Morgunblaðið - 05.01.2001, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
KAUP-
MANNA-
HÖFN
Ára-
móta-
uppgjör
Það hefur gengið aldeilis
glimrandi vel hjá Dönum í
filmubransanum undan-
farin ár. Síðastliðin tvö ár
hefur tekjuhlufall danskra
mynda gagnvart erlendum
myndum á heimamarkaði
aukist úr því að vera ca.
14-15% í ca. 19%.
Árið 1999 munaði mestum gamanmynd Sus-anne Biers Deneneste ene, sem sóp-
aði til sín yfir 850.000 áhorf-
endum, sem er næstum helm-
ingi fleiri áhorfendur en
ameríska toppmyndin Toy Story
2 nær í dönskum kvikmynda-
húsum á síðasta ári.
Og á árinu 2000 munar mest
um teiknimyndina Hjælp! Jeg er
en fisk, danskt svar við Disney,
sem hefur dregið til sín um
330.000 þúsund áhorfendur,
eða svipað og Gladiator og Jam-
es Bond og talsvert meira en
Mission Impossible 2. Samt
virðist hinn raunverulegi sig-
urvegari ársins aftur ætla að
vera kona, í þetta sinn leikstjór-
inn Lone Scherfig, sem frum-
sýndi dogma-mynd sína Itali-
ensk for begyndere 8. des. sl.
og nær á 10 dögum rúmlega
130.000 áhorfendum. Þetta er
ein besta byrjunaraðsókn hjá
danskri mynd og því bendir
margt til, að hún gæti náð svip-
uðum vinsældum og Den
eneste ene.
Þetta er jafnframt fyrsta
dogma-gamanmyndin. Og á jóla-
dag var frumsýnd ný gaman-
mynd eftir Susanne Bier, Hånd-
en på hjertet, og þótt hún fái
ekki eins góða umsögn hjá
gagnrýnendum og Den eneste
ene, gæti hún gert það gott í
miðasölunni.
Það vekur athygli, að þegar
staðan er gerð upp 18. des-
ember er Dancer in the Dark í 3.
sæti yfir danskar myndir, með
„aðeins“ um 194.000 áhorf-
endur, og líklegt að hún endi í 4.
sæti ef Italiensk.... hefur staðið
sig vel um jólin. Miðað við sig-
urinn í Cannes og hið feiknalega
umtal í fjölmiðlum hlýtur þessi
aðsókn í heimalandinu að valda
vonbrigðum. Sumir hafa velt því
fyrir sér, að það hafi verið beðið
of lengi með frumsýningu í Dan-
mörku (8. september), en tíma-
setningin var miðuð við útkomu
geisladisksins með tónlist
Bjarkar úr myndinni.
Það vekur líka athygli, að þeg-
ar kvikmyndagagnrýnendur
blaðsins Politiken velja bestu
dönsku myndir ársins, lendir
Italiensk for begyndere í 1.
sæti, Bænken eftir Per Fly í 2.
sæti og Dancer ... í 3. sæti.
Dancer ... hefur hins vegar
selst um allan heim og yfirleitt
fengið mjög góða umfjöllun,
þannig að óneitanlega kallar
þetta fram í hugann, að „enginn
er spámaður í eigin föðurlandi“.
Í dag, 5. janúar, verður loks
frumsýnd hér dogmamynd nr. 4
The King is alive eftir Kristian
Levring. Ný mynd eftir Bille
August, En sang for Martin,
verður frumsýnd 23. mars nk.
og margt fleira er í vændum.
Sigurður Sverrir
Pálsson
Cruz í
endur-
gerðinni
Ein af jólamyndunum hér í ár var
spænska myndir Opna augu þín
með Penelope Cruz. Ákveðið hefur
verið að endurgera hana í Hollywo-
od og ætlar Cameron Crowe að
leikstýra henni undir heitinu Vanilla.
Með aðalhlutverkin fara Tom
Cruise, Cameron Diaz og Penelope
en myndin er spennutryllir eins og
þeir vita sem séð hafa spænsku út-
gáfuna og gerist á mörkum veru-
leika og sýndarveruleika. Þess má
geta að leikstjóri myndarinnar, Alej-
andro Amenábar, lauk nýlega við
sína fyrstu mynd sem leikin er á
ensku.
