Morgunblaðið - 07.03.2001, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 47
ÞEGAR ein umferð er til loka Lin-
ares-skákmótsins er Kasparov þegar
búinn að tryggja sér sigur. Hann fór
rólega af stað, gerði þrjár fyrstu
skákirnar jafntefli en hrökk svo í
gang og fékk 4½ vinning í næstu
fimm skákum. Hann gerði síðan
jafntefli við Karpov í næstsíðustu um-
ferð og tryggði sér þar með óskipt
efsta sæti á mótinu og hefur 6½ vinn-
ing.
Þegar Kasparov tapaði heims-
meistaratitlinum á móti Kramnik á
síðasta ári héldu sumir að veldi hans
væri að hrynja til grunna. Með því að
sigra á ofurskákmótinu í Wijk aan
Zee og núna í Linares hefur hann
sýnt fram á að hann hefur engu
gleymt og getur enn gert tilkall til
þess að vera kallaður sterkasti skák-
maður heims.
Judit Polgar og Alexander Grisch-
uk eru í 2.–3. sæti með 4½ vinning.
Judit er eini keppandinn á mótinu
sem hefur haldið jöfnu á móti Kasp-
arov og árangur hennar hefði getað
verið enn betri ef hún hefði ekki tapað
fyrir Karpov í áttundu umferð. Í 4.-5.
sæti koma svo Leko og Karpov með 4
vinninga. Shirov vermir hins vegar
neðsta sætið, hefur 3½ vinning, en
engu að síður hefur hann teflt manna
skemmtilegast á mótinu og hefur
fórnað liði í næstum hverri einustu
skák.
Skákin hér að neðan var tefld í átt-
undu umferð. Upp kom opna afbrigð-
ið í spænskum leik og kom það mörg-
um spánskt fyrir sjónir að
Spánverjinn Shirov skuli velja það,
því sú byrjun hefur átt undir högg að
sækja síðustu ár.
Hvítt: Gary Kasparov (2849)
Svart: Alexei Shirov (2718)
Spánski leikurinn [C80]
1.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.Bb5 a6 4.Ba4
Rf6 5.0–0 Rxe4 6.d4 b5 7.Bb3 d5
8.dxe5 Be6 9.Rbd2 Rc5 10.c3 d4
11.Rg5!
Sjá stöðumynd I.
Þessi ótrúlegi leikur sást fyrst í
heimsmeistaraeinvíginu Karpov-
Korchnoi 1978 í Merano en var ekki
oft beitt eftir það, fyrr en Kasparov
fór að leika honum aftur árið 1995!
11...Dxg5 Ef svartur þiggur ekki
mannsfórnina eru tvær leiðir algeng-
astar 11...Bd5 12.Rxf7!? (12.Bxd5 er
einnig möguleiki) 12...Kxf7 13.Df3+
Ke6 14.Dg4+ Ke7 15.e6! Bxe6 16.He1
Dd7 17.Bxe6 Rxe6 18.Rf3 og hvítur
fékk meira en nóg fyrir manninn
Svidler-Anand Dos Hermanas 1999,
eða 11...dxc3 12.Rxe6 fxe6 13.bxc3
Dd3 14.Bc2! (í skákinni milli Karpov-
Korchnoi, Baguio 1978, varð fram-
haldið 14.Rf3 Dxd1 15.Bxd1 Be7
16.Be3 og Karpov stóð aðeins betur
sem nægði þó ekki til vinnings)
14...Dxc3 15.Rb3!! er fræg skák milli
Kasparov og Anands (10.einvígis-
skák) í heimsmeistaraeinvíginu 1995
og er áhugasömum bent á Informator
64 12.Df3 0–0–0 12...Kd7? er talið
slæmt vegna 13.Bd5 Bxd5 14.Dxd5+
Bd6 15.cxd4 Rxd4 16.Rc4; einnig er
12...Bd7 13.Bxf7+ Ke7 14.Bd5 Rxe5
15.De2 talið gott á hvítt 13.Bxe6+
fxe6 14.Dxc6 Dxe5 15.b4 Dd5
16.Dxd5 exd5 17.bxc5 dxc3 18.Rb3
d4
Sjá stöðumynd II.
