Vísir - 24.03.1979, Side 13
VlSIR
Laugardagur 24. mars 1979.
Stjórn Tónmenntakennarafélags tslands ásamt þeim kennurum á Akureyri sem mest mæddi á
undirbúnings mótsins. F.v. Þorvaldur Björnsson, Breiöagerðisskóla, Sigrióur Siguröardóttir
skóla Rangæinga, Jóhann Baldvinsson, Glerárskóia, Jón Karl Einarsson Barnaskóla Akraness, E1
borg Loftsdóttir, Lundaskóla, og Hlin Torfadóttir, Mýrarhúsaskóla.
ÞrosKar teiagsanaann og emr
vlnáttu mllll landshlutanna
sagðl Jðn Karl Elnarsson, lormaður Tónmenntafélagslns
Jón Karl Einarsson frá Akra-
nesi er formaður Tónmennta-
kennarafélags tslands og hafði
þvi ásamt stjórn félagsins veg
og vanda að mótinu. Það hlýtur
að hafa veriðóhægt um vik fyrir
mann i fullu starfi á Akranesi að
fjarstýra svo umfangsmiklum
undirbúningi, auk þess að
stjórna einum kóranna á mót-
inu.
Fréttamaður náði tali af Jóni
og innti hann eftir hvernig hon-
um hefði þótt til takast.
„Þetta var að sjálfsögðu allt
heldur erfiðara en árið ’77. Það
mót var haldiö i Laugardals-
höllinni, sem er frá upphafi út-
búin fyrir „Iþrótt” sem þessa og
þvi hægt aðganga beint til leiks.
Nú var aftur á móti mikil
vinna við að breyta Iþrótta-
skemmunni á Akureyri I viðun-
andi horf. Þar þurfti að teppa-
leggja gólfið safna saman 900
stólum úr skólum bæjarins og
öðrum þeim búnaði, sem til
þurfti. En aö öllum undirbún-
ingi loknum reyndist Iþrótta-
skemman vel fallin til slikst tón-
leikahalds og hljómburöur sist
verri en t.d. i Háskólabíói.
Einnig þurfti að hýsa og fæöa
Thomas Jackman var önnum
kafinn við að kynna sér nótur,
en hann var undirleikari 7 kóra.
alla aðkomukórana, stjórnend-
ur þeirra og fararstjóra. Sex
kórar gistu i Lundaskóla, sjö i
Hraftiagilsskóla og 1 þeim siðar-
nefnda var eldhúsið opnaö
sem mötuneyti fyrir 550 manns
og sýndu skólastjórar þessara
skóla einstakan velvilja. Odd-
eyra'rskóli felldi niður iþrótta-
kennslui skemmunni i tvo daga
vegna mótsins.
Þá sá Feröaskrifstofa Akur-
eyrar um fólksflutninga á mót-
inu og gaf góðan afslátt og
bæjarstjórn Akureyrar sýndi
mikinn raunsarskap með þvi aö
fella niður húsaleigu af tþrótta-
skemmunni og kosta flutninga á
stólum, teppum oghljóðfærum.”
Jón Karl bað fyrir þakklæti til
allra þessara aðila, sem með
velvild sinni gerðu mót þetta að
veruleika. Einnig vildi hann
þakka stjórnendum barnakór-
anna á Akureyri, sem mestan
undirbúning önnuðust, þeim Jó-
hanni Baldvinssyni, Elinborgu
Loftsdóttur ogBirgi Helgasyni.
Einnig vildi hann þakka Ingi-
mari Eydal sérstaklega, en
hann vann gott sjálfboöaliða-
starf, var meðal annars kynnir
mótsins.
Að lokum sagði Jón Karl:
„Þessi barnakóramót eru alls
ekki keppni milli kóranna.enda
eruþeir mjög misjafnir að gæð-
um, eins og vonlegt er. Mótin
eru fyrst og fremst ætluð til að
þroska félagsanda barnanna og
efla vináttu milli landshluta.”
- LH
Austurrísk vika
á LoftleiÓum
Hótel Loftleiðir býður nú til Austurríkis-kynningar
og skemmtikvölda í Blómasalnum dagana 16.—25.
mars nk. Þekktir og vinsælir austurrískir þjóðlaga-
söngvarar, Duo Rossmann koma fram og leika og
syngja þjóðlög.
Þá verðurefnt til happdrættis á hverju kvöldi, en auk
þess bpður Hótel Loftleiðir aðalvinning sem dregið
verður um í lok kynningarinnar, flugfartil Austurríkis
fyrir tvo.
A austurrísku vikunnifágestirsmjörþefinn afTýróla-
stemmningunni sem ríkir í skíðaparadís þeirri er
hundruð Islendinga hafa kynnst af eigin raunískíða-
ferðum Flugleiða til Austurríkis.
Matreitt verður að austurrískum hætti. Matseðill:
WIENER KRAFTSUPPE Vínarkjötseyði
eða TIROLER EGGSPEISE TýrólarEgg
og SCHWEINEKOTELETT AUF SAUER
KRAUT Grísakótiletta með súrkáli
eða WIENER SCHNITZEL Vínarsneið
og SACHERTORTE Sacherterta
eða APFELSTRUDEL Eplakaka
Matarverð er kr. 4.500.00.
Maturframreiddurfrá klukkan 19.
Borðpantanir í símum 22321 og 22322.
Verið velkomin,
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
DMÐVIUINN
cl
sunnudag
Riöar einveldi
leikhússtjóra til falls?
Helgarviðtalið
er við
Guðmund
Steinsson
leikritahöfund
Árni Bergmann skrifar um fasta
hryggjaliði eða íslenska NA TO-vini
Hvers vegna sósíaiisma?
Grein eftir Albert Einstein
Silja
Aðalsteinsdóttir
gerir grein fyrir
innlendum barna-
bókum og þýddum
sem út komu
á síðasta ári
r
Heigi Olafsson sér um
skáksíðu Sunnudagsblaðs
MOBVIUINN