Kobbi kvið-
ristir og Hug-
hesbræður
Leikstjórabræður kvikmyndanna
eru nokkrir; Warchowskí og Coen
og Hughes þeirra
helstir. Hughes-
bræður, Albert og
Allen, eru kunnir
fyrir myndirnar
Menace II Society
og Dead Presid-
ents, sem fjölluðu
um vandamál
svertingja en í
nýju myndinni
þeirra er umfjöllunarefnið allt ann-
að. Hún heitir From Hell eða Frá
helvíti og er með Heather Graham
og Johnny Depp í aðalhlutverkum,
gerist í London á nítjándu öldinni og
segir frá eltingarleik lögreglunnar
við fjöldamorðingjann Kobba kvið-
risti. Sagt er að þeir bræður hafi
unnið að myndinni í fimm ár, fyrst
hjá Disney-fyrirtækinu, síðar New
Line og loks hjá Fox. Myndin er
byggð á sögu Alan Moores og Ed-
die Campbell með sama nafni og
rekur söguna af Kobba, sem enginn
veit hver var. Depp leikur lögreglu-
manninn sem stjórnaði rannsókn
málsins en Graham er götumella,
sem býr yfir vitneskju um Kobba.
Daldry í
Hollywood
Breski leikstjórinn Stephen
Daldry vakti mikla athygli á síðasta
ári þegar hann sendi frá sér mynd-
ina Billy Elliot en hún fjallaði um
ungan dreng sem fremur vildi læra
ballett en box og var faðir hans ekki
par ánægður með það val drengs-
ins. Síðan myndin var frumsýnd hef-
ur Hollywood-vélin sýnt áhuga á
Daldry og boðið honum verkefni og
svo gæti farið að hann gerði næstu
mynd sína vestra fyrir framleiðand-
ann Scott Rudin. Rudin er að setja
The Hours í framleiðslu en hún
byggir á Pulitzerverðlaunasögu eftir
Michael Cunningham og fjallar um
Virginia Woolf.
Helgeland
gerir riddara-
mynd
Brian Helgeland, sem gerði
handrit L. A. Confidential og stýrði
Payback, er líka
kominn á allt aðr-
ar slóðir í nýju
myndinni sinni
sem heitir A
Knight’s Tale eða
Riddarasaga. Hún
er ævintýramynd
sem gerist á mið-
öldum og fara
ástralski leikarinn
Heath Ledger,
Mark Addy úr
Með fullri reisn og
Paul Bettany með helstu hlut-
verkin. Ledger lék síðast í Frelsis-
hetjunni eða The Patriot á móti
landa sínum Mel Gibson og þykir
efnilegur ungur leikari. Í myndinni
leikur hann bónda sem dreymir um
betra líf og gerist riddari og vonast
til þess að vinna ástir ungrar prins-
essu. Myndin er tekin í Tékklandi.
Fólk
Depp: Löggan.
Cruz í Opnaðu augun:
Endurgerð vestra.
Heath Ledger:
Bóndi gerist
riddari.
Að vísu getur maður ekki saknað þeirra í beinni
merkingu vegna þess að með því að leita vel á
myndbandaleigunum er hægt að hafa uppi á almennilegum vestrum þótt
ekki séu þeir margir. Ég sakna þess að þeir skuli ekki vera gerðir lengur.
Síðasti vestrinn sem kom hingað í kvikmyndahús var Hinir vægðarlausu
eða Unforgiven og það eru mörg ár síðan.
Hinir vægðarlausu var verulega góður, gamaldags vestri eftir Clint
Eastwood, sem haldið hefur merki vestrans á lofti lengur en nokkur ann-
ar. Hann naut mikilla vinsælda í kvikmyndahúsunum og sýndi að enn var
líf með vestranum þrátt fyrir stopula framleiðslu. En hann dugði ekki til
þess að ýta við framleiðendunum. Mógúlarnir í Hollywood eru hættir að
gera vestra. Markaðurinn hefur ekki pláss fyrir þá lengur. Vestrinn varð til
um leið og kvikmyndagerðin. Fyrir nokkrum áratugum var helmingur allrar
kvikmyndaframleiðslu í draumaverksmiðjunni vestrar og áhuginn á þeim
var gríðarlegur, ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur um allan heim. Allar
helstu stjörnurnar léku kúreka í vestrum. Allir helstu leikstjórarnir stýrðu
vestrum. Nú eru þeir ekki lengur gerðir.
