Vísir - 24.03.1979, Blaðsíða 20

Vísir - 24.03.1979, Blaðsíða 20
VÍSIR Laugardagur 24. mars 1979. 20 TIIIO UMB OB BBÆfl- UR HANS Oft hugsaði Ting Ling með sjálfum sér að hann ætti alltof marga bræður. Og hvers vegna? Þegar hann langaði til að fá nýja veiðistöng, hristi pabbi hans höfuðið og sagði að nú ætti Sing Ling bróðir hans að fá veiði- stöng. Þegar Ting Ling bað mömmu sína um ný vetr- arföt, hristi mamma hans höfuðiðog sagði, að aðeins væri til nóg efni í föt á Ling Ling bróður hans, sem ætti engin almennileg vetrarföt. Ef að afgangur var af hrísgjónunum eða ferskj- unum eða köku og Ting Ling langaði óskaplega mikið í það, þá komu allir bræður hans og náðu því á undan honum. Og þegar bræðurnir í litla kínverska húsinu fengu appelsínu, fékk Ting Ling aldrei meira en 1/8 hluta af appelsínunni. Það var ekkert skrýtið, þó að hann óskaði þess stundum að hann væri Loo Wan, besti vinur hans, sem átti meira af öllu nema bræðrum. En svo kom að því að Flugdrekahátiðin var haldin, en þá setja allir kínverskir karlmenn og drengir á loft flugdreka til heiðurs forfeðrum sín- um. Þá stóðu Loo Wan og pabbi hans á hæðinni og voru aðeins með tvo f lug- dreka. Og Ling f jölskyld- an stóð og lét alla fíug- drekana sína fljúga. Ting Ling taldi drekana þeirra, þar sem þeir svif u fagurlega um í loftinu eins og undarlegir og fallegir fiskar. Níu, hvíslaði hann hreykinn. Það á engin fjölskylda í öllu þorpinu svona marga flugdreka. Þá leit hann niður til bræðranna sinna litlu og brosti viturlega eins og forfeður hans hefðu gert. Því að þennan dag — að minnsta kosti — var hann viss um að það var gam- an að eiga svona marga bræður og honum þótti vænt um þá alla. Hver nær í isinn? Drengurinn eða stúlkan? SKRYIUIR Tommi: Ég hitti strák áðan, sem sagði, að ég væri likur þér. Siggi: Og hvað sagðir þú? Tommi: Ekki neitt. Hann var stærrien ég. Mig dreymdi í nótt, að ég væri búinn að finna upp nýja tegund matar og væri að borða.. Já, og hvað svo? Svo vaknaði ég og sá, að eitt hornið var farið af sænginni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.