Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.07.2001, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 C 27HeimiliFasteignir RAÐHÚS og önnur sambyggð og samtengd hús geta flokkast sem ein heild eða eitt hús en með öðrum sambyggðum húsum er átt við hús sem eru í enn minni eða lausari tengslum hvert við annað en raðhús og sambyggingar. Þótt sambyggð eða samtengd hús myndu flokkast sem tvö sjálfstæð hús eða fleiri þá gilda ákvæði lag- anna um fjöleignarhús eftir því sem við getur átt um þau atriði og mál- efni sem eru sameiginleg, svo og lóð ef hún er sameiginleg að öllu leyti eða nokkru og um útlit og heild- arsvip. Þótt fjöleignarhús samanstandi af einingum eða hlutum (stigahúsum) sem eru sjálfstæðar eða aðgreindar að einhverju leyti og hvort sem þau standa á einni lóð eða fleirum, er allt ytra byrði hússins alls staðar, þak, útveggir og gaflar í sameign allra eigenda þess. Sameiginleg greiðsluskylda Í einstöku málum koma upp vafa- mál hvort eignarréttur hvers og eins eiganda raðhúss nái hlutfalls- lega til alls ytra byrðis raðhússins með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir, þ.á m. til greiðslu- skyldu í viðhaldsframkvæmdum. Til þess að ákveða sameiginlega greiðsluskyldu hvers raðhússeig- anda verður að skoða og meta hvort raðhúsalengjan teljist vera eitt hús í skilningi laga um fjöleignarhús. Það má segja að það séu jafnan löglíkur fyrir því að sambyggingar og raðhús teljist vera eitt hús í skilningi fjöleignarhúsalaganna og lúti reglum þeirra, a.m.k. hvað tek- ur til alls ytra byrðis og eignarum- ráða yfir því. Þetta er þó ekki án undantekninga. Til eru dæmi um hús í sambygg- ingu sem skilja sig svo frá öðrum húsum, bæði lagalega og annan hátt, að með öllu er óeðlilegt að við- hald á einstökum húsum sé lagt á alla eigendur þeirra. Verður því að skoða heildstætt hvert tilvik fyrir sig þar sem ekkert eitt atriði getur ráðið úrslitum í þessu sambandi. Álit kærunefndar Kærunefnd fjöleignarhúsamála hefur skilað frá sér áliti um hvort raðhúsalengja teljist vera eitt hús með sameiginlegri greiðsluskyldu allra eigenda eða hvort um aðgreind hús væru að ræða þar sem hver eig- andi bæri ábyrgð á öllu viðhaldi á sínu húsi. Í áliti kærunefndar frá árinu 2000 um raðhús við Fífumóa í Njarðvík var deilt um hvort um eitt hús væri að ræða og þá hvort viðhald utan- húss teldist sameiginlegur kostn- aður allra húsanna. Álitsbeiðandi krafðist þess að við- urkennt yrði að Fífumóar teldust fimm hús í skilningi fjöleign- arhúsalaganna og að viðhald utan- húss á ábyrgð hvers eiganda fyrir sig en ekki sameiginlegt með öllum húsunum. Umrædd raðhús voru með sér- stakan lóðarsamning hvert, tvöfald- ir brunaskilaveggir á milli húsanna og þökin algjörlega aðskilin. Þá var burðarþol húsanna sjálfstætt, svo og lagnakerfi húsanna. Álitsbeið- andi taldi að hver húseigandi hefði hugsað um sitt hús eins og um fimm hús væri að ræða en hins vegar hefðu húsfundir verið haldnir til að ræða útlitsbreytingar á húsunum, s.s. litaval. Kærunefndin vísaði til meginreglunnar þess efnis að sam- byggingar og raðhús teljist vera eitt hús í skilningi laganna hvað varðar ytra byrði hússins og eignarumráð yfir því. Þessi regla væri þó ekki án undantekninga. Til þess að hægt væri að meta hvort um væri að ræða eitt hús eða fleiri þyrftu jafnframt að koma til skoðunar önnur atriði, s.s. úthlut- unarskilmálar, lóðarleigusamningar, hönnun á burðarþoli og lagnakerfi, byggingaraðilar, byggingar- og við- haldssaga, þinglýstar heimildir, þ.m.t. eignaskiptasamningar, útlit húss og eðli máls. Skoða verður hvert tilvik Þótt geti ekkert af þessum atrið- um ráðið úrslitum um þessi atriði og að skoða verði hvert tilvik fyrir sig. Kærunefndin taldi þá skyldu hvíla á eigendum raðhúsa eða sambyggðra húsa að hafa samráð á grundvelli laga um fjöleignarhús varðandi út- litsatriði enda þótt húsin væru sjálf- stæð hús að öðru leyti. Nauðsynlegt er að sem skýrust regla gildi um það hvenær hús telj- ist sjálfstæð og