Vísir - 27.10.1978, Blaðsíða 14

Vísir - 27.10.1978, Blaðsíða 14
NÝJA BÍÓ í KEFLAVÍK: Föstudagur 27. október 1978 VISIR LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LIF OG LIST LÍF OG LIST LIFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST I Úr Veldi tilfinninganna: Veröur okkur treyst núna til aösjá eina frægustu kvikmynd seinni ára? KEYPTI SYNINGAR- RÉTTINN Á VELDI TILFINNINGANNA Fáar kvikmyndir Kafa oröiö jafn umtalaöar á íslandi 1 seinni tiö og japanska kvikmyndin Veldi tilfinning- anna. Hún varö um- töluö án þess aö al- menningur fengi aö sjá hana. Yfirvöld bönnuöu aö myndin yröi sýnd á kvikmyndahátiöinni sem Listahátiö i Reykjavik gekkst fyrir fyrr á þessu ári á þeim grundvelli aö hún væriklám”. Núhefur þaö gerst aö Nýja bió i Keflavik hefur keypt sýn- ingarréttinn á þessari verölaunamynd Nagisa Oshima og er búiö aö setja islenskan texta inn á eintakiö. Þaö er nú i höndum yfirvalda hvort fullorönu fólki veröur treyst til aö fara sér ekki aö voöa meö þvi aö sjá þetta erótiska listaverk. Flestir sem vit hafa á telja myndina ti'mamóta- verk i kvikmyndasög- unni. Þaö er ekki hægt aö koma endalaust fram viö fólk eins og fáráölinga sem hafa þarf vit fyrir. Meöþvi móti veröum viö isaldar fólk 1 menn- ingarmálum. — AÞ. Hvers virði er myndlist- ariðkun ó íslandi? - Alit fjögurra myndlistarmanna ó 3% vörugjaldinu ó myndlistarvörur Rikiskassinn er alltaf tómur eins og viö vitum. Hann var gaitómur þegar þessi rikisstjórn sem nú vermir stólana.tók viö honum og hann veröur vafalaust I svip- uöu ástandi þegar hún fer frá. Astæöan fyrir þessu er sjálfsagt sú aö „mikiö vill meira”, og fær þar af leiöandi aidrei nóg. Til ýmissa ráöa er gripiö tii aö moka i þessa botnlausu hit ýmiss konar „álögur” lagö- ar á hin svokölluöu „breiöu bök”. Hér er ekki átt viö aö lyftingamenn og útkastarar standi undir rikiskerfinu heldur er þetta meint I óeiginlegri meiningu. Mynd- listarmenn hafa hingaö til ekki þótt hafa svo mjög breiö og sterkleg bök nema þá helst myndhöggvarar Samt var lagt á þær vörur, sem þeir nota til aö tjá list sina meö, 30% „vörugjald" sem svo er nefnt. „Vörugjald” þetta var hins vegar ekki lagt á Iþrótta- vörur svo dæmi sé tekiö. Visir innti þrjá myndlistar- menn eftir áliti þeirra á þessu nýja 30% vörugjaldi” á myndlistarvörur. — ÓMJ. Blaöamaöur Visis spuröi fyrst Björgu Sverrisdóttur myndlistar mann hvaö henni fyndist um 30% vörugjaldiö á myndlistarvörur. Björg sagöi: „Mér finnst þetta alveg forkastanlegt. Þarna er veriö aö skera hausana af mönnum sem hafa þetta aö lifibrauöi. Þaö er alveg sama hvert Myndiistarmenn hengja upp verk sin: Veröur þeim gert illbærilegt aö stunda listsköpun sfna vegna skatta þú snýrö þér: Fólk sem veit eitthvaö um þessi mál skilur þetta ekki. Þeir setja þetta lika á sápu. Nú er þaö nefnilega lúxus aö þvo sér. Nú eig- um viö bara að vera skftug þaö sem eftir er! Myndlist hefur glatt augu mannanna I mörg þúsund ár og menningarfrömuöir hafa taliö þaö hingaö til mannbætandi aö berja augum slfka list, hvaö þá heldur aö fást viö hana. Veriö er aö kippa fótun- um undan lifibrauöi fjölda manna, — ég tala nú ekki um þeirra yngri sem eru aö koma sér af staö. Islendingar eru illa staddir ef rikisvaldiö ætl- ar aö klippa á liftaug veröandi listamanna.” 