Vísir - 24.11.1978, Side 10

Vísir - 24.11.1978, Side 10
10 VtSIR »■ Útgefandi: Reykjaprent h/f | IFramkveemdastjári: Daviö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábn, ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfuiltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Glsli Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Föstudagur 24. nóvember 1978 VISIR SELUR BUSAHOLD í TONNATALI Auglýsinga og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siftumúla 8. Slmar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2400,- á mánuöi innanlands. Verð i lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f. Friðrik og skák- sambandsforystan Forráðamenn Skáksambands íslands hafa undan- farna daga keppst við að bera til baka f fjölmiðium fréttir sem bárust af brölti forseta sambandsins á þingi Alþjóðaskáksambandsins í Argentínu á dögunum. Mikið f jaðrafok varð þar út af vali manns í embætti féhirðis FIDE, en Einar S. Einarsson, forseti Skáksam- bandsins lagði mikið kapp á að komast í það embætti. Stjórn sambands hans hafði samþykkt að tilnefna for- seta sinn í féhirðisembættið, en slík tilnefning batt ekki á nokkurn hátthendur Friðriks Olafssonar varðandi val á samstarfsmanni sínum í stjórn FIDE. Æskilegast er raunar að stjórn þessa sambands rúm- lega eitt hundrað skáklanda sé sem sjálfstæðust og að- skilin frá stjórnum einstakra skáksambanda og er eðli- legast að forsetinn velji sjálfur þennan samstarfsmann sinn, enda mikið í húf i að samvinnan verði traust og góð. I yfirlýsingum, sem forseti og varaforseti skáksam- bandsins hafa sent frá sér er mikil áhersla lögð á að Friðrik Olafsson hafi verið frambjóðandi Skáksam- bands Islands og af þess hálf u hafi verið unnið mikið og óeigingjarnt starf í rfálft annað ár vegna framboðsins. Það starf skal ekki vanmetið, en víst er að Friðrik hefur sjálfur ekki lagt þar minna starf af mörkum og menn verða að gera sér grein f yrir því, að álit það, sem hann nýtur meðal skákmanna um víða veröld hefur átt mikinn þátt í að hann náði kjöri sem forseti FIDE. Svo sem menn rekur minni til var það dr. Max Euwe, forseti FIDE, sem fór fram á það við Friðrik Olafsson, að hann gæf i kost á sér til forsetakjörs. Hann ákvað að gefa kost á sér, eftir að ýmsir fremstu skákmeistarar heims höfðu hvatt hann til þess. Það var ekki vegna þess, að Einar S. Einarsson, væri forseti Skáksambands Islands, að leitað var hingað eftir forsetaframbjóðanda, heldur einfaldlega vegna þess, að Friðrik Olafsson er heimskunnur skákmaður og nýtur óskoraðs trausts framámanna í skákmálum um víða veröld. Það var síðan hreint formsatriði, að Skáksamband Is- lands gerði tillögu til Alþjóðaskáksambandsins um framboð Friðriks. Forsetakosning var fyrst og fremst mál Friðriks Ölafssonar, og ábyrgðin hvíldi á hans herðum. Ef hann hefði beðið lægri hlut i baráttunni hefði enginn sagt, að Skáksamband Islands hefði tapað kosningunni. Það hefði verið Friðrik, sem hefði tapað. Frábær frammistaða Friðriks ólafssonar á skákmót- um víða um heim varð meiri lyftistöng fyrir íslenskt skáklif en nokkuð annað og bar einnig hróður íslands víða. Með skákafrekum hans varð sú þjóðarvakning á skáksviðinu, sem við búum nú að. Þetta er rétt að menn hafi í huga, nú, þegar nýliðar í forystuliði Skáksambandsins veitast að honum eftir að hann hefur verið kjörinn til æðsta embættis skákheims- ins. Að mati Vísis hef ði betur f arið á því, að forsetar Skák- sambands (slands hefðu látið Argentínuævintýrið kyrrt liggja og yfirlýsingar hefðu verið sparaðar. En úr því sem komið er er brýn nauðsyn á að varpað verði Ijósi á staðreyndir málsins, en til þess að svo megi verða, þarf Friðrik Olafsson að gera opinberlega grein fyrir gangi mála á þingi FIDE og viðskiptum sinum við Skáksam- band Islands vegna framboðsmálsins. TIL REYKJAVÍKUR í heimsókn I 1 steigurlæti sinu hættir ibúum Reykjavikur til aö lita á heimabæ sinn sem miödepil umheimsins. Og viö