Það hefur löngum verið deilumál
hvort svartur hafi nægilegar bætur
fyrir manninn. Ætli þessi skák verði
ekki til að sýna fram á að svo sé ekki.
19.Ba3 g6 20.Bb4 Bg7 21.a4 Kd7
22.axb5 axb5
Sjá stöðumynd III.
23.Hfd1! Sjálfsagt hefur Kasparov
haft þennan leik á eldhúsborðinu þeg-
ar árið 1995! Í skák þeirra Shirovs-
Timman, Wijk aan zee 1996, varð
framhaldið 23.Had1 Ke6 24.Hfe1+
Kd5 25.Bxc3 Kc4 og Timman náði
manninum aftur en stóð samt aðeins
lakar að vígi 23...Ke6 24.Hac1 Það
kemur mjög á óvart að Shirov skuli
velja þetta afbrigði því allir þessir
leikir hafa sést áður og ekki er annað
að sjá en svarta staðan sé þegar töp-
uð! 24... Hhe8 Shirov breytir nú út af
skák Van Den Doel-Timmerman,
Neckar 1999, en þar varð framhaldið
24…Hd5 og eftir 25.Ba5 Ha8 26.Hd3
vann hvítur auðveldlega 25.Kf1 Ein-
falt en sterkt. Hvítur hótar nú að
koma kónginum á d3 25...Kf5 26.c6
g5 27.Ba5 Hd6 28.Bb4 Hdd8 29.Hd3
Sjá stöðumynd IV.
Nú undirbýr hvítur að vinna peðið
á d4. Svartur er varnarlaus Ke4
30.Hcd1 g4 31.Bc5 h5 32.Rxd4 b4
33.He3+ Kd5 34.Bxb4 Kc4 35.Bxc3
Hxe3 36.fxe3 Hf8+ 37.Ke2 Kxc3
38.Re6 1–0
Skákmót á næstunni
9.3. SÍ. Íslandsmót skákfélaga
11.3. Hraðskákmót Íslands
12.3. TR. Fyrirl. Ian Rogers
15.3. SA. 10-mínútna mót
16.3. SÍ. Íslandsm. grunnsk.sv.
16.3. TR. Íslandsm. framhsk.sv.
Kasparov hefur
tryggt sér sigur
SKÁK
L I N A R E S -
S K Á K M Ó T I Ð
23.2–7.3 2001
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Stöðumynd I. Stöðumynd II.
Stöðumynd III. Stöðumynd IV.
Reykjavíkurdeild
Rauða kross Íslands auglýsir:
Barnfóstrunámskeið
vorið 2001
1. 7., 8., 12. og 13. mars, fullbókað.
2. 14., 15., 19. og 20. mars.
3. 21., 22., 26. og 27. mars.
4. 28., 29. mars, 2. og 3. apríl.
5. 2., 3., 7. og 8. maí.
6. 9., 10., 14. og 15. maí.
7. 16., 17., 21. og 22. maí.
8. 30., 31. maí, 6. og 7. júní.
9. 11., 12., 13. og 14. júní.
Kennsluefni:
Umönnun ungbarna og skyndihjálp, ætlað
nemendum fæddum 1987, 1988 og 1989.
Kennslutími frá kl. 18.00—21.00 í Fákafeni 11.
Upplýsingar og skráning á skrifstofu Reykjavík-
urdeildar RKÍ, sími 568 8188.
Önnur námskeið deildarinnar:
Skyndihjálp, sálræn skyndihjálp, barnaslys og
skyndihjálp, mótttaka þyrlu á slysstað.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð á lausafjármunum
Eftirtaldin bifreið verður boðin upp á Höfðabraut 6, Hvamms-
tanga, fimmtudaginn 15.mars kl. 15.00:
Welger RP-200, heyrúlluvél árg. 1994.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
2. mars 2001.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
Breyting á svæðisskipulagi Þingvalla-,
Grímsnes- og Grafningshreppa 1995-
2015 í landi Minni Borgar í Grímsnesi
Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997 auglýsir sveitarstjórn
Grímsnes- og Grafningshrepps breytingu á
svæðisskipulagi Þingvalla-, Grímsnes- og
Grafningshreppa 1995-2015.
