Morgunblaðið - 16.01.2001, Síða 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ kl. 09:00-18:00
OG 13:00-15:00 UM HELGAR.
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
Þór Þorgeirsson
sölumaður
Brynjar Fransson
skjalagerð
Steinbergur
Finnbogason
sölumaður
Erla Waage
ritari
Atvinnuhúsnæði
Símar 575 8509 og 575 8504
Sverrir Kristjánsson 575 8501
ÞVERHOLT - MOSF. Mjög góð 115 fm íbúð á
tveim hæðum. Mikið útsýn og vandaðar innrétting-
ar. V.12,3.
FURUGRUND Nýk. á einkasölu falleg tæplega 80
fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Fjölbýli í góðu ástandi og
flísar á flestum gólfum. Áhv. 4,6 m. V. 10,5 m.
SÓLARSALIR - KÓP. 4ra til 5 herb. íbúðir í
þessu glæsilega fimm íbúða húsi með tveim inn-
byggðum bílskúrum. Í húsinu er ein 4ra herb.
125,10 fm íbúð og fjórar 5 herb. 137,20 fm íbúð-
ir með 4 svefnherbergjum. Verð á 4ra herb. íbúð-
inni er kr. 15,3 m. en verð á 5 herb. íbúðunum er
frá kr. 16,4 m. Teikn. og skilalýsing á skrifstofu.
EIÐISTORG - SELTJARNANESI Góð 2ja herb.
íbúð á 3ju hæð. Korkur og teppi sem er farið að
láta á sjá á gólfum. Stórar suðursvalir. Stutt í alla
þjónustu. V. 8,9 m. Áhv. 3,4 m.
SELJALAND Lítil stúdíóíbúð á 1. hæð á þessum
frábæra stað. íbúðin er um 25 fm. V. 4,5 m.
MEISTARAVELLIR Hæð, par- eða raðhús á Ak-
ureyri óskast helst í skiptum (ekki skilyrði) fyrir
íbúð á Meistaravöllum í vesturbæ Reykjavíkur sem
er 79,9 m² á stærð og er 3ja herb. Áhv. 4,4 m. V.
10,5 m.
VANTAR ALLAR TEGUNDIR HÚSNÆÐIS Á SÖLUSKRÁ SKOÐUM SAMDÆGURS. EKKERT SKOÐUNARGJALD
Atvinnuhúsnæði
KÓPAVOGUR Vorum að fá til sölu gott gistiheimili
með herbergjum og stúdíóíbúðum, leigutekjur ca 1
millj. á mánuði. Húsið er allt nýtekið í gegn að inn-
an og vel búið tækjum. Teikningar og nánari uppl. á
skrifstofu.
HAFNARFJÖRÐUR Vorum að fá í sölu 484,4 fm
atvinnuhúsnæði ásamt mögulegum byggingar-
rétti. Húsnæðið er með góðri lofthæð og inn-
keyrsludyrum. Teikningar á skrifstofu. Verð 39,5.
FUNAHÖFÐI Vorum að fá í sölu gott húsnæði
sem skiptist upp í skrifstofuhæð, verslunar- og
eða skrifstofuhæð og góðan kjallara með inn-
keyrsludyrum. Húsið leigist eða selst í stærri eða
smærri einingum.
BREIÐAVÍK Höfum til sölu 95 fm 3ja herb. íbúð-
ir og 130 fm 4ra herb. íbúðir í nýju húsi. Íbúðirn-
ar afhendast fullbúnar án gólfefna í maí á þessu
ári. Verð á 3ja er 11,9 m. og á 4ra 14,9 m. Hægt
er að kaupa bílskúr og er verðið á honum 1,3 m.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
HÓLMATÚN - ÁLFTANESI Fallegt 198,7 fm par-
hús sem skiptist þannig að á neðri hæð eru 128
fm + 31,5 fm bílskúr og á efri hæð eru 39 fm Hús-
ið afhendist fokhelt og er til afhendingar strax.
Áhv. 7,6 m. V. 13,6 m.
VERSLUN - SKRST. - LAUGAVEGI
Vorum að fá 155 til 465 fm verslunar- og skrifstofu-
pláss í nýju húsi á besta stað við Laugaveg. Pláss-
unum verður skilað tilb. til innréttinga með stæði í
bílageymslu. Góð lán. Teikn-
. á skrifstofu.
TANGARHÖFÐI Vorum að fá í sölu gott 561 fm at-
vinnuhúsnæði með góðri lofthæð og 2 innkeyrslu-
dyrum. Húsið er á 2 hæðum með upphituðu plani.
Áhv. 12,6 millj.
