Morgunblaðið - 12.05.2001, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 C 15
STEINSMIÐJAN REIN hf.hóf starfsemi fyrir rúmuári og sérhæfir sig í smíðiá öllum hugsanlegum
hlutum sem smíða má úr íslensku
grjóti og graníti. Þar á meðal eru
smíðaðar hvers kyns garðvörur,
s.s. borð, bekkir, garðálfar, ljós-
ker, blómaker og gosbrunnar. Óm-
ar Agnarsson rekur steinsmiðjuna
ásamt fjórum starfsmönnum og
segir sífellt færast í vöxt að fólk
noti grjót og sérsniðna steina í
garða og umhverfis hús.
Hann segir grjót, eins og t.d.
grágrýti, gefa skemmtilegt útlit og
gífurlega endingu og hafa þann
góða kost að verða fallegra eftir
því sem það eldist. Þar má t.d.
nefna tilhöggið grindverk úr grá-
grýti sem hafi einstakt útlit og
veðrist á sérlega skemmtilegan
hátt. Eins og allt sem er vandað
og stendur lengi eru slík grind-
verk dýrari en þau hefðbundnu og
má reikna með að sérsmíðað
grindverk úr grágrýti kosti allt að
fjórum sinnum meira en steypu-
grindverk. Hins vegar er endingin
ólíkt meiri og ekki þörf á viðhaldi.
Grjótið getur gjörbreytt umhverfinu
og gefið því glæsileika
Ómar segir fólk geta komið með
sínar eigin hugmyndir að nánast
hverju sem er til að smíða úr
grjóti og náð fram sínum eigin
persónulega stíl á stéttum, bíla-
plönum, girðingum, garðhúsgögn-
um og fleiru. Þá getur fólk einnig
komið með steina sem það hefur
sjálft valið eða fundið í náttúrunni
og fengið það sagað eða tilhöggið
að eigin ósk. Starfsmennirnir geta
sagað út í stein hin ýmsu form og
notast þar við sög sem fylgir
skapalóni nákvæmlega eftir með
leysitækni. Möguleikarnir í sér-
smíði eru því mjög miklir, þannig
að kröfur viðskiptavina eru afar
sjaldan óraunhæfar, að sögn Óm-
ars.
Hjá Rein starfar steinsmiðurinn
Philippe Blanc sem kemur frá
Frakklandi en hefur verið búsett-
ur á Íslandi í 3 ár. Philippe hefur
meistarapróf í steinsmíðum og
margra ára reynslu í steiniðnaðin-
um og vildi starfa áfram við iðn
sína hér á landi. Hjá honum geta
viðskiptavinir steinsmiðjunnar
fengið ráðjöf um allt er tengist
smíðum úr steini og með hand-
verkfæri að hönd er honum ekkert
ómögulegt þegar steinninn á í
hlut, að sögn Ómars.
Hann segir að hjá steinsmiðj-
unni sé hægt að velja um hleðslur
sem notaðar séu til að leggja
áherslu á ákveðna staði við hús
eða í görðum og geti gjörbreytt
umhverfinu og gefið því ákveðinn
glæsileika.
„Þú getur fengið stein í slíkar
hleðslur hjá okkur og er aðallega
notast við grágrýti en í einstaka
tilfellum blágrýti. Grágrýtið er yf-
irleitt handbrotið í stærri og þykk-
ari hleðslur en hægt er að fá vél-
brotið í minni hleðslur, til dæmis í
kringum blómabeð og næst þá
sléttari áferð á steininn án nokk-
urra meitilfara.“
Steinsmiðjan Rein býður sérsmíði úr steini í garðinn
Grjótið formað
á ýmsa vegu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Philippe Blanc steinsmiður mundar
verkfærin við veglegt grindverk úr
grágrýti.
Grjót í görðum hefur
verið að ryðja sér til
rúms undanfarin ár, en
hægt er að smíða nánast
hvað sem er úr grjóti í
garðinn, að sögn starfs-
manna Steinsmiðjunnar
Reinar á Kjalarnesi.