Morgunblaðið - 16.01.2001, Page 1
Þriðjudagur
16. janúar 2001
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
Með vöru-
bíl í Njörva-
sundið 2
Lagnafréttir
Landskrá
fasteigna
Hvar á að loka fyrir vatnið? 3
Allt frá fornum
jarðabókum til raf-
rænna viðskipta 22
Verð
við allra hæfi
NOKKUR aukning var í lóðaút-
hlutun í Reykjavík í fyrra miðað
við árið þar á undan, en þó ein-
göngu í lóðum fyrir fjölbýlishús.
Lóðir fyrir einbýlishús, raðhús og
parhús voru færri.
Alls var í fyrra úthlutað 45 ein-
býlishúsalóðum, 95 lóðum fyrir
raðhús og parhús og lóðum fyrir
285 íbúðir í fjölbýli, samtals 425 en
298 árið 1999.
Langflestar þessara lóða voru á
hinu nýja byggingarsvæði borgar-
innar í Grafarholti fyrir ofan Vest-
urlandsveg. Athygli vekur, að lóð-
unum var að langmestu leyti
úthlutað á tímabilinu febrúar-apríl
en sáralítið þar fyrir utan.
Þó að nokkur aukning hafið orð-
ið á lóðaframboði hjá borginni seg-
ir það lítið í þeirri miklu lóðaeft-
irspurn sem ríkt hefur, ekki bara í
Reykavík heldur á höfuðborgar-
svæðinu öllu.
Ásókn í byggingarlóðir í Áslandi
í Hafnarfirði hefur verið gríðarleg
og þetta svæði er að byggjast upp
með ótrúlegum hraða. Yfirleitt
hafa lóðir þar farið jafnóðum og
þær voru auglýstar og fengu færri
en vildu. Sömu sögu er að segja
um lóðir í Hraunsholti í Garðabæ
og í Salahverfi í Kópavogi. Þó að
uppbyggingin sé ör og mikil, ekki
hvað sízt í Salahverfi, svarar hún
ekki eftirspurninni.
Þær miklu deilur, sem spruttu
út af lóðaúthlutun í Mosfellsbæ nú
fyrir skömmu og sér raunar ekki
fyrir endann á, lýsa ástandinu
kannski betur en nokkuð annað.
Lóðaskorturinn á höfuðborgar-
svæðinu á örugglega sinn þátt í
þeim verðhækkunum sem orðið
hafa á fasteignum á höfuðborg-
arsvæðinu á undanförnum misser-
um.
Vegna mikillar eftirspurnar hafa
sveitarfélögin gengið á lagið að
hækka verð á lóðunum og hærra
verð á nýsmíðinni leiðir svo að
sjálfsögðu einnig til hærra verðs á
notuðu húsnæði.
Sumir segja að hluti af verð-
hækkunum undanfarinna missera
hafi verið eðlilegur. Í samdrætt-
inum þar á undan hafi verð á íbúð-
arhúsnæði verið orðið svo lágt,
einkum á nýju húsnæði og á stærri
eldri eignum, að það hlaut að
hækka með vaxandi eftirspurn.
Þegar rætt er um lóðaúthlutanir
í Reykjavík má ekki gleyma þeim
nýbyggingarsvæðum sem borgin
hefur ekki umráð yfir og koma því
ekki til úthlutunar af hennar hálfu.
Þar má nefna lóð Símans í Gufu-
nesi en á henni urðu eigendaskipti
fyrir skömmu. Þar er um að ræða
um 10 hektara af byggingarlandi
og ekki óeðlilegt að miða við 25
íbúðir á hektara eða 250 íbúða
svæði í heild.
Þetta svæði hefur marga aug-
ljósa kosti sem íbúðahverfi en það
er umlukt gróinni byggð á alla
vegu. Margvísleg þjónusta er því
þegar til staðar í næsta nágrenni.
Nokkru meiri lóðaúthlutun hjá
borginni í fyrra en árið þar á undan
! "
#$%!&'
(
)
*'
+
*"
, *-
%%'
.
/.0
01
* /.0
0 .2&1
30450
6 0
7043 0
6 0
304
30
6 0
804 0
0
.0
0
! 3
39
39
3
3
33
33
3
3
: 2 ;
<88 = 3
3 .0
9 .0
.0
3
0 .
>
>
" ! #$$$ #$$
9
9
; <75 = 3
(2.26? 2&.
2 2
!
04
70
6 0
%&
'
04330
0
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Fyrsta
heimilið