Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 B FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSMÓT ungmennafélag-
anna var haldið á Egils-
stöðum um síðustu helgi.
Þátttakendur í mótinu voru
alls um 1.500 á öllum aldri.
Meðal þeirra sem hrepptu
gull í keppninni voru þrír ætt-
liðir kvenna frá Norðfirði.
Mæðgurnar Petrún Jóns-
dóttir og Hulda Elma Jóns-
dóttir urðu meistarar í blaki
kvenna. Móðir Petrúnar og
amma Huldu Elmu, Elma
Guðmundsdóttir, var svo í
sigursveitinni í golfi kvenna.
Fleiri fjölskyldur létu til sín
taka á mótinu. Fjórir bræður
voru í liði UMSK sem sigraði í
blaki karla. Þeir heita Róbert,
Vignir, Hlöðver og Ástþór
Hlöðverssynir. Og í fjórsundi
kvenna tóku þátt fjórar systur
úr Keflavík, þær Eva Dís, Íris
Edda, Karitas og Diljá Heim-
isdætur. Sveitin þeirra varð í
fjórða sæti í keppninni.
Landsmót ungmennafélaganna
Fræknar
fjölskyldur
Það fór vel um þá sem fylgdust með keppni á Landsmótinu.
ÁRNI Johnsen alþing-
ismaður og formaður bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhúss-
ins hefur viðurkennt að
hafa sagt fjölmiðlum ósatt
þegar hann var spurður um
kaup á steinum. Steinana
sagðist hann hafa keypt
vegna framkvæmda við
Þjóðleikhúsið og þeir væru
geymdir á brettum. Daginn
eftir upplýsti hann þó að
steinana hefði hann notað í
eigin garð. Vegna frestunar
á framkvæmdum við Þjóð-
leikhúsið sagðist hann hafa
notað steinana sjálfur en
ætlað að kaupa aðra í stað-
inn.
Þetta mál og fleiri tengd
umsýslu Árna eru nú til
rannsóknar hjá Ríkisend-
urskoðun. Ígær ákvað Árni
Johnsen að segja af sér
þingmensku.
Þingmaður
sagði ósatt
Morgunblaðið/Ásdís
Þéttidúkur sem leitað var í
tengslum við mál Árna
fannst í geymslu Þjóðleik-
hússkjallarans.
ÓLYMPÍULEIKARNIR verða
haldnir í Peking árið 2008.
Þetta var ákveðið um síðustu
helgi á þingi Alþjóðaólymp-
íunefndarinnar sem haldið
var í Moskvu. Fjórar aðrar
borgir komu til greina: Tor-
onto, París, Istanbúl og
Osaka.
Mikill fögnuður braust út í
Peking þegar úrslit lágu fyrir.
Hundruð þúsunda manna
flykktust til miðborgarinnar til
að fagna niðurstöðunni á
Torgi hins himneska friðar.
Ýmis mannréttindasamtök
hafa hins vegar lýst yfir von-
brigðum með valið vegna
stöðu mannréttindamála í
Kína.
Kínverjar létu ánægju sína ákaft í ljós eftir að niðurstaða lá
fyrir.
Peking varð
fyrir valinu
TVEIR ungir menn fórust
þegar fiskiskipið Una í
Garði sökk úti fyrir Norð-
urlandi aðfararnótt 17.
júlí. Þrír skipverjar og 11
ára gamall sonur eins
þeirra komust í björg-
unarbát og var bjargað
fimm klukkustundum eft-
ir slysið.
Una í Garði var á
rækjuveiðum þegar slys-
ið varð. Talið er að skipið
hafi sokkið á nokkrum
sekúndum. Neyðarmerki
frá björgunarbátnum
barst um klukkan fjögur
um nóttina og innan við
þremur tímum síðar fann
flugvél Flugmálastjórnar
skipsbrotsmennina.
Þeim var síðan bjargað
köldum og blautum um
borð í rækjubátinn Húna
HU-62.
Hörmulegt
sjóslys
UM næstu mánaðamót
verða sektir vegna brota
á umferðarlögum hækk-
aðar. Í heild nemur
hækkunin 50%. Hæsta
sekt fyrir verulega ölvun
við akstur hækkar úr 60
þúsund krónum í 100
þúsund og hæsta sekt
fyrir of hraðan akstur
hækkar úr 25 þúsund
krónum í 60 þúsund.
Sektir
hækka
Netfang: auefni@mbl.is
„VIÐ segjum að það sé
eitt til eitt og hálft ár í bið
fyrir þá sem eru í hvað
mestri þörf,“ sagði
Sveinn H. Skúlason for-
stjóri Hrafnistu. Hann
segir að alls hafi ríflega
eitt þúsund aldraðir sótt
um vistun hjá Hrafnistu í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Aðeins hluti þess hóps
njóti forgangs vegna
brýnnar þarfar.
Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra segir að
talið sé að um tvö hundr-
uð aldraðir séu nú í
bráðri þörf fyrir hrjúkr-
unarrými. „Þetta er eitt af
allra stærstu verkefnum í
heilbrigðisþjónustunni á
næstu árum,“ segir
hann.
Í heilbrigðisáætlun til
ársins 2010 kemur fram
að innan tíu ára eigi bið
eftir vistun á hjúkr-
unarheimili ekki að vera
lengri en 90 dagar. Þá er
átt við fólk sem er í mjög
brýnni þörf.
Langir
biðlistar
HÓPUR sem skipaður var um miðborg Reykjavíkur
hefur skilað skýrslu. Þar kemur fram að ofbeldi
hefur aukist verulega í miðborginni. Sérstaklega
hefur grófum líkamsmeiðingum fjölgað.
Árið 1990 komu 453 ofbeldismál til kasta lög-
reglunnar í Reykjavík. Á árinu 2000 voru þessi mál
831 talsins, eða nærri tvöfalt fleiri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir
þessa fjölgun áhyggjuefni. Hún segist gera ráð fyrir
að tillögum sem nefndar eru til úrbóta í skýrslunni
verði hrint í framkvæmd eftir því sem hægt verði.
Það er ekki hættulaust að vera í miðbænum að nóttu til, jafnvel þótt
bjart sé.
Ljót skýrsla
LÖGREGLAN í Reykjavík hef-
ur ákveðið að fela einum lög-
reglumanni að vera tengilið-
ur við Miðstöð nýbúa.
Tilgangurinn er að auðvelda
nýbúum að leita til lögregl-
unnar ef á þeim er brotið.
Í samstarfi við Miðstöð ný-
búa verður jafnframt gripið til
fleiri ráðstafana. Þær bein-
ast að því að lögreglumenn
geti betur sinnt starfi sínu
þegar í hlut eiga einstakling-
ar sem hvorki tala reiprenn-
andi íslensku né þekkja vel
til íslensks réttarkerfis.
Fá sérstakan tengilið