Morgunblaðið - 12.06.2001, Page 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
S
Ú gríðarlega uppbygg-
ing, sem á sér stað í
Salahverfi í Kópavogi,
fer ekki framhjá nein-
um, sem ekur þar um.
Langt er síðan flutt var
inn í fyrstu húsin, en
þau standa neðst og vestast, næst
Lindahverfi. Hvarvetna má sjá ný-
byggingar misjafnlega langt komn-
ar. Háhýsin eru að sjálfsögðu mest
áberandi, en í heild er byggðin fjöl-
breytt. Þar má finna einbýlishús,
raðhús og minni fjölbýlishús.
Þetta hverfi hefur þótt eftirsókn-
arvert af mörgum ástæðum. Byggð-
in stendur í suður- og suðvesturhalla
og snýr vel við sólu með útsýni bæði
til norðvesturs út á Kópavoginn og
til suðvesturs út á Reykjanesskag-
ann.
Salahverfið býr líka yfir miklum
útivistarmöguleikum. Stutt er í
skemmtileg útivistarsvæði í grennd
við Vatnsendann og í hverfinu verð-
ur góður golfvöllur en einnig íþrótta-
svæði með íþróttahúsi og auk þess
grunnskóli, tveir leikskólar og
gæzluvöllur.
Salahverfið er líka mjög miðsvæð-
is, nálægt verzlunar- og þjónustu-
svæðinu í Kópavogsdal.
Aðkoma að Salahverfi frá Reykja-
nesbraut er fyrst um Fífuhvamms-
veg, en síðan er beygt til vinstri inn á
Salabraut. Önnur aðkoma verður frá
Reykjanesbraut í framtíðinni, en
Arnarnesvegurinn á að halda áfram
frá Reykjanesbraut meðfram Sala-
hverfi í suðri og tengja það hverfi við
Breiðholtsbrautina.
Á vegaáætlun 2003 er fyrirhuguð
tvöföldun Reykjanesbrautar suður
fyrir Arnarnesveg ásamt mislægum
gatnamótum þar og um leið og þau
verða gerð á að taka fyrir Arnarnes-
veg á milli Reykjanesbrautar og svo-
nefnds Lindarvegar. Bæjaryfirvöld í
Kópavogi hafa óskað eftir því við
samgönguráðherra, að þessum
framkvæmdum verði flýtt.
Búið er að úthluta öllum lóðum í
Salahverfi.
Alls er gert ráð fyrir um 1.000
íbúðum í þessu hverfi fullbyggðu og
að þar muni búa nær 3.000 manns.
Næsta nýhverfi Kópavogsbæjar
verður sennilega í Vatnsendalandi.
Hröð en markviss uppbygging
einkennir Salahverfið
Fjölbreytnin setur mikinn svip á húsagerð í Salahverfi. Magnús Sigurðsson kynnti
sér hverfið og nokkrar fasteignir, sem þar eru á boðstólum.
Morgunblaðið/Billi
Uppbyggingin leynir sér ekki báðum megin við Salaveginn, sem liggur í gegnum hverfið. Til vinstri er háhýsi, sem byggingafyrirtækið Viðar ehf. er með í smíðum og þar næst háhýsi Járnbendingar ehf.
Fremst til hægri á myndinni er leikskólinn, sem er langt kominn.
„ÞAÐ er skjólsælt í Salahverfi, sérstaklega í
norðanáttinni, öfugt við það sem margir
kunna að halda, þar sem landið stendur all-
hátt, “ segir Þorleifur St. Guðmundsson hjá
Eignamiðluninni. „Ástæðan er sú að landinu
hallar til suðurs og það snýr því vel við sólu.
Á góðum dögum á sumrin verður þarna því
vel heitt og ég held að gróður eigi að dafna
vel.“
„Þetta verður rólegt og barnvænt hverfi
nálægt útivistarsvæði,“ heldur Þorleifur
áfram. „Skipulag hverfisins er gott og sama
máli gegnir um aðkomuleiðir. Þær verða mjög
góðar, þegar fram í sækir.“
Þorleifur segir mikla ásókn hafa verið í
nýju hverfin í Kópavogi og bætir við. „Linda-
hverfið hefur byggzt upp á örskömmum tíma
en það er senn fullbyggt og ljóst að uppbygg-
ingin í Salahverfi verður ekki síður hröð.
