Tíminn - 22.10.1969, Blaðsíða 13

Tíminn - 22.10.1969, Blaðsíða 13
MIÐ'VTKUDAGTJR 22. október 1969. TIMINN 13 GolfMúbbur Beykjavíbur og Golfklúbbur Suðurnesja háðu sína árlegu keppni um síðustu helgi. Keppnin fór fram á Hólmis velli í Leiru í ágætu veðri, og voru leiknar 18 holur. Mikill fjöldi manns tók þátt í keppn- inmi, en skor 10 beztu manna úr hvoru liði var talini til úrslita. GS menn sigruðu á 889 höggum samtals, og voru þessir sigurvog- arar: Hörður Guðmundsson 82 hogg, Þorbjörn Kjiærbo 83 högg, Hólm geir Guðmundsson 83 högg, Pét- ur Antoasson 89 högg, Brynjar Vilmundarson 89 högg, Högni Gunnlaugsson 91 högg, Eirí'kur Ólafsson 92 högig, Jóhann Bene- dikitsson 92 högg og Jón Þor- steinsson 94 högg. GR menn lóku samtals á 895 höggum og hafði Einar Guðaa- son (GR) bezta skor dagsins, 81 högg. Klúbbarnir hafa gefið í samein ingu skjöld til keppni þessarar, en handhafi skjaldarins frá .1968 var GR. ★ f síðustu viku var leiMn hjá Golfklúbbnum Keili, keppnin um 2. og 3. verðlaunin í forgjafar- keppninni um Bonricó- og Danis- golfbikarinn. Gísli Sigurðsson sigr aði í keppninni, en Júlíus R. Júiíussson GS, Valur Fannar GS og Kristinn Bergþórsson GR voru aiHir,jafnir í Öðru sæti. Júlíus sigraði í þessari; keppni, og hlaut því önaur verðtaun. Fór hann völlirm á 72 höggum nettó (82—12). Kristinn var annar, og hlaut þvi þriðju verðlaun með 83 högg nettó (108—25), en Val- ur Fannar var með 92 högg netitó (117—25). ★ Bændaglíma Ness fór fram s.l. laugardag. Bœndur voru þeir Jón Framihald á bls. 14. Baldvin baðst afsökunar Fer Baldvln Baldvinsson í keppnisbann vegna framkomu sinar í leik KR — Vestmanna- eyja á sunnudaginn? Þessari spuminigu velta margir fyrir sér. f stuttu viðtali við dóm- ara leiksins, Eystein Guð- mundsson, sagði hann: „Ég mun ekM kæra Baldvin sér- staklega, en að sjálfsögðu gerði ég athugasemd á leik- sjcýrslu. Hins vegar þykir mér - rétt að skýra frá því, að Bald- vin kom til mín eftir leikinn og baðst afsökunar á fram- komu sinni og finnst mér það virðingarverð framkoma af hans háilfu.“ — Hvað er hæft 1 því, að aðrir leikmenn KR hafl ráð- izt á þig? — Það er ekkert hæft í því. Þeir reyndu aðeins að halda aftur af Baldvini. Hins végar létu þeir það állt sitt I ; ljós, að fyrst Baldvini hefði verið vísað út af, hefði ég eins átt að reka Val Andersen úti af, en ég var ekki þeirrar skoðunar. — alf- „Algert gerræði mótanefndar" — secjir formaður ÍBV um þá ákvörSun mótanefndar, að leikur KR og Vestmannaeyia fari fram í Rvík. — Selfoss mætir ÍA í undanúrslitum Alf — Reykjavík — f gær kom við Stefán Runólfsson, formann mótanefnd Knattspyrnusambands íslands saman tU fundar og dró lið saman í undanúrslit bikar- keppninnar. Jafnframt var ákveð- ið á fundinum, að leikur KR og Vestmannaeyja skuli fara fram í Reykjavík, þrátt fyrir eindregin tilmæli Vestmannaeyinga. um