Tíminn - 31.10.1969, Qupperneq 12
T
BLADBURÐARFQLK
óskast á Lynghaga, Star-
haga, Fálkagötu. — Uppl.
á afgrciðslunni og í síma
12323.
Smyglaö áfengi
í Ásaklúbbnum
J KJ-Reykjavík, fimmtudagj
Enn gerSi lögreglan „rass-
íu' í hinn svonefnda Ásaklúbb
sem verið Hefur til húsa í
Skipholti 21, en í sömu húsa-
kynnum var „Club 7", þegar
næturklúbbarnir blómstruðu
í höfuðborginni.
Lögreglan gerði þessa „rassíu“
um hálf sjö í gær, og þá munu
wn 10 gestir hafa veriö í klúbbn
m Voru nöfn gestanna tekin nið
ur, og forsvarsmennirnir teknir
til yfirheyrslu. f húsakynnum
klúbbsins fannst nokkuð magn af
áfemgi, og mun sumt af því hafa
terið smyglað.
Klúbb-forstjórinn og starfsmað
ur klúbbsins, voru í haidi í nótt,
O’g í dag mættu þeir til yfirheyrslu
hjó Sakadómi Reykjavíkur, en
var sleppt að yfirheyrslum lokn-
um.
Þessi klúbbforstjóri var dæmd
ur fyrir ólöglega veitimgastarf-
semi og brot á áfemgislöggjöfinni,
fyrr á árinu, og mun mál hans
koma fyrir Hæstarétt í nóvember.
Síðan hann var dæmdur, hefur
Framhald á bls. 10.
Varúðarmerktii
vindlingar
Fyrstu varúðarmerkfcu vindl
ingarnir íru að koma í verzlanir
um þessar mundir. Er það tegund
irnar Players og Abdulla, sem
koma hingað frá Englandi, en sem
kunnugt er gerðu enskir engar at-
hugasemdir við orðun viðvörumar
innar og samþykktu að merkja
pakkana. Bandarískir vindlingar
fást hins vegar ekki með viðvörun
armerkingu fyrr en eftir nokkrar
vikur, þar eð merkingavélin er
ókomin til landsins. Vólin mun
líma hina margumdeildu viðvörun
neðan á pakkana utan á sellofan
ið, þannig að þeir, sem ekki vilja
vita af skaðsemi tóbaksins, geta
bara klætt pakkann úr, og ímyndað
sér svo, að engin hætta sé á ferð
um. (Tímamynd: GE).
Er stofnun islenzks
auðhrings i vændum?
LL-Reykjavík, fimmtudag.
Umræðu um fnunvarp um Fjár
festingarfélag íslands, sem var
frestað fyrr í vikuimi var haldið
áfram i neðri deild Alþingis í dag.
Þórarinn Þórarinsson sagði við
umræðuna, að slíkt fyrirtæki væri
mjög svipað fyrirtækjum, sem sett
hafa verið á stofn í Bandaríkjun
um undanfai’iii 10 ár og vakið mik
ið umtal. og hefur jafnvel verið
lalið, að um varhugaverða hringa
myndun geti verið að ræða.
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
vissulega leiddi það af vaxandi
vélvæðingu og tækni, að fjár-
mögnun fyrirtækja yrði sífellt
meira vandamál. Sagði hann, að
ein leið, sem farin vœri í Banda
ríkjunum væri sama eðlis og
þessi. Þar hefðu risið upp félög,
sem annast svipaða starfsemi og
þetta frumvarp gerir ráð fyrir,
þ.e. að kaupa hlutabróf í félögum,
en annast engan atvinnurekstur
sjálf. Þessi fyrirtæki kvað Þórar
inn hafa/vakið vaxandi athygli og
umtal, og hefði einn aðstoðardóms
málaráðherrann það meginverk-
efni að fylgjast með starfsemi
þeirra og athuga hivort starfsemi
þeirra brýtur í bága við fyrirmæli
iaga um auðhringa.
