Morgunblaðið - 26.04.2001, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 26.04.2001, Qupperneq 5
VIÐSKIPTI ATVINNU- og ferðamálanefnd Hornafjarðar stóð nýlega fyrir opn- um fundi um upplýsingatækni í nú- tímasamfélagi á Hótel Höfn. Fundur- inn var vel sóttur og á honum voru dregin fram margvísleg áhrif upplýs- ingatækninnar á samfélags- og at- vinnuþróun. Fyrirlesarar voru Gunn- ar Vignisson framkvæmdastjóri Þróunarstofu Austurlands, Ágúst Ólafsson ritstjóri Skjávarps, Jón K. Hilmarsson frá hönnunardeild Zoom, Egill Vignisson framkvæmdastjóri Verði ljós, Bjarki A. Brynjarsson framkvæmdastjóri nýsköpunarsviðs Nýherja og einnig voru nemendur úr Framhaldsskólanum í Austur-Skafta- fellssýslu með innlegg á fundinum. Sérstaka athygli vöktu frásagnir af stofnun og þróun fyrirtækjanna Verði ljós og Zoom sem hafa á örfáum árum vaxið upp með undraverðum hætti í höndum kornungra athafnamanna. Einnig var áhugavert að heyra um framtíðarsýn unga fólksins í fram- haldsskólanum. Þá var einnig sett fram athyglis- vert sjónarhorn á það hvernig stað- bundin upplýsingamiðlun eins og Skjávarpið rekur er í raun lykill að margvíslegum lífsgæðum á lands- byggðinni. Í könnun sem gerð var ný- lega kom í ljós að 82% Hornfirðinga nota Skjávarpið til þess að fylgjast með fréttum, auglýsingum og öðru efni. Í pallborðsumræðum í lok fundar- ins var meðal annars rætt um þá að- stöðu sem skapast til nýsköpunar í Nýheimum sem nú eru í byggingu á Höfn en þar verða til húsa framhalds- skóli, bókasafn og nýherjabúðir (að- staða fyrir rannsóknar- og mennta- stofnanir, sprotafyrirtæki og þjón- ustu). Margt annað athyglisvert kom fram og augljóst á ýmsu að Hornfirð- ingar setja markið hátt í upplýsinga- samfélagi nútímans. Formaður at- vinnu- og ferðamálanefndar Horna- fjarðar er Þorbjörg Arnórsdóttir. Atvinnumál í nýju ljósi MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 C 5 STRENGUR hf. og Hús Málarans Fortis hafa skrifað undir samning sín á milli sem tekur til kaupa og upp- setningar á Navision-veitingahúsa- kerfi Strengs auk neyðarþjónustu sem felst í neyðarvakt vegna kerfisins á meðan veitingahúsið er opið. Pantanir viðskiptamanna eru slegnar inn í lófatölvu (PalmPilot) þar sem niðurröðun borða og matseðilinn birtast á snertiskjá. Upplýsingar um pöntun berast rafrænt, annars vegar inn á bar og hins vegar inn í eldhúsið. Jafnframt skráist salan beint inn í bókhaldið og birgðakerfið. Hús Mál- arans er fyrsta vínveitingahúsið sem fær leyfi frá VISA til að vera með posaafgreiðslu án undirskriftar. Allar upphæðir undir 1.200 krónum eru undirskriftarlausar og er meðalinn- hringitími og prentun kvittunar 2–3 sekúndur. Hús Málarans kaupir veit- ingahúsakerfi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.