Breytingin felur í sér að landbúnaðarsvæði
breytist í frístundabyggð í landi Minni Borgar
í Grímsnesi.
Sveitarstjóri Grímsnes-
og Grafningshrepps.
Seyðisfjarðarkaupstaður
Mat á
umhverfisáhrifum
vegna nýrrar hafnaraðstöðu á Seyðisfirði
á nýju hafnarsvæði á Seyðisfirði er hafið.
Drög að tillögu af matsáætlun liggur fyrir.
Þeir, sem áhuga hafa á því að kynna sér drögin,
geta skoðað þau á heimasíðu Seyðisfjarðar-
kaupstaðar www.sfk.is og á heimasíðu Hönn-
unar hf. www.honnun.is.
Einnig munu drögin liggja fyrir á bæjarskrif-
stofu Seyðisfjarðarkaupstaðar og á skrifstofu
Hönnunar á Egilsstöðum. Athugasemdir við
drög að tillögu að matsáætlun sendist til Hönn-
unar hf., Miðvangi 2-4, 700 Egilsstöðum, eða
á netfangið gudmundur@honnun.is fyrir
16. mars nk.
Tilkynning
um flutning skrifstofu barna-
verndarnefndar Reykjavíkur
Skrifstofa barnaverndarnefndar Reykjavíkur,
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, verður lokuð frá
kl. 11 fimmtudaginn 8. mars og allan föstudag-
inn 9. mars vegna flutninga.
Mánudaginn 13. mars verður skrifstofan
opnuð á ný í Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík,
sími 535 2600.
Miðgarður, fjöskylduþjónusta í Grafar-
vogi, sími 545 4500, mun sinna neyð-
arþjónustu meðan á lokun stendur.
KENNSLA
Kyrrðardagar í Skálholti
í dimbilviku
Íhugun — helgihald — kyrrð
Kyrrðardagarnir hefjast kl. 18.00 miðvikudaginn
11. apríl og lýkur laugardaginn 14. apríl kl. 13.00.
Umsjón: Séra Sigríður Anna Pálsdóttir og séra
Jón Bjarman.
Upplýsingar og skráning í síma 486 8870.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Huglækningar/heilun
Sjálfsuppbygging.
Samhæfing líkama og sálar.
Áran. Fræðslumiðlun.
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir.
Uppl. í síma 553 8260 f.h.
KENNSLA
Keramiknámskeið
Þú getur byrjað þegar þú vilt.
Opið hús fyrir alla á miðviku-
dagskvöldum kl. 20—23.
Keramik fyrir alla,
Laugavegi 48b, s. 552 2882.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 181378
GLITNIR 6001030719 III
I.O.O.F. 7 1813771/2 Sp.
I.O.O.F. 9 181378½ FI.
HELGAFELL 6001030719 IV/V
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58, í
kvöld kl. 20.30.
Fundur í umsjón Kristniboðs-
flokksins Desta.
Einar S. Arason og Þorgils Þor-
bergsson tala.
Allir hjartanlega velkomnir.
Netfang:http://sik.is .
Kvöldvaka 7. mars.
Skarphéðinn Þórisson, líffræð-
ingur á Egilsstöðum, fjallar um
hreindýr á Íslandi fyrr og nú og
Inga Rósa Þórðardóttir rekur
byggðasögu Víðidals í Lóni.
Skíðagönguferð í Tindfjöll
9.—11. mars. Bakpokanám-
skeið 13. mars. Bókið tíman-
lega á skrifstofu í s. 568 2533 eða
netfang fi@fi.is .
Gönguskíðaferð sunnudag-
inn 11. mars við Ármanns-
fell. Brottför frá BSÍ og Mörkinni
6 kl. 10:30.
Takið þátt í spurningaleikn-
um á heimsíðu FÍ. Dagsferða-
miði dreginn út í hverri viku.
www.fi.is. Textavarp RUV bls.
619.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R