að leikurinn fari fram í Eyjum, en Vestniannaeyingar telja sig eiga rétt á heimaleik næst. Drátturinm fór þannig, að Akra nes og Selfoss drógust saman og leika þessi lið saman. á Melavell- inum,-. nJk. laugardiag M. 2. Akur- eyri mætir svo sigurvegaranum úr leik KR og Vestmamnaeyja, sem fram íer á Melavellinum á sunnu- dag kl. 2. íþróttasiðan setti sig í samband Iþróttabandalaigs Vestmannaeyja, í gær og spurði hann álits á á- kvörðun m'ótanefndar. „Að mínu áliti er hér um algert gerræði að ræða af hálfu mótanefmdar," sagði Stefán. Og hann bætti við: „Það gætir mikils ósamrsemis í aðgerðum mótainefndar. Ég, fyrir mitt leyfi, hélt að fengið væri for dæmi fyrir því, að leikir færu fram til skiptis á útivelli og heimavelli, sbr. leiki Afcureyrar og ðreiðabli'ks. En ég þykist vita, að mótanefnd vilji, að leikurinn fari fram í Reykjavik, þar sem meiri tekjumöguleikar eru þar. En penimgar eru ekki allt, ekki má gleyma íþróttaMiðinni, og eru Vestmannaeyingar beittir rang- læti. íþréttabandialagið mun vænt anlega halda fund um málið á mongun og mótmæla ákvörðun mótanefndar.“ Þetta sagði Stefán Runólfsson, formaður íþróttabandalags Vest- mannaeyja. Sennilega stoðar lítið fyrir Vestmannaeyinga að mót- mæla, því að völd mótanefndar Framhald á bls. 14 Rvíkurmótið í kvöld í kvöld fara fram þrír leikir í meistaraflokki í Reykjávíkurmót- iriu í handkmalttieik. Fyrst leika Fram og Ármann, siðan Víkingur og Þróttur, og síðasti leikurinn í kvöld verður á milli KR og ÍR. Valur situr hjá í þessari umferð. Fyrsti leikurinn hefst M. 20.15. Staðan í Vestur-Þýzkalandi í gærkvöldi fór 9. umferð þýzku 1. deildar keppninnar (Bun desligap' fram, og urðu' úrslit þessi: •••• ■-;.■ r- ■-.-•■■■ Borussia Dortmund — RW Essen, 4:1. Bor. Mönihenglad'b. — MSV Duis- burg, 4:1. Hannover 96 — 1. FC Köln, 3:4. Bayern Miinchen — 1860 Miinc- hen, 2:0, Eintr. Frankfurt — Werdier Bre- men, 2:1. ' 1. FC Kaisersíauterin — Eintr. Braunsohw., 2:0. Hamburger SV — VfB Stuttgart, 1:3. Schalke 04 — Alemannia Aachen, 3:0. Hannes og Kari dæma í Noregi Tækninefnd Alþjóðahand- knaittleikssamibandsins valdi nú fyrir skömmu 2 íslenzka handknattleiksdómara, þá Hannes Þ. Sigurðsson og Karl Jóhannsson, til að dæma leik í Evrópukeppni meistaraliða milli norsku meistaranna BSI í Bergen og austur-þýzku meist aranna S. C. Dynamo, í Berlín. Fer leikur þessi fram í Berigen n.k. lauigardag. Staðan í deildinni er þá eftir- farandi: . B. Múndien 9 6 1 2 22:8 13 Schalke 04 9 5 3 1 15:6 13 B. Mönchemgl. 9 5 2 2 13:9 12 R. Oberhausen 8 5 12 16:7 11 1. FC Köln 9 5 1 3 20:12 11 Hertha BSC 8 5 0 3 12:11 10 Hamb. SV 9 4 2 3 18:13 10 Hannover 96 9 4 2 3 18:15 10 Borussia D. 9 4 14 17:16 9 V. Stuttgart 9 3 3 3 17:19 9 E. Frankfurt 9 4 0 5 12:15 8 1. F. Kaisersl. 9 2 4 3 9:12 8 MSV. Duisburg 9 3 2 4 12:19 8 R. Essen 9 2 3 4 13:17 7 Alemannia A. 9 2 2 5 9:17 6 W. Bremen 9 1 3 5 9:16 5 E. Braunschw. 