hvenær sambygging fleiri húsa sé eitt hús. Allar und- antekningar frá meginreglunni yrði að túlka þröngt og að slíkt leiddi til þess að eigendur fjöleignarhúsa byggju við sambærilega réttarstöðu innbyrðis. Annað myndi leiða til réttaróvissu og öngþveitis, s.s ef sinn siður myndaðist í hverju húsi. Hins vegar gætu útlitsatriði og viðhaldsatriði blandast saman og geti það valdið vafa hvort allir eigi að ráða útliti viðgerðar en einungis sumir að borga fyrir hana. Þá taldi kærunefndin að bygging raðhúsa miðaðist fyrst og fremst við hagkvæmni við slíkan bygging- armáta út frá hagsmunum heildar- innar, t.d. sé byggingakostnaður raðhúss í miðri lengju að jafnaði lægri en kostnaður endaraðhúss og hið sama gildi um viðhaldskostnað. Nefndin taldi að þetta atriði ætti þó ekki að ráða skiptingu kostnaðar vegna sameignarinnar, enda því ekki haldið fram að verðmismun- urinn grundvallaðist á mismunandi gæðum byggingarinnar. Meirihluti nefndarinnar taldi að raðhúsin væru hönnuð sem ein heild bæði útlitslega og byggingarlega og væri því um eitt hús að ræða í skiln- ingi laganna. Vanrækt viðhald Hins vegar er það þekkt vanda- mál að sinn siður hefur myndast víðast hvar í hverju húsi um utan- hússviðhald og telja sumir ósann- gjarnt að þurfa að borga hluta í við- gerðum á húshluta sem ekki sé hluti af eigin húsi. Sérstaklega getur slíkt komið aftan af þeim eigendum sem hafa séð um að halda sinni eign vel við. Kærunefndin hefur tekið á slíkum málum og í áliti nefndarinnar frá 1997 kemur fram að eigendur geti samþykkt að hver og einn eigandi muni sjá um ákveðinn þátt viðhalds- ins, til að mynda sinn húshluta. Það sé hins vegar á ábyrgð heild- arinnar/húsfélagsins að verkið sé framkvæmt með þeim hætti og að einstakir eigendur losni ekki undan ábyrgð með vanrækslu á sínum hluta samkomulagsins. Eðlilegt og sanngjarnt sé að taka tillit til eldri viðgerða og viðhalds að því marki sem þær leiða til lækkunar á heild- arkostnaði þess verks sem til stend- ur að vinna við húsið. RAÐHÚS – EITT HÚS Hús og lög eftir Elísabetu Sigurðardóttur, hdl, lögfræðingur Húseigenda- félagsins/huso@islandia.is U PPBYGGINGIN í Ás- landi hefur gengið vel og mikil bjartsýni ríkjandi á meðal þeirra mörgu, sem þar eru að byggja að sögn Hilmars Þórs Bryde hjá fasteignasölunni Hraunhamri. „Skipulagið er líka frábært, segir hann. „Byggðin skipt- ist í minni áfanga, sem minna á lítil þorp með skilrúmi á milli og byggðin verður vinalegri fyrir bragðið.“ Hilmar Þór segir sölu á fasteign- um hafa gengið vel á þessu ári, en að undanförnu hefði aðeins dregið úr henni og það mætti vafalaust rekja til neikvæðrar umræðu í þjóðfélag- inu. „Við verðum að varast að tala okkur inn í kreppu og það kannski alveg að ástæðulausu, því að vaxt- armerkin eru mörg í þjóðfélaginu,“ sagði hann ennfremur. „Það kom áberandi kippur í söl- una, eftir að þakið á húsbréfalán- unum var hækkað, en svo dró aðeins úr henni aftur. Við samanburð á sölu má ekki heldur gleyma því, að und- anfarin tvö ár eða svo hefur verið óvenju mikil þensla á markaðnum og kannski ekki eðlilegt að miða al- farið við það ástand.“ Hilmar Þór var mjög gagnrýninn á síðustu aðgerðir stjórnvalda varð- andi brunabótamat og fasteignamat. „Hækkunin á fasteignamatinu þýðir lítið annað en hækkun á sköttum og opinberum gjöldum og hefur nei- kvæð áhrif á fólk, sem hyggur á íbúðarkaup,“ sagði hann. „Lækkunin á brunabótamatinu mun hins vegar hafa mjög neikvæð áhrif á sölu fasteigna vegna minni veðhæfni þeirra og draga úr eigna- myndun í þjóðfélaginu. Hafa verður í huga, að notaðar eignir er áður bú- ið að veðsetja miðað við núverandi brunabótamat. Ef þessi breyting nær fram að ganga, verður fasteignamarkaður- inn ekki starfhæfur á eftir. Ég trúi því ekki öðru, en að stjórnvöld grípi í taumana og sjái til þess að þessi ólög komi ekki til framkvæmda 15. september nk.