Morgunblaðið - 02.02.2001, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 . F E B R Ú A R 2 0 0 1 B L A Ð D
GALDUR SELA/2 HRINGAVITLEYSA/2
KONUM BLÁSIÐ Í BRJÓST ... EN HVERJU?/4
Í HÖFUÐVÍGI HEIMILISMENNTA/6
KVÖLDKJÓLARvetrarins eru síðir,ekki endilega svart-
ir og nokkuð oft í tvennu
lagi. Konur í ermalausum
kjólum vefja ennþá sjöl um
axlirnar, líkt og undanfarin
ár, og þá er í tísku að bera
stóra skartgripi sem hafð-
ir eru í sama lit og kjóll-
inn.
Halima Zogu hjá
Kjólaleigu Dóru segir
einfalda síðkjóla með
hlýrum og klauf áber-
andi í vetur og að einnig
sé mikið um pallíettukjóla,
þótt margar konur séu
íhaldssamar og velji
fremur klassíska kjóla.
Nýársfagnaðir eru einn
stærsti síðkjólavett-
vangur vetrarins og
segir Halima hafa ver-
ið mikið um hlýra-
kjóla í ár, og sjöl eða
litla pelsa yfir axl-
irnar.
Jórunn Karls-
dóttir hjá Kjóla-
leigu Jórunnar
segir kvöld-
kjólatískuna
margbreyti-
lega, en að um
þessar mund-
ir sé meira
um síðari og
glæsilegri
kjóla en áð-
ur, þótt öll
sídd sé
leyfileg. „Núna er dálítið um
þrönga pallíettukjóla og toppa
og síð pils í öllum litum, þótt
svart sé alltaf jafn vinsælt.
Yngri konurnar eru mikið í
hlýrakjólum og kjólum sem
eru mjög flegnir að aftan. Svo
eru konur talsvert með sjöl
núna og stóra skartgripi,“
segir Jórunn ennfremur og
kveðst ekki hafa verið ánægð
með kjólana sem leikkonurn-
ar voru í á Gullhnattaverð-
launahátíðinni í Los Angeles á
dögunum, en sá viðburður er
jafnframt nokkurs konar
árshátíð kvikmynda- og sjón-
varpsfólks. „Ég vakti alla
nóttina til þess að skoða kjól-
ana, en varð satt að segja fyrir
vonbrigðum.“
Þótt ný tilbrigði við síð-
kjólastefið komi fram öðru
hverju segir Jórunn enn mikið
um kjóla með götum þar sem
glittir í bert hold, svo sem
undir brjóstum, sem eflaust á
eftir að gleðja einhverja enn
um sinn.
Eingöngu spurt
um síðkjóla
Katrín Óskarsdóttir hjá
Kjólaleigu Katrínar segir
margt vinsælt í ár, bara allt
annað en svart! „Konurnar
vilja síða og fína kjóla, og tals-
vert um síð pils og kot, sem
sérstaklega klæðir þær sem
eru aðeins farnar að missa af
mittinu. Margar eru ófeimnar
við að vera í hlýrakjólum en
nota dálítið af löngum sjiffon-
treflum við, sem notalegt er
að hafa yfir axlirnar þegar
kvöldið er að byrja.“ Katrín
segir eingöngu spurt um síða
kjóla um þessar mundir og
enn ein útgáfa þeirra sé síðir
en einfaldir kjólar með sjiff-
onkápum yfir, sem hún kveð-
ur vinsælt hjá konum á besta
aldri.
Málfríður Loftsdóttir, eig-
andi tískuverslunarinnar
Mondo, segist leggja áherslu
á einfalda og glæsilega kjóla.
Ein gerð dansleikjakjóla er úr
gljáandi efni á borð við taft, í
djúpum og dimmum litum, og
hægt að velja skartgripi í
sama lit og kjóllinn. Þá er
mikið um síð pils og hand-
gerða toppa, sem skreyttir
eru með ferhyrndum og af-
löngum pallíettum. Þeir eru
aðsniðnir og oft í skærum lit-
um, svo sem lime-grænu,
kirsuberjarauðu, bleiku og
túrkisbláu og segir Málfríður
ekki nauðsynlegt að bera
stóra skartgripi við slíkan
kjól. „Markmiðið er ekki að
vera ofhlaðinn enda eiga kon-
an og kjóllinn að fá að njóta
sín,“ segir hún að endingu.
hke
Frá Kjólaleigu
Jórunnar.
Frá Kjólaleigu Dóru.
Morgunblaðið/Ásdís
Úr versluninni Mondo.
Sýnishorn frá Kjóla-
leigu Katrínar.
Síðkjólar
í tvennu lagi