Fjórfestingarfyrirtækin, sem
sum hver væru orðin mjög fjár
sterk, sagði Þórarinn, hafa keypt
t. d. hlutafé ríkra fyrirtækja, sem
hafa átt í rekstrarörðugleikum, og
fengið þau á lágu verði.
Sagði hann, að sér virtist, sem
með þessu frumvarpi um Fjárfest
ingarfélag væri gert ráð fyrir að
félagið ætti að starfa á svipuð
um grundvelli og hin bandarísku
félög, þ. e. kaupa hluti í fyrirtækj
um en annast ekki sjálf atvinnu
rekstur. Kvaðst hann gjarnan vilja
fá upplýsingar flutningsmanna um
starfsemi slikra fyrirtækja á Norð
urlönöum og í Evrópu, ef þau
starfa þar að veruiegu ráði.
Vék Þórarinn að nokkrum grein
um frumvarpsins, sem þyrftu at-
hugunar við.
Á einum stað í frumvarpinu
væri talað um þá aðila, sem ættu
TIUNDA HVERT FRAMTAL
FARI TIL RANNSÓKNAR
LL-Reykjavík, fimmtudag.
Halldór E. Sigurðsson, Ingvar
Gíslason og Helgi Bergs, hafa
lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um rannsóknir á skattfram-
tölum. Miðar frumvarpið að því,
að finna röng skattframtöl með
útdrætti 10% allra skattframtala.
Er frumvarpið svohljóðaudi:
Fram skal fara ítarleg rann-
sókn á framtölum 10% allra fram
talsskyldra aðila. Sikulu þau fram
töl valin með útdrætti úr öllum
fram-tölum landsins af Hagstofu
fslands, samikvæmf reglum, sem
hún setur. Framtöl þau, sem tek-
in eru til rannsóknar, s-kal athuga
vandlega, rannsaka bókhald aðila
og leita upplýsinga um hvað eina
sem tnáli skiptir.
f greinargerð með frumvarpinu
seigir:
Elkki orkar bað tvímælis, að
skattframtöl eru ekki svo örugg
s-em skyldi. Mikla nauðsyn ber til,
að hér verði ráðin bót á, því að
ekkert er fráleitara en að þeir
heiðarlegu séu látnir greiða
hærri gjöld en ella, vegma hinna,
er svíkja undan skatti.
Með þessu frv. er lagt til, að
breytt verði um vinnuaðferð við
úrvinnslu í framtölum. Er það
skoðun flutningsmanna, að þessi
aðferð muni reynast örugg í fram
kvæmd, ef her.ni er fylgt svo
eftir sem hér er lagt til. Auk
þess mætti með því að nota þessa
vinnuaðferð draga verulega úr
kostnaði við endurskoðun á skatt
framtölum frá því. sem nú er,
fnda væri bá hætt óþörfum og
«.é«**ngarlausum bréfaskriftum,
arv\, sem nú eiga sér stað.
að hafa forgöngu um stofnun fé-
lagsins, þ. e. Verzlunarráð ís-
lands og Félag ísl. iðnrekenda og
þeir aðilar, sem þessir tveir aðil
ar kveðja til. Sagði hann, að ef
til kæmi, ætti slíkt fyrirtæki að
vera stofnað á breiðari grund
velli með heimild fyrir fleiri sam
tök og félög.
Enn miéiri athugunar þyrfti það
við, að í frumvarpinu er gert ráð
fyrir því, að sú undanþága sé veitt
frá lögum um einkabanka og lána
sjóði. að þeir megi kaupa hluta
bréf í félögum. Ef það yrði að
lögum. gæti það dregið þann dilk
á eftir sér, að undanþágur yrðu
veittar fyrir önnur fyrirtæki, að
fengnu fordæmi. Slíkt mundi ekki
verða til að auka fjármagn fyrir
tækja. þar sem lánveitingar einka
banka og lánasjóða minnkuðu að
sama skapi.