MELABRAUT - HF. Til sölu er húsnæði við
Melabraut í Hf. ásamt trésmíðaverkstæði í full-
um rekstri. Húsn. selst með öllum tækjum (sjá
tækjalista á skrifstofu Fasteignamiðlunar). Hús-
næðið skiptist í anddyri, skrifstofu, snyrtingu,
kaffistofu, rúmgóðan vélarsal með sprautuklefa
sem tekur loftið inn og hitar það upp og blæs
því síðan út. Í öllum salnum er spónasog. Góð
innkeyrsluhurð er inn í húsnæðið. Lofthæð við
vegg er ca 2,80 mtr. og í mæni 4,70 mtr. Bygg-
ingarréttur við húsið. Lóðin er 1.922 m².
Brynjar Baldursson
sölumaður
Örn Helgason
sölumaður
Guðmundur Þórsson
sölumaður
Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Veffang: www.fasteignamidlun.is
Netfang: brynjar@fasteignamidlun.is
BLESUGRÓF
Sjarmerandi 110 fm einbýli með tveim íbúðum.
Húsið er forskalað á báru og skiptist í rúmg. 3 herb.
íbúð og litla stúdíóíbúð. Húsið stendur á fallegum
stað við enda Fossvogs. Áhv 6,1 m. Verð 12,9 m.
GOÐATÚN - GARÐABÆ Gott tæplega 160 fm ein-
býli á einni hæð ásamt 37 fm bílskúr. 4 góð svefn-
herbergi, rúmgóðar stofur og heitur pottur í garði.
Húsið var klætt að utan í fyrra og þak er tveggja ára.
Áhv. 5,9 m. V. 17,6 m.
TRÖNUHÓLAR
Góð 3ja herb. íbúð, neðri sérhæð í einbýli samtals
124 m² þar af bílskúr 20 m². Parket, flísar og teppi
á gólfum. Tengi f/þvottavél á baðherb. V. 12,5 m².
ÞVERHOLT - MOS. Mjög góð íbúð á besta stað í
Mos. Íbúðin er á tveim hæðum og eru 3. svefnher-
bergi og tvær stofur. Suðursvalir með miklu útsýni.
115 fm. V. 11,9.
FÍFULIND Falleg 130 fm íbúð á tveimur hæðum.
Parket og flísar á gólfum, fallegar innréttingar,
suðursvalir og bílskúrsréttur. Áhv. 8,7 V. 14,7 m.
FELLSÁS - MOS. Glæsilegt parhús á 2 hæðum
með innb. bílskúr, á besta útsýnistað í Mosfells-
bæ. Húsið verður afhent tilbúið að utan og fok-
helt að innan. Teikn. á skrifstofu. Verð 12,9 m.
GARÐABÆR - HÖRGATÚN Nýkomið í einka-
sölu fallegt og vel við haldið einbýli á besta stað Í
Garðabæ samtals 178,3 fm á þrem pöllum, þar af
innbyggður bílskúr 30 fm. Allt nýtt í eldhúsi falleg-
ar innréttingar. Parket og flísar á gólfum. Garður
fallegur með háum trjám og stórri verönd. V. 19,9.
Áhv. 4,7 m. húsbréf og veðdeild.
HAGAMELUR
Falleg 107 fm íbúð, aðeins niðurgrafin á góðum
stað í vesturbænum. 3 svefnh., stór parketlögð
stofa og fataherbergi. Eign í góðu ástandi. Áhv.
5,4 m. V. 12,9 m.
REYRENGI - GRAFARVOGI Falleg 4ra herb. 104
fm íbúð á 3. hæð í fjölbýli ásamt stæði í bílgeymslu.
Íbúðin er m.a. rúmgóð stofa með vestursvölum út
af, þrjú svefnherb., fallegt eldhús, baðherbergi o.fl.
Þvottaaðstaða í íbúð. Sérinngangur af svölum. V.
11,9 m. Áhv. 6,4 m.
HRÍSRIMI - BÍLGEYMSLA Góð 3ja-4ra herb.
95,2 fm íbúð í vel við höldnu fjölbýli með stæði í
bílageymslu. Parket og flísar á gólfum, tvö svefn-
herb. og möguleiki á því þriðja. Áhv. 8,0 m. V. 11,5
m.
BERGSTAÐASTRÆTI
3ja herb. ca 65 fm íbúð á 2. hæð í þessu reisulega
húsi og þessum vinsæla stað í Þingholtunum. Áhv.
4,7 m. húsbréf. Verð 8,9 m.
LUNDABREKKA - KÓP. Falleg 3ja herb. íbúð á 1
hæð 86,5 fm sem öll er nýtekin í gegn, með sérinn-
gangi af svölum. Flísar og Merbau-parket á gólfum.
