Morgunblaðið - 24.05.2001, Side 9

Morgunblaðið - 24.05.2001, Side 9
um að fara lengra aftur í tímann. Sem betur fer eru menn orðnir meðvitaðir um nauðsyn góðrar umgengni.“ Á að borga gjald fyrir afnotin af fiskveiðiauðlindinni? „Í dag er útgerðin að borga talsvert fé fyrir afnotin. Það er dýrt að sækja sjóinn og sjávar- útvegurinn greiðir alls konar gjöld sem eru ígildi auðlindagjalds, til dæmis þróunarsjóðs- gjaldið. Ég get hins vegar ekki séð að sjávar- útvegurinn sé mikið aflögufær eins og staðan er í dag. Það heyrist lítið í þingmönnum um auð- lindagjald nú, en annað var uppi á tengingum 1998 og 1999. Þá heyrðust þessar raddir úr hverju einasta horni.“ Eru útgerðarmenn í miklum mæli að selja frá sér aflaheimildir og fara með mikla peninga til útlanda eða út úr sjávarútveginum? „Ég held að svo sé ekki. Í fyrsta lagi hefði þessi kvóti aldrei orðið til, hefðu menn ekki átt skip til að sækja í hann. Einhvern tíman byrj- uðu menn á því að kaupa skip án þess að vita hvort það gengi eða ekki. Menn tóku þessa áhættu, sumum gekk vel en öðrum verr eða illa. Af hverju eiga menn ekki að hafa leyfi til þess að selja sinn hlut, hafi þeim gengið vel. Vilji menn selja og hætta í sjávarútvegi, er einfald- lega ekkert að því. Það koma einhverjir aðrir í staðinn. Það er reyndar til í dæminu að menn séu bara að selja kvóta og hoppa svo á milli kerfa. Það er miður að mínu mati. Þó útgerðin hafi gengið illa á síðasta ári voru flestir með ágætis veltufé frá rekstri. Það var gengislækkun krónunnar sem gerði mönnum mestu skráveifuna. Útgerðin gengur að öllu jöfnu betur nú en áður vegna þess að fyrirtækin eru komin á markað og menn verða einfaldlega að standa sig. Það er ekki hægt að vera með bruðl eða kæruleysi eins og var svo oft áður. Það gera allir sitt bezta í dag til að ná árangri og það skilar sér til þjóðarbús- ins. Það er mikið af pen- ingum í umferð á Íslandi en það eru ekki bara út- gerðarmenn sem aka um á stórum jeppum.“ Hvernig sérðu sjávarútveginn fyrir þér á næstu árum? „Þetta er erfið spurn- ing vegna þess að sjávar- útvegurinn virðist alltaf vera í einhverri eldlínu og bitbein stjórnmála- manna og annarra afla. Þó menn séu að reyna að horfa fram í tímann er það ákaflega erfitt vegna þessarar eilífu umræðu um aukna gjaldtöku af greininni og enginn veit hvað framundan er. Ég sé samt fyrir mér að menn nái sáttum, bæði innan greinarinnar og utan. Það er óska- staðan. Þá á sjávarútvegurinn gott líf framund- an og mun efalaust vaxa og dafna enn frekar. Það er ekkert hægt að reka sjávarútveginn sem einhvers konar félagsmálastofnun eða til að halda uppi byggð. Það er af og frá. Hug- myndir um byggðakvóta og svæðisbundinn kvóta eru hreinlega tilræði við sjávarútveginn. Það kæmi niður á öllu þjóðarbúinu og fram- leiðni yrði miklu minni. Það getur vel verið að svona lagað kæmi betur út fyrir þessar veiku byggðir fyrst í stað en ekki til framtíðar. Það er alveg ljóst. Fólk verður ekki pínt til að búa á stöðum, sem það vill ekki búa á. Hugmyndir Kristins H. Gunnarssonar, þing- manns og stjórnarformanns Byggðastofnunar, um byggðakvóta og svæðisbundin kvóta eru með ólíkindum. Hann þykist að auki vera fram- sóknarmaður, en er ekkert annað en kommún- isti, enda minna þessar hugmyndir mig ekki á neitt annað en gamla miðstýringarkerfið í Sov- étríkjunum sálugu og allir vita til hvers það leiddi. Ég bið Guð að hjálpa mér ef stjórnmála- mennirnir ætla að fara að úthluta kvóta. Það yrði tómur hringlandaháttur og vitleysa. Stjórnmálamenn geta aldrei úthlutað kvóta nema með skít og skömm. Það er sömuleiðis makalaust hvernig sumir stjórnmálamenn geta verið að atast út í sjávar- útveginn og reyna að sverta hann eftir fremsta megni, en sjá ekkert jákvætt. Þeir