Við frunwarpið mætti einnig
gera þá athugasemd, að þar væri
gert ráð fyrir samskonar skatt-
frelsi og Landsbanki: fslands nýt
ur, til ársloka 1977. Kvað hann
það varhugavert að veita einstök
um fyrirtækjum skattfríðindi og
skapa með því fordæmi. Hins
vegar þyrfti að endurskoða skatta
greiðsiur fyrirtækja almennt,
Taldi hann það og vafasamt að
veita ríkisfyrirtækjum skattfríð
indi, þau ættu að sitja við sama
borð og önnur fyrirtæki. Sama
mætti einnig segja um#banka.
Björn Pálsson sagði allt þetta
frumr.arp all furðulegt, miklu nær
væri að styrkja fyrirtækin beint
og ættu þau að ráða sínum mál
um sjáli, en ekki láta eitt stórt
fyrirræki sjá um slíkt.
Eyiclfur Konráð Jónsson, sem,
Framihald á bls 10.
Deila á
leiðakerf-
ið og vilja
fá fresf
FB-Reykjaivík, fimmtudag.
Vagnstjórar SVR hafa nú
látið uppi opinberlega skoðanir
sínar á hinu nýja leiðakerfi
SVR. Héldu þeir fjölmennan
næturfund aðfaranótt miðviku
dagsins. Þar deildu þeir á ým
is atriði í leiðakerfinu, m. a.
sögðu þeir að sumar þeirra
gatna, sem ætlunin væri að aka
um væru bæði of þröngar og
varhugaverðar. í alla staði, t.
d. Vesturgata — Hafnarstræti
— Aðalstræti og Garðastræti
— Öldugata og Túngata í báð
ar áttir. Vagnstjóramir bentu
einnig á þá hættu, sem skapast
við tilkomu áætlunarleiða um
sumar af þeím nýju götum, sem
þeim er ætlað að aka um „og
eru þekktar sem fjölmenrtar
barnagötur (og sleðagötur) naag
ir þar að nefna Langagerði og
Breiðagerði.“
Á fundi vagnstjóra SVR, sem
eru nú um 120 talsins vorn gerð
ar margar ályktanir og sam-
þykktir, og telja vagnstjórar
rétt að þær helztu séu birtar
borgarbúum.
„Vagnstjórar álíta, að margir
vankantar séu á hinu nýja
leiðakerfi SVR, og í því marg
ir veikir hlekkir, sem eigi eftir
að bresta, og valda farþegum
og vagnstjörum miklum vand-
ræðum, þegar á reyni.
Þá álíta þeir, að hinu nýja
leiðakerfi hefði verið betur
borgið, ef forráðamenn breytmg
arinnar hefðu haft nánara sam
starf við þá. Harma þeir þau
vinnubrögð nefnd’arinnar og
telja að betur hafi mátt fara, •
ef svo hefði verið.
Vagnstjórar álíta að þeir
viti betur eftir margra ára;
starfsreynslu en tölur og klukk j
ur, hvar vagnanna sé mest þörf ,
— á hivaða tímum — hvar séu í
hentugar biðstöðvar fyrir þá og i
farþega — svo og þær götur,
sem teljist megi ökuhæfar fyr.
ir stóra vagna. En sumar afs
þeim götum, sem þeim er ætli
að að aka eftir, eru bæði þröng ;
ar og varhugaverðar í alla
staði, samanber Vesturgata — ,
Hainarstræti — Aðalstræti og
Garðastr. — Öldugata og Tún-
gata í báðar áttir. Þá vilja 1
vagnstjórar benda á þá hættu,
er skapast við sumar af þeim 1
hý.iu götum, sem þeim er ætl
að að aka eftir, og eru þekktar
sieða(o
Fi-amhald á b!s. 10-
Kefiavík
Aðalfundur Framsóknarféiags
’ Keflavíkur verður haldinn í Að
aiveri, sunnudaginn 2. nóv., kl.
2 síðdegis. V7enjuleg aðalfundar
störf. Stjórnin.