Morgunblaðið - 03.07.2001, Page 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Á
SLAND, hið nýja hverfi
Hafnfirðinga, er að
byggjast upp með gríðar-
legum hraða. Bæði leik-
skóli og barnaskóli eru í smíðum í
hverfinu og glæsilegt, fjölnota
íþróttahús Hauka var tekið í notkun
sl. haust. Húsið allt, fullbúið með
allri félagsaðstöðu, var tilbúið í vor,
en í húsinu er auk íþróttaaðstöðunn-
ar mjög rúmgóð félagsaðstaða.
Nú í júlí verða afhentar lóðir, sem
auglýstar voru til umsóknar fyrir
síðustu áramót. Þar var um að ræða
48 lóðir fyrir einbýlishús, 26 lóðir
fyrir parhús, 18 lóðir fyrir raðhús,
tvær lóðir fyrir fjölbýlishús og eina
lóð fyrir sambýli. Mikill áhugi var á
þessum lóðum og fengu færri en
vildu.
Einn aðalkosturinn við þessar lóð-
ir er einstakt útsýni. Lóðirnar eru
það ofarlega í hlíðum Ásfjalls, að frá
þeim sést nánast allt Reykjanesið og
norður að Snæfellsjökli og útsýnið
yfir Fjörðinn og til Reykjavíkur er
vægast sagt hrífandi. Þessi áfangi er
því á þeim stað, sem hvað mest hefur
verið beðið eftir.
Að sögn Erlends Hjálmarssonar,
byggingarfulltrúa í Hafnarfirði,
munu framkvæmdir hefjast á þess-
um byggingarlóðum nú í júlímánuði.
Allur undirbúningur hefur gengið
samkvæmt tímaáætlun og greinilega
mikill hugur hjá mörgum lóðarhöf-
um að byrja framkvæmdir.
2.000 íbúða hverfi á Völlum
Nú er unnið að því að skipuleggja
nýtt og stórt byggingarsvæði fyrir
sunnan Haukahúsið. Á þessu svæði,
sem hlotið hefur nafnið Vellir, á að
rísa annars vegar íbúðarbyggð með
um 2.000 íbúðum og hins vegar svæði
fyrir skrifstofu- og þjónustuhús-
næði. Gert er ráð fyrir, að deiliskipu-
lag liggi fyrir um áramót og þá verði
auglýst eftir lóðaumsóknum.
„Íbúðarbyggðin á þessu svæði
verður blönduð byggð einbýlishúsa,
raðhúsa, parhúsa og fjölbýlishúsa,“
segir Erlendur Hjálmarsson. „Þarna
er gert ráð fyrir töluvert þéttari
byggð en annars staðar í Áslandinu.
Þetta verður m.a. gert með því að
hafa bílageymslur undir húsunum til
þess að auka nýtingu svæðisins og
koma þar fyrir meiri gróðri og úti-
vistarsvæðum. Þetta verður að
megninu lágreist byggð og húsin frá
einni hæð og upp í fjórar hæðir en
engin háhýsi.“
Tillögur um þetta nýja bygging-
arsvæði voru kynntar í skipulags-
nefnd Hafnarfjarðar í síðustu viku.
„Þar var tekið vel í þær hugmyndir,
sem koma fram í þessum tillögum,“
segir Erlendur. „ Í þeim er m.a. lögð
rík áherzla á umhverfismál og sjón-
línur látnar skerast þannig, að það
opnast geilar í byggðina, sem eiga að
tryggja útsýni til Keilis, út á sjóinn
og allt til Snæfellsjökuls.
Ef að líkum lætur verður mikil
ásókn í íbúðarlóðir á þessu svæði
rétt eins og annars staðar í Ásland-
inu. Umhverfið verður í senn fallegt
og vinalegt.“
Nýtt svæði fyrir
atvinnuhúsnæði
Skipulagsvinna er nú í gangi fyrir
næsta áfanga á atvinnuhúsasvæðinu
sunnan við Hellnahraun. „Markmið-
ið er að hafa þetta skipulag tilbúið í
vetur, þannig að hægt verði að fara
vinna eftir því á næsta ári,“ segir Er-
lendur.
„Nú eru flestar lóðir undir at-
vinnuhúsnæði í Hellnahrauni gengn-
ar út, en til sögunnar eru komin ný
fyrirtæki, sem vilja hasla sér völl á
þessu svæði. Þeirra á meðal má
nefna Tækjatækni, Vélsmiðju Guð-
mundar og nýtt fyrirtæki, sem heitir
Blendi og framleiðir fyrir ÍSAL.
Teikningar að fyrirhuguðum
byggingum fyrir þessi fyrirtæki hafa
þegar verið samþykktar.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Í þessum mánuði hefjast byggingaframkvæmdir á lóðum efst í hlíðum Ásfjalls. Einn aðalkosturinn við þessar lóðir er einstakt útsýni.
Uppbyggingin í Áslandi leynir sér ekki. Stóra byggingin fyrir miðri mynd er Áslandsskóli, sem tekinn verður í notkun í haust.
Morgunblaðið/Jim Smart
Erlendur Hjálmarsson, byggingarfulltrúi í Hafnarfirði. Mynd þessi er tekin á fyrirhuguðu byggingarsvæði á Völlum.
Ekkert lát á ásókn í lóðir
íÁslandi í Hafnarfirði
Síðustu lóðirnar efst í hlíðum Ásfjalls verða afhentar í
þessum mánuði og unnið er að skipulagningu nýs
byggingarsvæðis á Völlum. Magnús Sigurðsson ræddi
við Erlend Hjálmarsson, byggingarfulltrúa í Firðinum.
magnuss@mbl.is