokum farið fyrir Hæstarétt.
Misskilningurinn liggur i þvi,
að auðvitað meinti ég að kært
hefði verið ekki seinna en 10.
mai, þar sem samningurinn var
gerður þann 5. mai sama ár.
Það gefur að skilja að kæran
hefði verið túlkuð stiluð á það
ástand i þessu máli sem var,
þegar hún (kæran) var lögð
fram.
Svar ráðherrans var á þá leið
,,að gerendur samningsins
myndu hafa verið sýknaðir fyrir
Hæstarétti, þar sem Alþingi
hefði verið búið að samþykkja
hann siðar éða um haustið”.
Þarna kemur það fram hjá
ráðherranum að samþykktin
um haustið er forsenda þess, að
hægt sé fyrir Hæstarétti að
sýkna þá.
En hvað, ef þeir eru dæmdir
án þessarar forsendu, til dæmis
á miðju sumri, ef Hæstiréttur
hefði þá mátt vera að þvi að
vinna að þessu máli, vegna ein-
hverra annarlegra starfa.
Skyldu vera til dæmi um slik
vinnubrögð dómstóla. Það er
orðið þjóðarböl hversu dóms-
málin eru seinvirk, en nóg um
það.
Það sem skiptir máli hér er
það, að meining min var sú að
kæran hefði komið fljótt og
dæmt hefði verið i þessu máli,
þvi þjóðin ætlast til þess, að
samningar sem gerðir eru við
önnur riki séu löglegir strax og
þeir eru gerðir. Og það þurfi
ekki neina klæki, sem kalli siðan
á enn meiri klæki, þegar þing
kemur saman um haustið að
fimm mánuðum liðnum.
Þá vildi ég spyrja hæstvirtan
forsætisráðherra um það hvers
vegna B.B. gerði það að tillögu
sinni, að sérstök fimm manna
nefnd var kosin um þetta mál.
Af hverju gat það ekki sætt
venjulegri meðferð i báðum
deildum Alþingis og af hverju
mátti það ekki koma fyrir utan-
rikismálanefnd?
Ég treysti þvi að ráðherrann
sjái aumur á okkur, sem viljum
komast til botns i þessu máli, og
vita hvar hinn óbreytti borgari
stendur gagnvart þeirri trú að
þingmenn, sem einungis eru
bundnir af samvisku sinni, geti
ef til vill verið svo samviskulið-
ugir og jafnvel verið með alvar-
legt tog á samviskunni.
Allir framantaldir atburöir
eru rótin að þvi, að við her-
stöðvarandstæðingar erum til
og ætlum að vinna að þvi að losa
þjóðina við þessa smán, það er
landráðaverndarherinn á
Keflavikurflugvelli.
Ég vil svo að lokum senda öll-
um þeim þingmönnum sem
stóðu að þessum 5. mai samn-
ingi og eins þeim sem verja
gerðir þeirra, minar bestu ósk-
ir, en taka fram: Að enginn
maður er jafnaumur og sá, sem
kastar rekunum yfir sina eigin
gröf.
☆ VARALITIR
☆ KINNALITIR
☆ NAGLALÖKK
Vörur fyrir hinar vandlátu. Við kynnum þessar frábæru
vörur föstudaginn 13. okt. kl. 13-18. Sérfræðingur frá Dior
og þrir fegrunarsérfræðingar leiðbeina og aðstoða. Kynn-
ingarverð á Dior — Dior ilmvatni.
Snyrtivöruverslun Snyrtistofa, Bankastræti 8.
húsbyggjendur
vlurinn er
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað,
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast I h/f
Bofgameri | timi V3 7370
kvöid 09 hcjganlmi 93 7355
phyris
■ ~ <51
snyrtivörur
Þýsk snyrtivörulína i fjölbreyttu tegundaúrvali, sem
framleidd er með mikilli vandvirkni úr ýmsum
náttúrulegum hráefnum, blómum og jurtum og inni-
heldur ýmis virk náttúruleg efni, sem hafa
verndandi og bætandi áhrif á hinar ýmsu húð-
gerðir. Nýtur orðið mikilla vinsælda hér á landi
vegna mjög góðrar reynslu.
ódýr gæðavara.
Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.:
RPC MAXFACTOR jnBWOWKI CKristian Dior
CU4» cjHwítHx RBVLON #SANSSOUCIS
LÍTIO INN OG LÍTIÐ Á
LAUGAVEGS APOTEK
snyrtivörudeiki