Morgunblaðið - 24.05.2001, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2001 C 21
DAGBÓK ● STRENGUR HF. og
Bóksala stúdenta hafa
skrifað undir samning
sem tekur til kaupa og
uppsetningar á stöðluðu
Navision Financials-
viðskiptakerfi og Info-
Store-verslunarkerfi
Strengs hf., ásamt teng-
ingu við Intershop-vefbúð
sem þegar er í notkun
hjá Bóksölunni. Samn-
ingurinn tekur einnig til
vistunar og reksturs
þessara kerfa hjá Streng
og þjónustu við notendur.
Á myndinni eru: Berg-
ljót Kristinsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Streng, Jón
Heiðar Pálsson, sölu-
stjóri hjá Streng, Sigurður
Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Bóksölu
stúdenta og Reinharð
Reinharðsson, Vefstjóri
hjá Bóksölu stúdenta.
Bóksala stúdenta
í samstarf við Streng
● Snertill, sem er hugbúnaðarfyrirtæki á sviði verk-
fræði, arkitektúrs og landupplýsinga, hefur verið val-
inn besti seljandi bandaríska hugbúnaðarfyrirtæk-
isins Autodesk Inc. í Evrópu, Miðausturlöndum og
Afríku frá febrúar 2000 til janúar 2001.
Átta aðilar voru tilnefndir en einn vann til verð-
launa. Autodesk er fjórða stærsta hugbúnaðarhús í
heiminum og veltir um 1 milljarði dollara á ári og
setur um 150 milljónir Bandaríkjadala í rannsóknir
og þróun. Um fjórar milljónir notenda eru að kerfum
Autodesk í heiminum. Meðal kerfa frá Autodesk sem
Snertill selur má nefna AutoCAD, AutoCAD LT, Auto-
desk, Autodesk Map Guide og Autodesk On Site
Imperial.
Snertill var stofnað árið 1994 og eigandi þess er
Sigbjörn Jónsson, byggingaverkfræðingur MSc.
Starfsmenn Snertils eru 15.
Snertill fær viðurkenn-
ingu frá Autodesk
● FYRIRTÆKIN Svar og
Tæknival, fyrir hönd Off-
ice 1, hafa gert samning
þess efnis að í stór-
mörkuðum Office 1, í
Reykjavík og á Akureyri,
verði til sölu ýmiss síma-
búnaður og fylgihlutir
sem Svar er umboðs- og
þjónustuaðili fyrir á Ís-
landi. Einnig verður til
sölu í Office 1 marg-
víslegur upplýsinga-
tæknibúnaður og skrif-
stofubúnaður frá Svari.
Á myndinni handsala
þeir samninginn Jónas
Hreinsson fram-
kvæmdastjóri Office 1
og Stefán Auðunn Stef-
ánsson framkvæmda-
stjóri Svars. Með þeim á
myndinni er Kristján
Daníelsson fram-
kvæmdastjóri versl-
unardeildar Svars.
Samningur gerður um
sölu á símabúnaði
● Hekla, GE Lighting og
Lúmex hafa undirritað
samkomulag um einka-
söluleyfi á ljósaperum
frá GE Lighting, en
Hekla er umboðsaðili
fyrir GE á Íslandi.
Frá árinu 1985 hefur
Lúmex ehf hannað lýs-
ingu fyrir fyrirtæki og
heimili og fær Lúmex
nú einkasöluleyfi á
General Electric ljósa-
perum á Íslandi. Að því
tilefni hefur Lúmex opn-
að sérhæfða ljósaperu-
verslun.
Við undirritun voru
Hrafnkell Gunnarsson,
Heklu, Sigfús R. Sigfús-
son, Heklu, Kenny S.
Spång frá GE Lighting í
Svíþjóð, Helgi Kr. Eiríks-
son og Ingi M. Helgason
frá Lúmex. Standandi
eru Guðmundur Hreið-
arsson frá Heklu og Pét-
ur Pétursson frá Lúmex.
