Vísir - 02.11.1978, Qupperneq 16
m
Fimmtudagur 2. nóvember 1978 vism
Fimmtudagur 2. nóvember 197ö VlOll
LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST
Heljarmikil
Rauðsokkahátíð
um helgina
Rauðsokkur halda heljar mikla hátiöí Tónabæ á
laugardaginn kemur. Hafist veröur handa strax klukk-
an tiu um morguninn, og haldiö áfram — meö smá pás-
um — langt fram á nótt. Hátíöin á aö enda meö diskó-
teki og dansi.
Klukkan tiu um
morguninn hefjast um-
ræður. Skipt verður niður
i umræðuhópa. Rætt
verður um kynfræðslu,
það að eignast barn, börn
og ba rnam enning u,
dúr, eins og það birtist i
bókmenntunum. milli
klukkan hálf fimm og hálf
sex verður Alþýðu-
leikhúsið með Vatnsber-
ana eftir Herdisi Egils-
dóttur. Næsta klukkutim-
Frá blaöamannafundi Rauösokka i Stokkholti I gær,
i tilefni hátiöarinnar á laugardag.
lyklabörn og unglinga-
vandamál — foreldra-
vandamál. Unræðurnar
eiga ekki að vera form-
legar, öllu heldur létt og
þægilegt spjall.
Hlé verður siðan gert
frá klukkan tólf til klukk-
an tvö um daginn, Þá er
bókmenntaþáttur á dag-
skrá. Verður lesiö úr bók-
um sem hafa verið að
koma á markaðinn:
Vetrarbörnum, Eldhús-
mellum, Dægurvisu og
Le. Lesarar verða Sólveig
Hauksdóttir, Briet Héð-
insdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Nina Björk
Árnadóttir.
Hjónabandið i létt-
um dúr
Klukkan þrjú hefst svo
lesdagskrá i umsjá Rauð-
sokka. Verður þar fjalla
um hjónabandið i léttum
ann þar á eftir verður
bókmenntakynning.
Verður þar lesið úr verk-
um kvenna, sem ekki
hafa gefið neitt út eftir
sig.
Eftir það verður pása.
En klukkan niu hefst svo
dagskráin á ný af fullum
krafti. Þá er það söngpró-
gramm og fjöldasöngur.
Koma þar meðal annars
fram Kristin ólafsdóttir,
Hjördis Bergs og Stella
Hauksdóttir. Þá lætur
einnig músikgrúppa frá
Alþýðuleikhúsinu i sér
heyra.
Svo veröur ball, og
dansað á fullu eftir músik
áplötum. Þess skal getið
aö barnagæsla verður á
staðnum. Kaffi verður
ekki selt, eingöngu gos,
en fólk er hvatt til að
koma með kaffibrúsa
með sér á hátiðina.
—EA
Nýjar hljómplötur
Ruth — sex plötur a baki
Það er harla óvenjulegt
að 13 ára stúlka hafi sungiö
inn á sex breiöskifur, þar af
þrjár sólóplötur. Þetta
hefur nú Ruth Reginalds
gert. Nýja platan hennar
heitir Furðuverk og eru á
henni tiu lög, þar af sex
eftir Jóhann G. Jóhanns-
son, sem einnig hefur sam-
ið alla texta, nema tvo.
Magnús Kjartansson
stjórnaði útsetningum og
upptöku, en Magnús Ingi-
marsson annaðist
strengjaútsetningar i
tveimur lögum. Meðal laga
á plötunni er titillagið
Furöuverk, sem þegar hef-
ur hlotiö vinsældir og
Fyrsti kossinn eftir Gunnar
Þórðarson. tJtg. Furðu-
verks er Hljómplötuútgáf-
an h.f.
Ólafur
Óttar
Sigurður
Vilmundur
„Gospur og gífuryrði"
„Þar hitti skrattinn ömmu sina” varð mér á að segja
undir KASTLJÓSI á föstudagskvöldið þegar þeir
ÓTTARR MÖLLER og ÓLAFUR RAGNAR GRtMSSON
æptu hver upp I annan, svo að ekki heyrðust orðaskil
mikinn hluta þáttarins. ólafur Ragnar hefur tamið sér
ákveðna sjónvarpstækni eins og Vilmundur: að mala
fyrirframsamdar áróðursræður með viðeigandi slagorð-
um, byrsta sig með augljósum derringi og halda orðinu I
lengstu lög án þess að viðmælandi fái að komast að.
Rökræður verða engar en uni mótaðilinn þessu fram-
ferði illa og geri athugamsedir við aumingjaskap um-
ræðustjórans, sem ekki gegnir þeirri frumskyldu að
skipta tima þáttarins réttlátlega niður milli manna, er
hann einfaldlega afgreiddur með yfirlýsingum um
taugaveiklun og hræðsiu við að skýra málstað sinn fyrir
almenningi.
Hryggilegt dæmi
Ólafur Ragnar hefur
komizt upp með þessa
framkomu furðu lengi. Á
föstudaginn mætti honum
loks mótherji, sem hefur
séð I gegnum aðferöina og
var ekkert á þvi aö gefa
sig. Þaö var óttarr Möller,
sem lét dæluna ganga i si-
fellu og lúffaði ekki. Arang-
urinn varö aö sjálfsögöu
hryggilegt dæmi um þær ó-
göngur sem umræður um
málefni efst á baugi eru
komnar i hjá sjónvarpinu.