Suðursvalir. Geymsla í íbúð og kjallara. Þvottaher-
bergi á hæðinni. V. 10,5 m.
ÁLFHÓLSVEGUR Falleg ca 100 fm hæð á góð-
um stað í Kópavogi. Parket og flísar á gólfum,
þrjú svefnherb. og nýtt rafmagn. Áhv. 5,4 m. hús-
bréf. Verð 11,3 m.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR. Falleg 4ra herb. íbúð á
2. hæð í miðbænum ca 100 fm. Snyrtileg sameign.
Forstofuherbergi með inngangi í íbúð. Flísar og
parket á gólfum. Þvottaaðstaða á baði. Svalir.
TIL LEIGU EÐA SÖLU. Vorum að fá í sölu eða til leigu ca 7.000 fm vel byggða eign í stærri eða smærri ein-
ingum og afhenta eftir óskum. Húsið verður klætt að utan og verður svo til viðhaldsfrítt. Eignin gefur stórkost-
lega möguleika sem verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Teikningar á skrifstofu.
MIÐSVÆÐIS - STÓR EIGN
L
ANDSKRÁ fasteigna er ein
skrá um það sem fasteigna-
eigendur og stjórnvöld
þurfa að varðveita um fast-
eignir. Myndun skrárinnar er mikil
framför, því að hún leysir af hólmi
margar ótengdar skrár. Sýslu-
mannsembættin munu færa í skrána
það sem nú er fært í þinglýsinga-
bækur, sveitarfélögin munu skrá
margt af því sem byggingafulltrúar,
fjármáladeildir og skipulagsyfirvöld
ákvarða auk þess sem Fasteignamat
ríkisins mun færa í skrána margvís-
legar upplýsingar auk brunabóta-
mats og fasteignamats.
Á einfaldan hátt má segja að með
samruna skráa Fasteignamats rík-
isins og þinglýsingakerfis sem þróað
hefur verið á vegum dómsmálaráðu-
neytisins hafi Landskrá fasteigna
orðið til 1. janúar 2001.
Aðdragandinn var hins vegar
lengri. Með breytingu á lögum um
skráningu og mat fasteigna, þinglýs-
ingalögum og lögum um bruna-
tryggingar sem Alþingi samþykkti
sl. vor, var formlega gengið frá
stofnun Landskrár fasteigna. Und-
irbúningur að þessu mikla verki
hófst hins vegar fyrir mörgum árum.
Fjögurra ára verkefni
Þetta kom fram í viðtali við Hauk
Ingibergsson, forstjóra Fasteigna-
mats ríkisins. Haukur tók við starfi
forstjóra Fasteignamats ríkisins fyr-
ir tæpu ári. Hann er sagnfræðingur
að mennt og hefur gegnt ýmsum
stjórnunarstörfum innan ríkiskerfis-
ins, síðast sem skrifstofustjóri í fjár-
málaráðuneytinu og þar áður sem
forstöðumaður Hagsýslu ríkisins.
„Landskráin verður hægt og síg-
andi að myndast, eign fyrir eign,
næstu fjögur árin en þá er gert ráð
fyrir að sýslumannsembættin hafi að
mestu lokið við að færa úr þinglýs-
ingabókum í skrána,“ segir Haukur.
„Þær eru sennilega stærsta opin-
bera gagnasafnið sem enn hefur ekki
verið tölvutekið.
Sérstakur stýrihópur ráðuneytis-
stjóra vann að undirbúningi Lands-
krár fasteigna um margra ára skeið
áður en að lagasetningu kom.
Mesta vinnan fór í að kerfissetja
skrána og forrita tilraunaútgáfur
sem fóru í prófun hjá sýslumanni og
byggingafulltrúa í Kópavogi en Þor-
leifur Pálsson sýslumaður þar hefur
verið mikill hvatamaður um myndun
skrárinnar.
Síðar var skráin einnig sett í þró-
un hjá sýslumanninum á Selfossi.
Stofnun Landskrár fasteigna hefur
því verið vel og vandlega undirbúin.
Landskrá fasteigna verður mikill upplýsingabrunnur
Allt frá fornum jarðabók-
um til rafrænna viðskipta
Um áramótin fékk Fasteignamat ríkisins nýtt og mik-
ilvægt hlutverk; að halda Landskrá fasteigna. En hvað
er Landskráin? Magnús Sigurðsson ræddi við Hauk
Ingibergsson, forstjóra Fasteignamatsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haukur Ingibergsson, forstjóri Fasteignamats ríkisins.