Sala á nýjum íbúðum hefur yfirleitt gengið
vel. Það er hins vegar minna um það nú en
þegar eftirspurnin var hvað mest að kaup-
endur kaupi íbúðir á meðan þær eru enn á
teikniborðinu eins og sagt er. Kaupendur vilja
gjarnan sjá þær lengra komnar.“
Meira jafnvægi á markaðnum
En Þorleifur segir það ójafnvægi sem ríkti á
markaðnum fyrir eins og einu ári hafa minnk-
að en þá var eftirspurnin svo miklu meiri en
framboðið. „Það má líta svo á að á árunum
1999 og 2000 hafi verið óeðlilegt ástand á
markaðnum,“ segir hann.
„Nú er komið meira jafnvægi án þess að um
nokkra stöðnun sé að ræða. Þannig hefur sala
í ár hjá okkur í Eignamiðluninni verið góð.“
Þorleifur segir það mjög jákvætt fyrir
markaðinn að þakið á húsbréfalánunum hefur
verið hækkað en bætir við: „Það er í um-
ræðunni að hætta að miða húsbréfalán við
brunabótamat en það sýnir ekki nema hluta
af verðmæti eignarinnar. Í dag er tekin út úr
brunabótamatinu öll undirbúningsvinna svo
sem lóðarframkvæmdir, gatnagerðargjöld og
hönnunarkostnaður. Ekkert af þessu er inni í
brunabótamatinu.
Líkur eru á að þessu verði breytt og hús-
bréfalánin einungis látin taka mið af kaup-
verði eigna sem endurspeglar miklu betur hið
raunverulega verðmæti eignanna. Slík breyt-
ing yrði líka afar jákvætt innlegg í markaðinn
nú.“
Nýjar íbúðir við Rjúpnasali
Hjá Eignamiðluninni eru nú til sölu íbúðir í
tveimur fjölbýlishúsum við Rjúpnasali 6–8.
Byggingaraðili er Bjarkar ehf. en húsin eru
hönnuð hjá Teiknistofunni Ármúla 6. Bæði
húsin eru þrjár hæðir og með sex íbúðum
hvort. Minni íbúðirnar eru fjórar og um 90
ferm. að stærð og skiptast í stofu og tvö
svefnherbergi, sérþvottahús o. fl. Verð þeirra
er 12,5 millj. kr. Stærri íbúðirnar eru átta og
um 120 ferm. að stærð og skiptast í stofu,
eldhús, bað, þvottahús og þrjú svefnherbergi.
Verð á þeim er 14,9 millj. kr. Íbúðirnar á ann-
arri og þriðju hæð eru með svölum og meira
að segja tvennar svalir á fjórum íbúðum en
sérlóð fylgir íbúðunum á jarðhæð. Fjórir bíl-
skúrar fylgja íbúðunum og verða þeir seldir
sérstaklega.
„Þessar íbúðir verða væntanlega afhentar í
september næstkomandi en búið er að steypa
upp annað húsið og uppsteypa langt komin á
hinu húsinu,“ segir Þorleifur. „Húsin verða
með marmarasalla að utan en hann hefur
reynzt mjög vel.“
„Ég tel að verðið á þessum íbúðum sé mjög
hagstætt miðað við markaðinn nú,“ sagði
Þorleifur St. Guðmundsson að lokum.
Skjólsælt í norðanáttinni
Morgunblaðið/Billi
Rjúpnasalir 6-8. Bæði húsin eru þrjár hæðir og með sex íbúðum hvort. Minni íbúðirnar eru fjórar og um 90 ferm. að
stærð. Verð þeirra er 12,5 millj. kr. Stærri íbúðirnar eru átta og um 120 ferm. að stærð. Verð á þeim er 14,9 millj. kr. Íbúð-
irnar eru til sölu hjá Eignamiðluninni.
Þór Bjarkar byggingaraðili og Þorleifur St. Guðmundsson hjá Eignamiðluninni. Í
baksýn er fjölbýlishúsið Rjúpnasalir 6. Íbúðirnar verða afhentar í september.