eru sumir fljótir að gleyma eigin gerðum. Það er ótrúlegt hvernig Sverrir Hermannsson leyfir sér að djöflast út í Halldór Ásgrímsson, þótt hann eigi lítinn hlut í sjávarútvegsfyrirtæki á Höfn í Hornafirði. Sverrir er búinn að gleyma því að hann átti hlut í sjávarútvegsfyrirtæki og seldi hann. Þar breytir engu hvort hluturinn var stór eða lítill. Hann seldi, Halldór hefur ekki selt. Flokksbróðir Sverris, Guðjón Arnar Krist- jánsson, er líka tvöfaldur í roðinu. Hann átti líka hlut í útgerð, sem hann seldi. Hann á sjálfur hlut í smábátaútgerð með krókaleyfi í dag. Á sama tíma er hann að berjast fyrir hagsmunum krókabáta og síauknum veiðiheimildum. Ég kalla þetta siðblindu. Sverrir hefur líka ráðist á mig persónulega en staðreyndin er sú að það nennir enginn að svara Sverri nú orðið.“ Hvað fannst þér um verkfall sjómanna sem nú er nýafstaðið? „Sjómannaverkfallið var skelfilegt og ég vona að menn leysi þessar deilur innan sjávarútvegs- ins svo starfsfriður fáist. Sátt þar er lífsnauð- synleg. Það er hins vegar mikið hnútukast milli manna og því miður er mest af því bæði ósatt og viljandi misskilið. Ég hef sjálfur staðið í verk- falli, bæði sem sjómaður og útgerðarmaður. Í síðasta verkfalli var því kennt um að ekki væri hægt að semja við Kristján Ragnarsson. Hann væri allt of ósveigjanlegur. Nú er Kristján ekki í eldlínunni og nýr maður í forsvari fyrir LÍÚ. Það eru hins vegar sömu mennirnir hinum meg- in ennþá, nema hjá FFSÍ. Það er stórslys hver valinn var þar til forystu. Sú forysta er ekki mönnum bjóðandi.“ Þú hefur fjárfest í sjávarútvegi, meðal annars á Vestfjörðum. Hefur þú svona mikla trú á sjávarútvegi og þeim tækifærum sem þar gefast. Líka á Vestfjörðum? „Sjávarútvegurinn er það sem ég þekki bezt og hef gaman af. Stuttu eftir að ég hætti hjá Samherja var verið að sameina Hraðfrystihúsið í Hnífsdal og Gunnvöru á Ísafirði og Íshúsfélag- ið. Ég kom inn í þær sameiningar í lok málsins og á 10% í því félagi í dag. Ég er mjög stoltur af því. Það er á Vestfjörðum, þrátt fyrir að ég hafi gagnrýnt Vestfirðinga. Ég er samt ekkert að gagnrýna Vestfirðinga almennt, heldur þá ógæfusömu menn, sem ráðlögðu þeim. Í þessu fyrirtæki, Hraðfrystihúsinu Gunnvör, er mikið af duglegu og áhugasömu fólki. Þetta eru menn sem ætla sér að láta hlutina ganga. Auk þess er ég í minna mæli í ýmsu öðru, sem ýmist tengist sjávarútvegi eða ekki. Ég hef meðal annars tekið þátt í því sem ég kalla „þróunaraðstoð“ í innlendum sjávarútvegi. Þar má nefna skötusels- veiðar og framleiðslu á fiskvinnsluvélum. Stærsti hluti eigna minna er í sjávarútvegi og ég er mjög sáttur við það. Sjávarútvegurinn má ekki auka skuldir sínar, því miklar skuldir eru honum mjög erfiðar og geta sligað hann, þegar gengisþróun er óhag- stæð. Skuldir sjávarút- vegsins hafa aukizt á undanförnum árum. Það er bæði vegna nauðsyn- legrar endurnýjunar, en ekki sízt vegna þess að menn hafa trúað á fram- tíðina. Menn hafa verið að byggja upp til fram- tíðar. Það hefur mikið verið fjárfest í því skyni að nýta kolmunna, sem segja má að hafi aldrei verið nýttur áður. Aflinn var um 260.000 tonn á síðasta ári. Það er farið að vinna loðnu til mann- eldis og fiskimjölsverksmiðjur hafa verið end- urbyggðar vegna aukinna krafna að utan, fisk- vinnslan hefur verið endurskipulögð. Þetta er allt gert til að svara kröfum markaðsins um gæði afurða og til að auka arðsemi í greininni. markaðurinn krefst stöðugt meiri gæða og meiri áreiðanleika í afhendingu og því verður að svara. Þessar fjárfestingar eiga því eftir að skila sér í betri afkomu, þótt þær kunni að vera þung- ur baggi tímabundið.