“ Útsýnisíbúðir við Kríuás Við Kríuás 47 er Hilmar Þór með í sölu 18 íbúðir í þriggja hæða fjöl- býlishúsi með lyftu. Sjö bílskúrar fylgja, en eru seldir sér. „Þetta hús stendur á afar góðum stað ofarlega í hlíðum Ásfjalls og er því með frá- bæru útsýni,“ sagði Hilmar Þór. Íbúðirnar eru ýmist 3ja eða 4ra herb. og með sérinngangi af svölum. Þær eru á bilinu 78–130 ferm að stærð og verðið frá 11,3 og upp í 14,8 millj. kr. Íbúðunum verður skilað fullbúnum á vandaðan máta en án gólfefna. Byggingaraðili er Kambur ehf., en hönnuður er Jakob Líndal arkitekt. „Það er greinilega fyrir hendi mikill áhugi á þessum íbúðum úti á markaðnum, en þær verða afhentar í haust,“ sagði Hilmar Þór. Hann kvað sérbýlið setja mikinn svip á nýbyggingarnar í Áslandi og bætti við: „Fólk á öllum aldri sækist eftir eignum í Áslandi, jafnt eldra fólk sem yngra fólk með börn. Einkarekinn grunnskóli tekur til starfa í hverfinu í haust. Þetta verð- ur glæsileg bygging, sem margir binda miklar vonir við og nýr og vandaður leikskóli verður líka í hverfinu. Ekki má gleyma íþróttahúsi Hauka og þeirri félagsaðstöðu sem þar er að finna. Ég held, að það sé ekki ofsagt, þegar sagt er, að þetta sé glæsilegasta íþróttahús landsins nú og það er auðvitað afar jákvætt fyrir hverfið, að slíkt hús skuli vera fyrir hendi frá upphafi. Stundum þurfa ný hverfi að bíða í mörg ár eft- ir íþrótta- og félagsaðstöðu. Í framtíðinni er líka gert ráð fyrir verzlunum og þjónustufyrirtækjum í hverfinu og sú starfsemi gæti kom- ist á laggirnar mjög fljótlega, þar sem búið er að skipuleggja hana.“ Morgunblaðið/Jim Smart Hilmar Þór Bryde, sölumaður hjá Hraunhamri, og Höskuldur Ragnarsson byggingarstjóri. Mynd þessi er tekin fyrir framan fjölbýlishúsið Kríuás 47, en það er með 18 íbúðum, sem eru til sölu hjá Hraunhamri og Fasteignastofunni. Gott skipulag mótar byggðina H ÚSAGERÐ er mjög fjöl- breytt í Áslandi. Sérbýl- ið er áberandi, jafnt í fjölbýlishúsum sem ann- ars staðar. Talsvert er um góðar sérhæðir, sem virðast falla vel að óskum markaðarins nú. Hjá Fasteignastofunni er til sölu fjórbýlishús í smíðum við Þrastarás 10 og 12. Byggingaraðili er Mótás ehf., en húsin eru hönnuð hjá teiknistofunni Batteríið. Húsin verða seld fullbúin að utan en tilbúin undir tréverk að innan en þó án léttra milliveggja að inn- an. Þau verða einangruð með stein- ull og klædd að utan með hvítu áli. Gluggar verða úr áli að utan og timbri að innan. Húsinu nr. 10 verður skilað til kaupanda í ágúst nk. en seinna húsinu i september. „Þetta eru rúmgóðar hæðir, en efri hæðirnar eru um 156 ferm með sameign, sem er sáralítil, og neðri hæðirnar 151 ferm,“ segir Krist- jana Aradóttir hjá Fasteignastof- unni. „Einnig er lofthæðin mjög góð og meiri en venjan er í nýjum íbúðum nú á dögum.“ Ásett verð á efri hæðirnar er 13,9 millj. kr. en á neðri hæðirnar 13,6 millj. kr. Kaupandi og seljandi skipta með sér afföllum af hús- bréfum. „Áslandshverfi er að taka á sig skarpari mynd. Skipulag þess tek- ur mið af hlíðum Ásfjalls og er afar skemmtilegt,“ segir Kristjana Hún vék síðan að ástandinu á markaðnum nú og sagði: „Hækk- unin á húsbréfaþakinu fyrir skömmu varð til þess að auka bjartsýni hjá fólki og salan í þessu hverfi sem annars staðar tók góðan kipp. En það er hætt við því, að fyr- irhugaðar breytingar á brunabóta- mati fasteigna 15. september nk. reynist neikvæðar fyrir markaðinn, jafnt í Áslandshverfi sem annars staðar. Þessar breytingar geta raunar haft neikvæð áhrif á markaðinn strax, ef ekkert er að gert. Þess vegna þurfa stjórnvöld að taka af skarið sem fyrst og lýsa því af- dráttarlaust yfir, að þessar breyt- ingar á brunabótamatinu verði ekki látnar taka gildi. Langæskilegast væri samt, að Íbúðalánasjóður tæki upp mark- aðsverð á íbúðarhúsnæði sem við- miðun í lánveitingum sínum en segði skilið við brunabótamatið. Morgunblaðið/Jim Smart Kristjana Aradóttir. Í baksýn er húsið Þrastarás 10, sem er til sölu hjá Fast- eignastofunni. Efri hæðin verður um 156 ferm. með sameign, sem er sáralítil, og neðri hæðin er 151 ferm. Sérbýlið áber- andi í Áslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.