Morgunblaðið - 06.02.2001, Side 8
KNATTSPYRNA
8 B ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lokeren vann öruggan sigur áMechelen í belgísku 1. deildinni
í knattspyrnu um helgina. Lokeren
byrjaði leikinn með
hörkusóknum og
náði Vonasek að
skora fyrsta markið
á 5. mínútu. Aftur
var Vonasek vel staðsetur er hann
skoraði annað markið á 12. mínútu.
Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks gaf Arn-
ar Grétarsson góðan stungubolta á
Olufade sem brunaði upp frá miðju
og skaut hörku skoti í blá hornið 0:3.
Seinni hálfleikur var rólegri og
drógu leikmenn Lokeren sig meira í
vörn en léku mjög sannfærandi og
voru vel að sigrinum komnir. Arnar
Viðarsson var á bekknum en kom
ekki inn á. Rúnar Kristinsson var
varamaður en hann kom inn á fyrir
Arnar Grétarsson á 83. mínútu. Arn-
ar Grétarsson lék vel átti marga góð-
ar sendingar og vann vel í leiknum.
Auðun Helgason átti fremur léttan
dag en lék hann allan leikinn.
Öruggur
sigur hjá
Lokeren
Kristján
Bernburg
skrifar
frá Belgíu
FÓLK
SCHALKE hefur mikinn áhuga á
að fá hollenska landsliðsmanninn
Edgar Davids til liðs við sig í sumar
en samningur þessa öfluga miðju-
manns við Juventus rennur út í sum-
ar. Schalke er talið eitt ríkasta félag-
ið í Þýskalandi og ætti að hafa efni á
að fá Davis í sínar raðir en félagið
mun á næstu leiktíð leika á nýjum
leikvangi sem tekur 60.000 áhorf-
endur.
BAYERN München hefur ekki
gefist upp á að reyna að krækja í
enska landsliðsmanninn Sol Camp-
bell en samingur hans við Totten-
ham rennur út í sumar. Bæjarar
hafa lengi haft augastað á Campbell
sem talinn er einn sterkasti varnar-
maðurinn í Evrópu.
PAVEL Nedved, tékkneski lands-
liðsmaðurinn sem leikur með Lazio á
Ítalíu, hefur ekki gefið upp alla von
um að Lazio endurheimti titilinn.
Nedved segir að mikið hafi breyst
hjá liðinu síðan Dino Zoff tók við
stjórninni af Sven Göran Eriksson.
MARC Overmars, útherjinn knái
sem leikur með Barcelona, segist
varla hafa trúað sínum eigin eyrum
þegar hann frétti að Börsungar
hefðu selt Finnann Jari Litmanen til
Liverpool. „Það er skömm að leik-
maður af þessum styrkleika skyldi
ekki fá að spreyta sig hjá liðinu.
Litmenen er einn besti leikmaðurinn
sem ég hef séð,“ sagði Overmars í
viðtali við spænskt dagblað í gær.
Birki Kristinssyni urðu á slæmmistök í marki Stoke City
sem kostuðu liðið sigurinn gegn
Northampton í ensku 2. deildinni í
knattspyrnu á laugardaginn.
Northampton náði að jafna metin
stundarfjórðungi fyrir leikslok og
verður markið að skrifast alfarið á
Birki. Hann missti boltann klaufa-
lega frá sér eftir skot eins leik-
manns Northampton og skreið
knötturinn innfyrir marklínuna.
„Svona hlutir geta alltaf hent og
ég vil ekki skella skuldinni á Birki.
Hann hefur staðið sig frábærlega
fyrir okkur og oft hefur hann kom-
ið í veg fyrir að andstæðingarnir
hafi skorað mörk. Ég er meira
svekktur yfir því að við skyldum
ekki skapa okkur meira af færum
og ef við hefðum náð að skora ann-
að mark þá hefðu þessi mistök
Birkis ekki komið að sök,“ sagði
knattspyrnustjórinn Guðjón Þórð-
arson eftir leikinn.
Þetta var 11. leikur Stoke í röð
án taps en liðið hefur ekki tapað
leik síðan Birkir tók stöðuna í
markinu.
Andy Cook skoraði mark Íslend-
ingaliðsins, sem er áfram í fimmta
sæti deildarinnar með 59 stig, sjö
stigum á eftir Walsall, sem er í
öðru sæti en Stoke hefur leikið
tveimur leikjum færra.
Birkir, Brynjar Björn Gunnars-
son og Bjarni Guðjónsson léku all-
an leikinn, Ríkharður Daðason
kom inná sem varamaður á 72.
mínútu en Stefán Þór Þórðarson
var ekki í leikmannahópnum.
Bayern München er komið ákunnuglegar slóðir í þýsku úr-
valsdeildinni en eftir sigur á Wolfs-
burg, 3:1, á sama tíma og Schalke
steinlá fyrir Engergie Cottbus eru
Bæjarar komnir með tveggja stiga
forskot á toppi deildarinnar. Bras-
ilíumaðurinn Elber var á skotskón-
um í liði Bayern en hann skoraði tvö
af mörkum sinna manna í útisigr-
inum á Wolfsburg.
Þetta var sanngjarn sigur. Það
tók okkur smá tíma að ná tökum á
leiknum og eftir það léku þeir af
miklu öryggi,“ sagði Ottmar Hitz-
feldt, þjálfarð Bæjara.
Schalke komst hressilega niður á
jörðina þegar liðið tapaði fyrir nýlið-
um Cottbus, 4:1.
„Við erum með 37 stig í 20 leikj-
um og ég get ekki verið annað en
mjög sáttur við það en ég er ekki
sáttur við hvernig mínir menn léku í
þessum leik,“ sagði Huub Stevens,
þjálfari Schalke, sem lék manni
færra síðasta hálftíma leiksins.
Óvænt úrslit urðu í Stuttgart þar
sem heimamenn tóku lið
Kaiserslautern í bakaríið og unnu
stórsigur, 6:1. Brasilíumaðurinn Ad-
hemar og Rúmeninn Ganea voru í
miklum ham en hvor þeirra skoraði
þrjú mörk.
Eyjólfur Sverrisson og félagar
hans í Herthu Berlín eru í fimmta
sæti en Berlínarmenn gerðu góða
ferð til Bochum og unnu þar í fyrsta
sinn. Kail Michalke skoraði tvö
mörk fyrir Herthu og Michael
Preetz eitt. Eyjólfur lék í vörn
Herthu allan tímann og átti góðan
leik.
Evrópumeistararnir í RealMadrid komust í hann krapp-
an á heimavelli gegn Malaga. Í
miklum markaleik höfðu Madrid-
ingar betur, 4:3. Raul skoraði tvö
marka Real Madrid en snillingur-
inn Figo lagði upp þrjú markanna.
Börsungar sýndu snilldartilþrif á
Camp Nou þar sem þeir tóku lið
Atletico Bilbao í kennslustund og
sigruðu, 7:0. Þetta var 17. leikur
Barcelona í röð án taps og miðað við
þessa frammistöðu ætla Katalóníu-
menn sér í slaginn við Real Madrid
um spænska meistaratitilinn í ár.
Heimamenn héldu sannkallaða
flugeldasýningu í fyrri hálfleik og
sex sinnum þurfti markvörður
Bilbao að hirða knöttinn úr neti
sínu. Luis Enrique skoraði þrennu
á fyrsta hálftíma leiksins, Coco
skoraði tvö og þeir Marc Overmars
og Abelardo gerðu sitt markið hver.
Ósigurinn var sá versti í 102 ára
sögu Atletico Bilbao og sagði þjálf-
ari liðsins eftir leikinn að ef þetta
hefði verið körfuknattleikur hefði
hann skipt liði sínu út af í heilu lagi.
Batistuta bjargaði
Roma
Gabriel Batistuta sýndi enn og
aftur snilli sína en þessi magnaði
framherji skoraði bæði mörk Roma
í 2:1 sigri á Parma. Sigurinn færði
Roma sex stiga forskot í deildinni
því aðalkeppinautur Rómverja, lið
Juventus varð að láta í minni pok-
ann fyrir Atalanta. Mörkin sem
Batistuta voru glæsileg en þau
komu bæði á síðustu 20 mínútunum.
AC Milan rétt marði sigur á botn-
liði þar sem varamaðurinn Leon-
ardo var hetja heimamanna en
skoraði eina mark leiksins 10 mín-
útum fyrir leikslok.
Meistarar Lazio hafa unnið alla
fjóra leiki sína síðan Dino Zoff tók
við stjórn liðsins af Svíanum Sven
Göran Eriksson. Lazio sigraði
Lecce, 3:2, þar sem Argentínumað-
urinn Hernan Crespo skoraði tvö af
mörkum Lazio sem er í öðru sæti
deildarinnar ásamt Juventus.
Juventus tapaði mikilvægum
stigum þegar liðið tapaði óvænt fyr-
ir Atalanta. Juventus komst yfir
þegar 18 mínútur voru eftir en
heimamenn voru ekki á því að gef-
ast upp. Þeir jöfnuðu þremur mín-
útum síðar og tryggðu sér sigurinn
skömmu síðar.
AP
Luis Enrique Martinez skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona. Hér fagnar hann einu marka sinna.
Glæsileg flugelda-
sýning á Camp Nou
REAL Madrid heldur þægilegu
forskoti á toppi spænsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu en
þegar 21 umferð er lokið er
Madridarliðið með sjö stiga for-
skot á meistara Deportivo.
Bæði lið unnu leiki sína um
helgina frammistaða Barcelona
skyggði þó á toppliðin þrjú því
Börsungar fóru á kostum gegn
Bilbao og unnu, 7:0.
Mistök
Birkis
kostuðu
sigurinn
Bæjarar á toppinn
Hermann
meiddist
HERMANN Hreiðarsson
meiddist undir lok leiks Ips-
wich gegn Leeds um helgina
og er óvíst hvort hann getur
leikið gegn Arsenal á High-
bury á laugardaginn. Her-
mann tognaði aftan í læri og
ekki var um annað að ræða
en að skipta honum útaf en
hann þótti með bestu mönn-
um Ipswich í leiknum.
Leikmenn Ipswich fóru
strax eftir leikinn til Mar-
bella á Spáni en þar munu
þeir hvíla lúin bein fram á
miðvikudag en mikið álag
hefur verið á leikmönnum á
undanförnum vikum.