Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 7
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 B 7
„Stundum förum við líka saman í
ferðir, og svo erum við auðvitað að
mála,“ segir Hlynur. Hann segir að
stóra sameiginlega málverkið sé af
Litlalandi, landi sem hópurinn hafi
búið til. Allir þurfi að skapa sér nýja
tilveru þar, finna sér nafn og koma
sér þaki yfir höfuðið. „Málverkið er
leikmynd fyrir leiksýningu sem við
ætlum að sýna foreldrum okkar síð-
asta daginn á námskeiðinu,“ segir
Hlynur.
Nýja nafnið hennar Mörtu Sig-
rúnar er Tina, en Hlynur segist ætla
að heita Krampen. Þetta eru jafn-
framt persónurnar sem þau ætla að
leika í leikritinu. Sumarið er rétt
hálfnað og þau Marta Sigrún og
Hlynur eiga margt skemmtilegt í
vændum eftir að námskeiðinu lýk-
ur.
„Ég er að fara í sumarbústað, við
leggjum af stað síðasta daginn minn
á námskeiðinu,“ segir Marta Sig-
rún. Hlynur byrjar á að hvíla sig í
nokkra daga heima eftir að nám-
skeiðinu lýkur. „Amma og afi voru
að kaupa bóndabýli, sem þau ætla
að breyta í sumarbústað – við eigum
örugglega eftir að vera mikið þar í
sumar,“ segir hann að lokum.
Hlynur Árnason og Marta Sigrún Jóhannsdóttir.
rh
KLUKKAN er hálftíu en eng-inn veit lengur hvaða viku-dagur er. Hópur barna sóp-
ar miðgólf Smáraskóla í Kópavogi,
skúrar og þurrkar af borðum eftir
morgunsnæðing. Alls eru þau 48, ell-
efu ára börnin sem í heilan mánuð
dveljast í skólahúsinu, ásamt um-
sjónarmönnum og fararstjórum Al-
þjóðlegra sumarbúða barna. Börnin
koma frá tólf löndum, hvaðanæva –
Filippseyjum, Noregi, Brasilíu, Ítal-
íu, Bandaríkjunum ...
Strákar og stelpur
67 þjóðlönd úr öllum byggðum
heimsálfum taka þátt í starfi CISV
(Children’s International Summer
Villages). Samtökin voru stofnuð
1950 af bandaríska sálfræðingnum
Doris Allen. Þau eru ópólitísk og ekki
tengd trúarbrögðum en hafa eitt
stefnumið: Að kenna framtíðarþegn-
um að hunsa landamæri og lifa frið-
samlega í fjölmenningarsamfélagi.
Og vel skal vanda: „Hérna sérðu
hvernig við skiptum sturtutímum á
morgnana.“ Ingigerður Einarsdótt-
ir, annar íslensku umsjónarmann-
anna, bendir á töflu uppi á vegg. „Við
getum ekki látið alla fara í sturtu í
einu. Kanadísku stelpurnar vilja
helst klæðast sundbolum þegar þær
baðast. Brasilísku og bandarísku
stelpurnar voru líka feimnar til að
byrja með en þær eru að braggast.“
Börnin hafa nú verið á Íslandi í
tvær vikur og virðist þegar mikill
kunningsskapur með þeim. Norskur
og þýskur strákur mætast í stiga og
gæta þess að ýta svolítið harkalega
hvor í annan. Krakkarnir hópast út.
Teresa hin fagra frá Ítalíu stendur
í sólinni og lætur sér fátt um flesta
hluti finnast. Hún er höfðinu hærri
en Alessandro, naggurinn sem
ávarpar hana og er mikið niðri fyrir.
Í svip hans er bæði alvara og von-
leysi, stúlkan horfir í aðrar áttir með-
an hann reynir að tala hana til, með
orðum og æði. Loks lítur hún á hann
og hver sem var málstaður Alessand-
ros, er samræðunni lokið þegar hún
lygnir aftur augunum, hristir höfuð
hægt og segir afgerandi: Nei. – Lítur
svo í aðrar áttir. Alessandro gengur
burt og gerir sér eirð
úr því að kasta
grjóti. Teresa er
skotin í ... einhverj-
um öðrum.
Áhyggjur af ástar-
málum verða að bíða,
klukkan hálfellefu
hefst leikjatími. Fil-
ippseyingar útskýra
fyrsta leik dagsins á
tungumáli CISV,
ensku. Enskan ítrek-
ar yfirburðastöðu
sína eftir nokkrar
mínútur: Krakkarnir
hlaupa um með nöfn
bandarískra leikara
og tónlistarmanna á enninu – hver og
einn reynir að komast að því hvaða
nafn hann ber.
Íslenskur strákur dregur lappirn-
ar og muldrar að hver dagur sé öðr-
um líkur.
