Morgunblaðið - 26.04.2001, Síða 16
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Fimmtudagur
2 6 . A P R Í L 2 0 0 1
GREIÐSLUERFIÐLEIKAR
● Þegar hægist á í efnahagslífinu er
ein af afleiðingunum sú að fyrirtæki
eiga erfiðara með að afla sér lausa-
fjár. Þetta stafar af því að fram-
leiðsla þeirra selst hægar og birgðir
safnast upp í stað þess að peningar
komi í kassann. Fyrirtæki hafa undir
þessum kringumstæðum tilhneig-
ingu til að draga greiðslur og taka
sér þannig lán ef svo má segja.
Þetta getur orðið til þess að önnur
fyrirtæki eigi erfiðara með sínar
greiðslur og svo koll af kolli.
Nú þegar hægist á hér á landi
hafa menn óttast að þessi vítahring-
ur færi að verða áberandi, en þó virð-
ist sem greiðsluerfiðleikar séu ekki
mikið vandamál. Ekki enn sem kom-
ið er að minnsta kosti.
Þó eru þess einhver merki að fyr-
irtæki hafi ekki jafn mikið fé milli
handa og verið hefur í þeirri miklu
uppsveiflu sem hér hefur verið.
Þetta á ef til vill einna helst við í
byggingariðnaðinum og þá helst
varðandi byggingu atvinnu-
húsnæðis. Þar sem fyrirtæki halda
meira að sér höndum en áður eru
heldur færri að kaupa atvinnu-
húsnæði en verið hefur. Einhver
dæmi eru einnig um að fyrirtækjum
sem hafa flutt gangi verr að selja
gamla húsnæðið en ráð var fyrir
gert. Þetta virðist þó ekki hafa valdið
verulegum erfiðleikum.
MJÚKA LENDINGIN?
● Í þriggja mánaða uppgjöri Íslands-
banka-FBA í gær kemur fram að van-
skil á fyrstu mánuðum ársins hafi
verið mjög lítil í sögulegu samhengi
en svo virðist sem þau séu að
aukast á ný, bæði hjá einstaklingum
og fyrirtækjum. Þó er einnig áber-
andi að innlán aukast mun meira en
útlán sem út af fyrir sig bendir ekki til
lausafjárerfiðleika.
Sé litið á bankakerfið í víðara
samhengi er ekki að sjá að áhrifa
samdráttarins sé farið að gæta veru-
lega. Útlánaaukningin hefur að vísu
dregist saman eins og að hefur verið
stefnt, en meiri greiðsluerfiðleika en
verið hafa verður varla vart. Að
þessu leyti virðist staða atvinnulífs-
ins því vera nokkuð góð miðað við að
nú hægist á. Ætli þetta kunni að
vera vísbending um að hin marg-
umtalaða mjúka lending efnahags-
lífsins muni takast?
FJÁRFESTINGAR LÍNU.NETS
● Nú hefur Lína.Net lagt fram árs-
reikning fyrir árið 2000 og gefur þar
að líta það sem ýmsir myndu kalla
hreinar bókhaldsæfingar. Helst er
það tvennt sem vekur athygli.
Það fyrra er risastór afskrift við-
skiptavildar vegna þriggja fyrirtækja
sem Lína.Net hefur fest kaup á. Irja
var keypt á 250 milljónir króna en
veittur var 25 milljóna króna af-
sláttur af kaupverðinu í gerðardómi.
Nú voru 224,5 milljónir færðar niður
í bókum Línu.Net og eftir standa
500 þúsund krónur. 99,8% þessara
225 milljóna voru sem sagt afskrif-
aðar. Og hvað varð um 30 millj-
ónirnar sem Motorola gaf eftir? Það
sama er upp á teningnum þegar
kemur að kaupum á Gagnaveitunni,
112,7 milljónir af 150 milljóna króna
kaupverði eru skrifaðar út, eða 75%.
Bent hefur verið á að að Lína.Net
stefni á almennan hlutabréfamark-
að í lok þessa árs og eftir þessa
„hreinsun“ bókhaldsins árið 2000
megi búast við að félagið geti sýnt
mun betri reikninga fyrir núlíðandi ár,
jafnvel hlutfallslega betri en aðrir,
sem ekki stundi slíkar æfingar
–markaðurinn er fljótur að gleyma.
Svo er það færsla yfirverðs hluta-
bréfa á reikninginn „óráðstafað eigið
fé“. Óráðstafað eigið fé á gjarnan að
endurspegla uppsafnað tap eða
hagnað undangenginna ára og segir
því ákveðna sögu um fyrirtækið.