erum ekki I nokkrum vafa um aö hvaö önnur byggöalög á þessulandi snertir séum viö nafl- inn. Til Reykjavlkur þurfi aö sækja allt sem máii skiptir, hvort sem þaö er menning, menntun eöa einhverskonar verslunarvörur. Þaöer hægt aö fá töluveröa bót á þessu meini með þvi aö heimsækja Akureyri. Þar eru fleiri lista- og menntamenn á ferkllómetra en á öörum stööum á landinu, og hvaö verslun snert- ir... ja, littu til dæmis viö hjá Amaró. „Við erum bæöi meö smásölu og heildsölu”, segir Birkir Skarphéöinsson, einn af stjórn- endum fyrirtækisins. „Heiidsölumarkaöur okkar nær allt i kringum landiö, en er lang stærstur i' Reykjavik og bæjunum þar i kring. Það eru ekki sist búsáhöld sem viö flytjum suöur. Viö erum nokkuö sérhæföir i búsáhöldum og liklega stærstir i landinu. Þessa vöru flytjum viö til Akur- eyrar beint frá framleiöendunum og fáum hana þvi á lægra veröi. Búsáhöldin okkar eru góð og ódýr og þessvegna höfum viö getaö unniöuppstóra markaöi um land allt. Viö sendum heila bilfarma suður til höfuðborgarinnar og er- um til dæmis nánast þeir einu Birkir Skarphéöinsson Missionshótel eða bekkir í almennings görðum stórborga Tvær skýrsiur hafa veriö lesnar upp á Alþingi tslendinga sem ætlaö er aö vekja úlfúö og reiöi meöal almennings. önnur skýrsl- an er um feröakostnaö ráöherra, bankastjóra og ráöuneytisstjóra á árinu 1977. Geir Gunnarsson al- þingismaöur úr Hafnarfiröi, kraföi f jármálaráöherra um hana. Hin skýrslan er svar viö fyrirspurn Stefáns Jónssonar, al- þingismanns úr Noröurlandskjör- dæmi eystra, um laun og friöindi bankastjóra. Báöar þessar skýrslur eru forvitniveröar enda er þaö ekki á hverjum degi sem upplýst er um kaup og kjör þeirra manna i þjóöfélaginu, sem taldir eru sitja hiö næsta sjóöum lands og landsmanna og þá mun heldur sjaidgæft aö upplýst sé i blööum hver gistikostnaöur tittreísenda er I útlöndum. Varla til að súpa hveljur yfir viö fyrirspurn Stefáns Jónssonar og las honum upp i þingsal hver væru laun bankastjóra. Er skemmzt frá aö segja aö banka- stjórar hafa 631.620 þúsund krón- ur á mánuöi. Oft hefur heyrzt aö menn hafi keppt aö þvi aö veröa bankastjórar. Má vel vera aö þeirra heföarstand sé slikt aö þaö þyki eftirsóknarvert aö hafa titil- inn. Jafnvel má geta sér þess til aö aöstaöan þyki góö. En launin munu hafa komiö á óvart nú þeg- ar búiö er aö ljóstra upp þessari miklu helgisögn. Rúmar sex hundruö þúsund krónur á mánuöi fyrir bankastjóra á sama tima og stúlka á Isafirði upplýsir aö hún hafi f jögur hundruö þúsund krón- ur I fiski á mánuöi er varla til aö súpa hveljur yfir, jafnvel ekki I Þjóöviljanum, þótt þaö sé þvi blaöi hentugt um þaö leyti sem eigendur þess ástunda kauprán á kjallaraliöi launataxtanna. Hélt þau væru milljón Þótt bankaleynd riki um hin mikilsverðari atriöi brást Svavar Gestsson viöskiptaráöherra, vel Ég haföi I einfeldni minni haldiö aö bankastjórar heföu ekki undir einni milljón króna á mánuöi, og þykist jafnframt viss um aö svo hafa fleiri haldiö. Þeg- ar tekiö er tillit til ábyrgöar og vafsturs viö aö mylgra peningum til einstaklinga sem fylla biðstofurnar á hverjum degi, sárt þurfandi fyrir vixla og peninga- stöðu bankanna sem sifellt eru aöþrengdir um lausafé, þá skera nú þessar rúmu sex hundruö þús- und krónur ekki iaugun. Auk þess er vert aö hafa i huga aö störf bankastjóra hafa ekki veriö gerö auöveldariá siöustu árum, þegar i þeirra hlut hefur komiö aö ann- ast margvislega skömmtunar- stjórn, sem beinlinis færöist yfir á bankakerfiö þegar rikis- skömmtuninni lauk. 1 þriöja lagi er vert aö hafa I huga aö þaö býöur hættunni heim aö hafa bankastjóra þannig launaöa aö þeir séu meö ekki öiiu frjáisir aö sinum geröum, og aldrei hvarfli að neinum aö þeir kunni sökum fjárskorts aö stiga vixlspor I heimi fjármálanna. Þaö kemur aö visu fram i skýrslunum, aö á móti furöulega lágum launum bankastjóra kem- ur töluverö risna sem getur orkaö

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.