Áhrifin frá kúrekamyndunum er að finna í líklega annarri hverri hasar-
mynd sem gerð er vestra og miklu víðar, m.a. í íslenskri kvikmyndagerð
svosem kunnugt er. Vestrinn naut gríðarlegra vinsælda á sinni tíð jafnt í
sjónvarpi (síðasti góði sjónvarpsvestrinn var Lonesome Dove, sællar
minningar) sem kvikmyndum. Þegar Hollywood ákvað að endurgera Sjö
samuræja eftir Kurosawa var vestrinn það form sem varð fyrir valinu. Kom
ekkert annað til greina. Fólk var farið að hlæja að stirðleika John Waynes
undir það síðasta en það er varla til langlífari eða meiri hetja á kvikmynda-
öld.
Kannski var vestrinn orðinn að tímaskekkju á geimöld. Annað eins hef-
ur orðið úreldingu að bráð eftir því sem tímar líða. Heilu kynslóðirnar eru
vaxnar úr grasi sem vita ekki hvað vestri er og kæra sig líklega lítið um að
vita það. Hafa aldrei séð kúreka ríða yfir sléttuna nema kannski Lukku
Láka í myndabókum. Vita ekki hver John Wayne var. Núna er Lara Croft
hetjan góða (einskonar kúreki samt). Þær hafa aldrei séð vestra eins og
The Searchers þar sem Wayne og John Ford, líklega mesti vestraleikstjóri
allra tíma, leiddu saman hesta sína og gerðu sígilt meistaraverk. Eða The
Man Who Shot Liberty Valence, sem eins og margir Ford-vestrar fjallar um
innreið siðmenningar í hið villta vestur.
Þær hafa aldrei séð vestra í sinni einföldustu mynd eins og bara mynd-
irnar um Roy Rogers þar sem hvítir hattar og svartir gerðu manngerðunum
skil sem báru þá. Eða Shane sem var Roy Rogers í meðförum skálds.
Þrjúbíóin í gamla daga voru að miklu leyti vestrar og við héldum öll með
indjánunum. Stöppuðum niður fótunum þegar hestarnir þeystu yfir tjaldið.
Peckinpah tók sakleysið úr þeim. Leone gerði úr þeim spagettí. East-
wood fylgdi þeim til grafar. Hann hefur aldrei hætt að leika kúreka; Dirty
Harry er aðeins enn einn einmana kúreki og búgarður hans er stórborgin.
Það var talsvert ánægjuefni fyrir vestraunnanda, sem sjálfsagt fer fækk-
andi með degi hverjum, að lesa um það í Morgunblaðinu undir aldalokin
að myndbandaleiga í Reykjavík bauð upp á vestraveislu, eins og það var
kallað. Það var löngu tímabært að draga athyglina að vestranum en eig-
andi leigunnar sagði veisluna haldna til þess að minna á hina sígildu kvik-
myndagrein.
Það sýnir að enn eru áhugamenn til um þessa gömlu og allt að því
gleymdu kvikmyndategund sem áður lék svo stórt hlutverk í kvikmynda-
húsunum. Því miður verða líklega allar greinar um vestra minningagreinar
héðan af og það er slæmt. En á meðan við þó nennum að minnast þeirra
er kannski von að þeir vakni einhverntíman aftur til lífsins. Og kannski sé
tímabært að taka veisluna úr myndbandaleigunum og halda hana í kvik-
myndahúsi með nokkrum bitastæðum vestrum.
Vegna þess að ég held að það séu miklu fleiri en bara ég sem sakna
vestranna.
