Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 9
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 C 9 vinna að nýsköpun hér hjá Flugleiðum en í öðrum atvinnugrein- um.“ Magnús segir að á veturna sæki fólk Ís- land einkum heim vegna menningarinnar, næturlífsins og tónlist- arinnar en noti síðan jafnframt tímann til þess að skjótast í jökla- ferðir eða annað sem Flugleiðir bjóði upp á. Aðspurður segir Magn- ús að markhópurinn yf- ir sumartímann sé fólk sem sé 35 ára eða eldra, oft fjölskyldufólk sem komi til þess að skoða náttúruna en yfir vetrartímann sé það yngra fólkið sem sé markhóp- urinn, yfirleitt á aldrinum 18 til 35 ára, sem fari oft helgarferð til Ís- lands. „Það er í raun skemmtilegt að hugsa aðeins til baka því fyrir ekki svo mörgum árum hefði ekki nokkr- um manni dottið í hug að fara í helg- arferð til Íslands. Við höfum lagt mikla áherslu á að byggja upp ferða- möguleikana utan háannatímans og það hefur hreinlega verið ævintýra- legt að fylgjast með vextinum. Ef við tökum Reykjavík sem dæmi þá er mjög gaman að sjá þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað. Fyrir tíu árum voru færri en þrjátíu veitinga- og skemmtistaðir á höfuðborgarsvæðinu en þeir eru nú yfir hundrað. Borgin er eiginlega orðin alþjóðleg stórborg í vasaútgáfu og það hefur mikið að segja, hún er orðin tískuborg og það þykir dálítið flott að hafa farið þang- að. Hún hefur eiginlega upp á allt að bjóða þótt hún sé ekki mjög stór.“ Magnús segir að vel gangi að selja ferðir um jólin og áramót en janúar og febrúar séu enn frekar þungir mánuðir í rekstrinum og þar vilji menn gera enn betur. „Og til þess þarf eitthvað að vera að gerast til að fá fólk til þess að fara. Næturlífið, tónlistin og tískan hafa aðdráttarafl en að auki hef ég mikinn áhuga á að koma íslenska matnum betur á fram- færi, þ.e. einkum og sér í lagi sjáv- arréttunum. Ég hefði mikinn áhuga á að skipuleggja svona eins konar sæl- keraferð til Íslands en til þess þyrft- um við að fá samstarfsaðila á borð við Coldwater og Iceland Seafood, veit- ingahús á Íslandi, kokkalandsliðið o.s.frv. Við gætum til að mynda búið til eitthvert sérstakt þema til að þetta myndi vekja athygli á íslenskum mat og matargerð en hún stendur mjög framarlega: það eru margir mjög góðir veitingastaðir á Íslandi, að mínu mati.“ Nýtum okkur íþróttaviðburði hér vestra Aðspurður segir Magnús að Bandaríkjamenn séu að mörgu leyti mjög sérstakir og það sé algerlega nauðsynlegt fyrir markaðsmanninn að geta sett sig inn í hugsanagang þeirra. Auk þess sé landið mjög stórt og það sem gangi til dæmis upp í New York geti fallið um sjálft sig í Kansas. „Þótt fólk tali kannski sama tungu- málið er menningin og viðhorfin mjög ólík á milli svæða í Bandaríkj- unum.“ Magnús segir að farið hafi verið út í að mark- aðssetja ferðir fyrir Ís- lendinga í tengslum við íþróttaviðburði í Banda- ríkjunum, eins og til dæmis NBA-deildina í körfubolta, en slíkt hafi ekki verið gert áður. Aðspurður segir Magnús að mark- miðið með auglýsingum á strætis- vögnum í höfuðborginni Washington hafi verið að fræða fólk í Washingt- onborg um þá staðreynd að Flugleiðir sé alþjóðlegt fyrirtæki, sem fljúgi ekki einungis til Íslands heldur einnig áfram til Evrópu. „Það er nefnilega oft og tíðum mjög algengur misskiln- ingur hér í Bandaríkjunum að við fljúgum bara til Íslands. Þess vegna „pökkuðum við inn“ tveimur strætis- vögnum sem keyrðu um götur borg- arinnar, einn sem merktur var Ís- landi og annan þar sem einblínt var á þjónustu okkar til Evrópu. Þessir strætisvagnar keyrðu um borgina í rúma þrjá mánuði og vöktu óneitan- lega mikla athygli. Við höfðum áður verið með langar herferðir í útvarpi til að vekja áhuga fólks á Íslandi sem áfangastað. Þetta tókst með eindæm- um vel og aukning á ferðum til Ís- lands varð gríðarleg á Washington-, Maryland- og Virginíusvæðinu.“ Næstbestir í netsölu „Við höfum þó verið að þróa okkur miklu lengra inn í allt sem flokkast undir kynningar og styrktaraðild þannig að við erum ekki bara bundnir við venjulegar auglýsingar í fjölmiðl- um. Þannig tók til að mynda Master- card þátt í ungfrú Ísland.is með okk- ur en það var mjög árangursríkt verkefni. Um 300 manns fóru til Ís- lands, við gátum einfaldlega ekki flutt fleiri, og það er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að ferðin var ekki beinlínis ódýr á bandarískan mælikvarða og við kynntum hana langmest á Net- inu.“ Magnús segir að salan á þessum 300 sætum sé kannski ekki endilega það sem mestu máli skipti heldur öll kynningin og athyglin sem Flugleiðir og Ísland hafi fengið í tengslum við keppnina. „Við erum mjög sterkir í netsöl- unni, raunar í öðru efsta sæti meðal flugfélaga í Bandaríkjunum. Það er mjög algengt að félögin selji frá 2 og upp í 5% af veltu sinni á Netinu en við erum með um tæp 17% og markmiðið er að fara í 20% á þessu ári. Það er eftir nokkru að slægjast þar sem það er töluverður sparnaður að selja á Netinu. Það sem er frábært við sölu á Netinu er að það fer í raun enginn tími í sjálfa söluna, hún fer fram á ör- skotsstund og málið er þar með af- greitt. Svo má ekki gleyma því að á heimasíðu okkar er að finna miklar upplýsingar um Ísland og ferðir okk- ar þangað.“ Magnús Stephensen: „Við „pökkuðum inn“ tveimur stræt- isvögnum sem keyrðu um götur Washington. Þessir stræt- isvagnar keyrðu um borgina í rúma þrjá mánuði og vöktu óneitanlega athygli.“ arnorg@mbl.is Magnús Stephensen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.