Vísir - 13.10.1978, Qupperneq 10
10
Föstudagur 13. október 1978 VISIR
VtSIR
Útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davfö Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta:
Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaða-
menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson,
Guðjón Arngrímsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrln Páls
dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi
Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson,Jens
Alexandersson. útlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinssón, AAagnúsOlafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8.
Slmar 86611 og 82260
Afgreiðsla: Stakkholti 2-^4 slmi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2«oo kr.
á mánuði innanlands.
Verö i lausasölu kr. 120 kr.
eintakið.
Prentun Blaöaprent h/f.
Gamlar aðferðir
duga ekki
Kosningarnar síðastliðið sumar mörkuðu óneitan-
lega veruleg þáttaskil í íslenskum stjórnmálum. Við
búum nú við annað valdakerfi en áður. Þar vegur
þyngst, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst meiri-
hlutann í Reykjavik og dottið út úr ríkisstjórn.
Samtímis hefur Alþýðubandalagið náð þeirri stöðu
að verða valdamesti flokkurinn i landinu, og Alþýðu-
flokkurinn skiptir orðið máli á ný. Framsóknar-
f lokkurinn, sem áður vóg upp á móti valdastöðu Sjálf-
stæðisflokksins, er nú minnsti flokkurinn í þinginu.
Við þessar breytingar hef ur hin hefðbundna pólitíska
þráskák ruglast.
Áður léku menn hefðbundna og þekkta leiki í þessari
skák. Nú þarf nýjar leikf léttur tef li menn til vinnings.
Ólafur Jóhannesson skildi það og gat hagnýtt sér
mesta kosningaósigur, sem um getur, til þess að lyfta
sjálfum sér upp i forsætisráðherrastól.
Benedikt Gröndal gekk á hinn bóginn bláeygur til
viðræðna við Lúðvik Jósepsson og Ólaf Jóhannesson
eins og Vilmundur Gylfason komst að orði. Af leiðing-
in er sú, að Alþýðuflokkurinn er fastur í skrúfstykki
eftir mesta kosningasigur i sögu lýðveldisins. Það er
ekki nóg að fá upp góða stöðu ef menn kunna ekki að
leika hana áfram.
En stjórnarsamvinnan gerir það að verkum að
flokkarnir, sem að rikisstjórninni standa, þurfa ekki
að glíma við alvarleg forystuvandamál á næstunni.
Óðru máli gegnir hins vegar um Sjálfstæðisflokkinn.
Forystumenn hans þurfa að snúa tapstöðu til sóknar.
Það er hægt i pólitík.
Óánægjan með forystu Sjálfstæðisflokksins hefur
ekki farið leynt síðustu mánuði og kom m.a. fram á
nýafstöðnu aukaþingi ungra sjálfstæðismanna. En
þrátt fyrir það má segja að Geir Hallgrímsson haf i á
þeim vettvangi snúið vörn í sókn og styrkt stöðu sína.
Ófarir Sjálfstæðisf lokksins eiga m.a. rætur að rekja
til óeiningar i forystunni þar sem Geir Hallgrímsson
og dr. Gunnar Thoroddsen hafa lengi verið höfuð
stríðandi af la, og á allra síðustu árum hefur Albert
Guðmundsson skotist upp á stjörnuhimin flokksins
eins og púðurkerling og velgt ýmsum undir uggum.
Endurnýjun er Sjálfstæðisflokknum nauðsynleg.
Hann hefur á að skipa þreyttum og fremur átaka-
litlum þingflokki. En það vitlausasta, sem sjálf-
stæðismenn gera í núverandi aðstöðu, er að efna til
frekari átaka milli Geirs og dr. Gunnars. Flokkurinn
styrkist vissulega ei með því að gera meira úr helsta
veikleika hans.
Ýmsir þingmenn Sjálfstæðisf lokksins vilja nú hef ja
endurreisnarstarf ið með því að sparka dr. Gunnari úr
stöðu þingf lokksformanns. Nú er ráðherraferill hans
vissulega umdeilanlegur, en með þessu myndi úlf úðin
aukast og í stað endurnýjunar kæmi aðeins þreyttur
þingmaður i staðinn fyrir þreyttan.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn léki þannig af sér myndi
staða yngri þingmanna Alþýðuflokksins styrkjast.
Þeir eru í samkeppni við þingmenn Sjálfstæðisf lokks-
ins um frjálshyggjustjórnarandstöðu á Alþingi. Af-
leikir þingmanna Sjálfstæðisflokksins eru eins og
sakir standa fyrst og fremst vatn á mylluhjól ungra
alþýðuf lokksþingmanna.