Sjónarhorn
Ég sakna
vestranna
Eftir Arnald Indriðason
„Ég hef gengið lengi með þetta verk-
efni í maganum,“ segir Viðar um til-
urð myndarinnar. „Það byrjaði með
því að ég fékk styrk úr Menningar-
sjóði útvarpsstöðva og hugðist þá
gera tveggja þátta sjónvarpsseríu í
þeim stíl sem Ameríkanar hafa mikið
beitt í leiknum myndum sem byggja
á sannsögulegum atburðum. Mér
finnst slíkar myndir oft skemmtilegri
en þær sem eru eingöngu skáldskap-
ur. Lífið er oft miklu ófyrirsjáanlegra
en skáldskapurinn, þegar menn
skrifa glæpasögur er yfirleitt einhver
lógík í spilinu og lesendinn glímir við
að finna hana að baki þess að glæp-
urinn er framinn. En í lífinu gerir fólk
stundum hluti sem eru svo ótrúlegir
að væru þeir settir fram sem skáld-
skapur þætti mönnum höfundurinn
fara rækilega yfir strikið. Það var svo
Friðrik Þór Friðriksson sem ráðlagði
mér að gera þetta að mynd fyrir hvíta
tjaldið. Honum þótti efnið eiga erindi
þangað og það finnst mér reyndar
líka – það er stærra en lífið.“
Viðar hóf tökur síðastliðið vor og
stefnir að því að ljúka þeim á næstu
mánuðum. Hann leggur mikla
áherslu á að myndin sé skáldskapur.
„Ég hef alls ekki í hyggju að reyna að
upplýsa Geirfinnsmálið, ég veit ekk-
ert um það frekar en aðrir. Það sem
freistar mín fyrst og fremst er að lýsa
andrúmsloftinu í þjóðfélaginu. Þetta
tiltekna sakamál situr svo fast í fólki
af því það var eins og íslenska þjóðfé-
lagið missti sakleysi sitt þegar þetta
gerðist árið 1974. Menn höfðu fram
að því talið sér trú um að við værum
óhult fyrir þeim óhæfuverkum sem
eiga sér stað úti í hinum stóra heimi.
Hér fremdu menn ekki morð af
ásettu ráði, heldur gerðist það í fyll-
eríi eða eitthvað svoleiðis. En skyndi-
lega rann upp fyrir fólki að þarna
benti allt til þess að morð hefði verið
framið af ásettu ráði og þá snerist
þetta yfir í algert ofsóknarbrjálæði
og menn fóru að sjá morðingja í
hverju horni. Þetta er það sem ég
leitast við að skýra í myndinni, sem
er þannig þjóðfélagslýsing fremur en
persónusaga. Þess vegna er varla
hægt að segja að einhver ein aðalper-
sóna sé í myndinni, og þótt ýmsar
fyrirmyndir séu að persónum er þeim
iðulega steypt saman og einnig koma
fram persónur sem eiga sér engar
fyrirmyndir. Myndin slær sem sagt
engu föstu um það sem raunverulega
gerðist, en hins vegar eru viðraðar
ýmsar hugmyndir sem voru í gangi á
sínum tíma.“
Hlutverk unga fólksins sem flæk-
ist í málið eru í höndum Atla Rafns
Sigurðssonar, Álfrúnar Örnólfsdóttur
og Þórhalls Sverrissonar og Erlingur
Gíslason leikur þýskan sakamálasér-
fræðing. Frumsýning Leirburðar er
áætluð næsta vetur.
er 49 ára gamall og lærði
kvikmyndaleikstjórn í
franska ríkiskvikmynda-
skólanum sem þá hét ID-
HEC en heitir núna FEM-
IS. Hann hefur gert
margar sjónvarpsmyndir,
bæði leiknar s.s.
Draugasögu og Tilbury,
og heimildarmyndir s.s.
SÍS – ris, veldi og fall
sem tilnefnd var til fyrstu Eddu-
verðlaunanna. Um þessar
mundir vinnur Viðar að sjón-
varpsþáttum um könnun
geimsins, tengir það landafund-
unum miklu í minningu Leifs
heppna Eiríkssonar og þeir
verða frumsýndir á þessu ári.
Viðar Víkingsson
Þegar íslenska þjóðin
glataði sakleysi sínu
Leirburður: Atli Rafn Sigurðsson íhlutverki sínu.
Leirburður er heiti kvikmyndar í vinnslu sem byggist á Geir-
finnsmálinu illræmda. Páll Kristinn Pálsson ræddi við leikstjór-
ann Viðar Víkingsson.