“ Sérðu eftir því að hafa hætt á sjónum og að hafa yfirgefið Samherja og skipt um starfsvettvang? „Um brotthvarf mitt frá Samherja hef ég sagt allt sem segja þarf. Ég sé ekki eftir því að hafa hætt á sjónum. Fyrsta árið var reyndar rosalega erfitt. Ég held að það sé erfitt fyrir alla sjómenn að koma í land. Þetta lagaðist þó fljótt og eins og er get ég ekki hugsað mér að fara á sjóinn aftur nema þá í mjög stuttan tíma. Það var mjög gott að vera á sjó þessi ár, sem ég var þar og ef ég væri aftur orðinn 15 eða 16 ára og ætti að velja framtíðarstarfið, yrði sjómennskan væntanlega ofan á. Ég var á sjó frá því ég 16 ára þar til ég var 44 ára, að undanskildum tímanum sem fór í Stýrimannaskólann. Ætli mesti ávinn- ingurinn við að koma í land hafi ekki verið fleiri samverustundir með fjölskyldunni. Þetta var reyndar þannig, þegar maður var á sjónum, að maður var vissulega mikið í burtu, en í góðu fríi þess á milli. Að öllu jöfnu var maður í fríi, þó að- ild mín að Samherja hafi reyndar krafizt nokk- urrar vinnu í fríum. Eftir að ég kom í land var ég meira heima á kvöldin og um helgar. Svo eignaðist ég sjötta barnið mitt eftir að ég kom í land og það er kannski eina barnið mitt sem ég þekki frá byrjun. Ég held að sjómannslífið sé mjög gott þegar tekin eru eðlileg frí. Starfið er erfitt en jafn- framt spennandi. Ég er sáttur við stöðu mína í dag. Ég nýt samverunnar við konu og börn og er ánægður í landi,“ segir Þorsteinn Vilhelms- son. „ É g s é e k k i e f t i r þ v í a ð h a f a h æ t t á s j ó n u m . F y r s t a á r i ð v a r r e y n d - a r r o s a l e g a e r f i t t . É g h e l d a ð þ a ð s é e r f i t t f y r i r a l l a s j ó m e n n a ð k o m a í l a n d . Þ e t t a l a g - a ð i s t þ ó f l j ó t t o g e i n s o g e r g e t é g e k k i h u g s - a ð m é r a ð f a r a á s j ó i n n a f t u r n e m a þ á í m j ö g s t u t t a n t í m a . “ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 C 9 ATHAFNALÍF HAGNAÐURINN og umfjöllunin sem dönsk ferðamála- yfirvöld gerðu sér vonir um í tengslum við Söngva- keppni Evrópskra sjónvarpsstöðva lætur standa á sér, að því er segir í danska blaðinu Ugeavisen Mandag Morgen. Þar kemur fram að minna var fjallað um Danmörku í erlendum fjölmiðlum í kringum söngva- keppnina og á sama tíma í fyrra. Kim Engelbrechtsen, upplýsingastjóri danska ferðamálaráðuneytisins furðar sig á þessu en kveðst þó enn binda vonir við umfjöllun, þar sem margir af þeim blaðamönnum sem komu til Kaupmannahafnar í tengslum við keppnina, starfi fyrir viku- og mánaðarrit og því hafi ekki allar greinarnar skilað sér enn. Niðurstaðan hingað til, sem er byggð á blaða- úrklippum frá Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Bret- landi og Kanada, gefur hins vegar litla ástæðu til bjartsýni þar sem í greinum tengdum keppninni er einkum fjallað um keppendur frá viðkomandi landi. Danska sjónvarpið og ferðamálayfirvöld lögðu rétt um 100 milljónir í kynnisferðir, veislur og kynningarefni fyrir ríflega 800 blaðamenn , auk þess sem fram- leiðsla svokallaðra póstkorta; kynningarmynda um Danmörku sem sýndar voru á milli laga í keppninni kostuðu 56 milljónir ísl.kr. Ferðamálayfirvöld höfðu áætlað að auglýsingin sem fælist í komu hundruða erlendra blaðamanna samsvaraði tæplega 12 millj- örðum ísl. kr. Síðar drógu þau úr væntingunum og skutu á 1,3 milljarða. Viðskiptafræðingurinn Christ- ian Hjorth-Andersen, sem hefur um árabil kannað efnahagsáhrif menningarviðburða segir slíkar tölur fjarri sanni. Ofmetin auglýsing í söngvakeppni Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SAMKVÆMT frétt í Fin- ancial Times eru fjárfesting- arbankar á Wall Street að undirbúa sameiginlegar að- gerðir til að draga úr áhyggj- um almennings af því að greiningardeildir þeirra séu ekki nægilega sjálfstæðar. Unnið er að því að semja regl- ur fyrir deildirnar til að hafa