Morgunblaðið - 26.08.2001, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 C 13
Fasteignasala
Sölumaður
Traust fasteignasala óskar eftir að ráða sölu-
mann sem fyrst. Viðkomandi þarf að geta
starfað sjálfstætt og helst hafa einhverja
reynslu af sölustörfum. Boðið er upp á mjög
góða starfsaðstöðu hjá vaxandi fyrirtæki. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsækjendur leggi inn umsóknir með nánari
upplýsingum á augl. deild Mbl. fyrir 1. sept.
merkt: „Sala fasteigna — 11539“.
Sérfræðingur
— ofanflóð
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir starfsmanni
með menntun í jarðeðlisfræði, verkfræði, jarð-
fræði, landfræði eða sambærilegum greinum
til starfa við ofanflóðamál (snjóflóð/aurskriður)
á Úrvinnslu- og rannsóknasviði.
Starfið felst í vinnu við hættumat vegna ofan-
flóða, m.a. öflun heimilda, kortlagningu og
kortagerð vegna flóða og ummerkja þeirra,
mat og greiningu á aðstæðum á hættusvæðum
auk tölfræðilegrar úrvinnslu. Vöktun ofanflóða
er 10—20% starfsins.
Starfsmaðurinn vinnur undir stjórn verkefnis-
stjóra hættumats.
Umsækjandi þarf að hafa lokið (a.m.k.) B.S.-
námi. Reynsla í notkun tölva er nauðsynleg.
Upplýsingar veita forstöðumenn sviðsins og
verkefnisstjóri hættumats.
Umsóknir berist til Veðurstofu Íslands, Bústaða-
vegi 9, 150 Reykjavík, fyrir 15. september nk.
Starfsleiðbeinandi/
stuðningsfulltrúi
Starfsþjálfunarstaðurinn Örvi, sem sinnir
starfsprófun og starfsþjálfun, óskar að ráða
starfsleiðbeinanda (stuðningsfulltrúa) til starfa.
Óskað er eftir starfsmönnum í 50% eða 100%
starf, vinnutími kl. 8-12 eða kl. 8-16.
Starf starfsleiðbeinanda felst annars vegar í
stuðningi við fólk með fötlun í starfsprófun
og starfsþjálfun og hins vegar í verkstjórn í
vinnusal og daglegri umsjón með framleiðslu
og samskipti við viðskiptavini Örva.
Starfsemi Örva er liður í þjónustu við fatlaða
á Reykjanesi á vegum Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra. Svæðisskrifstofan veitir nýju
starfsfólki vandaða leiðsögn í starfi og
fræðslu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi SFR.
Æskilegt er að nýr starfsleiðbeinandi geti hafið
störf sem allra fyrst.
Upplýsingar um starfið veita forstöðumaður
og starfsráðgjafar í síma 554 3277.
Hefur þú áhuga á að
vinna með fólki?
Félagsþjónustan í Reykjavík óskar eftir að ráða
starfsfólk til starfa við búsetuþjónustu geð-
fatlaðra í borginni.
Starfið felst í að aðstoða einstaklingana við
daglegt líf þeirra heima og heiman. Reynsla
af starfi með geðfötluðum er æskileg.
Um er að ræða vaktavinnu. Laun samkvæmt
kjarasamningum Reykjavíkurborgar og hlutað-
eigandi stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigríður
Kristinsdóttir, forstöðumaður, í síma 652 0017
eða 899 8145 f.h. virka daga.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst nk. Umsóknare
!" !#
$$$
!
!
"
#
Knattspyrnuþjálfarar
U.M.F. Stjarnan í Garðabæ óskar eftir að ráða
þjálfara fyrir alla yngri flokka félagsins í knatt-
spyrnu. Íþróttakennara- og/eða þjálfaramennt-
un æskileg. Áhugasamir sendi inn umsókn fyrir
3. september 2001 merkta:
„Stjarnan, Unglingaráð knattspyrnudeildar,
Stjörnuheimilið við Ásgarð, 210 Garðabæ.“
Starfsmenn í móttöku
Óskum eftir ábyggilegum starfsmönnum í mót-
töku. Góð tungumálkunnátta áskilin.