1 framhaldi af ummæl- um Bjargar Sverrisdóttur i þá átt aö veriö væri aö kippa fótunum undan ungu myndlistarmönnun- um sem eru aö stiga sin fyrstu spor i myndlistinni meö nýja 30% vörugjald- inu sneri blm. sér til Vignis Jóhannssonar sem hélt sina fyrstu einkasýn- ingu á dögunum: Vignir sagöi: „Ég teikna ein- göngu vegna þess að ég á ekki kost á aö vinna i dýr- ara efni. Þannig er list minni skorinn stakkur. Vinstri menn hafa stutt viö myndlistarmenn I oröi en þegar á reynir á aö græöa á þeim. Myndlistin er ágæt þegar hægt er aö beita henni sem áróöurs- tæki. Lengra nær ekki samúöin.” Þá snéri blaöið sér til hins reynda og afkasta- mikla myndlistarmanns Benedikts Gunnarssonar. Hann sagöi . „Þessi ákvarðanataka rikis- stjórnarinnar er óverj- andi. Þarna er vegiö illi- lega aö alvarlega vinn- andi myndlistarmönnum og störf þeirra stórlega torvelduö. Ég vona aö fjármálaráöherra leiö- rétti sem fyrst þessi mis- tök rikisstjórnarinnar. Myndlistarmenn ættu aö mótmæla meö virkum aö- geröum, til dæmis meö þvi aö loka Listasafni Islands og fara i myndar- lega mótmælagöngu. Baltasar haföi þetta um 30prósent vörugjaldiö aö segja „Mé finnst allur tollur á myndlistarvörur vera i mótsögn viö þaö styrkjakerfi til lista- manna sem hér er, og vinna gegn þvi aö þaö nái árangri. A Irlandi eru t.d. listamenn skattlausir. Þaö er besta aðstoðin, sérstaklega viö hina yngri sem eru aö ryöja sér braut. Frjáls álagning bætist svo viö tollinn og gerir myndlistarvörur þaö dýrar aö ekki er á færi neinna aö vinna verkin meö fyrsta flokks efni, — sérstaklega ekki byrjanda. Þaö þætti saga til næsta bæjar ef nemandi i hljóðfæraleik ætti aö læra á ónýt hljóö- færi. Árnangur hans yröi ekki mikill.” Innan tösku og utan Bjarni H. Þórarinsson opnar tvœr sýningar um helgina Fimm skólasystkini úr Myndlistaskólanum i Reykjavik munu opna samsýningu á verkum sfn- um I Galleri SÚM á morgun, laugardag. Þekktust fimmmenn- inganna er sjálfsagt Guörún Svava Svavars- dóttir (f. 1944). Hún hefur auk náms hér heima numiö viö Stroganoffakademluna i Moskvu, og er m.a. kunn fyrir gerö leikbrúöa, leik- tjalda og búninga fýrir L.R., Þjóöleikhúsiö og Nemendaleikhúsiö. HUn kennir nú módelteikningu Asrún, Olöf Birna, Hilmar, Guörún Svava og Brynhildur ósk meö verk sin i SÚM Visismynd: JA „Unnið er beint úr náttúrunni og áSamt henni”, segir i frétt um sýningu Bjarna H. Þór- arinssonar sem opnuð verður í Galleri Suöurgötu 7 á morgun laugardag kl. 4. Um leiö opnar Bjarni sýningu í sérsmiöaöri tösku sem gengur undir nafninu „Gallery”. 1 þessari tösku hafa nokkrir sýnt áöur. Verk Bjarna eru all fjölbreyttað gerö, segir f fréttinni, og höföa mjög til umhverfisins. Bjarni H. Þórarinsson útskrifaö- ist úr Myndlista- og Handiöaskóla Islands voriö 1977 eftir fjögurra ára nám, og er þetta fyrsta einkasýning hans. Bjarni hefur áður tekiö þátt i samsýningum en hann er einn af stofnend- um Galleris Suöurgötu 7. Sýning hans veröur opin 4—10 virka daga, en um helgar 2—10 og stendur til 12. nóvember. — AÞ. Skólasystkin sýna í SÚM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.