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafa
beðið lægri hlut í hinu nýja valdataf li. Það er augljós
afleikur í stöðu Sjálfstæðisflokksins að sparka dr.
Gunnari,af því að sundrungin er fyrsta vandamálið,
sem flokkurinn þarf að ráða fram úr. Gömlu leik-
Hétturnar duga ekki lengur til vinnings. —ÞP
Hver er afstaða
Á að heimila sölu
áfengs öls á islandi?
Þessari spurningu hafa
menn lengi velt fyrir sér,
og sýnist sitt hverjum.
Oft hafa risið miklar
deilur um mál þetta,
einkum ef fram hafa
komið á Alþingi tillögur í
einhverju formi í þá átt
að heimila sölu bjórs.
Slíkar tillögur hafa oft
komið fram á Alþingi, en
þeim iafnoft verið
hafnað á einn eða annan
hátt, — oftast svæfðar í
nefndum.
Á Alþingi sem nú hef ur
hafið störf er rúmlega
þriðjungur þingmanna
nýliðar. Visi þótti þvi við
hæfi að kanna afstöðu
þingmanna til þessa
máls, og lagði fyrir hvern
Agúst
Einarsson: „Ég
er fylgjandi þvl
af) sala bjórs
verði
heimiluð”.
Bragi
Sigurjónsson:
„Ég hef alla tið
verið á móti
bjór og verð það
þar til ég dey!’
k
Einar
Agústsson: „Ég
hef alltaf verið
þvi meðmæltur
að leyfa sölu
bjórs, og er það
enn”.
til að taka
afstöðu til
frumvarpa sem
kæmu fram um
breytingar i
þessu efni”.
\
og sala annars
áfengis.”
Alexander
Stefánsson:
„Ég hef hingað
til verið á móti
bjór. Ég tel þó
að núverandi
ástand i þessum
málum sé fjarri
þvi aö vera
ákiósanlegtli
Bragi Nlelsson:
„Ég er á móti
þvi að sala á
bjór verði
leýfð.”
Arni
Gunnarsson:
„Ég e r
eindregið á
móti þvi að bjór
verði leyfður
hér á landi. Ég
held að bjór-
neyslan kæmi
til viðbótarl’
Eðvarð
Sigurðsson:
„Ég hef verið á
móti bjórnum
og afstaða min
er óbreytt.
í Danmörku er
talsvert um
ölvun á vinnu-
stöðum vegna
bjórsins og ég
tel að við séum
heppnir að vera
1 a u s i r v i ö
hann”.
Eiður
Guðnason: „Ef
slikt frumvarp
eða tillaga
kemur fram á
Alþingi mun ég
taka afstöðu til
þess þar, þegar
og ef að þvi
kemur. Hins
vegar hef ég
aldrei séð að á
þvi væri neinn
eðlismunur að
útsölur Afengis-
verslunar
rikisins, sem nú
selja bæði létt
vin og sterk,
seldu einnig
áfengan bjór”.
Garðar
Sigurðsson:
„Afstaða min til
þessa máis
hefur breyst.
„Ég hef hingaö
til verið á móti
heimilun á sölu
bjórs, en með
tilliti til þess
hve nú er mikið
bruggað af öli i
heimahúsum tel
ég bugsanlegt
aö rétt sé að
gera breytingu
á áfengislög-
gjöfinni og
heimila sölu
bjórs.”
Oddur
Ólafsson: „Ég
held ég yrði á
móti bjórnum.
Ég hef hálfgert
antipat á bjór,
og tel að
áfengisvanda-
málið sé nógu
mikið fyrir”.
Kjartan
Jóhannsson:
„Ég hef ekki
hugleitt það
mál ennþá og
get þvi ekki
tekið afstöðu til
þess”.
Matthias
Bjarnason: ,Ég
e r e k k i
spenntur fyrir
bjór og tel
fráleitt að selja
sterkan bjór i
almennum
verslunum. Það
gæti komið til
greina að selja
örlitið sterkari
bjór, en nú er
gert, en þá
a ð e i n s i
á f e n g i s -
útsölum’’
|
Finnur Torfi
Stefánsson:
„Ég er ihald i
þessu máli. Ég
er þvi mót-
fallinn að leyfð
verði sala bjórs
hér á landi”.
Lúðvik
Jósepsson: „Ég
hef ætið verið á
móti bjórnum
og afstaða min
e r a 1 d r e i
harðari en
einmitt nú”.
■II
4. .
Ól a f u r G .
Einarsson: „Ég
er fylgjandi þvi
að leyfð verði
sala á áfengu öli
hér á landi, - og
hef alltaf verið
það”.