„Þetta er svolítið öðruvísi fyrir Ís-
lendingana,“ útskýrir Inga. „Sumir
eiga kannski pabba í næstu götu og
skilja ekki af hverju þeir geta ekki
farið í heimókn, eða tekið strætó nið-
ur í bæ.“
Á hverju ári taka um 8.000 manns
þátt í 200 sumarbúðum CISV um all-
an heim. Yfir 100.000 manns taka
þátt í ýmissi annarri starfsemi sam-
takanna. Árni Ólafur Jónsson, sem
er umsjónarmaður búðanna ásamt
Ingu, segir að starfið grundvallist á
sjálfboðavinnu: „Ég held að þrjár,
fjórar manneskjur í heiminum þiggji
laun frá samtökunum. Foreldrarnir
greiða fyrir beinan kostnað, en vinn-
an er unnin af sjálfboðaliðum.“
Inga og Árni halda sjálf til í
Smáraskóla, nótt og dag, allan júlí-
mánuð, og hafa umsjón með öllu
starfi búðanna, kauplaust. „Við fáum
reyndar frí næstu helgi, þá verða
krakkarnir tveir og tveir saman hjá
fjölskyldum og við reynum að
skemmta okkur með erlendu farar-
stjórunum. Það er mikilvægt að far-
arstjórunum komi vel saman, krakk-
arnir finna það.“
Nánari upplýsingar um starfsemi
CISV má finna á slóðinni www.cis-
v.org..
Heimsþorp
í Smáraskóla
Morgunblaðið/Billi
Ingigerður Einarsdóttir, annar umsjónarmaður
íslensku búðanna í Smáraskóla.
eru afar frábrugðin íslenskunni.
En hvað skyldu þær hafa búið
lengi hérlendis?
„Ég er búin að vera hér í eitt ár og
sjö mánuði,“ segir Ping. „Og ég er
búin að vera á Íslandi í eitt og hálft
ár,“ segir Niña og brosir feimnis-
lega. Þeim finnst báðum óskaplega
gaman á námskeiðinu í Austurbæj-
arskólanum. „Við eigum margar vin-
konur og vini sem eru líka á nám-
skeiðinu hér í sumar,“ segir Niña.
Ekki skemmir það nú. Þær segjast
ánægðar á Íslandi og námið í Há-
teigsskóla sækist þeim vel.
Framtíðin er björt
Úti á skólalóðinni eru strákar að
spila fótbolta af mikilli ákefð, svona
eins og stráka er siður. Einn af þeim
er Sveinn Zolotariov, sem er 11 ára
og er frá Litháen. „Ég kom til Ís-
lands 14. ágúst í fyrra,“ segir hann
móður og másandi á alveg prýðis-
góðri íslensku. Sveinn hefur haft í
nógu að snúast eftir að hann kom til
Íslands, en auk þess að vera í skól-
anum lærir hann á píanó, æfir sund
og svo finnst honum gaman að leika
sér í tölvunni. „Nú er frí í sundinu í
einn mánuð, en svo byrjum við aftur
að æfa,“ segir Sveinn og skellir sér í
boltann, enda má hann ekkert vera
að þessu masi.
Ilya Karevskiy frá Moskvu er að
fylgjast með fótboltanum. Hann er
11 ára og segist vera í Landakots-
skóla. Hann hefur verið á Íslandi í
tvö og hálft ár. „Mér finnst gaman á
Íslandi,“ segir hann alvarlegur í
bragði. Ilya er ungur maður sem veit
hvað hann vill: „Eftir grunnskólann
ætla ég í Menntaskólann í Reykja-
vík, svo ætla ég í háskólann, og síðan
í Flugskóla Íslands,“ segir hann ein-
beittur og ákveðinn á svip.
Svipmyndir frá sum-
arnámskeiði barna af er-
lendum uppruna í Austur-
bæjarskólanum.
1. Lífsgleði æskunnar undir
heiðbláum sumarhimni.
2. Blómarósirnar Niña
Grace Tangolamos frá Fil-
ippseyjum og Yan Ping Wu
frá Kína.
3. „Má ég sjá hvað þið get-
ið búið til fína röð?“
4. Kakómjólk og brauð í
nestistíma hjá yngstu börn-
unum.
5. „Ég er sko vinur þinn!“
Í frjálsa
tímanum
rh
4. júlí.
Flest okkar vöknuðu fyrir
klukkan hálfníu, vegna þess að
strákarnir reyndu að hrekkja
stelpurnar. Eftir fánastund og
morgunverð fórum við í skóleik
– rugluðum skónum og reyndum
að finna saman rétt pör. Síðan
fórum við út í samúræjaleik. All-
ir áttu að öskra eins hátt og þeir
mögulega gátu. – Það var fynd-
inn leikur!
Eftir hádegi fórum við á stóra
völlinn og kepptum í und-
arlegum íþróttum. Sú erfiðasta
var að hlaupa í pörum með fætur
reyrða saman. Fjórði júlí er
þjóðhátíðardagur Bandaríkj-
anna og við héldum upp á hann
með smáræðis flugeldum og sæl-
gæti. Á kvöldvökunni settum við
saman skrítnar sögur. Allir
lögðu til eina setningu á sínu eig-
in tungumáli, að lokum var afar
undarlegt að heyra söguna alla!
Enn á ný áttum við frábæran
dag!
Rugsa
Otso
Daniel
Eeva
Anna
frá Finnlandi.
Enn einn frá-
bær dagur!Alþjóðlegar sumarbúðir fyrir börn, haldnar þriðja hvert ár hérlendis.
hmh
Úr dagbók
sumarbúðanna