Með færslu yfirverðs hlutabréfa á
þennan reikning brenglast sagan.
Yfirverð er venjulega fært á yfirverðs-
reikning sem geymir einnig ákveðna
sögu um hversu mikið menn voru til-
búnir til að borga fyrir hlutabréfin á
hverjum tíma. Því er engin furða að
bókhaldsfróðir eigi sumir erfitt með
að samþykkja gjörninginn þann sem
„góða reikningsskilavenju“.
INNHERJI SKRIFAR. . .
Hver eru helstu verk-efni þín hjá OmegaFarma?
Omega Farma er ört vax-
andi lyfjaframleiðslufyrir-
tæki. Fyrirtækið sérhæfir
sig í framleiðslu á töflum og
hylkjum fyrir innan- og ut-
anlandsmarkað. Starf mitt
felst meðal annars í að við-
halda og efla tengsl við við-
skiptavini en þeir eru aðal-
lega læknar og starfsfólk
apóteka. Þá hef ég einnig yf-
irumsjón með dreifingu lyfja
hjá Omega Farma.
Hvað getur þú sagt mér
um starfsemi Omega?
Omega Farma ehf. var
stofnað í desember árið
1990. Fyrsta lyfið sem fram-
leitt var kom á markað árið
1992. Á síðasta ári jók fyrirtækið
veltuna um 54% og tvöfaldaði
hagnað sinn frá fyrra ári. Starfs-
menn Omega Farma eru nú þrjátíu
og fimm talsins og fyrirtækið rekur
lyfjaverksmiðju í Kópavogi, en
önnur starfsemi er til húsa í
Reykjavík. Omega Farma hefur
verið úthlutað lóð í Fossaleyni 8 og
munu framkvæmdir hefjast þar í
ár.
Hvað er á prjónunum hjá ykkur
á næstu misserum?
Hvað framtíðina varðar er búist
við umfangsmiklum útflutningi á
næstu árum í tengslum við gerða
samninga. Einnig munum við leit-
ast við að styrkja stöðu okkar á
innanlandsmarkaði.
Hvernig líkaði ykkur dvölin á
Englandi?
Við bjuggum í London um tíma
og líkaði afar vel. Við kynntumst
fjölda fólks frá nokkrum heimsálf-
um og fengum innsýn í menningu
þeirra. Borgin sjálf, eins og margir
þekkja, býður upp á fjölmarga
möguleika til afþreyingar, söfn,
leikhús, veitingastaði og skemmt-
anir af ýmsum toga.
Hver eru helstu áhugamálin?
Það má segja að flest áhugamálin
tengist útivist og svo hef ég gaman
afað ferðast. Ég hef mikinn áhuga
á stangaveiði en ég veiði á flugu og
í skammdeginu stytti ég mér
stundir við fluguhnýtingar. Þegar
vorar dvelur fjölskyldan oftar en
ekki í sumarbústað í Grímsnesi um
helgar og er þá gjarnan skotist í
veiði í ár og vötn í nágrenninu. Þeg-
ar tóm gefst til gríp ég alltaf í bók.
Reyndar á ég mér draum um að
skrifa bók og ég vona að úr því geti
orðið á næstu misserum. Þó hafa
áhugamálin fengið að líða fyrir
byggingaframkvæmdir en fjöl-
skyldan er nýlega flutt í nýtt hús-
næði í Garðabænum.
Hvers konar bók gætir þú hugs-
að þér að skrifa?
Þú spyrð ekki um lítið en það
yrði skáldsaga.
FÓLK/ Eyþór Einar Sigurðsson
Með flugu
í höfðinu
Eyþór Einar Sigurgeirsson er
fæddur 14. maí 1968 á Patreks-
firði. Hann lauk prófi í lyfjafræði
frá Háskóla Íslands árið 1992
og fór þaðan í framhaldsnám til
Englands og lauk prófi í rekstr-
arhagfræði, MBA, árið 1994
með áherslu á markaðsfræði.
Eyþór hóf störf sem mark-
aðsstjóri hjá Omega Farma árið
1995. Maki Eyþórs er Arna Ingi-
bergsdóttir snyrtifræðingur,
starfandi hjá Baðhúsinu. Eyþór
og Arna eiga einn dreng, Einar
Inga þriggja ára.
