Vísir - 24.11.1978, Síða 3
VISIR Föstudagur 24. nóvember 1978
3
Fjölhæfur miðill
Eileen Roberts er mjög fjölhæf-
ur miöill og dulrænir hæfileikar
hennar ná yfir mjög vitt sviö. Auk
þess aö hafa skyggnigáfu hefur
hún svokallaöa dulheyrn þannig
aö hún getur heyrt hvaö hinir
látnu segja.
Hún er ekki transmiöill þannig
aö hún veit af sér allan timann
sem hún er i sambandi viö þá
látnu. Hins vegar var hún trans-
miöill um tlma og gat þá talaö
ókunn tungumál sem hún haföi
aldrei lært þegar hún féll i trans.
„Eg er einnig hlutskyggn og get
komist I samband viö persónu eöa
lýst persónuleika þeirra manna,
sem ég hef aldrei séö, eingöngu
meö þvi aö handfjatla hlut sem
tilheyrir þeim. Ég annast ekki
lækningar reglulega en stundum
er ég notuö sem farvegur fyrir
lækningamátt”, sagöi Eileen.
Hugskeyti um rjómaköku
Eileen sagöi aö þaö kæmi fyrir
aö hún gæti lesiö hugsanir fólks.
Einnig heföi hún reynt aö senda
hugsanir til fjarlægra staöa. Þaö
ylti þó mikiö á þvi hverjir væru til
aö taka á móti slikum skilaboö-
um. Viö hugsanaflutning væri
einn maöur ef til vill góöur sendir
en annar betri móttakari. Þaö
væri lika mikilvægt aö náiö per-
sónulegt samband væri á milli
þeirra.
„Eg man eftir einu atviki þegar
ég var krakki. Faöir minn haföi
fariö til næsta bæjar. Móöir min
og ég vorum aö tala um hvaö þaö
væri gaman ef hann kæmi heim
meö rjómaköku. Viö ákváöum aö
hugsa mjög sterkt um þetta og
senda honum hugskeyti saman.
Þaö stóö heima. Hann kom meö
rjómaköku úr feröalaginu.
Skömmu siöar lékum viö sama
leikinn I annaö sinn og þaö brást
ekki aö faöir minn kom heim meö
rjómakökuna. 1 þriöja skiptiö
þegar hann var i burtu reyndum
við aö senda honum hugskeyti en
þegar hann kom heim haföi hann
enga köku meöferðis. „Eg fékk
skilaboöin frá ykkur”, sagöi
hann, „en i þetta skiptiö ætla ég
ekki aö láta þetta eftir ykkur””.
Sálnaflakk til Kanada
Eileen var spurö aö þvi hvort
hún gæti fært hluti úr staö meö
hugarorkunni einni saman. „Nei,
þaö get ég ekki”„sagöi hún, „en
hins vegar var ég i hópi nokkurra
miöla sem meö sameiginlegum
kröftum tókst aö lyfta ákveönum
hlut upp frá gólfi meö hugarork-
unni. Þetta var árangur af 7 ára
þrotlausri þjálfun þannig aö okk-
ur er ekki allt gefiö. Eflaust gæti
Eileen Roberts forseti atkvæöamesta miðlasambands I Bretlandi. „Framliönir hafa þörf fyrir aö láta
vita af sér”.
ég meö mikilli æfingu náö ein-
hverjum árangri I þessari
grein.” Eileen Roberts hefur
gengist undir athugun til að sann-
prófa hæfileika hennar. Hún átti
aö fara úr llkamanum og sálin
átti aö feröast til Vancouver I
Kanada og athuga hvaö ákveöinn
kunningi hennnar væri aö aöhaf-
ast þar. Frá Englandi til
Vancouver eru um þaö bil 6 þús-
und milur og leysti hún þetta
verkefni fljótt og vel af hendi.
Hún hefur alveg fullkomna
stjórn á þvi sjálf hvenær hún yfir-
gefur likamann hvort sem þaö er
á nóttu eöa degi. Og er þaö ekkert
bundiö viö þaö hvort hún er sof-
andi eöa hvort hún situr eöa ligg-
ur.
Drekka í gegn um
kunningjana
En hvers vegna vilja hinir
framliönu ná sambandi viö okkur
sem eftir lifum?
„Þaö er sama þörfin hjá þeim
og okkur þegar viö feröumst á
milli staöa viljum viö láta okkar
nánustu vita af okkur, hvernig
okkur liöi og aö feröin hafi gengib
vel.
Viö erum andlegar lifverur
fyrstog fremst og öll reynsla okk-
ar er andleg. Eftir dauöann lifum
viö á andlegu sviöi og hinir fram-
liðnu vilja hafa samband viö okk-
ur til aö segja okkur frá þessu
þannig aö viö getum búiö okkur
undir dauöann og annaö lif.
Þeir fyrir handan reyna aö hafa
góö áhrif á okkur sem lifum. Þó
geta menn tekiö meö sér yfir um
vandamál sin og ástfiöur. Ef viö
tökum sem dæmi drykkjumenn.
Þeir geta skiptst i tvö horn. Ann-
ars vegar eru þeir sem sjá aö þeir
hafa gengiö villtir vegar i lifanda
lifi og reyna aö hjálpa eftirlifandi
drykkjumönnum úr sollnum.
Hins vegar getur ástriöa
drykkjumannsins haldiö áfram
eftir dauöann. Til aö svala henni
getur hann lagst á einhvern lif-
andi kunnigja og drukkið I gegn
um hann”.
I leit að miðli í stað Haf-
> steins
Eileen Roberts kemur hingaö
til lands I tilefni 60 ára afmælis
Sálarrannsóknarfélags íslands.
