Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 0 . J Ú L Í 2 0 0 1 B L A Ð B
RADDIR SKÁLDANNA/2 UNGRA PENNA LEITAÐ VÍÐA/2
MYNDLIST OG MOLD/3 AÐ LESA LANDIÐ/4 UNDIR SÓLINNI –
BÖRN Á SUMARNÁMSKEIÐUM/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
Þeim ferðalöngum sem hættir til að
gleyma bæði tjaldi og svefnpoka er
sjálfsagt ekki við bjargandi hvort eð
er. Daglegt líf minnir því ekki á aug-
ljósustu nauðsynjar heldur hagnýta
aukahluti til útilegunnar:
Hnífapör, skeiðar og glös, vatns-
brúsa, landakort og áttavita, ljósfæri,
eldfæri, útvarp fyrir veðurfréttir,
sjúkrakassa, lyf eftir atvikum, sól-
krem, varaskóreimar, sundföt og
handklæði, leiðsögubækur, söngbæk-
ur, gítar, munnhörpu, peninga, sauma-
dót, flugnanet, eyrnatappa, þvotta-
klemmur, ruslapoka, klósettpappír,
kodda, dósaopnara og veiðigræjur.
Heimasmurðar samlokur eru ódýrari
matur og hollari en margt sem selt er í
þjóðvegasjoppunum, íslenskt vatn er
víst best í heimi og ef börnunum leiðist
útvarpsdagskráin er endalausa
ánægju að hafa af rímorðaleiknum:
Nefndu fimm orð sem ríma við tjald.
„Ertu með
lyklana?“
ÍSLENDINGAR voru ekki fyrr
fluttir í upphituð og raflögð hús, við
upphaf síðustu aldar, en fyrsti
skátaflokkurinn var stofnaður í
Reykjavík og ungir, hraustir Ís-
lands synir gerðu það að tóm-
stundaiðju sinni að gista í köldum,
lekum tjöldum og kveikja eld í
spreki, fjarri mannabyggðum og
því sem einhverjir héldu þá að væri
skarkali borgarlífsins.
Útivist af þessum toga varð vin-
sæl meðal millistéttarfólks í Evrópu
og Ameríku eftir hrakningar Hen-
rys Davids Thoreau, sem lagðist út
og bjó við Walden poll í rúm tvö ár,
um miðja 19. öld. Útilegan var til-
raun Thoreaus til að lifa árvakur en
fylgja ekki hugsunarlaus og leiði-
tamur mynstri vanans. „Megnið af
munaði og svonefndum lífsþæg-
indum er ekki aðeins ónauðsynlegt,
heldur raunverulegar hindranir á
vegferð mannkyns,“ skrifaði Thor-
eau og lagðist út til að hrista af sér
hægindin.
Íslenskar helgarútilegur eru
af eilítið öðrum toga. Með prím-
us og pylsur, einnota grill, sjálf-
blásanlegar dýnur, pólýester-
himin, ferðageislaspilara,
ferðasófa, ferðasalerni, fartölv-
ur og tölvuleiki, farsíma, kunn-
ingja í næsta tjaldi, sjoppu í ná-
grenninu og jeppa ef eitthvað
skyldi klikka er lítil hætta á að
útilegan kosti nokkurt erfiði
eða rjúfi alvarlega hegð-
unarmynstur hversdagsins.
hmh
Undir pólýesterhimni
Morgunblaðið/Ásdís
Með réttum búnaði getur
útilegufólk látið eins og það
hafi aldrei farið úr húsi –
svona hér um bil. Starfsmað-
ur Intersport bregður á leik.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/RAX