Morgunblaðið - 26.04.2001, Side 1
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
* Fimmtudagur 26. apríl 2001
ERLENT
INNLENT
● HAGNAÐUR Frjálsa fjárfestingarbankans
samkvæmt árshlutaupp-gjöri fyrir fyrstu
þrjá mánuði ársins nam 511 milljónum
króna fyrir skatta. Reiknaðir skattar námu
156 milljónum króna og hagnaður eftir
skatta 355 milljónum króna./2
Jákvæð afkoma
Frjálsa fjárfesting-
arbankans
● NORRÆNA bankasamsteypan Nordea
hefur vakið mikla athygli fyrir velgengni í
netbankaþjónustu en 2,3 milljónir við-
skiptavina bankans á Netinu framkvæma
fleiri færslur mánaðarlega en viðskiptavinir
nokkurs annars banka. Færslurnar eru 6,9
milljónir talsins í hverjum mánuði og er það
tvöfalt á við þann bandaríska banka sem er
stærstur á sviði netþjónustu./11
Nordea fremst í
netbankaþjónustu
ÍSLAND færðist úr 9. sæti í fyrra í
13. sæti í ár yfir samkeppnishæfni
ríkja, samkvæmt könnun IMD
(International Institute for Man-
agement Develoment). Bandaríkin
verma efsta sæti listans og Singa-
púr annað sætið, en Japan, sem áð-
ur var í fremstu röð, er nú í 26.
sæti. Í skýrslunni segir að í fyrra
hafi verið fjörugt ár efnahagslega,
en efnahagslegir timburmenn
gætu gengið yfir á þessu ári.
„Bandaríkin og Japan eru sam-
anlagt með 46% af hagkerfi heims-
ins,“ segir Stephane Garelli, pró-
fessor og stjórnandi könnunar-
innar. „Þegar hægir á í þessum
ríkjum er líklegt að það hafi áhrif á
öll ríki heims.“
Versnandi staða efnahagsmála
helsta ástæða lækkunar
Þjóðhagsstofnun annast gagna-
öflun hér á landi og í fréttatilkynn-
ingu frá stofnuninni segir að 49
lönd séu þátttakendur í könnun-
inni, þar á meðal öll helstu mark-
aðslönd heimsins. Þar kemur einn-
ig fram að könnunin byggist á
upplýsingum um 290 mismunandi
atriði. Tölulegar staðreyndir um
efnahagsmál séu 2⁄3 hlutar upplýs-
inganna og 1⁄3 endurspegli viðhorf
forráðamanna fyrirtækja.
Efni skýrslunnar er flokkað í
fjóra efnisþætti sem síðan er skipt
niður í undirflokka. Meginflokk-
arnir eru framganga efnahagslífs-
ins, hagkvæmni stjórnsýslunnar,
hagkvæmni viðskiptalífsins og inn-
viðir þjóðfélagsins.
Þjóðhagsstofnun segir helstu
ástæður þess að Ísland lækki um
fjögur sæti milli ára sé versnandi
staða í efnahagsmálum. Þar er
nefndur meiri viðskiptahalli, vax-
andi verðbólga og minnkandi vöxt-
ur útflutnings. Styrkleiki hagkerf-
isins byggist aðallega á mikilli
atvinnuþátttöku, aukningu hennar
á seinni árum og hverfandi litlu at-
vinnuleysi. Þjóðhagsstofnun segir
stöðu Íslands nánast þá sömu og á
síðasta ári varðandi aðra megin-
flokka. Varðandi umhverfi við-
skipta hækki Ísland um eitt sæti í
það fjórða og hvað varði innviði
þjóðfélagsins séum við í sama sæti
og áður, eða því fjórða. Þáttur hins
opinbera skipi landinu í níunda
sæti, sem sé óbreytt frá fyrra ári.
Í skýrslunni er einnig saman-
burður á því hvar forráðamenn fyr-
irtækja gætu helst hugsað sér að
staðsetja fyrirtæki sín eftir starfs-
greinum. Ísland er yfirleitt talið
góður kostur en þó sérstaklega fyr-
ir fyrirtæki sem starfa við vísindi
og rannsóknir, þar sem Ísland lenti
í sjötta sæti. Ísland er í níunda sæti
þegar iðnfyrirtæki eru annars veg-
ar og því tólfta fyrir þjónustufyr-
irtæki.
IMD segir í umfjöllun með nið-
urstöðunum að samkeppnishæfni
tengist æ meira mannauði og að
þjóðir heims keppi í ríkari mæli um
fólk. Sem dæmi er nefnt að á síð-
ustu árum hafi mikill fjöldi vel
menntaðs fólks víða að úr heimin-
um flutt til Bandaríkjanna og önn-
ur lönd reyni að leika þetta eftir.
Bandaríkin áfram í efsta sæti í nýrri könnun á samkeppnishæfni landa
Samkeppnishæfni Ís-
lands minnkar milli ára
!" #$ $ % &
'( )
$
*+
,+
-+
.+
/+
0+
1+
2+
3+
*4+
**+
*,+
*.+
*/+
*0+
*1+
*2+
*3+
,4+
*+
,+
.+
0+
-+
*,+
/+
*.+
2+
1+
*4+
**+
*/+
*-+
,*+
*3+
,4+
*0+
*1+
*+
,+
/+
-+
.+
0+
2+
*.+
*4+
1+
**+
*,+
*2+
3+
,,+
,*+
*/+
*3+
*0+
Nýjar víddir
opnast við
starf erlendis
Undirbúningur hluta-
félagavæðingar KEA
hefur staðið í þrjú ár
Skattar hafa
áhrif á sam-
keppnishæfni
Jónar Transport í Englandi/12 Viðtal við Eirík S. Jóhannsson kaupfélagsstjóra/6 Skattlagning fyrirtækja/4
ÍÞRÓTTAMENN
TIL LEIÐBEIN-
INGAR
ÞÁTTTAKENDUR
Í MÖRGUM
HELSTU FRAM-
KVÆMDUM
GENGISSKRÁNING 25-04-2001
Kr. Kr. Kr.
Ein. kl. 9.15 Gengi Kaup Sala
Dollari 94,18000 93,96000 94,40000
Sterlpund. 135,20000 134,87000 135,53000
Kan. dollari 61,03000 60,85000 61,21000
Dönsk kr. 11,28000 11,24700 11,31300
Norsk kr. 10,32100 10,29100 10,35100
Sænsk kr. 9,18800 9,16100 9,21500
Finn. mark 14,15970 14,12020 14,19920
Fr. franki 12,83470 12,79890 12,87050
Belg. franki 2,08700 2,08120 2,09280
Sv. franki 54,94000 54,79000 55,09000
Holl. gyllini 38,20380 38,09720 38,31040
Þýskt mark 43,04570 42,92560 43,16580
Ít. líra 0,04348 0,04336 0,04360
Austurr. sch. 6,11830 6,10120 6,13540
Port. escudo 0,41990 0,41870 0,42110
Sp. peseti 0,50600 0,50460 0,50740
Jap. jen 0,76940 0,76720 0,77160
Írskt pund 106,89920 106,60100 107,19740
SDR (Sérst.) 119,67000 119,31000 120,03000
Evra 84,19000 83,96000 84,42000
Grísk drakma 0,24710 0,24640 0,24780
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 562 3270
7
10