Tekið er við umsóknum á staðnum eða sendið
tölvupóst.
Grand hótel Reykjavík
Sigtúni 38
johann@grand.is
Hótel Reykjavík
Rauðarárstíg 37
thordis@hotelreykjavik.is
Ísafold Sport kaffi - Þingholtsstræti 5
Veitingastjóri
Ísafold Sportkaffi óskar eftir að ráða veitinga-
stjóra til starfa frá og með 1. september nk.
Starfssvið
Veitingastjóri hefur umsjón með daglegum
rekstri s.s. ráðningu starfsmanna, röðun á vakt-
ir, innkaupum, og markaðssetningu í samráði
við framkvæmdastjóra auk þess sem hann
stendur vaktir á móti vaktstjóra.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir fjölhæfum einstaklingi sem hefur
áhuga og metnað og sýnir frumkvæði í starfi.
Nánari upplýsingar veitir Steinn Jóhannsson
(steini@astro.is) framkvæmdastjóri Miðbæjar-
veitinga í síma 562 2860.
Umsóknum skal skila til Miðbæjarveitinga,
Austurstræti 6, 4.h. fyrir miðv. 29. ágúst nk.
merktar: „Veitingastjóri-Sportkaffi“.
Skipulags-
og byggingafulltrúi
Vestmannaeyjabær auglýsir laust til
umsóknar embætti skipulags-
og byggingarfulltrúa.
Skipulags- og byggingarfulltrúi skal uppfylla
skilyrði 48. og 49. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 og er starfssvið hans skv. 9.
gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Einnig
mun skipulags- og byggingarfulltrúi vinna við
þau verkefni sem falla til hjá tækni- og um-
hverfissviði Vestmannaeyjabæjar. Æskilegt
er að umsækjandi hafi reynslu af byggingareft-
irliti og geti hafið störf sem fyrst. Umsóknar-
frestur er til 17. september 2001. Starfið hentar
jafnt konum sem körlum.
Nánari upplýsingar veita Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri, s. 488 2000 og Ingi Sigurðsson,
skipulags- og byggingafulltrúi, s. 488 5030.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf,
skal senda til Vestmannaeyjabæjar, Ráðhúsinu,
pósthólf 60, 902 Vestmannaeyjum.
Aðstoðarleikskólastjóri
og deildarstjóri óskast
Leikskólakennarar, þroskaþjálfar og kennarar.
Leikskólinn Álfahöllin, einkarekinn leikskóli
óskar eftir að ráða aðstoðarleikskólastjóra og
deildarstjóra. Álfahöllin er 4ra deilda leikskóli
með börn frá eins árs aldri. Unnið er eftir dag-
skipulagi þar sem hópastarf er stór liður. Leik-
skólinn stendur við Fossvoginn og stutt að fara
í gönguferðir. Fallegur leikskóli með mikið af
möguleikum. Starf fyrir manneskju með
metnað og stjórnunarhæfileika. Góð laun í boði
fyrir rétta manneskju. Einnig kemur til greina
að ráða fólk með mikla reynslu og námskeið
að baki.
Einnig óskum við eftir að ráða leikskólakennara
á leikskólann Barnabæ í Breiðholti. Leikskólinn
er 3ja deilda með 38 börn frá eins árs aldri.
Barnabær stendur í grónu umhverfi rétt við
Elliðaárdalinn. Upplýsingar gefa Sólveig leik-
skólastjóri eða Hulda rekstrarstjóri í síma
564 6266. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir
á funny@simnet.is .
Lyfjafræðingur
Apótek Vestmannaeyja óskar eftir að ráða lyfja-
fræðing í fullt starf sem fyrst. Starfið felst í
almennum lyfjafræðingsstörfum í apóteki.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til Apóteks
Vestmannaeyja, pósthólf 216, 900 Vestmanna-
eyjum.
Upplýsingar gefur Hanna María í s. 893 3141.