DAGBÓK
● VERSLUNARRÁÐ Ís-
lands og Sænsk-
íslenska versl-
unarráðið heldur fund
um sænsk efnahags-
mál 2. maí næstkom-
andi. Fyrirlesari verður
dr. Hans Tson Söderst-
röm formaður og fram-
kvæmdastjóri SNS
(Studieförbundet När-
ingsliv och Samhälle)
sem eru rannsókn-
arsamtök viðskiptalífs-
ins í Svíþjóð. Dr.
Söderström er einnig
aðjúnkt í hagfræði við
Viðskiptaháskólann í
Stokkhólmi. SNS hefur
nýlega gefið út skýrslu
„Kluster.se – Sweden
in the New Economic
Geography of Europe“
sem fjallar um sam-
keppnisstöðu Svíþjóð-
ar sem er að margra
mati góð í dag. Velt er
vöngum yfir hlutverki
Svíþjóðar í síbreytilegri
Evrópu og leitast við
að svara því hvort Sví-
þjóð eigi möguleika á
að vera leiðandi þjóð á
fleiri sviðum en á fjar-
skiptasviði og hvað
þurfi til þess. Versl-
unarráð telur að mörg
þau atriði sem koma
fram hjá skýrsluhöf-
undum eigi erindi í um-
ræðu um sömu mál á
Íslandi.
Fundur um sænsk efnahagsmál
● ZOOM ehf. fékk fyrir
skömmu afhentar frá
Nýherja 23 Intellista-
tion Professional
Workstation vélar frá
IBM. Vélarnar eru
sérhannaðar vinnu-
stöðvar fyrir fagmenn
sem þurfa hámarks-
afköst og fullkomið ör-
yggi, að því er fram
kemur í fréttatilkynn-
ingu frá ZooM ehf. Vél-
búnaður vélanna er
mjög vandaður og er
sá sami og er notaður
í netþjóna, en einn
mesti styrkur vélanna
felst í því að allir reklar
í þeim eru hannaðir til
að styðja grafískan
hugbúnað sem ZooM
notar. „Með tilkomu
þessa vélbúnaðar hef-
ur ZooM nú yfir að
ráða stærsta og öfl-
ugasta grafíkveri á Ís-
landi. Þessi viðbót
styrkir ennfremur þá
stöðu sem ZooM hef-
ur nú þegar skapað
sér sem leiðandi al-
þjóðlegt fyrirtæki í
grafískri vinnslu og
lausnum fyrir allar teg-
undir miðla,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Hjá ZooM starfa 26
manns í dag. Helgi
Magnússon vörustjóri
Intellistation og Valdi-
mar Ómarsson IBM
PC sérfræðingur sáu
um málið fyrir hönd
Nýherja í samvinnu
við Kristin E. Arn-
arsson kerfisstjóra
hjá ZooM.
ZooM kaupir vél-
búnað frá Nýherja
● ÍMARK í samvinnu
við Íslandspóst stend-
ur í dag fyrir nám-
skeiði í Rúgbrauðs-
gerðinni í beinni
markaðssókn.
Leiðbeinendur á
námskeiðinu eru
markaðsmennirnir
Roger Millington og
Brian Thomas frá IDM
The Institute of Direct
Marketing í Bretlandi.
Meðal þess efnis sem
fjallað verður um á
námskeiðinu er hvern-
ig blanda má saman
beinni markaðssókn
og öðrum markaðs-
aðgerðum en halda
kostnaði í lágmarki.
Nám-
skeið í
markaðs-
sókn
● Bankastræti, hönn-
un og auglýsingar hef-
ur tekið til starfa. Fyr-
irtækið tekur að sér
hvers kyns verkefni á
sviði hönnunar- og
kynningarmála, allt frá
ímynd fyrirtækja til
heildarumsjónar aug-
lýsingaherferða.
Starfsmenn og eig-
endur fyrirtækisins
eru Einar Skúlason,
Hilmar Þorsteinn
Hilmarsson og Jón
Ágúst Pálmason.
Nýtt hönnunar- og
auglýsingafyrirtæki
● STRENGUR hf. og
SH þjónusta ehf hafa
gert með sér sam-
starfssamning til
tveggja ára sem meðal
annrs felur í sér inn-
leiðingu á viðskipta-
og upplýsingakerfinu
Navision Financial.
SH Þjónusta ehf.,
sem stofnað var 1.
janúar 2000, er dótt-
urfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrysti-
húsanna og tók það
að mestu yfir starf-
semi SH á Íslandi.
Samstarf
Strengs
og SH