Morgunblaðið - 12.05.2001, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kristinn H. Þorsteinsson er garð-
yrkjustjóri Orkuveitu Reykjavík-
ur og formaður Garðyrkjufélags
Íslands. Þá hefur hann kennt við
Garðyrkjuskóla ríkisins og haldið
fjölda námskeiða. Á vorin og
sumrin fær hann sér oft göngu-
túra um götur bæjarins eld-
snemma morguns og tekur þá
gjarnan myndir sem hann notar
við kennslu.
„Stundum er bankað á glugga,
sjálfur væri ég ekkert alltof hrif-
inn af því ef ókunnugur maður
stæði í garðinum og tæki myndir.
En svona eignaðist ég kennslu-
efnið mitt og ég vona að mér sé
fyrirgefið,“ segir Kristinn.
Átta klukkustunda
maraþonfyrirlestur
Þegar Garðyrkjuskóli ríkisins
stóð fyrir opnu húsi á sumardag-
inn fyrsta hélt Kristinn átta
klukkustunda maraþonfyrirlestur
um garðrækt. Á fyrirlestrinum
sýndi Kristinn hátt í eitt þúsund
myndir sem hann tók m.a. á ferð-
um sínum um garða víða um
land. Honum telst til að um átta
þúsund manns hafi heimsótt skól-
ann þennan dag.
Kristinn segir að áhugi á garð-
rækt sé mikill hér á landi og fari
vaxandi. Garðrækt sé enda afar
gefandi áhugamál, hún sé þrosk-
andi og leitun sé að iðju sem hafi
jafn róandi áhrif á hugann.
Myndar
garða eld-
snemma
morguns
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 C 11