til hliðsjónar við vinnu sína, því fjárfestar, eftirlitsaðilar og fjölmiðlar hafi gagnrýnt þá fyrir að beita þekktum mönn- um á sviði greininga til að fá fyrirtæki í fyrirtækjaþjón- ustu og markaðssetja hluta- bréfaútgáfu. Eitt af því sem mun vera til umræðu er að hætta að tengja laun þeirra starfsmanna greiningardeilda sem vinna við frumútboð eða samruna við tekjur bankanna af við- skiptunum. Páll Gunnar Pálsson, for- stjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að fjármálafyritækjum hér á landi beri að hafa Kína- múra til að aðskilja ólíkar deildir og að setja verklags- reglur um eigin viðskipti og um viðskipti starfsmanna. Fjármálafyrirtækjunum beri að setja sér reglur um innri starfsemi sem Fjármálaeftir- litið samþykki og nú sé unnið að leiðbeiningum sem fyrir- tækin munu hafa til hliðsjónar við gerð eigin reglna. Páll Gunnar sagði mikla vinnu fara í að semja slíkar reglur og að Fjármálaeftirlit- ið hafi unnið að gerð þeirra frá því á síðasta ári og haft sam- starf við fjármálafyrirtækin um þá vinnu. Hann sagði að þessar leiðbeiningar um regl- ur Fjármálaeftirlitsins muni sjá dagsins ljós á næstunni. Spurður að því hvort hags- munaárekstrar líkir þeim sem lýst er hér að ofan hafi komið upp á Íslandi, sagði Páll Gunnar að það segði sig sjálft að þegar fjármálafyrirtæki væru í margþættri starfsemi geti komið upp spurningar og það hafi gerst hér á landi. En engar greingardeildir hafa fengið athugasemdir vegna óeðlilegra vinnubragða. Hagsmunaárekstrar innan fjármálafyrirtækja Rætt um að hætta tengingu launa starfsmanna greining- ardeilda við tekjur bankanna á Wall Street. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. FRESTUR til að skila inn tilboðum í nýjan hugbúnað fyrir ratsjárstöðvarnar hér á landi rennur út 29. júní næst- komandi. Tvö íslensk fyrir- tæki voru valin til að taka þátt í útboði vegna þessa í framhaldi af forvali, en það eru Kögun og Tölvumyndir. Í nóvember 1999 auglýsti Umsýslustofnun varnarmála, Sala varnarliðseigna, fyrir hönd flughers Bandaríkj- anna, eftir umsóknum um þátttöku frá íslenskum lög- aðilum í vali til fyrirhugaðs forvals vegna tveggja þrepa útboðs á verkefninu, upp- setningu á Link-16 í íslenskt loftvarnarkerfi. Mannvirkja- sjóður Atlandshafsbanda- lagsins hafði samþykkt í júlí 1999 að ráðist verði í bygg- ingu þessa viðbótarbúnaðar við íslenska loftvarnarkerfið og að sjóðurinn muni fjár- magna verkið. Verkið felur í sér hönnun, þróun, prófun, framleiðslu, eftirlit, samþættingu og stuðning við Link-16 í ís- lenskt loftvarnarkerfi. Breyt- ingar á hugbúnaðarþætti ís- lenska loftvarnarkerfisins verða gerðar í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Rayt- on sem á höfundarrétt að hugbúnaðinum. Verkið tekur einnig til þess að verktaki setji upp Link-16 á sex mis- munandi stöðum á Íslandi. Áætlaður kostnaður við verkið er um 28 milljónir Bandaríkjadala. Nýr hugbúnaður í ratsjárstöðvar Tvö íslensk fyrirtæki, Kögun og TölvuMyndir, valin til að taka þátt í útboði. Tilboðum skilað fyrir 29. júní. NÝSKÖPUNARSJÓÐUR hefur á þriggja ára starfstíma sínum fjárfest í 55 fyrirtækj- um innanlands og utan að fjárhæð 1.877 milljónir króna. Þá hafði sjóðurinn um síðustu áramót samþykkt hlutafjár- þátttöku í 10 fyrirtækjum til viðbótar. Á árinu 2000 veitti sjóður- inn verkefnabundin framlög að upphæð 104 milljónir króna til margvíslegra sam- starfsverkefna auk framlaga til vöruþróunar- og markaðs- aðgerða. Þá voru samþykkt verkefnabundin áhættulán að upphæð 185 millj. kr. Til þess að mæta þeirri áhættu sem fylgir verkefnum og útlánum hafði sjóðurinn lagt til hliðar 626 milljónir króna. Fjárfest í 55 fyrirtækjum fyrir 1.877 milljónir ◆ ◆

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.