Karl Steinar
Guðnason: „Ég
myndi greiða
atkvæði gegn
þvi. Ég held að
það verði ekki
til þess að bæta
á s t a n dið i
áfengismálum
þjóöarinnar frá
þvi sem það er i
dag”.
Friðjón
Þórðarson:
„Ég e r
smeykur við af-
leiðingarnar af
heimilun á sölu
bjórs. Ég kæmi
ekki til með að
samþykkja
bjórfrumvarp
nema verulegar
hömlur yröu
settar á sölu
hans.”
Kjartan
Ólafsson: „Ég
tel þetta ekki
neitt stórmál til
eöa frá og hef
ekki hug á þvi
að beita mér
fyrir breyt-
ingum i þessum
efnum frá þvi
sem nú er. Ég
er andvigur þvi
að leyfa sölu á
bjór i
almennum
verslunum. En
áskil mér rétt
Benedikt
Gröndai: „Ég
hef alltaf verið
andvigur þvi að
s a 1 a y r ð i
heimiluð á bjór,
og ég myndi
greiða atkvæði
gegn slikri til-
lögu ef fram
kæmi”.
Magnús
Magnússon:
„Ég tel aö
bjórinn sé
s k á r r i e n
brennivin. Ég
myndi þvi sam-
þykkja bjór-
frumvarp með
þvi skilyrði að
sala bjórsins
yrði háð sömu
takmörkunum
Eggert
Haukdal: ,,,Ég
myndi greiða
atkvæði á móti
bjór-
frumvarpi”.
Jósef H. Þor-
geirsson:
„Vil ekki tjá
mig um málið”.
NIÐURGREIÐSLA A
FLOKKSMALGOGNUM
Það er undarleg sú tilhneiging
stjórnmálamanna, og þó einkum
ráðherra, að vilja með öllu móti
búa til tvennskonar kjör og
tvennskonar rekstursaðstöðu
dagblaða með þvl að tryggja hópi
þeirra rikisforsjá undir þvi yfir-
skyni að verið sé aö efla upplýs-
ingamiölun á vegum flokka, en
hindra jafnframt eftir mætti út-
komu þeirra blaða, sem telja sig
fyrst og fremst útgefin fyrir til-
styrk og með stuöningi hins
almenna blaðalesanda. Þetta
gengur jafnvel svo langt, aö
almenningi er meinað að greiða
það verð, sem hann lystir fyrir
eintök af dagblöðum, sem hann
trcystir frekar en flokksblöðum
til að flytja óbrenglaðar fréttir.
Hinn augljósi þáttur málsins er
sá, að flokkakerfið vill gera óháð-
um blöðum erfitt eöa ómögulegt
að koma út, og beitir við það
röksemdafærsium, sem stangast
á við ákvæði stjórnarskrár um
rétt hins prentaða máls.
Vilja knésetja
óháðu blöðin.
Það er I rauninni timanna tákn,
að sóslalistastjórn, ný—sezt að
völdum, skuti með þessum hætti
vilja svipta almenning óháðri
upplýsingu, bæði hvað snertir
fréttir og málatilbúnað. Þegar
vitaö er hver framlög til pólitlsku
blaðanna verða á næsta ári, og
þau hafa þegar notið góðs af ríf-
lcgu framlagi á árinu sem er að
liða, þykir fulltrúa ráðherra i
verðlagsnefnd hæfa aö ákvaröa
hækkun á áskrift um helming af
þvi sem óskað var eftir, án þess
að blöð á borð við Þjóðviljann,
Timann og Alþýöublaðið hafi
nokkuð við það að athuga, eða i
1 lOkr. eintakið. Vísir og Dagblað-
ið hafa hins vegar hækkað verð á
eintakinu upp I 120 krónur og hafa
fært að þvl fullgild rök, að vegna
nýrra hækkana á sumrinu veröi
ekki hjá minna komizt. Aðfarir
sósialistastjórnarinnar eru þvi
augljósar. Það á að knésetja
óháðu blööin I útgáfustarfsemi
þarsemhverkróna gildir, hversu
léttvæg sem hún er, og gera þeim
erfiðara fyrir að gegna þvi hlut-
verki að halda almenningi upp-
lýstum um það, sem er að gerast I
þjóðfélaginu hverju sinni.
Ofvaxinn sósíalismi
Það er alkunna aö eftir þvl sem
sósialistastjórnir eflast verður
þrengra um alla óhlutdræga
upplýsingu, unz svo fer, að hún er
engin fyrir hendi. Sivaxandi
rikisafskipti hér á landi á undan-
förnum áratugum, hlutu fyrr eða
siðar að beinast að flokkastarf-
seminni og blaðaútgáfu þeirra
Barátta fyrir hlutlausri upplýs-