Morgunblaðið - 02.02.2001, Qupperneq 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 D FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Síminn
seldur
Sturla Böðvarsson
samgöngu-ráðherra leggur
fljótlega fram frumvarp á
Alþingi um sölu á tæplega
helmingi Landssímans.
Einkavæðingar-nefnd hefur
lagt til að Síminn verði seldur
hratt. Formenn
stjórnar-andstöðunnar
gagnrýna að selja eigi
dreifikerfi og grunnnet
Símans. Ríkið sé best til
þess fallið að tryggja
dreifbýlinu góða þjónustu.
Þeir telja að
Framsóknar-flokkurinn hafi
beygt sig undir stefnu
Sjálfstæðis-flokksins um
einkavæðingu.
Fyrir viku varð mikill
jarðskjálfti á Indlandi. Ekki er
vitað hve margir fórust, talað
um frá tuttugu þúsund manns
upp í hundrað þúsund. Enn
finnst fólk á lífi í rústunum.
Einn sextán ára drengur
fannst á lífi eftir að hafa legið
í fjóra daga undir steinsteypu
með látinni ömmu sinni: „Ég
hrópaði ýmist á hjálp eða
svaf,“ sagði drengurinn. „Ég
grét einnig vegna ömmu
minnar og hafði áhyggjur af
foreldrum mínum.“ Hermaður
heyrði hróp hans og var
honum bjargað úr rústunum.
Þá björguðust ung hjón úr
rústum húss sex dögum eftir
jarðskjálftann. Það þykir
ganga kraftaverki næst að
lifa svo lengi við slíkar
aðstæður.
Vonlítið er að fleiri finnist á
lífi. Farið er að ryðja rústirnar
með jarðýtum til að finna
rotnandi lík. Bálkestir hafa
verið kveiktir til að brenna
líkin. Sorg Indverja hefur
breyst í reiði. Hún beinist að
yfirvöldum og verktökum sem
ekki hafa fylgt reglum um
byggingu húsa á
jarðskjálfta-svæðum.
Ragna Sara Jónsdóttir er
stödd á Indlandi á vegum
Morgunblaðsins. Hún segir
að fjöldi erlendra
hjálparsveita sé kominn, en
skipulagning sé í molum.
Rauði krossinn hefur óskað
eftir neyðaraðstoð.
Jarðskjálfti á Indlandi veldur dauða tugþúsunda
Sorgin hefur breyst í reiði
Reuters
Lítil stúlka virðir fyrir sér rústir þorps á Indlandi.
Í gær voru greiddar út bætur
til um sjö hundruð öryrkja
samkvæmt nýjum lögum.
Ragnar Aðalsteinsson,
lögmaður
Öryrkja-bandalagsins, óskaði
eftir því að gerður yrði fyrirvari
svo að síðar væri hægt að
höfða mál til að krefjast
fullrar tekjutryggingar.
Trygginga-stofnun hafnaði
erindinu í samráði við
heilbrigðis-ráðuneytið.
Ragnar sagði á
blaðamanna-fundi að mjög
sjaldgæft væri að rita bréf í
samráði við ráðuneyti.
Garðar Sverrisson,
formaður
Öryrkjabandalagsins, sagði
að öryrkjar færu aftur í mál.
Gerðar yrðu ákveðnar
fjárkröfur sjö ár aftur í
tímann, þar sem yrði látið
reyna á hvort ríkinu sé heimilt
að mismuna fólki vegna
hjúskapar. Líklega þyrfti að
höfða allmörg mál til þess að
ólíkum aðstæðum öryrkja
yrðu gerð fullnægjandi skil.
Á fundinum sagði Arnþór
Helgason, framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalagsins, að
hópur fólks hefði leitað til
skrifstofunnar vegna
málaferla. Ragnar
Aðalsteinsson greindi frá því
að fengist ekki viðurkenning
á því að greiða öryrkjum í
samræmi við dóm
Hæstaréttar færi málið fyrir
Mannréttinda-dómstól
Evrópu.
Öryrkjabandalagið undirbýr ný málaferli
Hart á móti
hörðu
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, horfir á lögregluþjóna
aðstoða konu inni í þinghúsinu.
Óður maður réðst á mann í
Súpermann-búningi, beit
hann í síðuna og risti sár við
augað. Þetta gerðist í
Lækjargötu um miðnætti á
sunnudag. Lögreglan sá
átökin og tókst að handsama
árásar-manninn. Fékk
hann að gista
fangageymslur
lögreglunnar
um
nóttina.
Súpermann
kom sér sjálfur
á slysadeildina.
Súpermann
í sárum
Íslendingar
töpuðu
Ísland tapaði fyrir sterku liði
Júgóslavíu á
heimsmeistaramóti í
handknattleik í Frakklandi.
Júgóslavar leiddu allan
leikinn.
Þátttöku Íslendinga á
mótinu er því lokið og halda
þeir heim á leið.
Íþróttir
Netfang: auefni@mbl.is
Á döfinni
Fræðsla
Kvöldfundur um
ungbarna-eftirlit verður í
Miðstöð nýbúa þriðjudaginn
6. febrúar klukkan átta til tíu.
Frætt verður meðal annars
um fæðingar-orlof og
barnabætur. Túlkað verður á
ensku og tailensku.
Fræðsla um íslenskt
samfélag fyrir innflytjendur er
samstarfs-verkefni
félagsmála-ráðuneytis og
Miðstöðvar nýbúa.
Blaða-ljósmyndarar völdu
Baldur mynd ársins.
Höfundur hennar er Ari
Magnússon. Um myndina
segir dómnefndin að hún sé
kraftmikil og birtan
einstaklega falleg.
Snorri Sturluson segir í
goðafræði sinni að Baldur
hafi verið bestur allra
goðanna og svo fagur og
bjartur að það hafi lýst af
honum.
Fleiri myndir fengu
verðlaun á
ljósmynda-sýningunni sem er
í Gerðarsafni í Kópavogi.
Ari Magg
Mynd ársins 2001
Baldur „Ég vil ekki láta hafa fyrir mér, “ sagði Colin Powellutanríkis-ráðherra Bandaríkjanna á fundi með
starfsmönnum sínum. Hann sagðist gera sér að
góðu að snæða einfaldan hamborgara og gista á
þokkalegum hótelum á ferðum sínum.
Fréttamenn glöddust ekki yfir þessum orðum.
Þeim líkar ágætlega að búa á fínustu hótelum
þegar þeir fylgja ráðherranum á ferðum hans um
heiminn. Madeleine Albright fyrirrennari hans í
embætti vildi bara það besta, bæði í mat og drykk.
Látlaus ráðherra
Dreymandi rottur!
„Við vitum með vissu að rottur dreymir,“ sagði
bandarískur vísindamaður. Hann lét rottur
hlaupa í hringi tímunum saman. Að launum
fengu þær örlítið af súkkulaði. Þessi hlaup voru
svo erfið að rotturnar dreymdi þau um nætur.
Vísinda-maðurinn notuði tæki sem fylgist með
starfsemi heilans.