Lúmex selur perur frá GE
● TEYMI hefur undirritað samkomulag við sænska
fyrirtækið WM-data um stofnun nýs fyrirtækis sem
mun selja þjónustu og heildarlausnir fyrir norræna
banka og fjármálafyrirtæki. Fyrirtækið hefur hlotið
nafnið WM-data FlexBank Solutions FlexCube er þró-
að af fyrirtækinu i-flex Solutions sem er dótturfélag
alþjóðlega fyrirtækisins Citicorp og á í viðskiptum
við yfir 250 fyrirtæki í 70 löndum.
Til að byrja með verður samstarfið bundið við
þetta sameiginlega fyrirtæki, WM-data FlexBank Sol-
utions, en viðraðar hafa verið hugmyndir á öðrum
sviðum sem teljast til kjarnasviða beggja fyrirtækja,
einkum og sér í lagi hvað varðar Oracle-þekkingu og
-þjónustu, samkvæmt fréttatilkynningu frá Teymi.
Teymi og WM data í
Svíþjóð stofna fyrirtæki
● TÆKNIVAL og Opnar gáttir hafa gert með sér
samning sem felur í sér að Tæknival tekur að sér
sölu- og markaðssetningu á vefbundnum námskeiðum
frá Opnum gáttum. Námskeiðin verða seld í öllum BT-
verslunum á landinu og stórmörkuðum Office 1 á Ak-
ureyri og í Reykjavík. Tæknival kemur til með að
bjóða fyrirtækjum og stofnunum upp á þessar lausnir.
Á boðstólum eru um 1.000 námskeið, að stórum
hluta tölvunámskeið eins og Word og Exel, en einnig
námskeið sem tengjast viðskiptum og persónufærni.
Selja vefbundið nám
● ATLANTSSKIP hafa tekið á
tímaleigu M/V Radeplein sem er
294 gámaeininga skip, sjósett í
maí 1999. Radeplein hefur áður
verið í þjónustu fyrir Atlantsskip
frá júní 1999 til júlí 2000. Í til-
kynningu frá Atlantsskipum segir
að flutningsgeta félagsins aukist
um 25% með tilkomu Radeplein.
Skipið mun sigla á Ameríkuleið
Atlantsskipa, með viðkomu í Nor-
folk, St. John’s á Nýfundnalandi
og Njarðvík á 12 daga fresti á
móti M/V Geysir. Áætlað er að
skipið komi til Íslands 4. júní.
Radeplein kemur í stað Wilke
sem hefur verið í þjónustu Atl-
antsskipa frá júlí 2000.
Radeplein getur flutt 50 frysti-
gáma og rúmar 4.180 rúmmetra í
lest fyrir lausavöru, s.s. mjöl og
hveiti, en heildarburðargeta er
3.500 tonn. Skipið er búið tveim-
ur krönum með allt að 40 tonna
hífigetu. Það er 91 m á lengd og
16 m á breidd. Siglingarhraði er
um 15 hnútar. Radeplein er skráð
í Hollandi og eru átta í áhöfn.
Skipið uppfyllir ströngustu kröfur
um öryggi sjómanna um borð og
umhverfisvernd, að því er segir í
tilkynningu Atlantsskipa.
Skipið mun hafa viðkomu í St.
John’s á Nýfundnalandi, en þar er
stór markaður fyrir iðnaðarrækju
sem flutt er til Íslands.
Atlantsskip
fá skip til
Ameríku-
siglinga
M/V Radeplein, sem er 294 gáma-
eininga skip, sjósett í maí 1999.
● Síminn og Verk- og
kerfisfræðistofan hf.,
VKS, hafa endurnýjað
rammasamning þess
efnis að VKS veiti þjón-
ustu vegna hugbún-
aðarþróunar fyrir hin
ýmsu kerfi Símans. Með-
al þeirra verkefna sem
falla undir samninginn er
gerð nýs símaskrárkerf-
is, aðstoð við rekstur og
breytingar á Línubók-
haldskerfinu (NMS), ýms-
ir verkþættir vegna ICMS
viðskiptakerfisins; þróun
á samskiptalausnum frá
Tibco fyrirtækinu o.fl.
Síminn og VKS semja
◆
◆
◆
◆