Hún heldur hér einkafundi og
skyggnilýsingar og sýningu á
ýmsum hæfileikum sinum. Al-
mennir fundir meö henni veröa
haldnir n.k. mánudagskvöld og
fimmtudagskvöld aö Hallveigar-
stig 3 kl. 8,30.
Hún er gædd þeim fágæta hæfi-
leika aö geta fundið út hverjir búa
yfir dulrænum hæfileikum jafnvel
þó aö viökomandi hafi ekki fundiö
nein merki þess sjálfir.
Ævar R. Kvaran formaöur
Sálarrannsóknarfélagsins sagöi i
samtali við VIsi aö Eileen Rob-
erts heföi i og meö veriö fengin
hingaö til lands til þess aö freista
þe.ss aö finna hér efni I miöil. SIÖ-
an Hafsteinn miöill lést I fyrra
heföu spiritistar ekki aögang aö
neinum islenskum miöli og væri
þaö mjög bagalegt.
„Ég sé áruna hjá fólki og
skynja þá orku sem streymir frá
þvi”, sagöi Eileen. „Ég er meö
um 25 manna hóp I athugun og nú
þegar hef ég fundiö 5 — 6 manns
sem hafa mjög mikiö innsæi.
Einn eöa tveir þeirra gætu haft
frekari dulræna hæfileika en þaö
á eftir aö athuga þaö betur.”
Hún sagöi aö ef einhverjir efni-
legir fyndust yröi aö taka þá i
þjálfun. Hún myndi kenna þeim
aöferöir vib aö halda miöilsfundi,
hvernig eigi aö velja fólk hvaö
bæri aö varast o.fl. Til þess aö
vera mibill eöa spiritisti yfirleitt
þyrfti mikla fórnfýsi og sjálfsög-
un. Þegar menn væru búnir aö
læra rétta tækni og heföu hæfi-
leikana kæmi þaö aö sjálfu sér ab
fólkið fyrir handan myndi hafa
samband viö þá.
Hlutlaust afl
„Þetta er hlutlaust afl sem bæöi
er hægt aö nota til góös og ills.
Þaö veröur aö kenna mönnum aö
umgangast þaö á réttan hátt.
Engum dytti i hug aö láta óvita
leika sér meö rafmagn”, sagöi
Eileen.
Hvaðan kemur þetta afl, er
þetta I tengslum viö trúarbrögö?
„Ekki viö þau trúarbrögö sem
viö þekkjum I skipulögöum kirkj-
um”, sagöi Eileen. „En þetta er
trúarlegt. Alheimsafliö eöa frum-
krafturinn kemur frá Guöi. Þræö-
ir þess liggja viöa og þaöan fáum
viö hugarorkuna sem viö beit-
um”. —KS
Nú beinist
othyglin að
gang-
brautunum
Umferöarvika Slysavarnafél-
ags tslands stendur enn yfir, og i
dag beinist athyglin aö gang-
brautunum ogöryggi viö þær. Um
gangbrautina skerast ieiöir gang-
andi og akandi vegfarenda, þar
sem hvorugur hefur einhliöa rétt
gagnvart hinum.
1 tilkynningu frá SVFl segir
m.a.: „Gáleysi, eins og þaö aö
aka fram úr bilum, sem e.t.v.
hafa stöövaö til þess að hleypa
vegfarenda yfir akbrautina, veld-
ur oft slysi. Oft lætur nærri aö illa
fari og margir sleppa meö
skrekkinn, en afleiöingar augna-
bliks óaögæslu birtast þvi miöur
sorglega oft i hinum alvarlegustu
slysum.”
„Viö kippumst viö þegar viö
heyrum frqgnir af sliku slysi og
hugurinn hvarflar með hluttekn-
ingu til þeirra san eiga um sárt
aö binda. Siöan gleymist þaö
flestum, en þeir sem uröu fórnar-
lömb slyssins, þeim gleymist þaö
aldrei. Við heyrum oft nefndar
tölur um umferöarslys og þær eru
iskyggilega háar. Þannig slösuö-
ust 122 gangandi vegfarendur i
umferöarslysum á sl. ári, 12
manns létust. í mjög mörgum til-
vikum var um að ræöa slys viö
eöa á gangbrautum, flest meö al-
varlegum meiöslum.”
„Viö megum heldur ekki
gleyma ökumönnunum, sem hér
koma viö sögu. Þeir eru einnig
fórnarlömb slikra umferöarslysa.
Hjá þeim skilja slysin eftir sig
sár, sem oft grær seint eöa aldrei.
Slysavarnafélagiöhefur nú sent
frá sér leiðbeiningar til gangandi
vegfarenda, og beina I dag m.a.
þessum tilmælum til gangandi
vegfarenda: Notiö gangbrautirn-
ar. Notiö þær rétt og án þess aö
slaka á varúöarskyldu ykkar. -
Gleymiö ekki ábyrgö ykkar I um-
ferðinni.
Og til ökumanna: A ykkur hvil-
ir sérstök varúöarskylda viö
gangbrautir. Sú skylda má ekki
bregðast. Framúrakstur viö
gangbraut er vitavert gáleysi,
sem oft hefur valdið stórslysum.
Látiö slikt aldrei henda ykkur.
—EA
FLORIDA
KANARÍEYJAR
LONDON
GLASGOW
KAUPMANNA-
HÖFN
Norðurveri v/Nóatún - Simi 29930
næg bilastæði
KYNNING
Á ENSKUM
GÓLFTEPPUM
Sýnwm á morgun,
laugardag
f teppadeild,
ensk gólfteppi frá
Gilt-Edge og C.M.C.
Ný mynsfur og litir
Opið frá kl. 9-4
Vorlð volkomin
^(dki____________