Vísir - 24.03.1979, Qupperneq 11
Laugardagur 24. mars 1979.
11
*-- -'*>*;***»*
lexll: Páll Pálsson
Eitt nýjasta stórstirnið á himni popptónlistar er
amerikanski rokkarinn Eddie Money.
Fyrir átján mánuðum síðan var hann smápeð á
austurströnd San Francisco-flóa. i dag er önnur
plata hans/ ,/Life For The Taking", ofarlega á
bandaríska listanum yfir stórar plötur og lagíð
„Maybe l'm A Fool" með vinsælli lögum þar
vestra. Fyrsta plata Eddie Money seldist í platín
(þ.e. yfir milljón eintök) og af henni urðu tvö lög,
„Baby, Hold On" og „Two Tickets To Paradise"
mjög vinsæl, m.a. fór hið fyrrnefnda inná Top 10 í
Þýskalandi. Hann hefur farið tvær hljómleika-
ferðir um Evrópu og heima í Ameríkunni verið opn-
unarnúmer á mörgum konsertum hjá topphljóm-
sveitum einsog Rolling Stones, Eagles, Santana og
Fleetwood Mac (þar sem fjöldi áheyrenda er
yf irleitt á bilinu 20-50.000 í senn). Allt á einu ári.
Hér á eftir fer kynning Helgarblaðsins á Eddie
Money.
Af lögguættum
A6 spá Eddie Mahoney (siðar
stytt i Money) poppstjörnudómi
þegar hann var slita barnsskón-
um I Brooklyn, datt örugglega
engum I hug, þvi I fjölskyldu
hans höfðu karlmenn nefniega
alltaf gengiö i lögregluna er þeir
hættu að vera strákar og tóku að
stunda fullorðinsleiki. Og ekki
leit útfyrir annað en aö Eddie
gengi sömu braut og feöurnir.
Hann fór I lögguskólann (New
York Police Academy) er tim-
inn kom.
En þó hann eyddi deginum i
að læra hvernig framfylgja ætti
lögum og reglu I samfélagi Nýju
Jórvlkur, fóru kvöldin i að æfa
með rokkgrúppu og lifa þvi lifi
sem þvi fylgir. Sem leiddi til
þess að hann varð að velja á
milli, — það er sem sagt ekki
hægt aö vera bæði lögga og
rokkari i Ameriku þó það sé
hægt á lslandi.
Eddie Money varö þvl svarti
sauður löggufjölskyldunnar,
pakkaði niður brimbrettinu sinu
og Bob Dylan-plötunum, og
stakk af til Kaliforniu.
Oft í steininum
Þarsem hann gerðist aðal-
söngvari hljómsveitar sem
kallaöi sig The Rockets.
En Eddie var ekki aldeilis bú-
inn að segja bless viö lögregl-
una. í Kaliforniu var hann sifellt
uppá kant við lögin, tekinn fyrir
eiturlyfjabrask og sitthvað
fleira, s.s. pólitlskar mótmæla-
aðgeröir. Um þessa tlma segir
Eddie:
,,Þaö var fólk einsog ég sem
batt enda á striðið i Víetnam, ég
var svo oft I steininum að það
var fáránlegt.
Ég var mjög róttækur á þess-
um tima. Ég hef sennilega verið
of vinstrisinnaöur. Ég var
meölimur I S.L.A. (Symbionese
Liberation Army) og svoleiðis
. skíterii...
Þeir kalla mig syngjandi
löggu, en það væri miklu betur
við hæfi aö kalla mig syngjandi
fanga, þvi ég hef eytt meiri tíma
á bak við lás og slá en nokkru
sinni I lögreglubúningi.”
Bill Graham
Þrátt fyrir aö Eddie Money og
Rockets væru vinsælir hjá rokk-
unnendum I Berkeley við San
Franciscoflóann, leit ekki út
fyrir að þeir næöu neitt lengra
en þaö. En þá kom til sögunnar
stærsti umboðsmaður poppsins
fyrr og síðar,Bill Graham/jg var
að leita að listafólki fyrir nytt
fyrirtæki sitt, Wolfgang
Productions. Bill Graham, af
mörgum talinn guðfaðir þess af-
brigðis rokktónlistar sem kennt
er við vesturströnd Bandarikj-
anna, var ekki lengi að segja sitt
álit: „Eddie Money hefur allt:
ekki aðeins getur hann sungið,
EDDY
MONEY hefur
sent frá sér
tvær breiðskff-
ur „Eddie Mon-
ey” og „Life
F o r T h e
Taking”, sem
renna út einsog
heitar ömmu-
lummur. Lag
hans, „Maybe
I'm A Fool,” er
eitt það vinsæl-
asta I Banda-
rikjunum i dag.
eins frádráttur til skatts I hans
augum.”
Eddie ber mikla viröingu
fyrir Bill Graham og segir aö
ein ástæöan fyrir þvl hversu
lengi hann hafi verið aö komast
af stað, sé sú aö hann treystj.
engum til að fara með sin mál:
„Ég var utanveltu, beint af
götunni og ég trúði engum.”
En Bill Graham kann sitt fag.
Rokkari í
húð og hár
Eddie Money er rokkari fram
i fingurgóma og virðist eftir öll-
um sólarmerkjum að dæma
helst hafa viljað vera I eldlln-
unni I seinni hálfleik siöasta
áratugs, þegar vinsælasta
tónlistin var rokkaöur blús
sambr. hljómsveitir einsog
Cream, Free o.fl., enda koma
þessi áhrif glöggt fram I tónlist
hans. Fyrsta platan er öll mjög I
þessum anda, en á hinni seinni
fléttast inni rokkið funk og
diskó, með strengjahljóðfærum
og tjlheyrandi. Eddie Money
minnir llka oft þægilega á Chris
Rea, sérstaklega I söngnum.
Eddie Money tekur þvi
samanburöi tónlistar hans við
ofangreint timabil sem hól:
„Ég dáist mjög að hljóm-
sveitum einsog Bluesbreakers
og Cream, þvl það sem þeir
gerðu var heiöarlegt,” sagöi
hann viö blaðamann á dögun-
um.
Og þaö er sennilega einnig i
þessu sem vinsældir Eddie
Money eru raunverulega fólgn-
ar — i dag eru flestir vestur-
landabúar að skoða og dásama
fortiðina sambr. Gris — og hvaö
er nýbylgjurokk annað en út-
færsla á nostalglu þessari? Af
hverju ættu ekki fleiri en Alex
Haley að græða á rótum sinum?
T.d. Eddie Money! —PP
- HeigarhlaðlD kynnlr
rokkarann Eddle Money
spilað og samið lög, hann er Ifka
I fæddur til að standa á sviöi”, —
og Eddie Money varö fyrsti
sk jólstæöingur Wolfgang
Productions.
Um samband sitt við Bill
Graham sagöi Eddie viö blaöa-
mann Melody Maker fyrir
skömmu:
„Þessi gæi þénar 8 milljón
dollara á ári á þvf að selja
. stutterma boli, svo við erum að-
.MIRKRUi
MIO
SYNQJANDI
LDGOU...”