Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 14
14 C SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sýslumaðurinn á Ísafirði Laus staða lögreglumanns Tvær stöður lögreglumanna eru lausar til um- sóknar hjá lögreglunni á Ísafirði. Leitað er að mönnum með menntun frá Lögregluskóla ríkis- ins. (Heimilt að ráða þá sem ekki hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins í tímabundin störf í lögreglunni, ef enginn skólagenginn er tiltækur, að uppfylltum inngönguskilyrðum Lögregluskólans). Lögreglumenn - þarna er tækifærið að koma til liðs við gott og skemmtilegt lögreglulið. Það er mikil og góð breidd í starfinu á stað sem þessum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Landssam- bands lögreglumanna. Umsóknum skal skilað til undirritaðs eigi síðar en 10. september nk. Allar nánari upplýsingar veitir yfirlögregluþjónn í síma 456 4100. Sýslumaðurinn á Ísafirði Ólafur Helgi Kjartansson Starfsmaður í mötuneyti Laust er starf í mötuneyti starfsmanna Menntaskólans við Sund. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið felst í því að sjá um mötuneyti fyrir starfsmenn skólans og að annast innkaup. Reynsla og góð þekking á sviði mat- og framreiðslu er nauðsynleg. Leitað er að jákvæðum starfsmanni og lipr- um í samskiptum. Launakjör skv. kjara- samningum starfsmanna ríkisins. Umsóknir sendist í Menntaskólann við Sund, Gnoð- arvogi 43, 104 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veita rektor og fjármála- stjóri í símum 553 3419 og 553 7300. Rektor. Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa við sjúkrasvið Heilbrigðisstofn- unarinnar á Hvammstanga frá 15. sept. nk. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% starf á dag- og kvöldvökt- um, ásamt bakvöktum á næturnar og að hluta um helgar. Unnin er fjórða hver helgi. Á sjúkra- sviði eru 28 rúm fyrir hjúkrunar- og dvalar- heimilissjúklinga. Nánari upplýsingar veitir Helga Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri í s. 451 2345 og 451 2329, netfang helga@hghvammst.is. Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga. Ljósadeild Starfsmaður óskast í ljósadeild Þjóðleikhúss- ins. Laun fara eftir kjarasamningi SFR við ríkissjóð. Nánari upplýsingar veitir Páll Ragnarsson ljós- ameistari Þjóðleikhússins. Umsóknir merktar „Ljósadeild“ berist skrif- stofu Þjóðleikhússins, Lindargötu 7, fyrir 5. september nk. Tónlistarskóli Sandgerðis Málm- og tréblásturskennarar Staða málm- og tréblásturskennara er laus til umsóknar. Skriflegar umsóknir sendist til Bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Tjarnargötu 4, 245 Sandgerði. Nánari upplýsingar í símum 423 7360 og 899 6357. Skólastjóri. Íþróttafræðingar — íþróttakennarar Stjarnan óskar eftir að ráða íþróttakennara eða íþróttafræðing til að sjá um íþróttaskóla fyrir börn á aldrinum 3-5 ára. Þeir sem áhuga hafa, vinsamlegast sendið um- sóknir á skrifstofu Stjörnunnar í Stjörnu- heimilið við Ásgarð. Félagsfræðikennari óskast! Borgarholtsskóla vantar kennara strax í a.m.k. hálfa stöðu við kennslu í félagsgreinum. Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöð- um, en í umsókn skal gera grein fyrir menntun og fyrri störfum. Laun eru skv. kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra. Upplýsingar um störfin veita skólameistari og aðstoðarskólameistari í síma 535 1700. Umsóknir skulu berast Ólafi Sigurðssyni skóla- meistara, Borgarholtsskóla við Mosaveg, 112 Reykjavík. í síðasta lagi mánudaginn 3. septem- ber 2001. Skólameistari. A ug l. Þó rh ild ar 22 00 .1 01 Óskum eftir að ráða leikskólakennara eða leiðbeinanda að leikskólanum Sólbrekku á Seltjarnarnesi Skólaskrifstofa S E L T J A R N A R N E S B Æ R Nánari upplýsingar gefa Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Anna Stefánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 595 9291, solbrekka@selt jarnarnes. is, eða Krist jana Stefánsdótt i r leikskólafulltrúi í síma 595 9100, kristjana@seltjarnarnes.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra leikskólakennara og Launanefndar sveitarfélaga. Komið í heimsókn, hringið eða sendið okkur tölvupóst og kynnið ykkur skólastarfið. Skriflegar umsóknir berist leikskólunum eða Skólaskrifstofu Seltjarnarness fyrir 3. september nk. Listmunaverslun Starfskraftur óskast í fallega listmunaverslun. Gott lundarfar og falleg framkoma kostur. Framtíðarstarf. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Strax — 11531“, fyrir 30. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.