Þessi skripaleikur var með
öllu ósæmar.di alþingis-
manni og forstjóra eins
stærsta fyrirtækis þjóöar-
innar og það skal skýrt tek-
ið fram, að málstaö Eim-
skipafélags Islands var
ekkert gagn gert I þættin-
um.
Sigurður Helgason, for-
stjóri Flugleiöa, hafði
greinilega búið sig undir
málefnalega umræðu um
starfsemi fyrirtækis sins og
umsvif. En þaö var hvorki
staður né stund til aö fjalla
um efni þáttarins af hóf-
semi og á þann hátt aö ó-
upplýstir áhorfendur hefðu
eitthvert gagn af. Ólafur
Ragnar og Óttarr sáu fyrir
þvi. Sigurður var utan-
garðs I þættinum.
Gömul prédikun
Vilmundur Gylfason var
næstur á dagskrá i Kast-
ljósi. Ekki getur sjónvarpið
gert upp á milli hans og
Ólafs Ragnars. Aö þessu
sinni var vaxtastefna
Vilmundar i sviðsljósinu en
Lúðvlk Jósefsson sat hin-
um megin við boröiö á önd-
verðum meiöi. Vilmundur
má fara að vara sig á að
þreyta ekki þjóðina með
stöðugum endurtekning-
um. Prédikunin um undir-
heima fjármálastarfsem-
innar og siöspillta stjórn-
málamenn, sem vilja hafa
peningavaldiö á sinni
hendi, er orðin gömul. Við
heyrðum hana hjá Vil-
mundi, þegar hann átti að
svara spurningum um upp-
byggingu Verðjöfnunar-
sjóðs sjávarútvegsins I um-
ræðuþætti fyrir kosn-
ingarnar I sumar. Við
heyrðum hana aftur, þegar
hann átti að fjalla i einstök-
um atriðum um áhrif
raunvaxta á þróun efna-
hagsmála i landinu. Við
erum alltaf að heyra þess-
ar sögur Vilmundar úr
undirdjúpunum þó að uppi
á yfirborðinu séu skýrt af-
markaðar spurningar, sem
hann er beðinn aö svara.
En Vilmundur fer undan i
flæmingi og veigrar sér við
að demba sér út I rökræður
um flóknari vandamál, af
þvi að hann skortir reynslu
og þekkingu til að gera það
af einhverju viti. Að hætti
góðra skemmtikrafta eins
og Ómars Ragnarssonar
þarf Vilmundurað tryggja
sér stöðuga endurnýjun á
prógrammi handa almenn-
ingi.
Fjölmiðlun
Markús
örn An-
tonsson
skrifar
um sjón-
varp.
Islensk popptónlist
1. grein
múslkin okkar er komin á rlflegan fermingaraldur, væri
.gaman að gæjgast til baka og huga að frumbernsku
hennar.
FRUMDROG
ÍSLENSKRAR
POPPTÓNLISTAR
- í NÚViRANDI MVND
Það hefur orðið að samkomuiagi að ég skjóti nokkrum
poppmolum aö þessu blaði. Til aö byrja með veröur
dvalið á Grjóhólanum og tlmabilið frá árunum uppúr
1950 til þessa dags tekiö til laufléttrar umfjöllunar. t
byrjun þessa timabils er rafvæðingin að ryðja sér braut
að islenskum tónskröttum, og undirbúa þannig jaröveg
sem hefur breyst glettilega litiö siðan. Nú þegar popp-
Tónsviftingar poppár-
anna uppúr 1960 voru með
ólikindum. Gamli nikku-
belgurinn sem og að-
skiljanleg blásturshljóö-
færi viku hljóðlega til hlið-
ar fyrir raflostafullum
glturum. Algengasta upp-
bygging hljómsveita varð 2
rafgítarar, rafmagnsbassi
sem stakk uppi kontra-
bassan gamla, ásamt
trommusetti.
Astæöan var sú að hljóm-
sveitin The Shadows
(Skuggarnir) hafði náð al-
heimshylli með þessarifor-
múlu. Það voru ungling-
arnir sen tóku þessa breyt-
ingu upp. En fyrirtækið var
dýrt, fáum tókst að skrapa
saman fyrir alvörumagn-
ara, og yfirleitt voru það
útvarpstæki heimilanna
sem sungu sitt siöasta með
aðstoð leitandi rafgitar-
tóna.
útum allt land spruttu
uppi skólahljómsveitir og
undantekningarlitið báru
þær heitiö Skuggar.
Amk ein þessara hljóm-
sveita varö svo fræg að
komast i útvarpið. Hún hét
reyndar Bimbó og var frá
Selfossi. Hana skipuðu
strákar sem áttu eftir aö
sitja uppi með bakteriuna
um ókomin ár og eru enn
að, — þeir Guðmundur
Benediktsson (Mánar,
Brimkló), Ólafur Þórarins-
son) Mánar, Kaktus). En
þessi hljóðfæraskipan var
aðeins undanfarinn. Fjór-
menningarnir frá Liver-
pool The Beatles settu hinn
svokallaða siðmenntaða
heim á annan endann, — og
það svo að laugardagsfárið
heföi þótt veik aðkenning.
Islenskir táningar fóru
ekki varhluta af þessum
ósköpum. Plötur Bitlanna
seldust með þviliku offorsi
Mánar anno 1966: ólafur Þórarinsson, Guðmundur
Benediktsson, Björn Gislason.
Bimbó sem komst I útvarpið (ca. 1961-2). F.v. Kristján
Kristjánsson, ólafur Þórarinsson og Guðmundur Bene-
diktsson.
LIFOGLIST LÍFOG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST