Morgunblaðið - 07.03.2001, Page 26
LISTIR
26 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LISTASAFN ASÍ hýsir þessa dagana verk
listakonunnar Sigrúnar Eldjárn. Sigrún sýnir
í safninu tæplega 50 verk, bæði málverk og
eins bókverk sem m.a. eru unnin úr roði,
leðri, koparvír og japönskum pappír. Er
þannig í raun um tvær ólíkar sýningar að
ræða, enda fátt sem tengir þessar ólíku gerð-
ir verka saman. Hvor þáttur fyrir sig, upp-
röðun bókverkanna og vandlega úthugsuð
uppsetning málverkanna, er þó heilsteyptur á
að líta.
Málverkunum hefur flestum verið komið
fyrir í Ásmundarsal þótt málverk á gangi og í
Gryfju tengi sýningarnar tvær. Peysufata-
konurnar sem margir minnast frá fyrri verk-
um Sigrúnar eru nú víðs fjarri og í þeirra
stað má nú sjá fólk, ýmist pör, hópa eða ein-
staklinga á ferð um fjöll og firði frekar
hrjóstrugs landslags. Svarblár litur er
ríkjandi í landslaginu sem býr yfir umtals-
verðri mýkt þrátt fyrir dökka litinn.
Verkin Umfjöllun, Milliganga, Frammi-
staða og Hliðstæður eru öll ágætis dæmi um
slíkt. Myndefni þessara verka minnir um
margt á umhverfi það sem mætir vegfar-
endum á leið sinni af Austurlandi á Horna-
fjörð. Þverhnípt steypist bergið ofan í djúpa
firði og er sterkur svipur með verkunum fjór-
um líkt og búast mætti við af landslags-
myndum frá fjölskylduferð um landið. Þrátt
fyrir hrikaleika brattra hlíðanna býr bergið
engu að síður yfir ákveðinni mýkt. Línur þess
eru örlítið þæfðar og blái tónninn tekur hörk-
una úr svarta litnum. Ljósblár himinn og haf
veita myndunum þá glaðlegt yfirbragð sem
viðvera ferðafólksins staðfestir enn frekar.
Þetta fólk er ekki í neinni nauð heldur ein-
kennast ferðalög þess af bæði ánægju og
áhuga.
Líkt og áður sagði er uppsetning verka
vandlega úthugsuð og hefur sýningin fyrir
vikið yfir sér nokkuð heilsteyptan blæ. Sterk-
ur svipur er með flestum málverkunum enda
litasamsetning keimlík og fólkið sem um
myndirnar flakkar, jafnt konur og menn sem
og börn, öll eins til fara – íklædd bláum og
rauðum fatnaði sem fellur vel að litrófi lands-
lagsins.
Þrjár myndanna skera sig þó nokkuð úr
hópnum en verkin Upplýsing, Bjartsýni og
Yfirlýsing eru, líkt og nöfnin gefa til kynna,
öllu bjartari en önnur málverk Sigrúnar.
Fjöllin og vatnið eru enn á sínum stað en hér
er það vetur konungur sem ræður ríkum og
er svarblár litur bergsins að þessu sinni hul-
inn snjó. Verkin skera sig af þessum sökum
óneitanlega nokkuð frá hinum myndunum
þótt sterk litasamsetning dekkri verkanna sé
betur til þess fallin að halda athygli sýning-
argesta.
Kyrrð og einlægni myndarinnar Tækifæri
er gott dæmi um slíkt. Tveir ferðalangar
standa hér hönd í hönd á gígbarmi og virða
fyrir sér speglun vatnsins. Línur landslagsins
eru teygðar og stílfærðar og engar ójöfnur
sem augað gæti hnotið um. Stílfærðar og
bogadregnar línur svarblás gígsins virðast
þannig vera annars heims en þessa og kyrrð-
in sem á myndinni ríkir með öllu órjúfanleg.
Þokuslæða sem áður hefur sést í verkum
Sigrúnar er einnig til staðar á þessari sýn-
ingu og eykur hún enn á mýkt bergsins. Þá
má á stöku stað sjá hraunglóð glitra á dökk-
um fletinum, auk þess sem rauðu grjóti
bregður fyrir í nokkrum myndanna. Svarbláa
litnum er til að mynda alveg sleppt í mynd-
inni Jafnvægi og hraunhólarnir þess í stað
rauðbrúnir að lit. Verkið Fyrirheit er annað
dæmi um verk þar sem rauði liturinn gerir
vart við sig en hér er hann látinn vinna með
þeim blásvarta. Fyrirheit er um margt eitt
sterkasta verk sýningarinnar en landslagið
tekur þar á sig eins konar geómetríska mynd.
Mjúklega blásvartur hóll prýðir bakgrunninn
á meðan gleiðum ferhyrningi í rauðbrúnum
lit hefur verið komið fyrir í forgrunni og er
landslagið hér fyrir vikið stílfærðara en víð-
ast annars staðar.
Líkt og við nafngift málverkanna eru
tengsl bókverkanna og heitis þeirra jafnan
auðskiljanleg þó að ekki ráði sami orðaleik-
urinn ferðinni. Bókverkið Ský er til að mynda
létt og svífandi ásýndar, skjannahvítt að lit
og pappírinn með bómullarkennda áferð.
Himinn og Blátt eru þá líkt og nöfn þeirra
gefa til kynna í bláum tónum, á meðan
Hjarta, verk með nöfnum tengdu hjartanu á
bæði latínu og íslensku er í blóðrauðum lit.
Bókverkin, sem eru tæplega þrjátíu að
tölu, eru öll svipuð að stærð og lögun þó tölu-
verðrar fjölbreytni gæti í efnisvali. Leður,
roð, úrklippumyndir og koparvír eru meðal
þeirra efna sem Sigrún teflir skemmtilega
saman við gerð þeirra en tengsl bókverkanna
innbyrðis eru þó að öðru leyti minni en mál-
verkanna. Hér býr hvert verk yfir sinni eigin
sögu sem ekki er endilega jafnaðgengileg
áhorfendum og málverkin. Fyrir vikið verða
bókverkin öllu lokaðri og hlutverk þeirra
meira í ætt við aðlaðandi skrautmuni og að-
gengi sýningargesta, sem er hér ekki boðið
með í för, nú mun takmarkaðra en áður.
Fólk á fjöllum
Morgunblaðið/Golli
Umfjöllun, eitt olíumálverkanna á sýningu Sigrúnar Eldjárn í Listasafni ASÍ.
MYNDLIST
L i s t a s a f n A S Í
Sýningin stendur til 11. mars, opið er alla
daga nema mánudaga frá kl. 14–18.
SIGRÚN ELDJÁRN –
MÁLVERK OG BÓKVERK
Anna Sigríður Einarsdótt ir