9 1 3 5 10:20 5 Múnchen 60 9 2 1 6 5:15 5 Annars er yfirleitt spilað á laug ardögum, en vegna landsleiks Þjóðverja og Skota á miðvikudag í Hamborg, var þessari umfierð flýtt unri nokkra daga. I -á Hér sjáum við Björgvin Björgvinsson skora í landsleiknum gegn Norðmömium á sunnudaginn. — (Tímamynd — Robert); HM Júgóslavía sigraði Belgíu, 4:0, f 6. riðli undankeppninnar í HM í knattspymu á sunnudag. Leikur- inn hafði enga þýðingu, því Belg- ar voru þegar búnir að sigra í riðlinum, og hafa þvf rétt til þátt- töku í lokakeppninni. f sama riðli léku í síðustu viku Spánn og Finnland, og hefndu Spánverjar nú fyrir tapið fyrr í sumar með 6:0 sigri. Grikkland sigraði Sviss, 4:1, í 1. riðli, en þar er keppnin mjög jöfn og spennandi. Rúmenía hef- ur 7 stig, Grikkland 6 stig, Sviss 4 stig og Portúgal 3 stig. Tveir leikir eru eftir f riðlin- um, Portúgal — Svists, og Rúm- enía — Grifekland, en það er úr- slitaleikurinn í riðlinum, og fer bann fram í næsta miánuði. f dag verða leiknir 5 leikir í undankeppni HM í knattspymu í Evrópuriðlunum. Allir leikirnir hafa mikla þýðingu og geta úr- slit þeirra ráðið hvaða þjóðir kom ast í lokakeppnina í Mexikó. f Moskvu leika Rússar við Norð ur-íra, fyrri leikur þessara aðila endaði með jafntefli, 0:0. Sigri írar í þessum leik hafa þeir unn- ið riðilinn og þar með rétt til að leika í lokakeppninni. Rússar eiga eftir að leika við Tyrki á heima- velli þeirra. En vonir íra era ekki mifelar, þar sem George Best get ur sennilega ekki leikið með, þar sem hann meiddist í leik Manch. Utd. í fyrrakvöla, en Maneh. Utd. vann Burnley. 1:0. í Rotterdam leika Hollendingar við Búlgari í 8. riðli. Búlgarar Framhaild á Ms. 14. Hilmar njósnar í Austurríki Klp-Reykjavfk. Íþróttasíðan hefur freignað, að Hilmar Bjömsson landsliðs- þjálfari muni fara til Austur- ríMs um mánaðamótin til að sjá austurrísfea landsliðið í handiknattleik leika. Þann 1. nóvember mun liðið mœta Hol- lendimgum í Graz Eggenberg, en það er borg, sem er 250 km. frá Vín. Daginn eftir leika sömu lið sfðari landsleikinn í Stadhallen í Vín, og mun Hi'lm ar líklegia verða meðal áhorf- enda að báðum leikjunum. Þessi ákvörðun HSÍ að, senda Hilmar utan til að sjá métherja okkar í undanfeeppni HM, er rétt. Lítið er vitað um stynkleika Austurríkismanna í handknaittllieik. en flestir álíta að þeir verði léttir mótherjar. Norski landsliðsþjálfarinn varaði þó við þeim, og sagði, að þeir gætu orðið hættulegir á heimavelli, hann sagðist og hafa haft fregnir af því, að þeir hefðu æft af miklum krafti í allt sumar. Norðmenn heðu tapað fyrir þeim í Vín, í undankeppninni, síðustu HM keppni, en sigrað þá í Osló. Þeir gætu svo sannarlega gert strik í reikninginn fyrir fs- land, ef þeir væru ekki „skoð- aðir“ fyrir leikinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.