Vísir - 08.12.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 08.12.1978, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 8. desember 1978 M * Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Reykjaprent h/f ' Davfö Guömundsson Þorsteinn Pálssonábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gísli Baldur Garðarsson. Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrln Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns- son, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús ölafsson. Auglýsinga og sölustjóri: Páll Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611. Ritstjórn: Slöumúla 14 slmi 86611 7 llnur Askriftargjald kr. 2.500 krónur á mánuöi. Verö f lausasölu 125 krónur ein- takiö Prentun Blaöaprent h/f. Þeir bregðast í f jármála- stjórninni Því er oft haldið fram að það verði vinstri mönnum yfirleitt að fótakefli, þegar þeir fara með völd, að öll f jármálastjórn fari þá úr böndunum. Nú er rétti tíminn til að meta þessa kenningu í Ijósi þess, að desember- mánuður er mánuður f jármálalegra ákvarðana opin- berra aðila, bæði að því er varðar ríki og sveitarfélög. Sósíalistar ráða nú alfarið Reykjavíkurborg og hafa mest áhrif í ríkisstjórn landsins. Það vakti athygli i sumar er leið, að meirihluti sósíalista í Reykjavík virtist ætla að fylgja fram þeirri aðhaldsstefnu í f jármálum, sem var eitt af aðalsmerkjum Sjálfstæðisflokksins meðan hann fór með stjórn borgarmála. Sósialistar byrjuðu á því að hafa að engu kosninga- fyrirheit sitt um að greiða f ullar verðbætur á laun. Þeir sögðu einfaldlega að peningar væru ekki fyrir hendi. Þvi næst var ráðist í að skera niður ýmiss konar fram- kvæmdir. Dagvistunarstofnanir voru efst á niður- skurðarlistanum. Einsýnt var að nýi meirihlutinn ætlaði ekki að brenna sig á því að geta ekki stjórnað fjármál- unum. Fyrst í stað varð því ekki mikil breyting, þó að sjálf- stæðismenn hefðu misst meirihlutann til sósíalista. Þessi aðhaldsstefna hefur á hinn bóginn sætt gagnrýni í flokkskerfi sósíalista. Niðurstaðan er sú, að við gerð fjárhagsáætlunar hefur verið horfið frá aðhaldsstefn- unni til f jármálalegrar glundroðastefnu (sem að vísu er í samræmi við þá ríkisf jármálastef nu, sem nú er í mót- un). Talsmenn meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gefa að vísu enn út yfirlýsingar þess efnis að þeir ætli ekki að láta segja um sig að þeir geti ekki haft f jármálin i lagi. En hvernig á að ná endum saman? Það verður gert með því að stórauka skattheimtu. Það væri auðvelt að reka heimili, ef menn gætu sjálf ir skammtað sér laun án nokkurs tillits til efnahagslegra aðstæðna í þjóðfélaginu. Sósíalistar ætla að leysa þær fjármálalegu ógöngur sem þeir hafa ratað í við út- gjaldaákvarðanir f yrir næsta ár með því einf alda ráði að leggja meiri skatta á borgarana. Þetta er gert á sama tíma og stjórnvöld neyðast til þess að skerða laun allverulega i því skyni að hamla gegn víxlhækkunum kaupgjalds og verðlags. En ekki verður séð hvað réttlætir þær stórkostlegu skattabyrðar, sem samtímis á að leggja á borgarana og atvinnufyrir- tækin. Eins og nú standa sakir verður að gera þær kröfur til opinberra aðila, bæði ríkis og sveitarfélaga, að tak- marka útgjöld. Þessir aðilar verða eins og launþegar og atvinnufyrirtæki að herða sultarólina. Einsýnt er að sósíalistar i meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur virða þessi sjónarmið að vettugi. Fjármálalegri óstjórn verður bjargað með skattheimtu en ekki aðhaldi. Sama er uppi á teningnum við undirbúning f járlaga. Ríkissjóði hefur verið stefnt í botnlausan halla á þessu ári, eftir efnahagsaðgerðirnar í september og aftur fyrsta desember. A næsta ári verður sama uppi á teningnum. Að einhverju leyti verður óstjórninni mætt með aukinni skattheimtu. En í raun og veru er þetta upp- gjöf. Sú skattastefna, sem sósíalistar eru að innleiða um þessar mundir í því skyni að draga f jöður yf ir f jármála- óstjórn, á engan hljómgrunn. Krafa dagsins lýtur þvert á móti að minni opinberum umsvifum og lækkuðum sköttum. En Ijóst er að þessi hefðbundni fjármála- ákvarðanamánuður er nokkuð örugg vísbending um, að sú kenning er góð og gild að sósíalistar geti ekki haft opinber f jármál í lagi. ÞEIRRA EIGIN VI MorgunblaðiB er sennilega ábyrgðarlausasta stjórmarand- stöðudagblað noröan Alpafjalla. Og þótt viöar væri leitað. Þaö svifst einskis. Undir yfirskini óháðrar fréttamennsku flytur það fréttir sem hafa aðeins einn til- gang: Aö koma höggi á rikis- stjómina. í landinu sat „vinstri” stjórn árin 1971 til 1974. Hiin tók viö tiltölulega blómlegu búi. ógæfa efnahagsmála byrjaöi þegar nokkuð var liðið á feril hennar. Morgunblaðið hamaðist miskunnar- og purkunarlaust gegn stefnu þeirrar stjórnar i utanrikismálum. Nú situr önnur „vinstri” stjórn. Morgunblaðið, undir yfirskini óháörar fréttamennsku, hikar ekki við að rangfæra og beinlinis falsa fréttir. Þaö er hvergi ágreiningur nema i stjórnar- flokkunum, þó allir viti að nær daglega er verið að sparka i Albert Guömundsson, 1. þing- mann Reykvikinga, i þingflokki Sjálfstæöisflokksins. Morgun- blaðið falsar frásagnir frá Alþingi og breytir öllum áherzlum. Þeir ýkja fréttir um yfirvofandi at- vinnuleysi. Blaðið er tryllt. Þeir rangfæra fréttir um orö og athafnir fyrir og eftir kosningar. Morgunblaðiö er dragbitur á heilbrigt streymi upplýsinga i þjóöfélaginu. Reykjavíkurbréf Enginn veit, hver er höfundur Reykjavikurbréfs. Kannske er þaö sá kálgaröur tilfinninga sem heitir Matthias Jóhannessen. Kannske er þaö sá kálhaus stjórnmálaskoðana sem heitir Styrmir Gunnarsson. Kannske einhver annar. Enginn veit. A sunnudag ritar höfundur Reykjavikurbréfs kokhraustan pistil. Þar er Ólafi Jóhannessyni gefin súeinkunn að hann sé „lik- lega ábyrgðarlausasti stjórnmálaforingisem setiö hefur á valdastóli á Islandi a.m.k. frá lýöveldisstofnun”. Það munar ekki um þaö. Þetta væri mark- tæktef ekkivildi svotil að i fjögur ár stjórnaði Morgunblaðiö meö Ólafi Jóhannessyni. Þeir hættu ekki sjálfviljugir. Fólkið tók af þeim ráöin. Morgunblaöið þvældist meö Ólafi Jóhannessyni I gegn um gruggug vötn Klúbbs og Kröflu. Og allt hitt. Þeir skildu eftir efna- hagslegan refil fimmtiu prósent verðbólgu. Samfélagið á kafi i alls kyns spillingu. Atvinnuveg- irnir að stöövast. Og nú, nokkrum mánuðum siöar þykjast þeir geta gefið einkunnir. Já, miklir menn erum við, Hrólfur minn. Meirihlutastjórn Auövitað var það nokkurt siö- feröilegt áfall fyrir Alþýöuflokk- inn aö ganga til stjórnarsam- starfs undir forustu Ólafs Jóhannessonar og litla spillta miðflokksins. Samningar i pólitik eru siðspilltir. En þá ber þess aö gæta aö þar sem kommúnistar höfðu lýst þvl yfir aö þeir ynnu ekki með Sjálfstæðisflokki, þá er enginn meirihluti til án Framsóknarflokks, nema sam- stjórn Alþýöuflokks og Sjálf- stæðisflokks. Meirihluti Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks var og er sennilega ekki mögulegur vegna Alberts Guömundssonar. En hvað með Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk? Alþýöuflokkur- inn hefur Itrekað lagt fram út- færðar tillögur um skynsamlega hagstjórn. Eitt lykilatriöi er stjórnun peningamála, ogþá það, að endurgreiöslukjör lána séu með þeim hætti, aö lánin séu borguð til baka. Þetta hefur veriö kallað raunvaxtastefna og þetta er skýrt. Morgunblaðið hefur aö vísu ekki skýrt rækilega frá þvi, en Sjálfstæðisflokkurinn er þver- klofinn I þessu máli. Fram- sóknarmennskan á sér sennilega hvergi harðari talsmenn en i þingflokki Sjálfstæöisflokksins. Geir Hallgrimsson lýsir að visu yfir efnislegu samþykki sinu, en hann virðist ekki ráöa neinu. Morgunblaðið hjalar i forustu- grein. Það skiptir óvart ekki máli lengur. Sjálfstæöisflokkurinn virðist þverklofinn og liöónýtur. Þarna sitja aðstöðubraskarar, sem hafa ekki áhuga á heilbrigðri efna- hagsstjórn, hafa ekki áhyggjur af ogskiljaekki móraliseringu okk- ar jafnaöarmanna vegna verðbólgunnar. Eða af hverju skildu þeir eftir sig fimmtiu prósent veröbólgu? Og af hver ju settist Sverrir Hermannsson, andstæöingur raunvaxta, I Fram- kvæmdastofnun, þrátt fyrir f jálg- legar yfirlýsingar puntudrpngja eins og EllertSchram ogFriðriks Sofussonar — og æviráðinn að auki! Og af hverju sátu þeir i KYNSLÓÐASKIPT- IN I ISLENSKUM STJÓRNMÁLUM Kannski liönum tima I Islensk- um stjórnmálum verði best lýst með oröunum: Nú dugar for- maöurinn ekki og skal þá hengja varaformanninn. Hefur þessi þanki einkum orðið áberandi viö vaxandi áföll flokka i nær óvið- ráöanlegu stéttastriði og lang- vinnri baráttu við verðbólgu. Margir stjórnmálamenn eru hreinlega ekki til þess fallnir að flytja glóandi ræður um efna- hagsmál, kaup og kjör og vöru- prlsa. Margir nýir menn í næstu kosningum Eittaf þvl, sem getur haft úrslitaáhrif á þróun stjórn- mála á næstu árum er kynslóöa- skiptin á Alþingi og innan flokk- anna, og hve bratt þau geta gengiö fyrir sig. Þessi kynslóða- skipti eru þegar hafin að hluta, og I næstu kosningum munu fleiri nýir menn koma fram á sjónar- sviðið I landsmálum, sem munu varla lúta þvl i byrjun að gerast sporgöngumenn uppgefinna og úrræöalltilla manna, sem halda að eitt og allt séu tveir eða þrlr ráðherrastólar, hringaöir um svo lauslegan stjórnarsamning aö lesa má úr honum um veröurlag á Júpiter með sama rétti og lesin verður stjórnarstefna. Þagnarskýlin gisin og fúin Það getur veriö seinlegt og Neðanmóls Y Indriöi G7Þorstéinssonn skrifar: Eitt af því sem getur haft úrslita- | áhrif á þróun stjórn- mála á næstu árum er kynslóðaskiptin á Alþingi og innan flokk- anna, og hve hratt þau bgeta gengið fyrir sig.. sorglegt verk aö koma á heppi- legum kynslóöaskiptum I stjórn- málum, séu þeir sem fyrir sitja ákveönir að tefja fyrir þeim eftir mætti meö þaö fyrir augum að geta enn um sinn staðið til hlés við hin gömlu vandamál á meðan góður tlmi úrlausna fer til ónýtis I lagagerö um fjárbaöanir og rjúpu. Við höfum til skamms tlma verið lokað þjóðfélag, þar sem ákvarðanataka I stjónmálum var á svo háu plani, aö engir voru til frásagnar um aödragandann. Þingumræöa i meiriháttar mál- um fór oftast fram yfir gerðum hlut, en á undan og eftir fóru fram langar umræður um hin lltils- veröari mál eins og friðun fugla, refaveiðar og samræmingu rit- vélaborða. Fjöldi þeirra, sem alin var upp við hina gömlu þagnarhefö stjórnmálanna sitja enn á þingi og hafa verið eöa eru I valdastöð- um, og mega nú berjast móti straumi almennra skoðana, sem mótast eftir þvl hvernig mál hreyfast, meö fyrirlitningu á fjöl- miðlum og upplýsingamiðlun falda I brjóstinu. Klókindin fyrr- um þóttu góð af þvl þau komu yfirleitt sem boðskapur af himn- um. En nú gerast þagnarskýlin gisin og fúin. Við þessar aðstæður hljóta kynslóðaskiptin að verða skarpari en ella, einfaldlega vegna þess aö hinir eldri og lang- sætnu duga ekki lengur I þóf fyrir opnum tjöldum. Þola ekki menn úr sam- starfsf lokkunum Eftir mikil átök að undanförnu stöndum við enn I sömu sporum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.